Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SVARFDÆLSKUR mars er yfir-
skrift menningarhátíðar sem haldin
verður í Dalvíkurbyggð nú um
helgina. Að henni standa nokkrir
áhugamenn um svarfdælska menn-
ingu en hugmyndina á Svanfríður
Jónasdóttir alþingismaður. Hún fékk
þá Hjörleif Hjartarson og Friðrik
Friðriksson til liðs við sig og í sam-
einingu hafa þau undirbúið vandaða
dagskrá sem stendur alla helgina.
Meðal þess sem á dagskrá er má
nefna heimsmeistaramót í brús, mál-
þing um menningu, stiginn verður
svarfdælskur mars og þá verða
gönguferðir, tónleikar og leiksýning-
ar í boði.
Svanfríður sagði að heiti hátíðar-
innar hefði tvíþætta skírskotun, ann-
ars vegar væri vísað í mánuðinn mars
en einnig hefði í Dalvíkurbyggð við-
haldist sá gamli og góði siður að taka
marsinn. „Þetta er enn lifandi hefð í
byggðalaginu en víðast hvar annars
staðar hefur þessi siður lagst af,“
sagði Svanfríður. Hún sagðist hafa
uppgötvað þennan skemmtilega sið
þegar hún hóf að kenna í byggðalag-
inu árið 1974. „Eftir að skemmtiatrið-
um lauk, t.d. á þorrablótum, byrjaði
fólk að dansa mars og á því gekk
klukkutímum saman, þetta var mjög
gaman og ég heillaðist af þessu,“
sagði Svanfríður. Svarfdælskur mars
verður stiginn í félagsheimilinu Rim-
um á laugardagskvöld frá kl. 21.
Fyrr um daginn verður málþing
þar sem fjallað verður um svarf-
dælska menningu en framsögumenn
eiga það sameiginlegt að rekja upp-
runa sinn til svæðisins. Þórarinn Eld-
járn flytur erindi sem hann nefnir
„-víska, -dælska, - firska, - vetnska og
– lenska“. Þá fjallar Árni Daníel Júl-
íusson um gullöldina í Svarfaðardal
og Gunnar Stefánsson um Svarfdæla
og fleiri sögur en að lokum flytur
Guðrún Kristinsdóttir erindi um
Kristján Eldjárn og fornminjarann-
sóknir í Svarfaðardal. Málþingið
hefst kl. 13 og verður í Dalvíkurskóla.
Handverkskonur verða með muni
sína til sýnis og sölu og einnig mun
ganga myndband um marsinn allt
síðdegið. Þennan sama dag kl. 17 og
21 sýnir Leikfélag Dalvíkur leikritið
„Allt sem þér viljið“ og þá má nefna
að Byggðasafnið verður opið um
helgina.
Á sunnudeginum kl. 11 verður boð-
ið upp á gönguferð um Dalvík undir
leiðsögn Sveinbjörns Steingrímsson-
ar þar sem m.a. verður litið á gömul
hús í bænum. Lagt verður af stað frá
ráðhúsinu og tekur gangan um
klukkustund. Síðar um daginn, eða
kl. 14, verður kóramót í nývígðri og
endurbættri Dalvíkurkirkju, en
Svanfríður sagði að hljómburður í
kirkjunni væri enn betri nú en áður.
Alls koma fram fimm kórar, Samkór
Svarfdæla, Kór Dalvíkurkirkju,
Karlakór Dalvíkur, Kór aldraðra og
Kór Svarfdæla sunnan heiða. Svan-
fríður sagði stefnt að því að kórarnir
syngju saman í lok tónleikanna
„Svarfaðardalur“.
Svanfríður sagði að hugmyndin
væri að efna til slíkra menningardaga
árlega héðan í frá. „Hugmyndin er sú
að með þessu skerpum við sjálfs-
ímynd okkar, við segjum okkur
hversu merkileg og mikilvæg við er-
um íslensku samfélagi og sýnum
hversu mikill fjölbreytileiki er í þessu
byggðalagi.“
Skerpum okkar
sjálfsímynd
Heimsmeistara-
mót, málþing,
leiksýningar,
kóramót og
svarfdælskur
mars á meðal
dagskráratriða
ÞAÐ var sannarlega fjölmennt og
líflegt í Hlíðarfjalli á Akureyri í
gærmorgun, þar sem börn úr fjór-
um skólum voru saman komin
ásamt kennurum sínum. Hefð-
bundið skólastarf var lagt til hliðar
en þess í stað haldið í fjallið með
skíði, snjóbretti, snjóþotur og sleða.
Börnin sem komu úr þremur ak-
ureyskum grunnskólum, Oddeyr-
arskóla, Brekkuskóla og Gler-
árskóla sem og Stórutjarnarskóla í
S-Þingeyjarsýslu skemmtu sér kon-
ungslega enda veður og aðstæður
með allra besta móti. Börnin sýndu
mörg hver skemmtileg tilþrif og þá
ekki síst brettakrakkarnir, sem
fóru í loftköstum um fjallshlíðina.
Brettastrákarnir úr Brekkuskóla, þeir Viktor Hjartarson, Ingólfur Bragi Guðmundsson og
Guðlaugur Hólm Guðmundsson, sýndu skemmtileg tilþrif. Hér er Viktor í léttu svifi.
Morgunblaðið/Kristján
Ingólfur Bragi Guðmundsson grípur undir brettið í miðju stökki.
Guðlaugur Hólm gerir sér lítið fyrir og skoðar heiminn á hvolfi.Viktor Hjartarson þyrlar upp púðursnjó þótt lendingin væri mjúk.
Líflegt
í Hlíðar-
fjalli
FYRSTA heimsmeistarakeppnin í
brús verður haldin í félagsheim-
ilinu Rimum í kvöld, föstudags-
kvöldið 30. mars, og hefst hún kl.
20.30. Keppnin er liður í menning-
arhátíðinni Svarfdælskur mars
sem stendur yfir um helgina.
Hjörleifur Hjartarson, einn
þeirra sem standa að hátíðinni,
sagði að brús væri um margt
merkilegt spil og væri fyrir því
löng hefð í Svarfaðardal. Áhuga-
menn um þetta spil hafa hist einu
sinni í viku á Dalvík til að spila og
er þetta annar veturinn sem spila-
mennskan er stunduð reglulega.
Brús var á árum áður spilað
víða um land en spilamennskan nú
er einkum bundin við Svarf-
aðardal og Grýtubakkahrepp.
Hjörleifur sagði að óvíða hefði
spilið verið spilað af jafnmiklum
tilfinningahita og í Svarfaðardal
og margt hefði skemmtilegt gerst
við spilaborðið. Spilinu fylgdi há-
vaði og hamagangur og þættu
háðsglósur nauðsynlegur og eðli-
legur spilamáti.
Brús er fjögurra manna spil og
spila tveir og tveir saman. Alls eru
notuð 36 spil en tvistum, þristum,
fjörkum og fimmum er kastað.
Spilin hafa önnur gildi en venja er
en laufagosinn er hæstur, þá
hjartakóngur og loks spaðaátta
sem kölluð er brúnka.
Mörg spilanna í stokkunum eru
verðlaus. Hver þátttakandi fær
þrjú spil en afgangur bunkans er
lagður á borðið með bakið upp.
Forhönd gefur út en síðan gildir
líkt og í öðrum spilum að reyna að
yfirtrompa andstæðinginn. Sá sem
á slaginn tekur efsta spilið úr
bunkanum og svo koll af kolli
þannig að jafnan hafa allir þrjú
spil á hendi. Það lið sem fyrr hlýt-
ur 5 slagi vinnur spilið og fær eitt
prik á kambinn.
„Það getur komið upp sú staða í
þessu spili að leyfilegt er að klóra
andstæðing sinn í hnakkann og
eru dæmi þess að menn hafi lagt á
flótta undan slíku og eins hafa
menn verið eltir á milli bæja
vegna þessa,“ sagði Hjörleifur.
Hann sagði að fín stemmning
værifyrir heimsmeistaramótinu og
væri þegar búið að skrá þátttak-
endur á 10 borð en hægt væri að
skrá þátttöku sína allt fram að því
að mótið hæfist. „Þessi spila-
mennska er eitt af því sem við vilj-
um kalla svarfdælskt og við viljum
því endilega halda lífi í þessari
hefð,“ sagði Hjörleifur.
Hávaði og hama-
gangur fylgir
spilamennskunni
Menningarhátíðin Svarfdælskur mars stendur yfir alla helgina í Dalvíkurbyggð