Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 37
TÍUNDA einkasýning Katrínar
Sigurðardóttur fjallar um rými, eða
réttara sagt upplifun af óvenjulegu
rými. Hún hefur lengi kannað áhrif
mismunandi stærðarhlutfalla á
skynjun okkar svo sem þegar við
stöndum frammi fyrir módeli af
raunveruleikanum í smækkuðum
hlutföllum. Á Kjarvalsstöðum sýndi
hún minnkaðar myndir af hverfinu
norðan við safnið, og í Listasafni ASÍ
lágu akbrautir um allan salinn og upp
eftir veggjunum.
Þessi smækkaða mynd af veru-
leikanum virkar undarlega á okkur,
rétt eins og við værum ekki á staðn-
um nema til hálfs. Hér kemur til
stund og staður; tími og rými; og það
hvernig við skoðum tilveruna ætíð í
tengslum við staðsetningu okkar í
henni. Smækkuð mynd af henni verð-
ur ætíð í ætt við fjarlægð í tíma.
Hvergi kemur það betur í ljós en
þegar við horfum út um rúðu á flug-
vél sem hefur sig til flugs. Fjarlægðin
frá húsum og landslagi á jörðu niðri
virkar ekki aðeins sem víddarbrigði
heldur jafnframt sem tímabreytir.
Hjá Sævari Karli hefur Katrín
komið fyrir miklu smíðaverki inni í
salnum sem gestir ganga inn í sem
umhverfisverk í formi skýlis. Á þessu
völundarhúsi eru op sem leiða gesti
út fyrir hýsið þar sem tröppur á ýms-
um stöðum gefa honum tækifæri til
að skyggnast upp á þak byggingar-
innar. Þar uppi hefur Katrín nefni-
lega komið fyrir fjallalandslagi líku
því sem sjá má úr flugvél sem flýgur
yfir mörkum hafs og lands.
Með því að leiða gestinn upp
tröppur á ýmsum stöðum fær hann
mismunandi sjónarhorn á fjalla-
hringinn og upplifir misjafna dýpt-
arskynjun.
Raunverulegt loftið í sýningasaln-
um og skörp lýsingin eykur þessa
dýptarvirkni til muna svo engu er lík-
ara en fjarvíddin að hvarfpunkti sé
margir tugir kílómetra.
Þetta eru sérkennileg áhrif og
merkileg upplifun. Eins og við var að
búast er fjallalandslag Katrínar gert
með því næmi og þeirri fyrirhyggju
sem setur mark sitt á svo mörg verk
hennar. Þar fer saman einstök um-
hyggja fyrir smáatriðum andspænis
náttúrulegum hráleik undirstöðunn-
ar. Verkið verður í senn mjög voldugt
og stórskorið um leið og ákveðnir
hlutar þess eru fínlegir og nostur-
samlega mótaðir.
Tök Katrínar á margslunginni
formgerð umhverfisbyggingar sinn-
ar eru til marks um aukna vissu
hennar í sinni sök. Með því að tefla
saman margs konar víddum í einu og
sama verkinu opnar hún sér nýja leið
sem virðist í fljótu bragði bjóða upp á
óendanlega möguleika. Reyndar má
sjá í þessu verki óminn af fjalli því
sem hún gerði eitt sinn úr viðargrind
og teppi og hægt var að skoða að utan
sem innan. Hjá Sævari Karli virðast
allar forsendur þó ákveðnari og
snarpari. Verkið hittir í mark með
því að gefa gestinum tækifæri til að
upplifa merkilegt ferli með óvæntum
niðurstöðum við hvert fótmál.
Landslag undir rjáfri
Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson
Fjallalandslag Katrínar Sigurðardóttur frá ákveðnum sjónarhól í Gall-
eríi Sævars Karls. Skörp lýsing eykur dýptarvirknina til muna.
MYNDLIST
G a l l e r í S æ v a r s K a r l s
Til 29. mars.
Opið á verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI –
KATRÍN SIGURÐAR-
DÓTTIR
Halldór Björn Runólfsson
HRAFNKELS saga Freysgoða er
komin út í skólaútgáfu og er miðuð
við grunnskólann. Í bókinni eru ítar-
legri orðskýring-
ar en áður hafa
tíðkast og fjölda-
mörg verkefni af
ýmsu tagi fylgja
hverjum kafla, s.s.
eftirspurningar
og kortagerðar-
verkefni sem
miða að því að
nemendur geti
gert sér grein fyr-
ir því hvar sagan gerist og hvernig
sögusviðið færist frá einum lands-
hluta til annars. Hverjum kafla fylgir
líka umræðuefni þar sem álitamál úr
sögunni eru tekin til skoðunar. Bók-
inni lýkur á eftirmála þar sem fjallað
er um fornritin og sögu þeirra og síð-
an er þar umfjöllun um Hrafnkels
sögu sérstaklega.
Bókinni fylgir kennarahandbók
sem er tæpar 90 bls. Þar er fyrst
fjallað um kennslu fornsagna í grunn-
skólum á Íslandi og vitnað í námskrár
sem komið hafa út eftir miðja 20. öld.
Þá er kafli um sérstöðu þessarar
skólaútgáfu. Í þriðja kaflanum er
sagt frá helstu kennsluaðferðum sem
hentað gætu við kennslu sögunnar og
fjórði kaflinn er um verkefni í bókinni
og hvernig best sé að gera þeim skil.
Þar er vísað í fjölda heimilda.
Kennarahandbókinni fylgja 12
kort sem ætlast er til að séu ljósrituð
fyrir nemendur.
Útgefandi er Iðnú – bókaútgáfa.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson sá um út-
gáfuna. Kennslubókin er 114 bls.
Nýjar bækur
Ragnar Ingi
Aðalsteinsson