Morgunblaðið - 21.03.2001, Qupperneq 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 57
spennandi nám að hef jast
Kvikmyndaskóli Íslands býður nú, einn skóla á Íslandi, upp
á raunhæft alhliða og sértækt nám í kvikmyndagerð og tengdum
greinum sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðar. Öflugur tækjakostur
og hæfir kennarar og leiðbeinendur gera nemendum skólans
kleift að mynda traustan grunn kunnáttu og færni sem opnar
þeim dyrnar að tækifærum í ört vaxandi heimi myndmiðla og
margmiðlunar. Kvikmyndaskóli Íslands leggur ríka áherslu á
að kenna nemendum ekki eingöngu á nýjustu tækni heldur
einnig að tileinka sér hugmyndafræði og lögmál hinna ýmsu
myndmiðla. Einungis þannig nýtist tæknin sem tæki til að gera
hugmyndir að veruleika.
Kvikmyndagerð
Sjónvarpsþættir, heimildarmyndir, tónlistarmyndbönd, auglýsingar,
margmiðlun, tilraunamyndir.
Kvikmyndataka, klipping, hljóðvinnsla. Námið er 80% verklegt.
Örfá sæti laus í 4 mánaða grunnnám sem hefst
26. mars.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 588 2720
Kvikmyndaskóli Íslands
Skúlagötu 51, 101 Reykjavík
kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is
kvikmyndagerð
Enn getum við bætt við nokkrum nemendum
í neðangreint námskeið á vorönn:
Útgáfu tón le ikar
EGILS ÓLAFSSONAR
verða á Gauki á Stöng í kvöld,
miðvikudag, kl. 22 vegna
útkomu nýrrar geislaplötu
„Angelus novus“
Hljóðfæraleikarar: Guðmundur Pétursson,
Eyþór Gunnarsson, Kristjana Stefánsdóttir,
Mattías Hemstock, Haraldur Þorsteinsson
og Stefán S. Stefánsson.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Á MÁNUDAGINN fór eina ólöglega
íþróttalandsliðið af landi brott til
þess að stunda íþrótt sína í landi sem
viðurkennir þá sem íþróttamenn.
Tuttugu manna hópur samansettur
af íslenskum hnefaleikaköppum,
þjálfurum og aðstoðarfólki lagði af
stað til Deuluth í Minnesota til þess
að skiptast á höggum við heimamenn
í hringnum. En hvað, verða þeir ekki
með neitt stuðningslið?
„Nei, reyndar ekki, við reynum að
hvetja hver annan þegar færi gefst,“
segir Jón Páll Leifsson, landsliðs-
maður í ólympískum hnefaleikum.
„Ég vona nú að það verði einhverjir
þarna á okkar bandi, þetta er Skand-
inavíubyggð. Þeir eru t.d. með Leif
Eiríksson park þar sem við verðum.
Þannig að þetta eru mjög fjarskyldir
frændur okkar sem verða þarna.
Kannski finna þeir fyrir þörf til þess
að hvetja sína fjarskyldustu.“
Hræðsla við hið óþekkta
Nú er bannað að æfa hnefaleika á
Íslandi, eruð þið búnir að vera boxa
mikið við skuggann?
„Já, og svo höfum við nú
æft okkur á hvor öðrum
mjúklega þegar eng-
inn sér. Það er mis-
jafnt hversu lengi
menn eru búnir að
æfa. Ég er búinn að
æfa í nokkur ár en
hef ekki haft nein
ákveðin markmið til
þess að stefna að. Við
teljum okkur vera
nokkuð undirbúna fyrir
eitthvað sem við vitum
ekki alveg hvað verður.“
Hver er helsti styrkleiki
liðsins?
„Það er mjög erfitt að
segja, okkar lið er náttúru-
lega reynslulaust með
öllu. Við erum að
keppa við
stráka
sem
eru fylkismeistarar. Við erum m.a. að
fara í þessa ferð til þess að komast
að því hverjir styrkir og
veikleikar liðsins eru.“
Er kominn
skrekkur í liðið?
„Já, ef ég svara
fyrir sjálfan mig,
óneitanlega. Ég
held að það sé
bara hollt. Það er
bara vonandi að
maður nái að
nýta það í
hringnum. Við
erum að fara á
móti mun
reynslumeiri
strákum og
keppnisreynsl-
an vegur mjög
þungt í hnefa-
leikum. Þetta eru líka okkar fyrstu
leikir og það er óneitanlega hræðsla
við það sem maður þekkir ekki.“
Hvernig fer keppnin fram?
„Það er búið að setja upp tvö kvöld
fyrir keppnina, á miðvikudag og á
föstudag. Hver keppandi keppir einn
leik hvort kvöld, þannig að það skipt-
ir ekki máli hvort þú vinnu eða tapar.
Það fá allir fá annað tækifæri á föstu-
daginn.“
Er þetta þá eins konar stigakeppni
á milli liðanna?
„Þetta er nú ekki mjög formlegt.
Þetta er ekki skráð sem opinber bar-
dagakeppni þar sem hnefaleikar á Ís-
landi eru bannaðir. Yfirleitt vinnast
ólympískir hnefaleikar á stigum. Við
förum út til þess að vinna, gerum allt
til þess. Við gerum líka ráð fyrir því
að hinir sem mæta í hringinn séu líka
þangað komnir til þess að vinna sína
leiki, ég efast um að menn verði of
vinalegir í hringnum þrátt fyrir að til-
gangurinn með þessu sé að öðlast
meiri reynslu en ekki að drepa
einhvern. Við erum líka að fara í
þessa ferð til þess að mótmæla þessu
banni á ólympískum hnefaleikum.
Þetta verður sett upp sem keppni og
ég geri ekkert ráð fyrir því að þeir
fari að hlífa okkur neitt sérstaklega.
Enda vita þeir ekki betur en að það
sé heilt landslið á leiðinni til þeirra og
hver vill ekki leggja landslið.“
Barist við þingmenn
og fáfræði
Af hverju sjáum við ekki ólymp-
íska hnefaleika í sjónvarpinu?
„Það eru náttúrulega miklu meiri
peningar í atvinnumannahnefaleik-
um en ólympískum. Þar sem það eru
engar grímur í atvinnumannahnefa-
leikunum og allt mun grófara þá gef-
ur það miklu meiri peninga af sér.
Það er ekki það sem við erum að fara
að gera. Við erum að fara að keppa í
ólympískum hnefaleikum og það
myndu margir segja að það sé miklu
meiri íþrótt en atvinnumannahnefa-
leikar. Miklu færri meiðsli og strang-
ari reglur. Þar af leiðandi minna
áhugavert sem sjónvarpsefni fyrir
marga.“
Eruð þið að ímynda ykkur þegar
þið eruð í hringnum að þið séuð í
rauninni að berjast við þingmenn?
„Nei, ég held að það sé best að
kljást við þingmenn á þeirra leik-
vangi, þ.e.a.s. með orðum. Ég sé ekki
fyrir mér neinn sérstakan þingmann
eða -konu á bak við grímuna á þeim
andstæðingi sem ég keppi við. Ég
held að það sé bara betra að tala við
þá í rólegheitum og útskýra fyrir
þeim muninn á ólympískum og at-
vinnumannahnefaleikum. Fara yfir
með þeim lið fyrir lið það óréttlæti
sem okkur finnst við vera beittir með
því að banna þessa íþrótt sem er alls
staðar annars staðar leyfð,“ segir Jón
Páll að lokum.
Það eru skiptar skoðanir á Íslandi á hnefa-
leikum. Birgir Örn Steinarsson ræddi við
Jón Pál Leifsson sem nú er staddur í
Bandaríkjunum að keppa í Íslands nafni í
þessari bönnuðu íþrótt.
Íslenski hnefaleikahópurinn er lagður af stað til Bandaríkjanna
Ekkert mál
fyrir Jón Pál?