Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FLUGMÁLASTJÓRI hefur í bréfi
til samgönguráðherra komist að
þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða
til að segja upp flugrekstrarleyfi
eða samningum samgönguráðu-
neytisins um áætlunarflug við
Leiguflug Ísleifs Ottesen, LÍO,
þrátt fyrir þær ávirðingar á hendur
félaginu sem fram koma í skýrslu
Rannsóknarnefndar flugslysa um
flugslysið í Skerjafirði 7. ágúst
2000.
Ráðherra bað um umsögn Flug-
málastjórnar og í tilefni þess fór
fram sérstök úttekt á LÍO dagana
27. og 28. þessa mánaðar. Tekið var
á tæpum 50 atriðinum í rekstrin-
um, allt frá viðhaldssamningum,
farþegalistum til þjálfunar í neyð-
artilvikum. Vart varð nokkurra
frávika, eins og það er orðað, en
ekkert þeirra var talið nógu alvar-
legt til að svipta félagið leyfi eða
segja upp samningum um áætlun-
arflug. Markvisst hafði verið unnið
frá því í haust að bæta stjórn flug-
rekstrarins með tilliti til flugörygg-
is. Áfram verður þó fylgst með
rekstri flugrekandans og frekari
úttektir gerðar.
Alvarlegar ávirðingar á flug-
rekstrarstjóra LÍO
Hins vegar kemur fram í svari
flugmálastjóra til ráðherra að þær
ávirðingar sem hafa verið bornar á
flugrekstrarstjóra LÍO, vegna
flugs milli Eyja og Selfoss sama
dag og slysið varð í Skerjafirði í
fyrra, séu svo alvarlegar „að til
hæfisbrests hans til að gegna
þessu starfi kann að koma“. Bent
er á að hæfisbrestur flugrekstrar-
stjóra leiði af sér afturköllun á
flugrekendaskírteini félagsins,
nema að nýr verði til þess ráðinn
og þá aðili sem Flugmálastjórn
samþykkir og getur borið óskorað
traust til.
Í bréfi til samgönguráðherra
kemur jafnframt fram að allt frá
því að slysið varð í Skerjafirði hafi
legið fyrir að flugrekandinn, LÍO,
hafi ekki fylgt nægjanlega gildandi
starfsreglum. Til dæmis hafi leið-
arflugáætlanir ekki verið gerðar. Í
þessu felist alvarleg vanræksla á
faglegum grundvallarþætti í flug-
rekstri, eins og flugmálastjóri
orðar það í bréfinu.
Bréfið til ráðherra var kynnt á
fundi með blaðamönnum síðdegis í
gær um leið og greinargerð Flug-
málastjórnar vegna flugslyssins í
Skerjafirði var lögð fram. Í grein-
argerðinni, sem birt er í heild sinni
á bls. 34-37 í blaðinu í dag, eru rak-
in afskipti Flugmálastjórnar af
flugvélinni sem fórst í Skerjafirði
og af flugrekandanum, LÍÓ. Þar
kemur m.a. fram að útekt hafi ver-
ið gerð á flugrekstri LÍO í janúar
1998 og voru þá engar alvarlegar
athugasemdir gerðar. Þau atriði
sem gerðar voru athugasemdir við
lagfærði flugrekandinn fljótlega,
samkvæmt greinargerðinni. Í júlí
1999 voru tvívegis höfð formleg af-
skipti af rekstri LÍO og í þriðja
sinn í október sama ár. Á þessu
tímabili voru töluverð óbein af-
skipti af rekstrinum vegna gerðar
nýrrar flugrekstrarhandbókar. Þá
voru tvær úttektir gerðar hjá
tæknistjóra félagsins varðandi við-
haldsmál á árinu 1999 svo og ein
árið 2000 sem úttektarlið á vegum
Flugöryggissamtaka Evrópu, JAA,
tók einnig þátt í. Á sama tíma gerði
JAA úttekt á flugöryggissviði
Flugmálastjórnar þar sem niður-
stöður reyndust jákvæðar.
Á blaðamannafundinum kom
fram í máli Þorgeirs Pálssonar
flugmálastjóra að strax í kjölfar
flugslyssins hefði eftirlit með
litlum flugrekendum verið hert.
Álagið á stofnunina væri hins veg-
ar mikið og full þörf væri að fjölga í
starfsliði flugmálastjóra. Þorgeir
sagði fjárlagavaldinu hafa verið
bent á þetta undanfarin ár en við-
brögð ekki verið mikil. Hann sagði
11 starfsmenn Flugmálastjórnar,
auk eins til viðbótar í hlutastarfi,
hafa eftirlit með lofthæfi og við-
haldi 43 stærri flugvéla og 27 minni
véla hjá 14 flugrekendum. Þá hefði
Flugmálastjórn eftirlit með hand-
höfum ríflega 2.500 flugskírteina.
Þorgeir sagði starfsemi Flugmála-
stjórnar í öryggismálum jafnast á
við það besta sem þekktist í heim-
inum en alltaf mætti auka og bæta
eftirlit með flugvélum. Hann von-
aðist til þess að það yrði gert. Þá
sagði flugmálastjóri að skýrar regl-
ur væru ekki til um það hvenær
hægt væri að svipta flugrekanda
leyfi. Það væri matsatriði í hvert
sinn.
Í greinargerðinni kemur einnig
fram að viku fyrir slysið fór flugvél
LÍO í 50 tíma skoðun. Helstu kerfi
hennar voru skoðuð, loftsía og
kerti hreinsuð og prófuð, skipt um
olíusíu og ýmislegt annað yfirfarið.
Engar bilanir höfðu verið skráðar í
gögn flugvélarinnar né tilkynntar
til Flugmálastjórnar. Þá kemur
fram í greinargerðinni að á vegum
Flugmálastjórnar voru 7 menn að
störfum á Þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum. Þorgeir sagði að
meginhlutverk þeirra hefði verið
að stjórna umferð fólks á flughlaði
og í flugstöðinni sem og að líta eftir
því hvort flugmenn án flugréttinda
væru að fljúga með fólk gegn
gjaldi. Þorgeir sagði að því miður
kæmu upp nokkur slík tilvik, sem
ástæða hefði verið til að fylgjast
sérstaklega með.
Ráðherrar tjá sig ekki
Heilbrigðisráðherra leitaði, líkt
og samgönguráðherra, umsagnar
Flugmálastjórnar vegna samninga
um sjúkraflug við LÍO. Þegar leit-
að var viðbragða ráðherranna við
greinargerð og svörum Flugmála-
stjórnar í gærkvöldi fengust þau
svör að þeir myndu ekki tjá sig fyrr
en að loknu samráði við embætt-
ismenn í ráðuneytunum. Yfirlýs-
inga væri að vænta frá þeim í dag.
Ekki leyfissvipting þrátt
fyrir alvarlega vanrækslu
Morgunblaðið/Ásdís
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri kynnir greinargerð Flugmálastjórnar og við hlið hans er Pétur Maack,
framkvæmdastjóri flugöryggissviðs stofnunarinnar.
Flugmálastjórn leggur fram greinargerð um flugslysið
í Skerjafirði og svar til samgönguráðherra um rekstur LÍO
ÍSLEIFUR Ottesen, eigandi
Leiguflugs Ísleifs Ottesen, LÍO,
kom til landsins frá Bandaríkjun-
um í gær og átti fund í gærkvöldi
með starfsmönnum sínum.
Að þeim fundi loknum sagði Ís-
leifur í samtali við Morgunblaðið
að hann ætlaði á þessu stigi ekki
að tjá sig efnislega um greinar-
gerð Flugmálastjórnar eða svar-
bréf flugmálastjóra til samgöngu-
ráðherra. Ísleifur sagðist vera að
meta stöðuna og hann ætti eftir að
hitta fleiri aðila að máli í dag og
ráðfæra sig við þá. Að því loknu
yrðu frekari viðbrögð ákveðin og
gefin upp.
Aðspurður um áhrif eftirmála
flugslyssins á rekstur LÍO sagði
Ísleifur málið í heild sinni vera
orðið farsakennt.
„Ljóst er að minn rekstur hefur
beðið alvarlegan hnekki og víða er
beint spjótum að honum. Það
hlýtur að vera alvarlegt fyrir
hvaða fyrirtæki sem er, og sér-
staklega í jafnviðkvæmum flutn-
ingi, að verða fyrir ítrekuðum
árásum.
Þetta eru mikilsverðir hagsmun-
ir og líf starfsmanna í húfi. Það er
sorglegt hvernig fjölmiðlar hafa
farið höndum um þetta mál með
algjörlega órökstuddum dylgjum
og án þess að hirða um það að
leita svara.
Þetta er mikill harmleikur en
hefur snúist upp í fjölmiðlafarsa
sem ég hef ekki viljað taka þátt í,“
sagði Ísleifur.
Flugrekstrarstjórinn
enn að störfum
Í svarbréfi flugmálastjóra til
samgönguráðherra er vikið að máli
flugrekstrarstjóra LÍO vegna til-
tekinnar flugferðar félagsins sama
dag og flugslysið varð í Skerja-
firði. Talar flugmálastjóri um að
ávirðingarnar séu það alvarlegar
að til hæfisbrests kunni að koma.
Aðspurður hvort viðkomandi flug-
rekstrarstjóri væri enn að störfum
hjá félaginu sagði Ísleifur svo
vera. Hans mál væru í skoðun og
félagið væri ekki að takast á við
það á þessu stigi.
Ísleifur Ottesen kominn til landsins
Minn rekstur hefur
beðið alvarlegan hnekki
FRIÐRIK Þór Guðmundsson, fað-
ir eins fórnarlamba flugslyssins í
Skerjafirði, sem farið hefur sjálfur
ofan í saumana á
málinu, fékk að
vera viðstaddur
blaðamannafund
Flugmálastjórn-
ar í gær. Að
fundi loknum
sagði hann við
Morgunblaðið að
við fyrstu sýn
virtist greinar-
gerðin vera al-
mennur fróðleik-
ur um starfsemi Flugmálastjórnar
við eðlilegar aðstæður. Ekkert
nema gott væri um það að segja en
það gilti ekki við óeðlilegar að-
stæður sem þessar.
Höfum gagnrýnt
skráningarmál
„Við höfum gagnrýnt skráning-
armál flugvélarinnar og ég hef
ekki komið auga á það í grein-
argerðinni að athugasemdum okk-
ar sé svarað öðruvísi en að allt hafi
verið í lagi. Svo var ekki. Ef papp-
írarnir væru prófúrlausn þá væri
nemandinn fallinn,“ sagði Friðrik
Þór.
Hann sagði að varðandi eftirlit
Flugmálastjórnar á Þjóðhátíðinni í
Eyjum væri það enn verra en hann
hélt, samkvæmt greinargerðinni.
Alls hefðu verið 11–12 manns í eft-
irlitinu, ásamt tveimur sérþjálfuð-
um lögreglumönnum.
„Það er mikill áfellisdómur að
svona sveit manna skuli ekki hafa
með nærveru sinni komið í veg fyr-
ir það sem gerðist fyrr og síðar
þennan dag sem slysið varð,“ sagði
Friðrik Þór.
Ábyrgð sé komið
á réttar hillur
Hann sagði það aukaatriði í sín-
um huga að flugmálastjóri svipti
einhvern leyfi á þessari stundu.
Hann hefði talið það sjálfgefið að
svipta viðkomandi flugrekanda,
LÍO, öllum leyfum.
„Hafi flugmálastjóri ekki úrræði
til þess er það athyglisvert og
væntanlega þarf að bregðast við
því. Aðalatriðið í mínum huga er
aftur á móti að allri ábyrgð sé
komið á réttar hillur.“
Friðrik Þór Guðmunds-
son um greinargerð
Flugmálastjórnar
Nemandinn
fallinn ef
pappírarnir
væru próf-
úrlausn
Friðrik Þór
Guðmundson