Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert umhyggjusamur um
aðra en þarft að vera vand-
látari í vali á vinum þínum
því sumir kunna ekki að
leggja vináttu sína á móti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinir og vandamenn leggjast
á eitt um að aðstoða þig og þú
uppskerð nú þá hlýju og vin-
arhug sem þú hefur sýnt þeim
á liðnum tímum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver vandamál skjóta upp
kollinum í vinnunni og geta
leitt til einhverrar valdabar-
áttu. Hafðu bara þitt á hreinu
því við þér hreyfir enginn eins
og stendur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú getur þú ekki lengur vik-
ist undan því að setjast niður
og gera einhverjar áætlanir
um framtíðina. Það gengur
ekki lengur að láta bara reka
á reiðanum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Við sumar ákvarðanir fer bet-
ur á því að láta hugann ráða
en hjartað þegar þú sérð hlut-
ina í skýru ljósi þá veistu að
þú ert að gera rétt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Sambönd þín við aðra taka
sinn toll þessa dagana en það
mun létta til þegar fram líða
stundir. Skoðanaskipti eru
eðlileg.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér er óhætt að slaka svolítið
á því þótt starfið sé margt þá
er alltaf nauðsynlegt að gefa
sér tíma til þess að staldra við
og líta á broslegu hliðarnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ástæðulaust að leggja
árar í bát þótt aðrir skilji ekki
fullkomlega hvað þú ert að
fara. Leyfðu sköpunarþránni
að njóta sín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er sjálfsagt að hlusta það
sem aðrir hafa fram að færa
en fyrst og síðast verður þú að
taka ákvörðun samkvæmt því
sem þú sjálfur veist best og
réttast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það væri gráupplagt að geta
varið deginum með sjálfum
sér svo ef þú getur laumast
afsíðis þá skaltu gera það en
annars reyna að finna þér
skjól í erli dagsins.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert svolítið uppi í skýjun-
um þessa dagana og ættir því
að finna þér leið niður á jörð-
ina aftur. Að öðrum kosti áttu
á hættu að starf þitt skili sér
engan veginn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er gott og blessað að setja
sér takmörk í lífinu en þá því
aðeins að menn keppi að þeim
með drengilegum hætti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér berast nú allskyns skila-
boð úr öllum áttum og ættir
að íhuga þau því það er aldrei
að vita hvar sannleikurinn
liggur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
Í MIÐJU spili þarf sagnhafi
að velja á milli leiða. Hann
hefur ekki fullkomna taln-
ingu á spilum varnarinnar,
en útspil vesturs er þýðing-
armikil vísbending:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 43
♥ D942
♦ 83
♣ K654
Vestur Austur
♠ K107 ♠ –
♥ G10765 ♥ ÁK83
♦ D109 ♦ G652
♣ D7 ♣ G10832
Suður
♠ ÁDG9865
♥ –
♦ ÁK74
♣ Á9
Vestur Norður Austur Suður
– – – lauf *
Pass 2 tíglar Pass 2 spaðar
Pass 3 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
* Alkrafa.
Útspil: Hjartagosi.
Þetta er mjög góð
slemma og borðleggjandi ef
spaðinn skiptist 2–1. Suður
trompar útspilið og leggur
niður spaðaás. Ef báðir
fylgja er hugmyndin að
stinga tvo tígla í borði.
En svo sem auðvitað er
trompið allt á sömu hendi.
Það þýðir að vestur gæti
fengið tvo slagi á spaða ef
sagnhafi reynir að stinga
tígul tvisvar. Nú, jæja; það
er ekki um annað að ræða
en taka ÁK í tígli og trompa
tígul. Og trompa hjarta
heim.
Nú er spurningin þessi: Á
að spila fjórða tíglinum í
þeirri von að vestur fylgi lit,
eða reikna með tígulgosan-
um í austur og vona að hann
eigi líka a.m.k. fimmlit í
laufi – en þá má þvinga hann
í láglitunum með því að spila
trompunum til enda?
Svarið liggur í útspilinu.
Vestur hefur fylgt lit í tígli
með D109. Ef hann ætti
gosann líka myndi hann
áreiðanlega hafa komið þar
út, ekki satt? DG109 í
ósögðum lit er einfaldlega
betra útspil en hjartagosi
frá G10.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21.
mars, verður sjötugur Karl
Hafsteinn Pétursson, fyrr-
verandi bóndi og leigubif-
reiðastjóri, Hátúni 12,
Reykjavík. Karl býður vin-
um og vandamönnum að
gleðjast með sér í félags-
heimili Sjálfsbjargar að Há-
túni 12 í Reykjavík, laugar-
daginn 24. mars frá kl. 18:00.
50 ÁRA afmæli. Í gær,þriðjudaginn 20.
mars, varð fimmtug Sólveig
Þorleifsdóttir. Hún og eig-
inmaður hennar, Hrafn
Baldvins Hauksson, taka á
móti gestum nk. laugardag
24. mars í Síðumúla 35 kl.
18-22.
STAÐAN kom upp á Ís-
landsmóti skákfélaga sem
lauk fyrir skömmu. Þorvald-
ur Logason (2085) sem er í
vaskri B-sveit Hellis stýrði
hvítu mönnunum gegn
Rúnari Sigurpálssyni
(2180). 28. Hxf8! Kxf8 29.
Dd8+ Kg7 30. Bxc5 og
svartur gafst upp enda
stutt í mátið þar sem t.d.
hefði 30...He6 engu bjarg-
að sökum 31. Bf8+ Kg8 32.
Bh6+ og hvítur mátar í
næsta leik. Gríðarleg
spenna var í fyrstu deild
Íslandsmótsins og réðust
úrslitin ekki fyrr en á síð-
ustu stundu. Taflfélag
Reykjavíkur stóð uppi sem
sigurvegari og skeikaði
einungis hálfum vinningi
að Taflfélaginu Helli tæk-
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ist að verja titilinn þriðja ár-
ið í röð. Lokastaða fyrstu
deildar varð þessi: 1. Tafl-
félag Reykjavíkur a-sveit 43
vinningar af 56 mögulegum.
2. Taflfélagið Hellir a-sveit
42½ v. 3. Skákfélag Akur-
eyrar a-sveit 32½ v. 4. Skák-
félag Hafnarfjarðar a-sveit
24½ v. 5.–6. Taflfélagið
Hellir b-sveit og Taflfélag
Reykjavíkur b-sveit 24 v. 7.
Taflfélag Kópavogs a-sveit
18 v. 8. Taflfélag Garða-
bæjar a-sveit 15½ v.
LJÓÐABROT
HULDULJÓÐ
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Prýðið þér lengi landið það,
sem lifandi guð hefur fundið stað
ástarsælan, því ástin hans
alstaðar fyllir þarfir manns.
Vissi ég áður voruð þér
vallarstjörnur um breiða grund,
fegurstu leiðarljósin mér.
Lék ég að yður marga stund.
Nú hef ég sjóinn séð um hríð
og sílalætin smá og tíð.
Munurinn raunar enginn er,
því allt um lífið vitni ber.
– – –
Smávinir fagrir, foldar skart,
finn ég yður öll í haganum enn.
Veitt hefur Fróni mikið og margt
miskunnar faðir. En blindir menn
meta það aldrei eins og ber,
unna því lítt, sem fagurt er,
telja sér lítinn yndisarð
að annast blómgaðan jurtagarð.
Jónas Hallgrímsson.
Gay Sanalitro óskar
eftir íslenskum penna-
vinum. Áhugamál hans
eru frímerkjasöfnun
og að fá að vita meira
um Ísland.
Guy Sanalitro,
Apt. 310
126 Day St.
Bloomingdale,
IL 60108,
USA
Gertrude Ackon
Annan, sem er 24 ára
gömul kona frá Ghana,
óskar eftir íslenskum
pennavini. Áhugamál
hennar eru m.a. tón-
list.
Gertrude Ackon
Annan,
Forson Street,
Cape Coast,
Ghana.
Pina Borzi, sem er
fertugur Ítali, óskar
eftir íslenskum penna-
vini á svipuðum aldri.
Áhugamál hans eru
kvikmyndir, tónlist,
bækur og Netið.
Pina Borzi,
C.P. 34
98060 San Giorgio
di G. Marea,
ME Italy.
Pennavinir
Taktu til í herberg-
inu þínu!
Hvaða aumingi sem er
skilur þetta, Jónas.
Með morgunkaffinu
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Fermingarmyndatökur
Erling Ó. Aðalsteinsson
Ljósmyndastofa
Laugavegi 24, sími 552 0624
Pantanir í síma 552 0624
frá kl. 13-18
alltaf á sunnudögum
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
3. flokkur, 20. mars 2001
Kr. 1.000.000,-
4999B
10081F
12022B
12666B
14578B
21688B
24257G
41191F
50311H
57561E
LAUGAVEGI 36
Opnaðu
augun
30% verðlækkun
á öllum
gleraugnaumgjörðum
& glerjum.
Ertu haldin síþreytu,
svefntruflunum eða sjúkdómum
sem læknavísindin ráða illa við?
Losaðu þið við rafbylgjur og ryk í íbúðinni.
Árangurinn gæti komið þér á óvart.
Upplýsingar gefur Hreiðar Jónsson
í síma 581 1008 eða 862 6464.
Ný sending
Amerískar værðarvoðir og púðar
Pantanir óskast sóttar
LAUGAVEGI 64, SÍMI 552 5100