Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 39

Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 39 mvarnargarðurinn er um 500 metra og er um 620.000 rúmmetrar. Hann ur á klöppum þar sem dýpið er breyti- n fremsti hlutinn stendur á sandbotni er um 18 metra dýpi. Sigurður og Gísli sson hjá Siglingastofnun, auk Ómars a hjá Stapa, hófu vinnu við hönnun ns og jarðfræðirannsóknir haustið g skiluðu verkinu um mitt ár 1999. Þá rkið boðið út og komust tveir íslenskir gegnum forval í að bjóða í verkið; Pihl n/Ístak og Suðurverk. Alls komu sex garðinn og var Pihl og Søn, móðurfyr- Ístaks í Danmörku, lægstbjóðandi. ögn Sigurðar hafa íslenskir stjórnend- Pihl og Søn stjórnað framkvæmdum rðinn frá upphafi, auk þess sem Sigl- ofnun og Jarðfræðistofan Stapi taka virkan þátt í eftirliti með byggingu garðsins og vinnslu grjótnámanna. Framkvæmdir við garðinn hafa gengið vel og var garðurinn kominn í fulla lengd núna í febrúar en verk- lok eru áætluð í haust. Sigurður segir ekkert fast í hendi varðandi önnur verkefni erlendis en menn leggi heil- mikið á sig við að koma þessari hönnun á framfæri. „Á síðasta ári vorum við með lyk- ilfyrirlestur sem framlag Íslands á Norræna jarðtækniþinginu í Helsinki og við tókum að okkur að halda seminar um hönnun bermu- garða á stórri alþjóðlegri hafnargerðarráð- stefnu í Sydney. Nýlega var okkur boðið á vinnufund í Japan um hönnun brimvarnar- garða, en þangað var tíu mönnum í heiminum boðið, sérfræðingum á mismunandi sviðum brimvarnargarða og vorum við þar á meðal.“ mvarnargarð fyrir Norðmenn sér sérstöðu rmugarða vinnu við gerð brimvarnargarðsins í Noregi. Stórvirk grafa tekur stórar steinblokkir af sérstökum flutningapramma sem flytur grjótið frá námunum í garðinn. ar garðurinn var kominn í fulla lengd héldu menn upp á áfangann með því að reiða am íslenskar pönnukökur, kleinur og heitt kakó að íslenskum sið á stórri járnplötu. Sigurður Sigurðarson á brimvarnargarðinum, sem komst í fulla lengd í febrúar. Í LJÓSI átaka undanfarinnavikna í Makedóníu er vert aðíhuga orsakir og líklegar af-leiðingar þeirra, bæði innan Makedóníu og á Balkanskaga í heild. Makedónía var eina sam- bandsríki gömlu Júgóslavíu sem braust átakalaust til sjálfstæðis snemma á síðasta áratug. Ástæð- urnar fyrir því eru margvíslegar en helst ber að nefna að það eru til- tölulega fáir Serbar búsettir í ríkinu og auk þess óttuðust þeir ekki mis- munun og jafnvel ofsóknir líkt og þeir gerðu í Króatíu og Bosníu. Því voru í raun aldrei miklar líkur á hörðum aðgerðum af hálfu Júgó- slavíuhers í kjölfar sjálfstæðisyfir- lýsingar Makedóníu. Einnig má gera ráð fyrir að stjórnvöld í Bel- grad hafi gert sér fyllilega grein fyrir viðkvæmu ástandi Make- dóníu og því haldið að sér hönd- um frekar en að bera eld að hættulegustu púðurtunnu Balkanskaga. Það er ekki að ástæðulausu sem Vesturlönd óttast mjög óstöðugleika innan Makedóníu. Albanska þjóðarbrotið nýtur stuðnings albanskra íbúa heimalandsins sem og ná- granna sinna í Kosovo. Einnig eru Tyrkir líklegir til að bregð- ast hart við ofsóknum gegn trú- bræðrum sínum í Makedóníu. Á móti kemur að slavneski meiri- hlutinn í Makedóníu á vísa að- stoð frá Búlgörum og jafnvel Grikkjum sem voru mjög svo mótfallnir loftárasum NATO á Júgóslavíu í fyrrasumar. Einn- ig er ljóst að Rússar og Úkr- aínumenn líta á slavneska íbúa Balkanskaga sem frændur sína og þeir munu leggja sitt af mörkum til að styrkja Make- dóníustjórn komi til alvarlegra átaka. Þjóðfrelsisher Albana Aðferðir skæruliðanna sem kalla sig Þjóðfrelsisherinn eru þær sömu og albanskir skæru- liðar í Kosovo beittu gegn Júgóslav- íuher frá 1995 fram á mitt síðasta ár. Skammtímamarkmið þeirra eru skýr og miða að því að kalla fram hörð viðbrögð yfirvalda til að auka stuðning við málstaðinn meðal alb- anskra íbúa Makedóníu. Líkt og í Kosovo beittu skæruliðarnir í fyrstu árásum á lögreglu og stjórn- völd en á undanförnum vikum hefur þeim vaxið ásmegin og með batn- andi veðri var hægt að blása til upp- reisnar og umsátursins um Tetovo. Þó svo að Frelsisher Kosovo (KLA) hafi formlega verið leystur upp í kjölfar íhlutunar NATO er ljóst að hugmyndafræðin og stór hluti vopnabúrs þeirra hafa verið flutt út, bæði til Presevo-dals í Serbíu og til Norðvestur-Makedóníu. Skæru- liðarnir eru alls ekki færir um að takast á við Makedóníuher, þótt vanbúinn sé, vegna þess að þeir eru fyrst og fremst hryðjuverkahreyf- ing. Þeir eru einungis vopnaðir árásarrifflum, handsprengjum, sprengjuvörpum og léttum, bryn- skæðum eldflaugum og þótt þeir geti beitt leyniskyttum til að myrða her- og lögreglumenn þá geta þeir alls ekki haldið landsvæði ef til harðra átaka kemur. Átökin í Kos- ovo gefa skýra fyrirmynd á þessu stigi málsins og það virðist oft gleymast að KLA vann enga sigra á Júgóslavíuher þar, nema hvað hon- um tókst að tendra ófriðarbálið og draga NATO-ríkin inn í átökin sín megin. Þótt vígstaða skæruliðanna sé afleit má alls ekki draga þá álykt- un að þeir muni tapa átökunum sem þeir hafa stofnað til á undanförnum vikum. Eins og sagan hefur kennt okkur er nær ómögulegt að vinna sigur á skæruliðum sem njóta stuðnings og verndar íbúanna. Því liggur lausn þessarar deilu hvorki í fjallahlíðunum norðan við Tetovo né mun hún fást keypt fyrir stórskota- liðsárásir eða áhlaup skriðdreka. Líkt og í Kosovo eru skæruliðarnir ekki hættulegir vegna getu sinnar heldur vegna þess að þeir geta kom- ið af stað raunverulegu borgara- stríði. Óvæntasti fengur skæruliðanna er mótherjinn. Makedóníuher er al- gerlega vanbúinn til að takast á við skæruhernað af þessu tagi og öllum sem á horfa er einnig ljóst að að- ferðum þeirra og þjálfun er mjög svo ábótavant. Makedónía erfði að- eins örfáa úrelta skriðdreka og fall- byssur frá Júgóslavíu og þó að her- inn hafi verið í uppbyggingu undanfarin tíu ár er árangurinn illsjáanlegur. Þeim hefur þó tekist að afla sér 120 skriðdreka af T-55 gerð (líklegast frá Búlgaríu) sem eru 50 ára gömul hönnun en skæru- liðana skortir brynskæð vopn til að vinna á þeim. Einnig bættist hern- um dýrmætur liðsstyrkur fyrir tæpum tveim vikum er tvær árás- arþyrlur voru fengnar að láni frá Úkraínu. Þyrlurnar, sem eru af Mi-24 gerð, eru vel brynvarðar og henta mjög vel í fjallendi Norður- Makedóníu þar sem þær geta borið mikið magn skotfæra og einnig sveitir hermanna. Herinn á auk þess þrjár fjölnota þyrlur af Mi-17 gerð sem í samvinnu við þær úkr- aínsku veita þeim mikla hernaðar- lega yfirburði. Þjálfun og aðferðir eru þó öllu mikilvægari en búnaður, sérstaklega í skógivöxnu fjallendi, og hikandi og klaufalegar aðgerðir hersins gegn skæruliðum Albana eru mikið áhyggjuefni. Undanfarn- ar vikur hafa þeir setið í sandpoka- virkjum sínum í miðborg Tetovo og skotið óskipulega upp í hlíðarnar án þess að ljóst væri hvert skotmarkið var. Sóknin upp að höfuðstöðvum skæruliðanna í Selce var ákaflega illa framkvæmd og helst til þess fallin að auka kjark óvinarins. Vest- rænir fréttamenn sem voru á vett- vangi sáu greinilega hversu ótta- slegnir og hikandi makedónsku hermennirnir voru er þeir sóttu gegn örfáum leyniskyttum Albana. Einu afleiðingarnar af þessari klaufalegu aðgerð eru að veita skæruliðunum frekari stuðning íbú- anna og að magna átökin enn frek- ar. Í kjölfar sóknarinnar hyggst Makedóníuher draga sig til baka frá Tetovo þar sem hann telur sig hafa hrakið skæruliðana á brott en í raun hafa þeir einungis hörfað tímabund- ið. Frekari aðgerðir hersins gegn stöðvum skæruliða í Norður-Make- dóníu eiga eftir að reynast jafnár- angurslitlar til lengri tíma litið. Þó má geta þess að brezk sendi- nefnd, skipuð reyndum herforingj- um, sem send hefur verið til Skopje til skrafs og ráðagerða, mun veita Makedóníuher óformlega ráðgjöf. Löng reynsla brezka hersins af bar- áttu við skæruliða á Norður-Írlandi gæti því reynst Makedóníu ákaflega dýrmæt ef átökin magnast frekar. Eftir því sem skæruliðunum fjölgar aukast einnig líkurnar á að þolinmæði slavneska meirihlutans þverri. Líkt og í Bosníu er mikil hætta á að upp úr sjóði og til voða- verka af hálfu beggja aðila komi. Stofnun borgaralegra hersveita, að fyrirmynd Tígra Arkans í Bosníu, myndi fylgja í kjölfarið á auknu ofbeldi og þá eru friðarvonirnar að engu orðnar. Ábyrgð NATO Ummæli Trajkovski Make- dóníuforseta um að NATO hafi stofnað hálfgert talibanaríki á Balkanskaga og þar með grafið undan stöðugleika svæðisins eru í raun ekki svo fjarri lagi. Íhlutun NATO í Kosovo til að stöðva ofsóknir Serba á hendur Albönum búsettum þar hefur haft margvíslegar afleiðingar. Mjúkhentar aðferðir KFOR (hersveitir NATO í Kosovo) og ótti við að ávinna sér hatur íbú- anna þýðir í raun að lögum og reglu í Kosovo hefur verið ábótavant og albönskum þjóð- ernissinnum hefur reynst mjög auðvelt að flytja skæruhernað sinn út fyrir galopin landamær- in. Fyrst beindu þeir athygli sinni að Serbíu og hafa komið sér ákaflega vel fyrir í Presevo- dal sem er innan öryggissvæðis NATO. Nú er ljóst að NATO hyggst hleypa Júgóslavíuher aftur inn á þetta öryggissvæði til að loka landamærum Serbíu við Kos- ovo og Makedóníu og má búast við hörðum átökum í kjölfarið. Einnig hafa landamæri Kosovo og Make- dóníu verið undir mjög litlu eftirliti friðargæsluliðanna (svæði Banda- ríkjanna og Þýskalands liggja að landamærum Makedóníu) og því hefur mikið magn vopna borist til albanskra skæruliða í Makedóníu og gert þeim kleift að hefja átök undanfarinna vikna. Fyrst nú hefur NATO reynt að auka eftirlit með landamærunum en það gæti reynst of seint þar sem skæruliðarnir í Makedóníu eru nú þegar búnir til langvarandi átaka. Þó er mikilvægt að NATO sýni samstöðu með yfir- völdum í Makedóníu og geri það sem er í þess valdi til að auka samn- ingsvilja beggja aðila. Lausn í sjónmáli? Ef takast á að stilla til friðar í Makedóníu áður en borgarastríð brýst út er mikilvægt að stjórnvöld í Skopje sýni jafnaðargeð og boði taf- arlaust til viðræðna við stjórnar- flokk Albana. Kröfur Albana eru margvíslegar en ljóst er að ef stjórnvöld sýna vilja til að koma fljótt til móts við þær mun draga úr líkum á alvarlegum átökum. Slíkar viðræður verða þó að eiga sér stað áður en harkalegar aðgerðir hers- ins leiða til þess að lýðræðislega kjörnir fulltrúar Albana missi um- boð sitt til að semja fyrir hönd kjós- enda sinna og auki almennan stuðn- ing við Þjóðfrelsisher Albana. Því miður virðast stjórnvöld í Skopje hafa dregið rangar ályktanir af her- ferðinni við Tetovo og í Norður- Makedóníu og í kjölfarið hefur samningsvilji þeirra minnkað veru- lega. Ef sú er raunin þá er ákaflega erfitt og hættulegt sumar fram und- an í Makedóníu. Framvindan í Make- dóníu ræðst af því hvort stjórnvöld í Skopje taka upp raun- verulegar viðræður um réttindamál albanska minnihlutans í landinu segir Erlingur Erlings- son. Geri þau það ekki eru hættulegir tímar fram undan í landinu. Höfundur stundar nám í sagnfræði við háskólann í Oxford, m.a. hern- aðarsagnfræði, og fjallaði um frétta- flutning af borgarastyrjöldinni á Balkanskaga í BA-ritgerð sinni við Suffolk-háskólann í Boston. Makedóníumaður af albönskum ættum við styttu til minningar um makedónska hermenn í síðasta stríði. AP Stormur í aðsigi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.