Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 33 GALLERÍ Reykjavík hýsir þessa dagana fyrstu einkasýningu Englendingsins Dereks Charles Mundells. Mundell sem búið hefur á Íslandi frá því í upphafi áttunda áratugarins hefur lengi vel stund- að teikningu og málun í frístund- um sínum, en sl. 15 ár hefur áhugi þó einna mest beinst að vatnslita- málun. Það er því úrval vatnslitamynda frá árunum 1994-2001 sem Mund- ell býður sýningargestum upp á í Gallerí Reykjavík og er þar að finna íslenskt landslag, kyrralífs- myndir og nektarstúdíur. Lands- lagsverkin eru flest frá fyrri hluta þessa tímabils og má þar sjá Kópavogskirkju, Siglufjörð, hús í Árbæjarsafni og Höfða, en verk Mundells eru öll fígúratíf. Siglufjörður síðla vetrar sýnir þannig auðþekkjanlega húsaþyrp- ingu bæjarins hvíla undir fjall- garði á hafnarbakkanum og er hverju smáatriði sýnd tilhlýðileg virðing. Stórir, hreinir litafletir í grænum, bláum og fjóluleitum tónum eru hins vegar ráðandi í Höfða. Landslagsverkin bera það nokkuð með sér að Mundell sé hér að kynnast miðli sínum, færni hans með pensilinn er umtalsverð en svo virðist sem listamaðurinn hafi ekki enn fundið sinn eigin stíl. Smámyndirnar Í lystigarði og Öskjuhlíð eru þó engu að síður skemmtileg nálgun við landslagið og virkar íslenska náttúran hér framandi í augum heimamanna. Mundell sýnir einnig kyrralífs- myndir í Gallerí Reykjavík, en ís- lenskir listamenn hafa sýnt þeirri gerð mynda lítinn áhuga og þær því velkomin viðbót við íslenska myndlistarflóru. Mundell er þó við gerð þeirra enn nokkuð að fikra sig áfram og sitthvað skortir á að kyrralífsmyndirnar nái að halda athygli sýningargesta. Við gerð verkanna Erica og ávextir og Höfgi sumardags tekst Mundell þó vel til. Pensilförin eru hér létt og leikandi og nær hvor mynd að verða heill heimur út af fyrir sig. Það eru hins vegar nektarstúd- íurnar sem sýna bestu hliðar Mundells. Verkin sem flest voru gerð á sl. tveimur árum bera með sér að hér hefur listamaðurinn náð að skapa sér sinn eigin stíl, er einkennist jafnt af ákveðinni við- kvæmni sem og léttleika. Lita- notkun er stillt í hóf og hvítur pappírsflöturinn fær hér víða að eiga hlut í gerð verksins. Léttar pensilstrokur móta útlínur kven- líkama í stórum dráttum og hvítur flöturinn fyllir inn í það sem upp á vantar. Verkin Hádegi lífsins og And- artakið og elfur tímans eru góð dæmi um þetta, en hið síðar- nefnda virðist einnig vera undir austurlenskum áhrifum, líkt og gjarnan mátti sjá í verkum evr- ópskra listamanna á síðari hluta 19.aldar. Í verkunum Byrði kon- unnar og Upphaf og endir verða pensildrættir Mundells síðan enn léttari, litanotkun minni og bera myndirnar því vitni að listamað- urinn hafi hér fundið sína nálgun við efniviðinn. Morgunblaðið/Ásdís Andartakið og elfur tímans eftir Derek Mundell. Leikandi léttir pensildrættir Anna Sigríður Einarsdótt ir MYNDLIST G a l l e r í R e y k j a v í k Sýningunni lýkur 31. mars. Opn- unartími virka daga frá 13–18 og laugardaga 10–16. YRKISFÖNG VATNS- LITAMYNDIR DEREKS MUNDELLS SÝNING Jónu Thors er merkileg fyrir margra hluta sakir. Hér er á ferðinni allvafasöm list, sem ef til vill fengi ekki háa dóma hjá þeim gagn- rýnendum sem hafna smekkleysunni – Kitsch – sem ófrjóu tjáningar- formi. Hvað hefði Clement heitinn Greenberg til dæmis sagt? Hefði hann samsinnt að þetta væri list? Aðferðir Jónu vega vissulega salt á mörkum listar og skrauts. Við fyrstu sýn mætti ætla að hún hefði orðið fyrir djúpum áhrifum frá skraut- munahorninu á Blómaverkstæði Binna neðar í götunni. En þegar bet- ur er að gætt kemur ýmislegt óvænt í ljós sem er speglaverkum Jónu til órækra tekna. Speglunin sjálf skiptir hér miklu máli. Sá hluti verkanna sem er laus við íhlutun veitir sýningunni það vægi sem ekki liggur í augum uppi en kemur í ljós þegar dvalið er um stund í salnum. Þá fara speglarnir nefnilega að endurvarpa kerjunum sem standa við hvern spegil í salnum auk fólksins sem gengur um salinn. Verkið sem ber af öðrum á sýn- ingu Jónu, eða gefur besta mynd af því sem telja verður list hennar til tekna, er lágrétt spegilborð eða bekkur. Í þessu verki virkar spegl- unin með mun óvæntari og frjórri hætti en í hinum speglunum. Það stafar ef til vill af því að lárétt og lág staða spegilsins birtir okkur allt aðra mynd af umhverfinu en venjulegir lóðréttir speglar. En hitt er jafnframt staðreynd að einmitt þetta spegilverk er betur úr garði gert en lóðréttu speglarnir. Hér virðist Jóna leyfa sér frjálsari vinnubrögð og meiri íhugun en í öðr- um verkum sínum. Ekkert gefur þó beinlínis til kynna að listakonan ætli sér meira en efni standa til. Það gæti valdið okkur áhyggjum sem leggjum svo ríka áherslu á að listamenn geri upp við sig hvorum megin þeir vilji standa; óháðir, sjálfum sér samkvæmir og frjálsir, eða; vinsælir, velmegandi og markaðsvænir. Það breytir því þó ekki að sem hrein fyrirbæri, burtséð frá listamanninum, er fullt af skap- andi gildum í skuggsjám Jónu Thors. Spegill, spegill, herm þú hver … MYNDLIST G a l l e r í M A N , S k ó l a v ö r ð u s t í g Sýningin stendur til 11. apríl. KERAMIK & BLÖNDUÐ TÆKNI JÓNA THORS Halldór Björn Runólfsson Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson Eitt af verkum Jónu Thors í Galleríi MAN. UNDIRBÚNINGUR fyrir mál- verkasýningu hins umdeilda norska listmálara Odds Nerdrum stendur nú sem hæst í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum, en hún verður opnuð laugardaginn 7. apríl. „Sýningin verður í vestursal Kjarvalsstaða en hluti af und- irbúningnum felst í því að myrkva salinn með því að mála veggina með dökkgrárri málningu. Odd Nerdrum leggur ríka áherslu á hið dramatíska umhverfi verka sinna en með samspili þess og beinnar lýsingar dregur hann skýrt fram áhrifamátt málverka sinna,“ segir Soffía Karlsdóttir kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur. Vestursalur Kjarvalsstaða hef- ur verið hvítmálaður í rúman ára- tug en það er málningafyrirtækið Harpa sem leggur Listasafni Reykjavíkur lið með því að gefa hinn einkennandi gráa lit Odd Nerdrum og sömuleiðis hvíta málningu eftir að sýningunni lýk- ur 27. maí. Odd Nerdrum er vænt- anlegur hingað til lands 4. apríl og ríkir, að sögn Soffíu, mikil eft- irvænting vegna komu hans og verka hans enda í fyrsta skipti sem málarinn sýnir verk sín hér á landi. Hinn grái litur Odds Nerdrum Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúningur í vestursal Kjarvalsstaða er í fullum gangi vegna fyr- irhugaðrar sýningar norska myndlistarmannsins Odds Nerdrum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.