Morgunblaðið - 30.03.2001, Qupperneq 50
MENNTUN
50 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTA haust hefja ný-stúdentar, og margiraðrir, háskólanám en af-ar brýnt er fyrir þá að
vita hvað þeir geti hugsað sér að
nema og starfa við í framtíðinni.
Besta leiðin til að minnka líkurnar á
röngu vali er að kynna sér valkostina
og bera þá saman við sjálfan sig og
markmið. En þess gefst kostur
næsta sunnudag, fyrir stúdenta og
aðstandendur þeirra.
Námskynning 2001 fer fram í Að-
albyggingu Háskóla Íslands og í
Odda 1. apríl kl. 13–17 en slíkar
kynningar geta opnað augu væntan-
legra nemenda fyrir námsleiðum
sem þeir annaðhvort vissu ekki um
eða treystu sér ekki áður til. Rang-
hugmyndir einstaklinga um náms-
leiðir, t.d. um að þær séu of erfiðar
eða að þær tilheyri fremur öðru kyn-
inu, geta einnig komið í veg fyrir
heillavænlegt val. Einnig eru ævin-
lega nokkrar nýjungar í hverjum há-
skóla fyrir sig sem nemendur höfðu
ekki vitneskju um og þurfa að kynna
sér.
Áður en stúdent velur háskóla og
námsleið þarf hann að ígrunda
marga þætti og velta fyrir sér. Stað-
setningin getur verið einn þessara
þátta. Annar þáttur er um hvort það
henti betur að vera í fjölmennum eða
fámennum skóla. Fjarnám hefur
einnig leitt til þess að þeir sem eru
með fjölskyldur og vilja ekki sleppa
vinnunni í heimabyggð geta hafið
nám við háskóla án þess að til bú-
setuflutninga þurfi að koma.
Niðurstaðan er a.m.k. að nauðsyn-
legt er að kynna sér málin og kostina
til hlítar til að auka líkurnar á skyn-
samlegu vali. Námskynningin er
kjörin til að undirbúa endanlegt val.
Námskynning 01/ Íslenskir háskólar eru með námskynningu næsta sunnudag í Aðalbyggingu HÍ og í Odda
klukkan 13–17. Væntanlegir nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri: Að sjá allt á einum stað, afla
upplýsinga og spyrja fulltrúa skólanna um hvaðeina sem brennur á þeim. Endanlegt val skiptir sköpum.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri var stofnaður á 110 ára afmæli Bændaskólans á Hvanneyri.
Valkostir
háskólanna
kynntir II
Nám í tómstunda- og félagsmála-
fræði er meðal nýjunga í KHÍ.
Í haust hefst nám í tölvunarfræðum
við Háskólann á Akureyri.
Í RÚM 50 ár hefur verið kennsla á
háskólastigi á Hvanneyri og frá
árinu 1999 heitir skólinn Landbún-
aðarháskólinn á Hvanneyri. Námið
skipist í umhverfisskipulag, búfræði-
braut og landnýtingarbraut.
Í námi í umhverfisskipulagi er
tekin fyrir náttúra landsins
og félagslegar aðstæður og
miðað að því að nemendur
öðlist þjálfun í að þróa og
móta búsetulandslag út frá
fagurfræðilegum félags-
legum og öðrum umhverfi-
stengdum sjónarmiðum.
Grunnnám tekur 3 ár og
lýkur með B.Sc.-90 í um-
hverfisskipulagi. Þeir sem óska geta
lokið námi á þessu stigi en LBH býð-
ur tvo möguleika á framhaldi fyrir
nemendur sem náð hafa tilskildum
árangri.
Í fyrsta lagi framhaldsnám á
Norðurlöndum á grundvelli NOVA-
samkomulagsins þannig að þar er
gengið inn í meistaranám, sem eru
tvö ár í viðbót og lokið prófgráðu í
landslagsarkitektúr. Hinn kosturinn
er að taka fjórða ár á Hvanneyri og
ljúka B.Sc.-120 í umhverfisskipulagi.
Störf að námi loknu fyrir þá sem
ljúka með B.Sc.-90 geta verið t.d. hjá
sveitar- og bæjarfélögum, fyrirtækj-
um og stofnunum við umsjón með
framkvæmdum, eftirlit og umsjón
með náttúruverndarsvæðum.
Nám á búfræðibraut
Námið tekur þrjú ár hið minnsta,
en þá útskrifast nemendur með BSc-
próf (90 einingar) í búfræðum. Að því
loknu geta þeir bætt við sig eins árs
sérnámi og rannsóknarþjálfun og
brautskrást með kandídatsgráðu í
búfræðum (120 einingar).
Rauði þráðurinn er búfræði frá
öllum hliðum, hvort sem um er að
ræða ræktun fóðurs fyrir búfé, fóðr-
un, kynbætur, húsvist og velferð.
Fjallað er um auðlindir, landið og
búfé frá vísindalegu sjónarhorni með
áherslu á líffræði, jarðvegsfræði,
efnafræði o.fl. Í náminu gefst kostur
á verulegri sérhæfingu í verkefna-
vali innan námsgreina. Þá er 5 ein-
inga lokaritgerð á 6. önn sjálfvalið
efni, samþykkt af leiðbeinanda. Á
fjórða ári gefst ennfremur kostur á
víðtæku vali upp á 18 einingar, auk 9
eininga BSc ritgerðar til kandídats-
prófs.
Námið tekur mið af þörfum þeirra
er starfa vilja við leiðbeiningar,
rannsóknir og/eða
kennslu í búfræðum eða
búskap. Þá felst í náminu
breiður líffræðilegur
grunnur sem nýtist vel
fólki sem t.d. fæst við
kennslustörf hvort sem er
á grunnskóla- eða fram-
haldsskólastigi.
Námið veitir góðan
grunn til framhaldsnáms í búfræð-
um og skyldum greinum við erlenda
háskóla.
Nám á landnýtingarbraut
Áhersla er lögð á hagnýta nátt-
úrufræði, þar sem þekking á náttúru
landsins er nýtt til að skipuleggja
sjálfbæra nýtingu hennar og vernd-
un.
Landnýting/náttúrunýting í víð-
asta skilningi er öll nýting á landi.
Grundvallarmunur er á landnýtingu
og ræktunarbúskap, s.s. jarðrækt. Í
landnýtingu er hin óbeislaða náttúra
viðfangsefnið þar sem maðurinn
uppsker á forsendum náttúrunnar.
Þá er vistkerfum ekki umbylt, held-
ur haldið sjálfbærum og lítt breytt-
um. Í ræktunarbúskap er þessu öf-
ugt farið. Þar er markmiðið að
umbreyta kerfinu með hámarksaf-
rakstur í huga og veruleg orka lögð
til kerfisins til að svo megi vera.
Náttúruvernd er óaðskiljanlegur
hluti landnýtingar og náttúrunýting-
ar og í náttúrusiðfræði eru þessi tvö
hugtök, nýting og vernd óaðskiljan-
leg.
Námið á Hvanneyri er fjölþætt
vegna þess að boðið er upp á sérhæf-
ingu í skógrækt við íslenskar að-
stæður. Landnýtingarbrautin leggur
megináherslu á vistfræðilegan bak-
grunn skógræktar.
Nemendur sem ljúka námi á
brautinni eiga kost á að halda áfram
námi til MSc og PhD gráðu við syst-
urstofnanir LBH innan NOVA.
Sambandið
við náttúruna
MARKMIÐ Háskólans í Reykjavík
er að útskrifa nemendur með traust-
an fræðilegan grunn og hagnýta
þekkingu sem tryggir þeim aðgang
að viðurkenndum erlendum háskól-
um og gerir þá eftirsótta á vinnu-
markaði strax að námi loknu. HR
leggur metnað sinn í að byggja upp
háskóla sem stenst samanburð við
helstu menntastofnanir erlendis.
Leiðarljós í starfi skólans eru ný-
sköpun, tækniþróun og alþjóðavæð-
ing.
Við Háskólann í Reykjavík eru
tvær deildir – tölvunarfræðideild og
viðskiptadeild, auk Símenntar HR
sem veitir þjón-
ustu sem er ætl-
uð fyrirtækjum
og starfsmönn-
um þeirra. Báðar
deildirnar eru
með þriggja ára
BS-nám auk styttri námsleiða. Skól-
inn er í nýrri byggingu og hann er
mjög vel tækjum búinn. Næsta haust
verður tekin í notkun nýbygging við
skólann og við það tvöfaldast stærð
hans.
Í haust verða í fyrsta sinn veittir
sérstakir námsstyrkir til afburða-
nemenda. Tveir nýstúdentar við
hvora deild munu fá 400.000 kr. styrk
auk þess sem skólagjöld þeirra falla
niður fyrsta árið. Að auki fá þrír ný-
stúdentar við hvora deild niðurfell-
ingu skólagjalda fyrsta árið. Nýstúd-
entar sækja sérstaklega um að hljóta
styrk og við mat á umsóknum er tek-
ið tillit til einkunna auk meðmæla og
greinargerðar umsækjenda um
væntingar til námsins.
Eldri nemendur sem ná framúr-
skarandi námsárangri geta einnig
hlotið námsstyrki og auk þess geta
þeir nemendur sem standa sig sér-
lega vel í námi unnið með kennurum
að rannsóknarverkefnum eða sem
aðstoðarkennarar og eru þetta laun-
uð störf.
Viðskiptadeild
Í viðskiptadeild er boðið þriggja
ára BS-nám í viðskiptafræði, alls 90
einingar. Í náminu er lögð áhersla á
fræðilegan grunn, raunhæf verkefni
og tengsl við atvinnulífið. Á fyrsta ári
er byggð upp traust þekking í undir-
stöðugreinum almennra viðskipta-
fræða. Hægt er að leggja áherslu á
viðskiptafræðina eingöngu eða sam-
þætta nám úr báðum deildum og út-
skrifast með BS-próf í viðskiptafræði
með tölvunarfræði sem aukagrein.
Nemendur geta einnig útskrifast
með diploma í viðskiptafræði eftir
tveggja ára nám (60 einingar).
Á annarri og fjórðu önn vinna
nemendur í hópum að viðamiklum
raunhæfum verkefnum.
Fyrsta árs verkefnið felur í sér
gerð viðskiptaáætlunar. Þar eiga
nemendur að koma
með viðskiptahug-
mynd fyrir nýtt
fyrirtæki og gera
nákvæma við-
skiptaáætlun um
stofnun og rekstur
þess. Á öðru ári vinna nemendur að
raunhæfustefnumótunarverkefni í
nánu samstarfi við fyrirtæki og
stjórnendur úr atvinnulífinu.
Tölvunarfræðideild
Í tölvunarfræðideild er boðið upp
á þriggja ára BS-nám í tölvunar-
fræði, alls 90 einingar. Þar er kapp-
kostað að byggja upp jöfnum hönd-
um sterkan fræðilegan grunn og
hagnýta þekkingu. Auk hefðbundins
BS-prófs í tölvunarfræði geta nem-
endur lokið prófi í tölvunarfræði með
viðskiptafræði sem aukagrein.
Einnig býðst nemendum að út-
skrifast eftir tvö ár með prófgráðuna
kerfisfræðingur-HR. Kerfisfræði-
námið er sérsniðið að þörfum at-
vinnulífsins og nemendur öðlast hag-
nýta þekkingu og þjálfun til að starfa
við hugbúnaðargerð.
Fjarnám er kostur sem sífellt fleiri
velja vegna þess sveigjanleika sem
það býður upp á. Nemendur geta
tekið allt námsefni fyrsta árs í tölv-
unarfræðideild í fjarnámi en stefnt
er að því að auka og efla fjarnám við
skólann. Í tölvunarfræðideild vinna
nemendur stór verkefni í lok fjög-
urra fyrstu annanna.
Hver önn í tölvunarfræðideild og
viðskiptadeild stendur yfir í 15 vikur.
Námskeið á 1. og 2. ári í tölvunar-
fræðideild eru í 12 vikur sem lýkur
með prófum. Slíkt fyrirkomulag er
einnig á vorönn í viðskiptadeild. Þá
vinna nemendur í 3-5 manna hópum
að lausn viðamikils verkefnis. Til-
gangur þess er að samþætta öll nám-
skeið og láta reyna á það sem nem-
endur hafa lært á önninni. Mörg
lokaverkefni hafa verið unnin í sam-
starfi við stofnanir og fyrirtæki.Mikil
áhersla er lögð á að veita sterkan
fræðilegan grunn nemenda og í
framhaldi af því eru unnin viðamikil
verkefni þar sem reynir á alla þá
þekkingu sem nemendur hafa til-
einkað sér.
MBA-nám og Símennt HR
Í febrúar 2001 var í fyrsta sinn
boðið upp á alþjóðlegt MBA-nám í
viðskiptadeild með áherslu á stjórn-
un og rafræna viðskiptahætti. Námið
er hluti af alþjóðlegu samstarfi sem
kallast GEM og er skammstöfun fyr-
ir „Global eManagement“. GEM er
samstarfsverkefni 10 virtra háskóla
um allan heim. GEM-verkefnið legg-
ur áherslu á að þjóna einstaklingum
og fyrirtækjum sem leita eftir al-
þjóðlegu sjónarhorni í viðskiptaum-
hverfi þar sem rafræn viðskipti
gegna veigamiklu hlutverki.
Auk hefðbundins háskólanáms
rekur skólinn Símennt HR sem legg-
ur áherslu á að mæta vaxandi þörf
atvinnulífsins fyrir menntun starfs-
fólks og stjórnenda. Megináhersla er
lögð á sérsniðnar lausnir. Sú þekking
sem hentar hverju fyrirtæki fyrir sig
er greind með markvissum hætti og
henni miðlað áfram.
Morgunblaðið/Golli
Kerfisfræði er 2ja ára nám í HR.
Hér er Védís Sigurjónsdóttir
þegar hún var í kerfisfræðinni.
Nýsköpun og
tækniþróun