Morgunblaðið - 30.03.2001, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 29
Kringlunni, s. 568 9017 - Laugavegi s. 511 1717
Kr inglunni
Höfum opnað aftur með
NÝJUM VÖRUM
Nýjar vörur frá
Diesel
Calvin Klein jeans
Kookai
Tark
Imitz
Laura Aime
Free
Billi bi
Vagabond
Zinda
The Seller
French connection
Matinique
Mao
All saints
4 you
ÁVAXTAKÖRFUNNI er ætlað að
kenna umburðarlyndi, fordómaleysi
og vináttu.
Í því skyni sýnir höfundur okkur
smáheim; samfélag ávaxta í körfu.
Samfélag ávaxtanna lýtur að því er
virðist sömu lögmálum og víðar gilda.
Virðingarröðin er skýr, mun skýr-
ari en rökin fyrir því að einn sé betri
en annar. Þannig eru berin undirokuð
af hinum stærri ávöxtum en græn-
metið „að sjálfsögðu“ í enn minni
metum. En með boðskap sínum um
jafnrétti og gagnkvæma vináttu tekst
hinum lægstu að koma á heilnæmara
samfélagi. Í leikskrá segir að verkið
fjalli um einelti en eiginlega hefur það
víðari skírskotun. Fordómar og
ofbeldi af þeim leitt er viðfangsefnið
og einelti er ein birtingarmynd þess.
Leikritið sver sig mjög í ætt boð-
skaparþrunginna barnaleikrita og líð-
ur nokkuð fyrir það. Það er orðmargt
en tíðindalítið, sigur hins góða er nán-
ast engum vandkvæðum bundinn og
aldrei í hættu. Víða er þó komist vel
að orði og persónueinkenni einstakra
ávaxta vel teiknuð. Tónlist Þorvalds
Bjarna er hreinræktað popp, falleg
lög sem ljá verkinu skemmtigildi til
mótvægis við siðalærdóminn sem
leiktextinn flytur.
Það eru börn í öllum hlutverkum
hjá leikfélagi Seyðisfjarðar að þessu
sinni. Ávaxtakarfan er kannski ekki
sérlega heppilegt viðfangsefni fyrir
óreynda leikara, enda líklega ekki
skrifuð með það fyrir augum. Það er
hins vegar greinilegt að börnin á
Seyðisfirði geta leikið og gerðu það
svikalaust. Á stundum hefði leikstjóri
sýningarinnar samt mátt vinna
staðsetningar og umferð um sviðið
betur, það hefði skerpt á sögunni og
innbyrðis afstöðu persónanna. Bún-
ingar og umgjörð eru einföld en rétt.
Ávextirnir hafa á sér meiri manns-
brag en í frumuppfærslunni í Ís-
lensku óperunni og gera tengslin við
einelti á skólalóðinni enn skýrari.
Tónlistarflutningurinn er kapítuli
út af fyrir sig. Tónlistin er eins og
leiktextinn, ekki sérlega barnvæn, en
hinir ungu Seyðfirðingar flytja hana
af fádæma öryggi og krafti. Hrein un-
un á að hlýða, hvort heldur í hóp-
söngvum eða einsöngslögum. María
Gaskell hefur greinilega unnið frá-
bært starf og hljómsveitin var stórfín
undir stjórn hennar, þar voru heldur
ekki allir tiltakanlega háir í loftinu.
Seyðisfjörður á hér greinilega fjár-
sjóð hæfileika og kunnáttu sem vafa-
laust verður ausið af í framtíðinni ef
rétt verður að hlúð.
Goggunarröðin
hjá gróðri jarðar
LEIKLIST
L e i k f é l a g S e y ð i s -
f j a r ð a r o g S e y ð i s -
f j a r ð a r s k ó l i
Höfundur: Kristlaug María Sigurð-
ardóttir. Tónlist: Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson. Leikstjóri: Snorri
Emilsson. Tónlistarstjóri: María
Gaskell. Seyðisfirði, sunnudaginn
25. mars 2001.
ÁVAXTAKARFAN
Þorgeir Tryggvason
FÆRRI fengu sæti en vildu í Lit-
eraturhaus í Zürich á mánudags-
kvöld þegar Steinunn Sigurðardóttir
las upp úr bókinni
Hjartastaður eða
Herzort, eins og
hún heitir á
þýsku. Colette
Bürling þýddi
skáldsöguna og
Amman-útgáfu-
fyrirtækið í Zür-
ich hefur gefið
hana út. Steinunn
er nú á kynnisferð
í Þýskalandi og
Sviss og sagði að upplestrarnir hefðu
alls staðar verið „ótrúlega vel sóttir“.
Upplestur Steinunnar var vel kynnt-
ur í Zürich. Hans var getið með
mynd af skáldkonunni í víðlesnu
vikudagskrárblaði Tages Anzeiger
og Neue Züricher Zeitung (NZZ)
var með heilsíðu umfjöllun um bók-
ina á laugardag. Nemendur úr nor-
rænudeild háskólans voru meðal
áheyrenda, auk annarra áhuga-
manna um norrænar bókmenntir og
Íslandsvina.
Andreas Doepfner, blaðamaður
hjá NZZ og fyrrverandi fréttaritari
dagblaðsins á Norðurlöndum, kynnti
Steinunni fyrir upplesturinn og
stjórnaði dræmum umræðum á eftir.
Fjöldi fólks stillti sér upp í röð til að
fá eiginhandaráritun skáldkonunnar
í nýkeypt eintak af bókinni og til að
skiptast á nokkrum orðum við hana.
Og síðast en ekki síst var henni boðið
að taka þátt í 6. Alþjóðlegu bók-
menntahátíðinni í fjallabænum
Leukerbad í júlí, en þar er lesið upp
úr bókmenntum í heitum böðum, á
börum og í björgum.
Hjartastaður kom út á frönsku í
fyrra. Tímaþjófurinn eftir Steinunni
hefur einnig verið gefin út bæði á
frönsku og þýsku.
Troðið út
úr dyrum
Zürich. Morgunblaðið.
Steinunn
Sigurðardóttir
SÝNING á mósaíkspeglum eftir
Rósu Matthíasdóttur verður opnuð í
dag, föstudag, í húsakynnum Kaffi
17 við Laugaveg 91 á annarri hæð.
Þetta er þriðja einkasýning Rósu en
í haust sem leið hélt hún tvær sýn-
ingar, aðra á Akureyri og hina í
Reykjavík.
Speglarnir sem Rósa er með á
þessari sýningu eru af ýmsum
stærðum og gerðum en hver og einn
hefur sinn stíl og er einungis fram-
leiddur einn spegill í hverri gerð.
Rósa útskrifaðist af mynd- og hand-
íðabraut Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri haustið 1997 og hefur síðan
stundað styttri námskeið tengd list-
um og hönnun m.a við Iðnskólann í
Hafnarfirði.
Sýningin verður opin allan apríl-
mánuð á afgreiðslutíma verslunar-
innar.
Á slóðinni www.rosamatt.com má
sjá speglana.
Mósaík-
speglar á
Kaffi 17
♦ ♦ ♦