Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 11
&
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 -
Húfur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18
Grensásvegi 16
íslensk stjórnvöld að bregðast.
Halldór Ásgrímsson tók undir
þetta og sagði nauðsynlegt að auka
erlenda fjárfestingu hér á landi.
Með uppbyggingu álvers í Straums-
vík og á Grundartanga og með upp-
byggingu Íslenskrar erfðagreining-
ar hefði mikið fjármagn verið flutt
til landsins. Mikilvægt væri að
halda áfram að laða fjármagn til
landsíns í stóriðju, fiskeldi og fleiri
atvinnugreinar. Hann sagði að um
þessa stefnu ríkti hins vegar alls
ekki nein samstaða á Alþingi.
Neikvæðar hliðar hnattvæð-
ingar harðlega gagnrýndar
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar, tók
undir með Rannveigu og sagði að
það væri löngu tímabært að ræða
um alþjóðavæðinguna. Hann sagði
að það gleymdist hins vegar stund-
um að alþjóðavæðingin hefði bæði
jákvæðar og neikvæðar hliðar.
„Það eru uppi kröfur um algjört
frelsi fjármagnsflutninga. Kröfur
um algjört frelsi til fjárfestinga.
Kröfur um algjört frelsi til við-
skipta með vöru og þjónustu. Marg-
ir telja aftur á móti að hnattvæð-
ingin sé ranglæti og hér eigi betur
við að tala um hnattvæðingu alþjóð-
legu auðhringanna því þetta sé í
raun ekki hnattvæðing almennings
og smáfyrirtækjanna. Það er ljóst
að um 30 alþjóðlegir auðhringar eru
algjörlega ráðandi aðilar í heimsvið-
skiptum á þessum sviðum. Aðrir
segja að hér sé fyrst og fremst um
að ræða hnattvæðingu áhættufjár-
magnsins, þ.e. braskfjármagnsins,
sem leikur æ stærra hlutverk á hin-
um alþjóðlegu fjármálamörkuðum.
Þetta er fjármagn sem virðir engin
landamæri og gefur lítið fyrir efna-
hagslegan stöðugleika ríkja og ein-
stakra svæða eins og menn sáu í As-
íu á sínum tíma. Það eru því
talsverðar aukaverkanir sem fylgja
hinum jákvæðu þáttum alþjóðavæð-
ingarinnar, en þeir eru vissulega
fyrir hendi,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur gerði einnig að um-
talsefni mikla misskiptingu auðs í
heiminum. Hann sagði að næstum
helmingur mannkyns hefði minna
en 200 kr. sér til viðurværis á hverj-
um degi.
Steingrímur gagnrýndi þann
kafla ræðu utanríkisráðherra þar
sem fjallað er um umhverfismál.
Hann sagði að nýfrjálshyggjan væri
ekki lausnarorðið þegar kæmi að
þeim vanda sem heimurinn stæði
frammi fyrir í umhverfismálum.
Hann gagnrýndi einnig harðlega af-
stöðu stjórnvalda í Bandaríkjunum
til umhverfismála og sagði hana
dragbít á framþróun í þessum mála-
flokki.
Tómas Ingi Olrich, formaður ut-
anríkismálanefndar, sagði að hnatt-
væðingin hefði skapað ný tækifæri
fyrir smáríki og komið þeim undan
skugga stórra ríkja. Írland væri
dæmi um slíkt ríki sem hefði komist
undan skugga Stóra-Bretlands og
blómstrað, m.a. vegna samstarfs við
ESB. Ísland væri einnig dæmi um
þetta sama. Staða landsins hefði
styrkst á síðustu árum og þar skipti
einnig máli aðild landsins að EES
þótt með öðrum hætti væri.
Vonir bundnar við breytta
afstöðu til Íraks
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði að
vissrar kyrrstöðu gætti í utanrík-
ismálum. Hún gagnrýndi sérstak-
lega þann kafla ræðu utanríkisráð-
herra þar sem fjallað var um
umhverfismál. Hún sagði hnattvæð-
inguna einmitt hafa haft þær nei-
kvæðu afleiðingar að hún hefði gef-
ið fjölþjóðlegum fyrirtækjum
tækifæri til að ganga illa um jörð-
ina. Þessi fjölþjóðlegu fyrirtæki
hefðu gengið á lagið án tillits til um-
hverfisins. Um það væri hægt að
nefna mörg dæmi.
Þórunn gerði málefni Íraks m.a.
að umfjöllunarefni. Hún gagnrýndi
viðskiptabannið á Írak og sagði
tímabært að gera þar breytingu á.
Hún sagði sérstakt fagnaðarefni að
Norðmenn hefðu sýnt ákveðið
frumkvæði í þá átt að koma vest-
rænum þjóðum út úr því öngstræti
sem stefna þeirra hefði ratað í.
Óbreytt ástand gagnaðist aðeins
Hussein, forseta Íraks, og yki enn á
þjáningar þjóðarinnar.
Halldór gagnrýndi Þórunni nokk-
uð harkalega fyrir að tala um kyrr-
stöðu í utanríkisráðuneytinu. Hann
sagði að ef stefna hennar hefði náð
fram að ganga hefði ríkt kyrrstaða
á Íslandi. Hún hefði m.a. barist
gegn því að Ísland næði fram mark-
miðum sínum á Kyoto-loftslagsráð-
stefnunni. Íslensk stjórnvöld hefðu
lagt áherslu á að tryggja hagsmuni
Íslands til þess að við gætum haldið
áfram að nýta endurnýjanlegar
orkulindir landsins. Þórunn mót-
mælti þessum orðum ráðherra og
sagði að hún hefði fyrst og fremst
verið á móti því að Ísland notfærði
sér sérákvæði Kyoto-bókunarinnar
til að byggja á Íslandi upp stóriðju.
Hún spurði hver ætlaði að greiða
kostnaðinn við beitingu þessa
ákvæðis hér á landi. Hún sagði
slæmt að í þessu máli hefði Ísland
skipað sér í hóp þjóða sem menguðu
mest í heiminum.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstri-grænna, tók undir
orð Þórunnar og gagnrýndi harð-
lega afstöðu Íslands til Kyoto-bók-
unarinnar. Hún sagði að það væri
alls ekkert lífsspursmál fyrir Ís-
land, eins og haldið hefði verið
fram, að landið nýtti orkulindir
þjóðarinnar í þágu stóriðju. Ísland
ætti að leggja áherslu á uppbygg-
ingu vetnisframleiðslu og spurði
ráðherra hvort hann hefði ekki trú á
hugmyndum flokkssystkina sinna
um vetnisvæðingu samfélagsins.
Tómas Ingi tók undir orð utan-
ríkisráðherra um Kyoto og sagði
ekki ástæðu fyrir íslensk stjórnvöld
til að hverfa frá markaðri stefnu.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra gerði alþjóðavæð-
inguna að umfjöllunarefni í
ræðu sinni.
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði á Alþingi í gær að
þörf væri á að herða alþjóðlegar
reglur um flutning á hættulegum
eiturefnum. Það yrði hins vegar
ekki gert nema í alþjóðlegum
samningum. Tilefni ummælanna
var umræða um hugsanlegan
flutning Japana og Rússa á geisla-
virkum efnum um Norður-Íshafið.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, hóf um-
ræðuna og sagði að það hefði kom-
ið fram í Ríkisútvarpinu að
umleitanir hefðu átt sér stað milli
Japans og Rússlands um um-
fangsmikla flutninga á geislavirk-
um úrgangi um Norður-Íshafið
sem færu að lokum í gegn um
Grænlandssund á milli Íslands og
Grænlands.
„Við vitum að á þessu hafsvæði
er bæði lagís og borgarís og það er
hættulegt að fara um þetta svæði
enda er það svo að Japanir hyggj-
ast stunda þessa flutninga fyrir at-
beina rússneskra ísbrjóta. Það
segir sitt um stöðuna á þessum
hafsvæðum.“
Össur vitnaði til orða Sigurðar
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Geislavarna ríkisins, sem sagði í
samtali við RÚV að þessir flutn-
ingar gætu verið ákaflega vara-
samir. „Sigurður tók svo djúpt í
árinni að segja að ef að einhvers
konar slys yrðu meðan á flutning-
um stæðu gæti það stórskað efna-
hagslega hagsmuni Íslendinga.“
Össur spurði um viðbrögð utan-
ríkisráðuneytisins og minnti á að
vegna harðra viðbragða Norð-
manna hefði verið horfið frá því að
sigla með úrganginn með strönd-
um Noregs.
Halldór sagði að utanríkisráðu-
neytið hefði leitað eftir upplýsing-
um um þetta mál. „Það hefur feng-
ist staðfest frá samgöngu-
ráðuneyti Japans að engar slíkar
samningaviðræður eiga sér stað
milli japanskra og rússneskra
stjórnvalda. Það hefur jafnframt
borist staðfesting frá rússneskum
yfirvöldum að engar slíkar samn-
ingaumleitanir eigi sér stað milli
þessara þjóða. Hvort einhverjar
hugleiðingar kunna að vera uppi
milli einstakra fyrirtækja hef ég
ekki enn fengið upplýsingar um,
en bæði japönsk og rússnesk
stjórnvöld hafa borið þessar frétt-
ir til baka. Ég tel ástæðu til að
gleðjast yfir því. Ef eitthvað slíkt
er í uppsiglingu er ljóst að bæði ís-
lenska utanríkisþjónustan og ut-
anríkisþjónusta margra annarra
ríkja mun bregðast mjög harka-
lega við.“
Össur kvaðst óttast að flutning-
ur á geislavirkum úrgangi væri til
umræðu í þessum löndum þó að
umræðan hafi ekki enn náð á
formlegt viðræðustig milli
ríkjanna. Málið væri engu að síður
það alvarlegt að það hefði verið
lögð fram formleg fyrirspurn í
danska þinginu.
„Ég óttast að efnahagsástandið
í Rússlandi sé með þeim hætti að
þar geti ýmislegt gerst án þess að
ríkisstjórnin hafi fulla vitneskju
um það. Hér er því sá möguleiki
fyrir hendi að um sé að ræða við-
skipti milli fyrirtækja sem ekki
hafi náð inn á borð stjórnvalda í
löndunum. Ég hvet utanríkisráð-
herra til að láta ráðuneytið halda
vöku sinni og efast raunar ekki um
að það mun gerast.“
Halldór sagði að utanríkisráðu-
neytið myndi halda vöku sinni í
þessu máli. Hann bauð alþingis-
mönnum að skoða þau gögn sem
ráðuneytið hefði aflað sér í málinu,
m.a. reglur um heimildir alþjóð-
legra fyrirtækja til að flytja
hættuleg efni. „Það er ljóst að það
þarf harðari og ákveðnari reglur
sem takmarka flutninga á ýmsum
eiturefnum. Það er eitt þeirra við-
fangsefna sem ekki verða leyst
nema með alþjóðlegum samning-
um,“ sagði Halldór.
Áhyggjur af flutn-
ingi geislavirkra
efna um N-Íshaf
STEINGRÍMUR J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, VG, fagnar mjög
ákvörðun Ragnars Arnalds um að
ganga til liðs við VG. „Mér þykir
persónulega vænt um ákvörðun
Ragnars, því hann er góður kunn-
ingi minn og baráttufélagi til langs
tíma,“ segir Steingrímur. „Þá hef-
ur ákvörðun hans auðvitað
ákveðna málefnalega skírskotun.
Meðal þeirra mála sem hann til-
greinir eru ekki síst Evrópumálin
og sjálfstæðismálin og það að hann
vilji vera í liðssveit okkar í þeirri
varðstöðu sem við stöndum fyrir í
þeim efnum. Það þykir mér ákaf-
lega mikilsvert, því hann er geysi-
lega öflugur og á langa sögu að
baki í þeirri baráttu frá því hann
hóf afskipti af þjóðmálum, korn-
ungur maður. Þessi málaflokkur
hefur verið honum ákaflega hug-
leikinn alla tíð og ég þykist vita það
að að svo miklu leyti sem hann hef-
ur tíma til að gefa af sér í stjórn-
málastörfum og þjóðmálabaráttu
hyggist hann ekki síst leggja þess-
um málaflokki lið og það er sér-
staklega gleðilegt.“
Steingrímur J.
fagnar ákvörðun
Ragnars Arnalds