Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 11
VEL viðraði á dorgveiðimenn á
ísi lögðu Hólmavatni á Hallkels-
staðaheiði síðastliðinn laugardag.
Að sögn Sigurðar Þorlákssonar
veiðimanns var óvenjumargt um
manninn á vatninu, enda er veiði
talin góð í því og þá var veðrið
ekki til að fæla fólk frá. Einkum
er veidd bleikja í vatninu, sem
tekur aðallega á rækju, þótt
menn prófi líka aðrar tegundir
beitu.
Veiðileyfi eru seld á bænum
Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu í
Borgarfirði og er vel fært jeppum
um þessar mundir að vatninu frá
bænum. Ísinn á vatninu er um 70
cm þykkur og bora veiðimenn gat
á hann með handsnúnum bor. Síð-
an er kastað út og beðið eftir að
bíti á. Sumir eru heppnir við veið-
arnar, t.a.m. dró Sigurður og
hans fólk sjö bleikjur upp um ís-
inn á tveimur klukkustundum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Dorgveiði á
Hólmavatni
SIGURÐUR Oddur Ragnarsson,
bóndi á Oddastöðum í Lundar-
reykjadal í Borgarfirði, gekk nýlega
fram á átta dauð hross á Okinu. Sjö
af þeim voru í eigu Sigurðar. Hann
telur víst að hrossin, sem hafði verið
saknað frá því um áramótin, hafi
fælst við flugelda og tekið stefnuna
upp á fjall þar sem talið er að þau
hafi króknað.
Sigurður saknar enn sex hrossa
og er ekki vitað hvar þau eru nið-
urkomin. Hrossin voru á afrétt milli
jóla og nýárs. Um síðustu helgi fann
Snorri Jóhannesson á Auðarstöðum
mikla blóðslóð við rætur Oksins og
taldi hugsanlegt að hross hefði slas-
ast við að falla fram af öxl Oksins. Á
sunnudagsmorgni fór Sigurður við
þriðja mann til að vitja hestanna.
Fóru þeir upp á öxl Oksins og fundu
þar hræ sex hrossa hálf í kafi í snjó
og klaka. Tvö fundust síðan við ræt-
ur Oksins sem líklega hafa hrakist
undan veðri.
„Líklegasta skýringin er sú að þau
hafi farið þangað strax á gamlaárs-
kvöld. Það er eðli hrossa að hlaupa á
brattann þegar þau tryllast. Nokkur
dæmi eru um það. Þau hafa senni-
lega farið norðan við Oköxlina. Ég
hef trú á því að þegar þau trylltust
hafi þau hlaupið upp brattann sem er
500-600 metra klif. Þau hafa verið
sveitt í brunagaddi og norðanátt
þegar þau komu upp og ég trúi því að
þau hafi króknað,“ segir Sigurður.
Margra milljóna tjón
Hann segir að það hafi verið
óhugnanlegt að koma að hræjunum
og tjón hans er tilfinnanlegt. Þarna
voru miklir kynbótahestar, þar á
meðal fylfull hryssa undan Kolfinni,
og einnig reiðhestar. Tjónið nemur
nokkrum milljónum króna. Sigurður
gagnrýnir hina miklu skotgleði
landsmanna um áramót og segir að
þetta tíðkist hvergi í siðuðum lönd-
um.
Kom að hræjum
átta hesta á Oki
FJALLAÐ var um úrslit og vægi
kosninganna um framtíð Vatnsmýr-
arinnar og staðsetningu Reykjavík-
urflugvallar í borgarráði í gær og
lögðu bæði Sjálfstæðisflokkurinn og
Reykjavíkurlistinn fram bókanir um
málið. Í bókun Sjálfstæðisflokksins
segir m.a. að niðurstaðan sé engan
veginn bindandi en í bókun R-listans
er hins vegar talið eðlilegt að sú af-
staða sem kom fram á meðal borg-
arbúa í kosningunni endurspeglist í
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis-
ins.
„Þó að væntingar um þátttöku í
atkvæðagreiðslunni hafi ekki gengið
eftir er niðurstaðan engu að síður sú
að aldrei áður hafa jafnmargir
borgarbúar látið í ljós vilja sinn á
tilteknu borgarmáli með jafnafger-
andi hætti,“ segir í bókun R-listans.
Borgarráð samþykkti á fundi hinn
13. febrúar að niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar yrði bindandi að því
fullnægðu að 75% atkvæðabærra
manna tækju þátt í atkvæðagreiðsl-
unni eða að 50% atkvæðisbærra
manna greiddu öðrum valkostinum í
kosningunni atkvæði sitt.
Í bókun R-listans segir ennfrem-
ur: „Miðað við samþykkt borgarráðs
hinn 13. febrúar sl. er borgarstjóri
ekki bundinn af kosningaúrslitunum.
Í niðurstöðunni felst þó mikilvæg
leiðsögn til borgarfulltrúa um af-
stöðu meirihluta þeirra borgarbúa
sem nýttu sér lýðræðislegan rétt
sinn. Eðlilegt er að sú afstaða end-
urspeglist í svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins, sem nú er í und-
irbúningi og endurskoðuðu aðal-
skipulagi Reykjavíkurborgar eftir
árið 2016. Samhliða þeirri vinnu
hljóta að fara fram viðræður við
samgönguyfirvöld um frágang flug-
vallarsvæðisins og framtíðarstað-
setningu innanlandsflugsins á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Í bókun Sjálfstæðisflokksins segir
að úrslit atkvæðagreiðslunnar sé
mikill ósigur fyrir borgarstjóra sem
hefði lagt allt undir í málinu.
„Dræm þátttaka í atkvæðagreiðsl-
unni sýnir að borgarbúar sáu í gegn-
um það sjónarspil, sem R-listinn hef-
ur viðhaft í málinu. Auk þess skilar
atkvæðagreiðslan ekki marktækri
niðurstöðu,“ segir í bókuninni.
„Borgarráð samþykkti reglur fyrir-
fram um með hvaða hætti niðurstöð-
ur atkvæðagreiðslunnar gætu orðið
bindandi. Niðurstaðan er því víðs-
fjarri samþykktinni og telst engan
veginn bindandi. Leikreglum verður
ekki breytt eftir á. Það er siðferði-
lega rangt að vinna þvert gegn því
sem leikreglurnar kváðu á um. Við-
brögð borgarstjóra í fjölmiðlum eftir
að úrslit lágu fyrir eru til marks um
þau miklu vonbrigði, sem úrslitin
ollu samfylkingarmönnum innan R-
listans og jafnframt tilraun til að fela
þann ágreining sem nú er uppi hjá
meirihlutanum.“
Á fundinum í gær lagði Sjálfstæð-
isflokkurinn einnig fram fyrirspurn
um heildarkostnað borgarinnar af
atkvæðagreiðslunni, sem og kostnað
við gerð og dreifingu rits um fram-
tíðarborgina.
Deilt um úrslit og vægi flug-
vallarkosninga í borgarráði
UNGIR karlmenn voru í miklum
meirihluta þeirra sem sviptir voru
ökuréttindum á síðasta ári vegna
umferðarpunkta. Sjö af hverjum tíu
sem urðu að sjá á eftir ökuskírtein-
inu voru karlmenn á aldrinum 17-20
ára, 20% voru karlmenn á aldrinum
21-24 ára. Þetta kemur m.a. fram í
samantekt ríkislögreglustjóra á um-
ferðarpunktum og sektum.
Í fyrra sendi lögreglan í Reykjavík
út um 12.500 sektarboð og rúmlega
2000 sektargerðir. Ef sektarboð er
ekki greitt er það sent til héraðs-
dóms þar sem dómari staðfestir
sektina í flestum tilfellum. Sektin
kallast þá dómsáritað sektarboð.
Sektargerðum fjölgaði um 40% á síð-
asta ári en á yfirliti um innheimtu
sekta segir að aukningin helgist
fyrst og fremst af auknu eftirliti með
ölvunarakstri á síðasta ári.
Lögreglan í Reykjavík lagði á
sektir fyrir rúmlega 220 milljónir á
síðasta ári. Af þeim hafa tæplega 147
milljónir verið innheimtar. Það er 30
milljón króna aukning frá árinu
1999. Í yfirlitinu segir að álagning
sekta hafi verið sérstaklega mikil á
síðari hluta árs og því sé ekki búið að
láta reyna á innheimtu þeirra að
fullu. Sektirnar renna til ríkissjóðs.
182 sviptir ökuréttindum í fyrra
Ungir karlmenn
fá flesta punkta
!"
" #
# $%
%
#
# #
ÍSLANDSSÍMI hefur boðið við-
skiptavinum sínum upp á heimsend-
ingu á símum og símakorti þeim að
kostnaðarlausu, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Íslandssíma.
Þjónustan er boðin þeim sem
hringja í Íslandssíma og hefja far-
símaviðskipti við fyrirtækið. Ís-
landssími býður viðskiptavinum sín-
um heimsendingu samdægurs á
höfuðborgarsvæðinu ef hringt er
fyrir kl. 20.
Að sögn Péturs Péturssonar upp-
lýsinga- og kynningarfulltrúa Ís-
landssíma er ekki vitað til þess að
þessi þjónusta standi til boða annars
staðar í heiminum. Samið hefur ver-
ið við DXpress, nýtt hraðsendingar-
fyrirtæki, um að sinna þjónustunni
fyrir Íslandssíma. Hraðsendlarnir
sjá um að skipta um kort í símum, ef
nýr er ekki keyptur, og færa síma-
númer sem kunna að vera á gamla
símakortinu yfir á það nýja. Boðið er
upp á að greiða fyrir nýja símann
með greiðslukorti. Einnig er boðið
upp á nýja síma á sérstökum
greiðslukjörum eða léttgreiðslum.
Ná til 97% landsmanna
Íslandssími býður líka upp á heim-
sendingarþjónustu á landsbyggðinni
viðskiptavinum sínum að kostnaðar-
lausu. Þar mun Íslandspóstur sinna
afhendingu símakorta og síma.
Íslandssími rekur dreifikerfi á
höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og
í Eyjafirði. Á öðrum svæðum er veitt
þjónusta á kerfi Landssímans og er
Íslandssími því í stakk búinn að
þjóna 97% landsmanna.
Heim-
sendingar-
þjónusta á
símum og
kortum
Ný þjónusta Íslandssíma
HLJÓÐKERFI Félagsheimilisins
Gunnarshólma í Austur-Landeyjum
var stolið aðfaranótt sunnudags.
Samkomu í félagsheimilinu lauk
um kl. 4 um nóttina en þegar komið
var að húsinu kl. 9 um morguninn
hafði verið brotist þar inn.
Þjófarnir brutu rúðu í kjallara og
fóru síðan um skólabyggingu til að
komast inn í félagsheimilið. Þar tóku
þeir geislaspilara, magnara, segul-
band o.fl. Auk þess höfðu þeir á brott
með sér tvo stóra hátalara og fjóra
minni. Tjónið er metið á nokkur
hundruð þúsund krónur. Þjófarnir
brutu einnig upp peningakassa og
tóku þar talsverða fjárhæð.
Þeir sem gætu veitt upplýsingar
um málið eru beðnir um að hafa
samband við lögregluna á Hvolsvelli.
Hljóðkerfi stolið úr
félagsheimili
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sam-
fylkingarinnar hefur samþykkt að
landsfundur Samfylkingarinnar árið
2001 verði haldinn dagana 16.–18.
nóvember á Grand Hóteli í Reykja-
vík. Er þetta gert í anda samþykktar
stofnfundar sem kvað á um að fyrsti
eiginlegi landsfundur flokksins
skyldi haldinn nú í haust.
Vinna er nú þegar hafin við und-
irbúning landsfundarins og í undir-
búningsnefnd sitja; Ása Richards-
dóttir, Björgvin G. Sigurðsson,
Einar Már Sigurðarson, Ingvar
Sverrisson, Margrét S. Björnsdóttir
og Stefán Jón Hafstein.
Samfylkingin
Landsfundur
í nóvember