Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 25
SPURNINGIN um þjóðarstolt hef-
ur nú enn einu sinni orðið þýzkum
stjórnmálamönnum tilefni til æsi-
legrar umræðu, meira en hálfri öld
eftir endalok „Þriðja ríkisins“ og
áratug eftir sameiningu landsins.
Umhverfisráðherrann Jürgen
Trittin hrinti deilunni af stað er hann
í síðustu viku líkti Laurenz Meyer,
framkvæmdastjóra kristilegra
demókrata (CDU), við nýnazista fyr-
ir að hafa látið út úr sér að hann væri
stoltur af því að vera Þjóðverji.
Græninginn Trittin baðst afsökun-
ar á ummælunum en var fjarverandi
umræðu á þingi um málið á föstudag
og anzaði ekki kröfum úr röðum
stjórnarandstöðuþingmanna um að
hann segði af sér ráðherraembætti.
Johannes Rau, forseti Þýzkalands,
hellti olíu á eldinn þegar hann lýsti
því yfir að þýzkur borgari gæti verið
ánægður með að vera þýzkur, en
ekki stoltur. Forsetinn, sem gegnir
litlu öðru en táknrænu hlutverki í
þýzkum stjórnmálum og hefð er orð-
in fyrir að líta á sem eins konar mál-
pípu siðferðilegrar samvizku þjóðar-
innar, sagði að ekki væri rétt að
finna til stolts vegna þjóðernisins;
slíkt væri aðeins við hæfi þegar um
eigin afrek manna væri að ræða.
Thomas Goppel, framkvæmda-
stjóri CSU, hins bæverska systur-
flokks CDU, brást við þessum orðum
forsetans, sem er jafnaðarmaður,
með því að draga í efa að maður, sem
ekki segðist geta verið stoltur af
þjóðerni sínu, væri í réttu hlutverki
sem þjóðhöfðingi.
Gerhard Schröder kanzlari bland-
aði sér í umræðuna á mánudag, og
valdi orð sín greinilega af kostgæfni.
„Ég er stoltur af því sem íbúarnir
hafa áorkað og af hinni lýðræðislegu
menningu. Og á þennan hátt er ég
þýzkur föðurlandssinni, sem er stolt-
ur af landi sínu,“ sagði Schröder í
Süddeutsche Zeitung.
Hið áhrifaríka blað Frankfurter
Allgemeine Zeitung (FAZ) sagði
Trittin líta út fyrir að vera ein-
angraðan í „sjúklegri afneitun sinni
á föðurlandsást“ og benti á að æ
fleiri stjórnmálamenn, ekki aðeins á
hægri vængnum, leyfðu sér nú að
lýsa stolti af landi sínu. Að sögn
blaðsins er þetta afleiðing umræðu
sem spannst í fyrra út frá hugtakinu
„leiðandi menning“ („Leitkultur“),
sem einn af frammámönnum kristi-
legra demókrata sagði eðlilegt að
innflytjendur löguðu sig að.
Friedrich Merz, formaður þing-
flokks CDU á Sambandsþinginu í
Berlín, maðurinn sem kom af stað
deilunni um „leiðandi menninguna“,
hefur sagt að flokkurinn hyggist í
þessari viku leggja á þingi Rhein-
land-Pfalz fram tillögu um vantraust
á hendur Trittin umhverfisráðherra.
Að sögn Peter Lösche, prófessors
í stjórnmálafræði við háskólann í
Göttingen, er „daður“ frammá-
manna CDU við föðurlandsást og
þjóðarstolt til þess ætlað að vinna
flokknum atkvæði einkum í Baden-
Württemberg, þar sem hinn þjóð-
ernissinnaði Lýðveldisflokkur hefur
notið trausts fylgis um tíunda hvers
kjósanda síðustu kjörtímabilin.
Forseti sakaður um
skort á þjóðarstolti
Berlín. Reuters.
GRÍÐARSTÓR olíuborpallur bras-
ilíska ríkisolíufélagsins Petrobras
sökk í gær og var myndin tekin
skömmu áður en hann hvarf í Atl-
antshafið. Sprenging varð í einni af
stoðum pallsins í liðinni viku og er
vitað að tveir starfsmenn fórust,
átta að auki er enn saknað. Pall-
urinn, sem nefndur var P-36,
skemmdist mikið, hallinn varð um
30 gráður en sérfræðingar dældu
vetni í flothylki hans og tókst einn-
ig að fjarlægja um 4.100 tonn af
vatni úr pallinum. Slæmt veður
kom í veg fyrir frekari aðgerðir og
svo fór að hann sökk. Um 1,5 millj-
ónir lítra af olíu eru í pallinum og
óttast menn að olían geti valdið
miklum náttúruspjöllum þegar hún
lekur út í sjóinn.
Reuters
Borpallur sokkinn