Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunverðarfundur Umhverfis
Samfélag þekk-
ingar og þjónustu
Morgunverðarfund-ur verður haldinnnú klukkan 8.30 í
Gyllta salnum á Hótel
Borg. Umhverfi Símans
stendur þar fyrir kynn-
ingu á þjónustu á sviði
kerfisveitu, hýsingar og
rekstrarþjónustu tölvu-
kerfa. Magnús Orri
Schram hefur haft umsjón
með undirbúningi þessa
fundar. Hann var spurður
hvað Umhverfi merkti í
þessu sambandi?
„Umhverfi er sam-
starfsvettvangur þar sem
fyrirtæki í upplýsingaiðn-
aði koma saman, nýta sér-
staka hæfileika og styrk
hvers annars og bjóða
þannig sameiginlega upp
á betri lausnir og þjónustu
fyrir viðskiptavini sína. Fyrsti
ávöxtur samstarfsins er sam-
vinna fjögurra fyrirtækja á þess-
ari þjónustu sem verður kynnt í
dag.“
– Hvert er markmið þessarar
þjónustu?
„Hún gerir fyrirtækjum kleift
að einbeita sér að sinni kjarna-
starfsemi en láta fagmenn um
umsýslu og rekstur tölvukerfa
sinna. Það er staðreynd að ódýr-
ari flutningsmöguleikar á gögn-
um gegnum Internetið, kröfur
um meira öryggi og skortur á
menntuðu fólki á sviði upplýs-
ingatækni eykur eftirspurn eftir
þjónustu sem þessari.“
– Hvað er kerfisveita?
„Þá geta fyrirtæki í stað þess
að festa kaup á dýrum forritum
leigt aðgang að forritunum sem
geymd eru á miðlægum stað.
Innifalið er rekstur, uppfærslur
og öll dagleg umsjón. Með þessu
geta fyrirtækin sparað kostnað
og ekki síður búið við meira ör-
yggi. Rekstrarþjónusta er á hinn
bóginn oft kölluð; tölvudeild til
leigu. En þá tekur fagaðili yfir
rekstur og umsjón tölvukerfis
fyritækisins. Ör tækniþróun ger-
ir fyrirtækjum erfitt að halda ut-
an um þekkingu sem nauðsynleg
er í nútíma tækniumhverfi. Með
rekstrarþjónstu fæst aðgangur
að þekkingu sérfræðinga sem sjá
um að uppfylla þarfir viðskipta-
vinarins.
– En hvað er hýsing?
„Þá leggur þjónustuaðili til
fullkomið rými fyrir miðlægan
tölvubúnað þar sem ýtrasta ör-
yggis er gætt. Þjónustuaðili tekur
þá í sína umsjón vélbúnað og/eða
hugbúnað viðskiptavinarins og
sér um afritun og öryggismál.
Þessi lausn hentar sérstaklega
vel fyrirtækjum sem krefjast full-
komins öryggis svo sem fjármála-
stofnana. Fyrirtæki geyma mið-
lægan tölvubúnað sinn í oft
ófullkomnum rýmum en geta nú
leitað til fagaðila á þessu sviði.
Viðskiptavinur greiðir fast gjald
á mánuði og því er það í hag þjón-
ustuaðila að kostnaður við um-
sýslu tölvukerfisins sé sem
minnstur. Það hefur í för með sér
kosti fyrir alla aðila.
– Hvað er á dagskrá
fundarins í dag?
„Á fundinum í dag
kynna fjögur fyrir-
tæki: Álit, Miðheimar,
Þekking og Síminn,
þjónustu sína á ofan-
greindum sviðum og hlýtur það
að teljast markvert þegar fjórir
leiðandi aðilar á þessu sviði koma
sameiginlega fram undir merkj-
um Umhverfis. Umhverfi mun
svo geta af sér í framtíðinni fleiri
vörur og þjónustu þar sem sam-
starfsaðilar leggja fram sína sér-
fræðiþekkingu og búa þannig
sameiginlega til nýjar vörur og
þjónustu, svo sem á sviði farsíma-
lausna og þráðlausra fjarskipta.“
– Hvað olli því að Umhverfi var
komið á fót?
„Innan Símans er til geysilega
mikil þekking, en það er stað-
reynd að við erum þó ekki bestir í
öllu. Þess vegna sköpum við Um-
hverfi sem vettvang fyrir sam-
vinnu, nýsköpun og samstarf á
sviði verkefna og viðskipta í upp-
lýsingaiðnaði á Íslandi í dag. Um-
hverfi er ekki lokaður hópur sér-
staklega valinna fyrirtækja
heldur eiga þessi fyrirtæki ein-
ungis það sammerkt að vera
framarlega á sínu sviði og um leið
sjá Umhverfi sem vettvang til
þess að ná enn lengra.“
– Færist í vöxt að fyrirtæki
leiti til fagaðila til að láta sjá um
tölvukerfi sín?
„Já, það hefur færst mikið í
vöxt á undanförnum misserum.
Það hentar t.d. þeim hópi fyrir-
tækja, sem ekki hafa efni á því að
hafa innan sinna vébanda tölvu-
deild, að leita til fagaðila sem sjá
um þessi mál. Kostnaður verður
fyrirsjáanlegri og þau búa við
aukið hagræði.“
– Hvernig er samskiptum hátt-
að innan Umhverfis?
„Við setjum á fót samskipta-
miðstöð á vefnum, þar sem haldið
er utan um öll gögn sem snúa að
sameiginlegum verkefnum og eru
öll skjöl sem tengjast tilteknum
verkefnum geymd á vísum stað
og eru aðgangsstýrð. Einkenni
Umhverfis er því
sterkt innra skipulag,
hraði í samskiptum og
samvinna í hæsta
gæðaflokki. Þannig
getum við með auð-
veldum og greiðum
hætti fengið önnur fyrirtæki inn-
an Umhverfis til samstarfs um
einstök verkefni. Þá leggjum við
innan Umhverfis áherslu á þróun
og nýsköpun lausna í þekkingar-
iðnaði. Því bjóðum við velkomnar
góðar viðskiptahugmyndir sem
þurfa á aðstoð að halda tveggja
eða fleiri fyrirtækja innan Um-
hverfis.
Magnús Orri Schram
Magnús Orri Schram fæddist í
Reykjavík 23. apríl 1972. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð 1992 og
BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla
Íslands og háskólanum í Cork
1996. Hann hefur starfað sem
íþróttafréttamaður á Sjónvarp-
inu, var framkvæmdastjóri
Rekstrarfélags KR þar til í sept-
ember 2000 en þá tók hann til
starfa hjá Símanum sem verk-
efnastjóri og gegnir því starfi nú.
Magnús er kvæntur Herdísi Hall-
marsdóttur lögfræðingi og eiga
þau tvö börn, Sigríði Maríu, 7
ára, og Hallmar Orra, 2 ára.
Einbeitum
okkur að
því sem við
gerum best
Láttu ekki svona Keikó, ég ætlaði bara að kyssa þig.