Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 28

Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 28
LISTIR 28 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÉG KANN vel við mig viðsérstakar kringumstæðureins og þessar. Tíma-pressan er mikil, allir eru einbeittir og æfingarnar ekki nema fjórar. Laugardalshöllin er sérkenni- legur tónleikastaður en andrúmsloft- ið er þægilegt,“ segir rússneski stjórnandinn Alexander Anissimov, sem hljóp snarlega í skarðið fyrir Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem stjórna átti flutningnum en varð frá að hverfa vegna veikinda. Fyrirvarinn var skammur en svo vel vildi til að Anissimov hafði einmitt fimm daga eyðu í annars þéttskipaðri dagskrá sinni. Að vísu hafði hann hugsað sér að verja þeim tíma með fjölskyldu sinni í París – en hann stóðst ekki mátið. Síðastliðinn sunnu- dag lauk mikilli Verdi-hátíð í Minsk, þar sem hann stjórnaði sjö óperuupp- færslum á tíu dögum. Eldsnemma á mánudagsmorgni flaug hann svo til Stokkhólms og þaðan til Íslands og fyrsta æfingin var strax þá um kvöld- ið. Næsta verkefni er svo í Berlín, hjá Berlin Komische Oper, og raunar stóð til að hefja æfingar þar á morg- un. „En þar sögðu menn bara þegar í ljós kom að ég væri upptekinn hér: „Allt í lagi, Maestro, fyrst þú ert að stjórna í Reykjavík getum við ekki annað en hliðrað til. Þú kemur bara á mánudaginn.“ Ég gat einfaldlega ekki staðist það. Í fyrsta lagi vegna þess að mér þótti áhugavert að fá að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands. Og í öðru lagi vegna þess að Carmen er engu lík,“ segir Alexander Aniss- imov. Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem hann stjórnar Carm- en. Raunar segist hann ekki hafa tölu á því hversu oft hann hefur komið ná- lægt þeirri óperu. Söngvarana segir hann hvern öðr- um betri. „Og svo eru þau mjög góðir leikarar líka,“ bætir hann við. Sylvie Brunet, sem syngur hlutverk Carm- en, kveðst hann þekkja ágætlega. „Við höfum unnið saman í óperunni í Dublin, í Cavalleria Rusticana. Bassabarítoninn Christopher Ro- bertson, sem fer með hlutverk Escamillo, þekki ég líka,“ segir hann. Íslensku söngvarana þrjá segir hann afar góða en þeir eru Hulda Björk Garðarsdóttir, Ingveldur Ýr Jóns- dóttir og Ólafur Kjartan Sigurðar- son. Hann lýkur lofsorði á hljómsveit- ina og segir andrúmsloftið allt sérlega vinsamlegt. Tuttugu ára stjórnandaferill að baki Anissimov hlaut tónlistarmenntun sína í tónlistarháskólunum í Sankti Pétursborg og Moskvu og þykir hann gott dæmi um þá hæfileikaríku og vel menntuðu listamenn sem komið hafa úr austurvegi og getið sér gott orð um víða veröld. Anissimov á að baki tuttugu ára feril við stjórnvölinn og hefur meðal annars stýrt 36 óperu- og ballettuppfærslum víðsvegar um heim. Árið 1980 fékk hann stöðu að- alstjórnanda Ballet- og óperuhúss Hvíta-Rússlands og má segja að það hafi verið vendipunktur á ferli hans. Síðan þá hefur hann tekið þátt í flest- öllum hátíðum og samkeppnum sem máli skiptu í Sovétríkjunum og síðar í Rússlandi. Meðal merkra hljómsveita sem hann hefur stjórnað má nefna Sinfón- íuhljómsveit Lundúna og þá hefur hann unnið við og stjórnað óperuupp- færslum í San Fransisco-óperunni, Bastilluóperunni í París, Liceu-óp- eruhúsinu í Barcelona og Staatsoper í Hamborg. Anissimov hefur sem áður sagði verið aðalhljómsveitarstjóri RTÉ- þjóðarhljómsveitarinnar í Dublin frá 1988 og á döfinni hjá honum eru upp- færslur á óperum í Berlin Komische Oper, í Liceu og Bolshoi auk tónleika með Orchestra Arena di Verona. Kona á undan sinni samtíð „Carmen er kona sem er á undan sinni samtíð. Kona sem gerir fyrst og fremst það sem hún vill sjálf – frjáls kona. Hún segir: Ég var fædd frjáls og ég mun deyja frjáls. Ég læt ekki aðra dæma mig,“ segir leikstjórinn Sonia Frisell-Schröder, en hún á heiðurinn af sviðsetningunni. Hún er einkum þekkt fyrir óperuuppfærslur sínar, en hún hefur leikstýrt óperum í þekktustu óperuhúsum heims. Á síð- ustu árum hefur hún m.a. sett upp óp- erurnar Don Carlo í Chicago-óper- unni, La Gioconda í Scala-óperunni, Un ballo in mascara í Bologna-óper- unni, Khovanschina í San Francisco- óperunni og Aidu á Metropolitan. Hingað kemur Sonia Frisell- Schröder beint frá Bandaríkjunum þar sem uppsetning hennar á Don Carlo eftir Verdi í Washington Nat- ional Opera var frumsýnd um síðustu helgi, en í því óperuhúsi hefur hún m.a. sviðsett Töfraflautuna, Othello og Vald örlaganna. Lifir í núinu Í hlutverki sjálfrar Carmen er franska söngkonan Sylvie Brunet, sem nú er af mörgum talin einn fremsti túlkandi á því hlutverki. Sjálf segist hún eiga sér tvö sérstök upp- áhaldshlutverk; Carmen og Dalilu. Hún geti ekki gert upp á milli þeirra tveggja. Þegar hún er spurð hvað það sé sem hafi gert Carmen að jafnvin- sælli óperu og raun ber vitni telur hún að það séu hinir mörgu fletir og litir, í tónlistinni jafnt sem Carmen sjálfri. „Tónlistin er svo rík og svo fjölbreytileg og það er persónuleiki Carmen einnig. Hún er kona en hag- ar sér stundum eins og lítil stelpa – og stundum eins og karlmaður. Í hennar augum er allt mögulegt. Hún lifir í núinu og getur ekki lifað án ástríð- unnar. Þegar hún sér karlmann elsk- ar hún hann. Ég er alveg sannfærð um að hún elskar Don José,“ segir hún. Sylvie Brunet lærði fyrst við Tónlistarháskólann í París og vann til fjölda verðlauna þar meðan á náminu stóð. Hún stundaði síðan nám við óp- erustúdíó Parísaróperunnar og sótti ennfremur einkatíma, m.a. hjá Hans Hotter og Christu Ludwig. Sylvie Brunet vakti verulega at- hygli þegar hún varð tvívegis sigur- vegari í stórri söngkeppni í heima- landinu, og voru henni þá boðin sópranhlutverk við virt óperuhús er- lendis eins og San Francisco-óp- eruna, og La Scala í Mílanó. Eftir að hún færði sig yfir á mezzósópran- sviðið hefur hún sungið öll helstu óp- eruhlutverk af því tagi, svo sem í Samson og Dalilu og Carmen. Af öðr- um verkefnum má nefna Sálumessu Verdis, Stabat mater Rossinis, og Damnation de Faust eftir Berlioz. Sylvie Brunet er gjarnan á faralds- fæti, hún syngur jafnt í París, Aix-en- Provence, Sevilla og Vínarborg – og hingað kemur hún eftir að hafa sung- ið Berlioz í Prag og Sálumessu Verdis í Monte Carlo. Næst liggur leiðin til Bonn þar sem hún syngur Carmen – enn og aftur. En fyrst segist söng- konan ætla að taka sér smáfrí, það sé orðið langt síðan hún slakaði á síðast. Viðamesta verkefni hljóm- sveitarinnar á starfsárinu Í hlutverki Don José er ítalski ten- órinn Mario Malagnini, bandaríski barítonsöngvarinn Christopher Ro- bertson syngur Escamillo, franska sópransöngkonan Iane Roulleau fer með hlutverk Frasquitu, ungverski barítonsöngvarinn Sándor Egri er Zuniga, franski tenórinn Laurent Alv- aro syngur Le Dancaire og franski tenórinn Georges Gautier Le Rem- endado. Þrír íslenskir söngvarar taka þátt í uppfærslunni, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran syngur hlut- verk Michaelu, Ingveldur Ýr Jóns- dóttir mezzósópran syngur Mercédes og Ólafur Kjartan Sigurðarson barí- ton fer með hlutverk Morales. Kór Íslensku óperunnar ásamt barnakór tekur virkan þátt í uppfærslunni og er kórstjóri Garðar Cortes. Alls koma um 200 manns að uppsetningunni, sem er viðamesta verkefni Sinfóníu- hljómsveitarinnar á þessu starfsári. Carmen á sviðsettum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Laugardalshöll „Hún getur ekki lifað án ástríðunnar“ Sinfóníuhljómsveit Íslands setur nú á svið Laugardalshallarinnar óperuna sívinsælu um sígaunastúlkuna Carmen. Sýningarnar verða tvær, í kvöld kl. 19.30 og á morgun kl. 17, og mun nú vera svo til uppselt á þær báðar. Margrét Sveinbjörnsdóttir mælti sér mót við hljómsveitarstjórann Alexander Anissimov, leikstjórann Soniu Frisell-Schröder og mezzó- sópransöngkonuna Sylvie Brunet. Morgunblaðið/Þorkell Sylvie Brunet í hlutverki Carmen og Laurent Alvaro sem Le Dancaire. Að baki þeim eru félagar úr Kór Íslensku óperunnar. Morgunblaðið/Þorkell Hljómsveitarstjórinn Alexander Anissimov. CARMEN eftir Georges Bizet. Ópera í fjórum þáttum. Óperu- texti eftir Henri Meilhac og Ludovic Hallévy eftir sögu Prosper Mérimée. Í kvöld kl. 19.30 og laugardag kl. 17 í Laugardalshöll. Sinfóníu- hljómsveit Íslands, einsöngv- arar, Kór Íslensku óperunnar og barnakór. Einsöngvarar: Sylvie Brunet (Carmen), Mario Malagnini (Don José), Christopher Robert- son (Escamillo), Hulda Björk Garðarsdóttir (Michaela), Iane Roulleau (Frasquita), Ingveldur Ýr Jónsdóttir (Mercedes), Sándor Egri (Zuniga), Ólafur Kjartan Sigurðarson (Moreles), Laurent Alvaro (La Dan caire), Georges Gautier (Le Remendado). Hljómsveitarstjóri: Alexander Anissimov. Sviðsetning: Sonia Frisell-Schröder. Kórstjóri: Garðar Cortes. Sviðsmynd og ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason. Sýningarstjóri: Kristín S. Kristjánsdóttir. Hljóðblöndun: Gunnar Smári Helgason. Umsjón með búningum: Hulda Kristín Magnús- dóttir. Skrifta: Ingveldur Ólafsdóttir. Hljóð og ljós: Exton. Leikmunir: Guðrún Lára Pálmadóttir. Sviðsstjóri: Þjóðólfur Gunnarsson. Söngvarar og listrænir stjórnendur EINN af íslensku einsöngvurunum þremur í Carmen er sópr- ansöngkonan Hulda Björk Garðarsdóttir. Hún fer með hlut- verk Michelu, sveitastúlkunnar saklausu sem er ástfangin af Don José. „Þetta er mjög krefjandi hlutverk sönglega og hentar mér vel. Ég er mjög ánægð með að fá að glíma við þetta hlutverk og vonandi á það eftir að nýtast mér í framtíðinni. Eiginlega má segja að þetta sé hin hliðin á lýríska sópraninum,“ segir Hulda Björk. „Mér finnst söngvararnir allir vera mjög góðir og skila sínu vel og það er gaman að vinna með þeim. Stjórnandinn gefur manni mikið svigrúm og er mjög jákvæður,“ segir hún. „Hin hliðin á lýríska sópraninum“ ÞÓTT Carmen sé nú eitt vinsælasta verk óperubókmenntanna var henni fálega tekið á frumsýningunni 3. mars 1875, skrifar Hanna G. Sigurðardóttir í efnisskrá tónleikanna. Í efnisskránni segir hún ennfremur um viðtökurnar: „Hinir íhalds- sömu góðborgarar í París áttu ekki að venjast því sem boðið var upp á í Opéra Comique þetta kvöld, og sennilega kemur helst á óvart hve margt menn fundu tónlistinni sjálfri til foráttu. Gagnrýnendur flestir sögðu hana vera litlausa og skorta dramatíska spennu, fyrir utan að í verkinu væri sorglega lítið um sönghæfar og eftirminnilegar laglín- ur. Einn þeirra sagði þó með semingi í lok greinar sinnar að líklega væri Carmen samt ekki búin að vera, og reyndist þar sannspár. Líkist meira boðskap ’68-kynslóðarinnar Hitt er mun skiljanlegra, að sagan væri mönnum stór biti að kyngja. Fram til þess tíma höfðu flestar aðalpersónur óperanna stað- ið fyrir háleit siðferðileg gildi á mælikvarða hvers tíma, en þær þeirra sem sýndu verulega bresti og veikleika voru alla jafna karl- kyns; nefna má Giovanni Mozarts í þessu sambandi. Kvenkyns sögu- hetjur voru þar að auki yfirleitt sungnar af sópranrödd frekar en mezzósópran eða alt. Vissulega var Violetta í La Traviata Verdis lagskona aðalsmanna, en fyrir tilstilli ástarinnar freistar hún þess að snúa frá villu síns vegar og fær þar með uppreisn æru. Viðhorf hinn- ar ögrandi Carmenar til ástarinnar líkist hins vegar meira boðskap ’68-kynslóðarinnar á tuttugustu öld en því sem góð latína þótti í lok þeirrar nítjándu.“ Sagan þótti stór biti að kyngja masv@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.