Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 27
Verkefni embættisins hafa aukist
stöðugt með árunum og munu halda
áfram að vaxa. Athygli vekur að
starfsstöðvar embættis sýslumanns
eru á víð og dreif á svæðinu á alls sex
stöðum. „Okkar draumur er að
fækka þessum starfsstöðvum og
komast á einn stað,“ segir Jóhann.
Sprengjuleit
Að sögn hans taka gildi alþjóðleg-
ar reglur um sprengjuleit í öllum
brottfararfarangri í lok ársins 2002.
Hugsanlega verður þá einnig
skylt að gerð verði sprengjuleit í öll-
um farangri í tengiflugi. Þar yrði um
viðamikið verkefni að ræða, að sögn
Jóhanns, því þá þyrfti ekki aðeins að
fara fram vegabréfaskoðun á farþeg-
um frá Ameríku sem millilenda hér,
heldur leita að sprengjum í öllum
farangri. Taka þarf í notkun dýran
búnað þegar sprengjuleitin kemur
til framkvæmda sem áætlað hefur
verið að kosti nálægt 100 millj. kr.
„Vonandi mun þessi leit aðeins ná
til brottfararfarangurs, en það mun
skýrast á næstu mánuðum,“ segir
Jóhann.
Flugleiðir eru að byggja nýja
fraktmiðstöð á Keflavíkurflugvelli
sem mun einnig hafa miklar breyt-
ingar í för með sér fyrir embætti
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli. Í
dag fer öll tollafgreiðsla á fraktflugi
fram í Reykjavík en til umræðu er að
hugsanlega verði tollafgreiðsla á
allri flugfrakt flutt til Keflavíkur-
flugvallar í áföngum.
Mikil þjálfun og námskeið
vegna Schengen
Undirbúningur fyrir gildistöku
Schengen hefur verið mikill. Starfs-
menn hafa sótt námskeið og fengið
þjálfun m.a. í Lögregluskólanum,
sem hefur staðið fyrir stærsta
menntunarátaki á sviði löggæslu
sem ráðist hefur verið í undir styrkri
stjórn Arnars Guðmundssonar,
skólastjóra og Eiríks Hreins Helga-
sonar, yfirlögregluþjóns, að sögn Jó-
hanns. Skömmu eftir síðustu áramót
var Upplýsingakerfi Schengen svo
tekið í notkun við landamæraeftirlit
á Keflavíkurflugvelli og hafa landa-
mæraverðir fengið sérstaka þjálfun í
notkun þess og við að bera kennsl á
fölsuð skilríki o.fl.
Fullkominn tæknibúnaður
til skoðunar á skilríkjum
Miklar breytingar verða á starfs-
aðstöðu lögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli þegar nýja Suðurbygging
flugstöðvarinnar verður tekin í notk-
un. Þar hefur m.a. verið komið fyrir
fullkomnasta tæknibúnaði sem völ
er á í dag til skoðunar á ferðaskil-
ríkjum, með rafeindasmásjá, að-
gangi að gagnabanka o.fl. Tekinn
hefur verið í notkun sjálfvirkur
tölvulesari vegabréfa við landa-
mærahliðin, sem flettir sjálfkrafa
upp í Schengen-upplýsingakerfinu,
þar sem skráðir eru eftirlýstir menn,
óæskilegir útlendingar, fölsuð skil-
ríki o.fl. Gerir búnaðurinn viðvart ef
í ljós kemur að viðkomandi er skráð-
ur í gagnabanka Schengen-land-
anna.
„Aðgangurinn að upplýsingakerf-
inu er gríðarlega mikilvægur og öll
sú lögreglusamvinna sem fylgir þátt-
töku í Schengen,“ segir Jóhann.
„Sú nána samvinna fer fram í
gegnum upplýsingakerfið og ekki
síður með notkun handbóka sem not-
aðar eru í lögreglusamvinnu Scheng-
en-landanna. Við fáum beinan að-
gang að upplýsingum og verðum
með símanúmer hjá öllum starfs-
félögum á flugstöðvum innan alls
svæðisins og þurfum ekki að fara í
gegnum þungt miðstýrt kerfi með
fyrispurnir.
Nýlegt atvik sýnir hvað þetta get-
ur verið mikilvægt. Fyrir skömmu
kom maður frá Georgíu til Íslands á
finnsku vegabréfi. Lögreglumaður í
landamærahliðinu skoðaði vegabréf
ið en fann ekkert athugavert við það.
Hann hafði þó á tilfinningunni að
ekki væri allt eins og það ætti að
vera og tók því upp símann og
hringdi beint í starfsbróður sinn á
flugvellinum í Helsinki, sem fletti
manninum upp. Kom í ljós að hann
hefði gerst brotlegur við lög í Finn-
landi og skv. lýsingu væri maðurinn
með ör á upphandlegg. Það var
kannað en í ljós kom að hann var
ekki með ör. Maðurinn var þá tekinn
í yfirheyrslu þar sem hann játaði að
hann ætti ekki þetta vegabréf heldur
kunningi hans sem var nauðalíkur
honum. Hafði hann ætlað sér að
komast til Kanada á þessu vegabréfi.
Þetta gerðist allt á nokkrum mínút-
um en sýnir hversu mikilvægt það er
að eiga beinan aðgang að starfs-
bræðrum í flugstöðvum í öðrum
löndum,“ segir Jóhann.
Fíkniefnadeild
tollgæslunnar styrkt
Efri hæð nýbyggingar flugstöðv-
arinnar verður svokallað Schengen-
svæði, þ.e. fyrir flugfarþega sem
ferðast milli aðildarlanda Schengen.
Þeir munu ekki sæta neinu landa-
mæraeftirliti við komuna til lands-
ins. Margir hafa lýst áhyggjum af að
auðveldara verði að smygla fíkniefn-
um til landsins við niðurfellingu
vegabréfaeftirlits innan Schengen-
svæðisins.
Jóhann fullyrðir að í engu verði
dregið úr eftirliti með innflutningi
fíkniefna um Keflavíkurflugvöll
þrátt fyrir afnám persónueftirlits á
landamærum Schengen-landanna.
Eftirlitsmyndavélum
fjölgað
„Eðli málsins samkvæmt er erfitt
fyrir mig að segja frá því hvað við
ætlum að gera. Það hefur farið fram
óhemjumikið starf hér hjá embætt-
inu við að styrkja fíkniefnadeild toll-
gæslunnar. Þá má benda á að hluti
þeirrar þjálfunar sem menn fá við
landamæraeftirlit er hliðstæð þjálf-
un við fíkniefnaeftirlit. Víða erlendis
starfa þessar deildir saman. Fíkni-
efnadeildin hér hefur tekið fólk sem
grunað er um fíkniefnamisferli sem
hefur reynst vera ólöglegir innflytj-
endur og landamæraeftirlitið hefur
tekið menn sem grunaðir eru um að
vera ólölegir innflytjendur og komið
í ljós að eru að flytja fíkniefni. Ég tel
að öll sú þjálfun sem hefur farið fram
styrki okkur í þessu,“ segir hann.
Meðal aðgerða sem gripið verður
til er fjölgun eftirlitsmyndavéla í
flugstöðinni úr 24 í 64. „Verið er að
kanna kaup á fullkomnum hugbún-
aði sem tengdur verður við mynda-
vélakerfið. Búnaðurinn gefur ýmsa
möguleika við að hafa hendur í hári
brotamanna. Hugsa mætti sér að
eftirlýst fólk eða fólk í farbanni verði
sett inn í kerfið og ef það ber fyrir
vélarnar gefur búnaðurinn merki. Ef
af þessum kaupum verður, verður
vitaskuld fyrst að leita leyfis Per-
sónuverndar varðandi notkun. Þetta
er mjög spennandi mál og mun skýr-
ast á næstu vikum hvort af þessu
verður. Breska lögreglan er þegar
farin að nota þennan búnað með góð-
um árangri,“ segir Jóhann.
Geta tekið upp
landamæraeftirlit með
stuttum fyrirvara
Heimilt er skv. Schengen-samn-
ingnum að taka á ný upp tímabundið
landamæraeftirlit með farþegum
sem koma frá aðildarlöndum
Schengen ef þörf krefur. Að sögn
Jóhanns verður hægt að grípa til
slíkra ráðstafana með nánast engum
fyrirvara og láta farþegana fara í
gegnum landamærahliðin.
„Slíkt hafa önnur ríki gert ef að-
stæður krefjast og það sama munum
við gera,“ segir hann.
Í byrjun verður mögulegt að
manna 14 landamærahlið í flugstöð-
inni og segir Jóhann að með því sé
tryggt að framfylgja megi öruggu
eftirliti við vegabréfaskoðun án þess
að farþegar verði fyrir töfum, jafnvel
á mestu annatímum. Eftirlitsmynda-
vélar fylgist með farþegum við
landamærahliðin og ef biðraðir
myndast verði strax hægt að bregð-
ast við því með því að fjölga í hlið-
unum.
„Þessi flugvöllur verður vonandi
til fyrirmyndar sem tengiflugvöllur
inn í Evrópu,“ segir Jóhann R. Bene-
diktsson sýslumaður.
Morgunblaðið/Golli
Nýja suðurbyggingin er að hluta klædd með gleri og íslensku graníti.