Morgunblaðið - 30.03.2001, Síða 56

Morgunblaðið - 30.03.2001, Síða 56
MINNINGAR 56 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Birgir Jóhanns-son kaupmaður fæddist í Reykjavík 6. apríl 1925. Hann lést á Landsspítal- anum í Fossvogi 22. mars síðastliðinn. Birgir var sonur hjónanna Guðlaug- ar Árnadóttur hús- freyju, f. 6. apríl 1885, og Jóhanns Hafsteins Jóhanns- sonar, sem lengst af var forstöðumaður Manntalsskrifstof- unnar í Reykjavík, f. 12. september 1885. Hann var yngstur ellefu systkina, og er að- eins einn bróðir á lífi, Már Jó- hannsson, f. 1920. Önnur systkini Birgis voru Guðrún, f. 1906, d. 1973, Sigríður, f. 1908, d. 1995, Ferdínand, f. 1910, d. 1984, Alex- ander, f. 1912, d. 2001, Svavar, f. 1914, d. 1988, Haukur, f. 1916, d. 1989, Valur, f. 1918, d. 1984, Hilmar, f. 1921, d. 1922, Drop- laug, f. 1923, d. 1969. Birgir kvæntist árið 1954 Ás- Eftir barnaskólapróf hóf Birg- ir nám í Verslunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1943. Ýmis störf stundaði hann eftir útskrift, m.a. í Húsgagnaverslun Kristjáns Siggeirssonar. 24 ára gamall fær hann vinnu á hóteli á Keflavíkurflugvelli og gegndi því starfi í þrjú ár. Þá ákvað hann að gerast sjálfstæður atvinnurek- andi og setti upp sitt fyrsta fyr- irtæki, Hverfiskjötbúðina, sem var til húsa á Hverfisgötu 50 í Reykjavík, og rak hana til 1960. Á sama tíma byggði hann fjög- urra hæða íbúðar- og verslunar- hús á Laugavegi 133. Í þessu nýja húsi setti hann á stofn gisti- heimili og rak til 1967. Því næst stofnaði Birgir þurrhreinsun á fyrstu hæð hússins og rak hana í þrjú ár en að þeim loknum vann hann hjá Agli Vilhjálmssyni þangað til árið 1974, þegar hann stofnaði Hlemmkjör á jarðhæð Laugavegs 133. Sú verslun var starfrækt í sex ár. Í beinu fram- haldi stofnaði hann myndbanda- leigu á sama stað sem smám sam- an breyttist í minjagripa- og ferðamannaverslun og starfrækti þá verslun þangað til hann veikt- ist síðastliðinn nóvember. Útför Birgis fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. dísi Erlendsdóttur frá Teigi í Fljótshlíð, f. 1927, d. 1967. For- eldrar Ásdísar voru Erlendur Erlendsson frá Teigi í Fljótshlíð og Ingibjörg Stein- þórsdóttir frá Elliða- ey á Breiðafirði. Börn Birgis og Ásdís- ar eru: 1) Erlendur Sturla verkfræðing- ur, f. 1956, kvæntur Jórunni Rothenborg, f. 1962, börn þeirra eru Alexander, f. 1988, og Daníel Hans, f. 1997. 2) Halla Hrund ljósmóðir, f. 1956, gift Gunnari Pétri Péturssyni, f. 1955, börn þeirra eru Ásdís Rósa, f. 1981, Ingibjörg Lára, f. 1983, og Gunn- ar Davíð, f. 1989. 3) Birgir Jó- hann hljómlistarmaður, f. 1964, í sambúð með Cirilu Rós Jamora, barn þeirra er óskírður drengur, f. 2001. Birgir Jóhann og fyrr- verandi sambýliskona hans, Gunnhildur, eiga saman Sigrúnu, f. 1986. Í dag kveðjum við tengdaföður minn, Birgi Jóhannsson, eftir stutta en mjög erfiða sjúkralegu. Birgir, sem var þaulvanur ferðalangur, hafði ferðast á eigin vegum heims- horna á milli og það óraði engan fyrir því þegar Birgir fór í annað sinn til Taílands að ferðin endaði í bráðauppskurði og gjörgæslulegu, fyrst í framandi landi og síðan sam- fleytt á fjórða mánuð hér heima. Þessi stóri, lífsglaði og ljúfi maður var alls ekki tilbúinn að kveðja þennan heim. Hann hafði alltaf nóg fyrir stafni í búðinni sinni á Lauga- veginum þar sem hann rak minja- gripabúð. Þar var hann ánægðastur þegar ferðalangar frá öllum heims- hornum litu inn og hann gat spjall- að við þá á hinum ýmsu tungu- málum um alla heima og geima meðan hann seldi þeim peysur og aðra gripi úr búð sinni. Það var allt- af ljúft að koma niður í búð til Birg- is, alltaf heitt á könnunni og strák- unum þótti gott að fá mjólk og kex hjá afa Birgi. Við Erlendur og strákarnir okkar bjuggum steinsnar frá Birgi í tæp 14 ár og var það ákaflega gott fyrir strákana að vita af afa Birgi í næsta húsi, þar sem þeir gátu alltaf hlaup- ið til hans og dundað sér eitthvað, ef ekki við annað, þá að telja alla krónupeningana sem afi var með í peningakassanum. Sunnudagssteik- in hjá okkur var líka fastur liður, bæði fyrir strákana, en ekki síst fyrir afa sem þótti gaman að heilsa upp á fólkið sitt og fá sér sneið af stórsteikinni með mikilli sósu út á. Birgir var mjög stoltur af barna- börnum sínum og fylgdist alltaf með því hvernig þeim vegnaði, stórum sem smáum. Ég veit að hluti af því sem hughreysti hann á gjörgæslunni í Taílandi var það að fá daglega pistla frá barnabörnun- um á Íslandi lesna upphátt. Þau sem gátu skrifuðu sjálf sín tölvu- bréf og við skrifuðum fyrir hin um stórt og smátt í daglegu amstri hér heima við leik og störf. Þegar Halla og Erlendur fóru út til Taílands til að vera með pabba sínum, og fá hann heim sem fyrst, var það svo sannarlega ekki þessi útkoma sem við höfðum reiknað með, en með þrotlausri vinnu og umhyggju sýndu þau ást sína til hans og hversu mikils virði hann var þeim. Þegar ég kynntist nýju tengda- fjölskyldunni minni, fyrir tæpum 20 árum, tóku allir vel á móti mér en sérstaklega ljúft var hvað tengda- pabbi tók mér óendanlega vel og var alltaf brosandi og ánægður al- veg sama hverju maður fann upp á. Smá stríðni var alltaf vel tekið, hvort sem það var út af sósunni eða salatinu sem hann nær undantekn- ingalaust afþakkaði, pent en ákveð- ið. Birgir var ákaflega glaðlyndur maður, mikill húmoristi, vingjarn- legur og hjálpsamur og fyrir mig var Birgir alltaf til staðar, sem var ljúft, sérstaklega vegna þess að ég var ekki bara flutt að heiman, held- ur til annars lands og frá nánustu fjölskyldu í Danmörku. Það er alltaf sárt og óskiljanlegt að þurfa að kveðja ástvini, unga sem aldna, og börnin hans Birgis fengu svo sannarlega snemma að finna fyrir djúpri sorg þegar þau, innan við 10 ára aldur, þurftu að kveðja mömmu sína sem dó langt fyrir aldur fram. Ég bið góðan Guð að geyma og hjálpa börnunum hans Birgis og barnabörnunum og öðrum ástvinum í gegnum missi þeirra og sorg. Jórunn Rothenborg. Mig langar í örfáum orðum að kveðja hann Birgi Jóhannsson, tengdaföður minn. Leiðir okkar lágu saman fyrir 22 árum þegar ég kynntist dóttur hans, Höllu Hrund, er síðar varð eiginkona mín. Hann tók mér strax mjög ljúflega og var áhugasamur um það sem ég, þá ungur maður, var að ákveða varð- andi framtíðina. Það var áberandi hvað honum var umhugað um að við unga fólkið menntuðum okkur. Ef- laust hefði hann viljað að við sýnd- um meiri fyrirhyggju varðandi fjöl- skyldustærðina meðan á náminu stóð en aldrei orðaði hann það nú beint. Þeim mun ánægðari var hann og stoltur af henni Cindy sinni þeg- ar hún nú síðast bætti B.S.-gráð- unni við annað nám. Sjálfur hóf hann að læra frönsku, þá orðinn sextugur, því hann hugðist heim- sækja heimsborgina París. Birgir hafði mjög gaman af því að veiða. Á árum áður var farið í marga ferðina í laxveiði út um land- ið, eða bara upp að Elliðavatni, því þar var oft svo yndislegt að dvelja. Hin seinni árin átti hann erfiðara með að ganga en samt naut hann þess engu að síður að fylgjast með frá bakkanum þegar Erlendur son- ur hans kastaði flugunni. Það var á ferðalagi í Taílandi á síðasta ári að hann veiktist alvar- lega. Í framhaldi af erfiðri aðgerð tók við nærri fjögurra vikna gjör- gæsla í landi svo óralangt í burtu. Það var svo stuttu fyrir jólin að hann var fluttur heim. Hann náði ekki heilsu aftur og lést fimmtudag- inn 22. mars. Þessi tími frá heim- komunni var stöðug barátta er færði okkur ýmist eitt skref fram eða aftur. En mikið var hann glaður að komast heim. Á þessum tíma gafst okkur góður tími til að ræða málin. Hann sagði mér frá óum- ræðilegri gleði sinni og þökk þegar Cindy og Eddi birtust á gjörgæsl- unni í Taílandi. Hversu glaður og stoltur hann væri af börnum sínum og barnabörnum og hversu miklar væntingar hann hefði fyrir þeirra hönd. Sonarsonurinn sem fæddist fyrir rúmum mánuði var enn einn sólargeislinn í lífi hans. Að lokum vil ég þakka þér sam- fylgdina árin öll og sérstaklega samtal okkar og hlý orð nú í janúar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu þína. Þinn tengdasonur, Gunnar Pétur. Elsku afi minn, „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur yfir því sem var gleði þín.“ (Khalil Gibran.) Núna er tæplega fjögurra mán- aða þjáningum lokið. Nú færðu að hvílast og það áttu sko skilið. Ég er viss um að þegar ég er skrifa þessi orð þá ert þú uppi hjá Guði, veið- andi með bros á vör. Það koma ótal minningar upp í hugann þegar ég hugsa um þessi tæp átján ár sem þú varst gamli góði afi með bumbuna. Þegar ég var yngri var sko algjört ævintýri að fara í heimsókn til afa. Það var endalaust hægt að finna eitthvað að gera, gramsandi í öllu milli himins og jarðar. Það var líka toppurinn á tilverunni að fá cocoa puffs í rauðu bollana með mjólk út á og fá að glápa á Tomma og Jenna-spólur. Ég man líka svo vel eftir því þegar ég var um fimm ára og við fórum öll saman til Danmerkur. Einn daginn fórum við í tívolíið og ég fékk að keyra í eldgömlum bílum. Þú sast við hliðina á mér og sagðir að seinna, þegar ég væri orðin eldri, þá færum við aftur saman að keyra. Það var svo rosalega gaman og ég man svo vel eftir þessu en ég man samt mest eftir því hvað ég var stolt og ánægð að eiga svona góðan og skemmtilegan afa, afa með risa- stóra bumbu. Ég varð eldri og eldri og var nú misjafnt hvað maður hafði tíma til að sinna honum afa sínum. En aldr- ei mun ég gleyma hversu vel þú tókst alltaf á móti mér þegar ég kom í heimsókn. Síðastliðið ár hef ég verið upptekin og alltaf á fullu en ég reyndi þó að koma við hjá þér þegar ég var í bænum. Alltaf fékk ég risastórt faðmlag og bros út að eyrum þegar ég kom. Ótal spurn- ingar fylgdu svo, hvernig mér gengi í skólanum, hvenær þú færir að sjá mig í sjónvarpinu spila körfubolta, hvort ég væri nú kominn með kær- asta og hvort trúlofun eða barn væri á leiðinni. Endalaust gastu spurt og allt fannst þér jafnmik- ilvægt sem ég var að gera. En nú er víst þessu góða og fal- lega ævintýri lokið og verð ég að kveðja. Ég vil biðja góðan Guð og alla hans engla að taka nú vel á móti þér og styrkja okkur öll. Elsku afi, ég sakna þín sárt. Aldrei skal ég gleyma þér og barna- börnin mín fá sko að heyra sögur af besta afa í heimi. Þín Ingibjörg Lára. Látinn er í Reykjavík Birgir Jó- hannsson kaupmaður. Að leiðarlok- um minnist ég ánægjulegra kynna við Birgi hátt á annan áratug síð- asta skeið ævi hans. Birgir rak verslun við Laugaveg og starfaði farsællega við hana til skamms tíma. Var engan bilbug á honum finna allt þar til hann veikt- ist alvarlega í nóvember síðastliðn- um. Þrátt fyrir dugnað og leikni lækna og góða hjúkrun síðan eru dagar hans allir. Syrgja hann nú skyldmenni og vinir. Fyrr á tíð mun Birgir hafa rekið nýlenduvöruverslun eins og mat- vöruverslanir nefndust. En síðustu áratugi voru á boðstólum í verslun Birgis við Laugaveg í grennd við Hlemm myndbönd um tíma og síðar gjafavörur og fallegar prjónavörur ýmiss konar. Búðin var vissulega nálægt víglínu á hernaðarlega mik- ilvægum stað miðað við viðskipta- vini, en ekki dugir að sitja auðum höndum þótt svo sé og bíða. Aðrar búðir eru á hverju strái og kaup- maðurinn þarf í sífellu að fylgjast með þróuninni, breyta til ef þörf krefur. Birgir var árvökull og honum var annt um viðskiptavini sína. Margt hefur verið unnt að kaupa hjá Birgi um dagana af þessa heims gæðum. En ég hef fyrir satt að hlýlegar móttökur hjá kaupmanninum hafi ekki síður verið eftirsóknarverðar. Margur jafnvel, einkum er um hægðist er á leið, mun hafa komið í kaffisopa í búðina til Birgis sér til hugarhægðar ef svo bar undir, og rætt vandræði sín við mann jafn- aðargeðs og léttrar lundar. Birgir var þægilegur í viðmóti, glettinn í tilsvörum og hafði frá mörgu að segja, gjarnan einhverju kímilegu. Kynni okkar Birgis hófust með nýjum venslum er verða með hjóna- böndum næstu kynslóða. Oft höfum við hist og talast við heima hjá syni hans Erlendi og Jórunni, systur- dóttur minni, þeim gestrisnu hjón- um. Verða nú þáttaskil hjá þeim börnum Birgis og barnabörnum. Tíminn líður og einn kemur þá ann- ar fer. Dagana sem Birgir lá á Landspít- ala fæddist sonarsonur hans á fæð- ingardeildinni. Frændi hans, annar sonarsonur Birgis, vex úr grasi, málsnjall fjögurra ára snáði. Um daginn þykist hann maður með mönnum og svarar í síma er ég hringdi til Jórunnar og Erlends varðandi útför afa hans. Sá stutti segir: „Þú mátt ekki ónáða mig núna, Þór frændi. Ég er að horfa á Pókemon í sjónvarpinu. En hérna er mamma.“ Góður afi verður að vonum ekki lengi í minn- um hafður hjá kornabarni og ein- lægum óvita, en eldri barnabörnin geyma minningar í huga sér um ánægjulegar samverustundir með afa sínum. Við Jóhanna kona mín vottum börnum Birgis, barnabörnum og öðrum aðstandendum samúð í sökn- uði þeirra. Blessuð sé minning Birgis Jóhannssonar. Þór Jakobsson veðurfræðingur. BIRGIR JÓHANNSSON ✝ Guðríður Gísla-dóttir fæddist á Hellissandi 5. septem- ber 1933. Hún lést á líknardeild Landspít- alans 15. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Gísli Þorsteinsson, f. 9.3. 1897, d. 9.12. 1936, og Brynhildur Sveins- dóttir, f. 20.9. 1901, d. 2.12. 1979. Systkini Guðríðar eru: 1) Pét- ur, f. 26.7. 1924, lát- inn, kvæntur Fann- eyju Samsonardóttur. 2) Sigríður, f. 8.10. 1925, gift Sig- urði Júlíussyni, látinn. 3) Sigur- geir, f. 8.3. 1927, látinn. 4) María, f. 25.5. 1929, gift Ásgeiri Einarssyni. 5) Sigurást, f. 15.11. 1930, gift Ólafi V. Sigurðssyni, þrjú létust í æsku tvíburasystur Svandís og Dagbjört og Sveinn. Hinn 5. september 1956 giftist Guðríður Sigurði Richardssyni, f. 17.6. 1932. Dætur þeirra eru: 1) Louisa, f. 7.11. 1956, gift Pétri H. Ólafssyni, f. 21.12. 1953. Börn þeirra eru Hildur Péturs- dóttir, f. 24.10. 1976, í sambúð með Hjör- leifi Jónssyni, f. 15.10. 1976, þeirra sonur er Jón Óli, f. 5.8. 1998; og Ólafur Haukur Pétursson, f. 13.5. 1985. 2) Anna María Sig- urðardóttir, f. 4.5. 1961, í sambúð með Viðari Sigurðssyni, f. 11.12. 1959, þeirra börn, tvíburar, Bryn- dís og Sigurður, f. 12.6. 1992. 3) Brynja Sigurðardóttir, f. 22.9. 1963, hennar sonur er Hákon Her- mannsson, f. 28.11. 1992. Útför Guðríðar fór fram í kyrr- þey. Elsku amma mín, það er með miklum trega sem ég kveð þig nú í síðasta skipti. Á þessari stundu er margt sem kemur upp í hugann því margar voru stundir okkar. Fyrstu sex ár ævi minnar bjó ég nánast hjá ykkur afa á Háaleitisbrautinni og sagðir þú alltaf að heilsu mína og hreysti skyldi ég þakka skyrinu og lýsinu sem þú gafst mér á hverjum einasta degi allan þennan tíma. En eins og þú veist, amma, varð þetta til þess að ég gat ekki borðað skyr aftur fyrr en ég var þrettán ára. Það sem er mér svo mikilvægt er að hafa alltaf getað talað við þig um allt sem ég þurfti og þú varst alltaf tilbúin að hlusta á allt sem ég hafði að segja. Minnisstæðast er mér sím- talið sem við áttum kvöldið áður en sonur minn var skírður og ég var að fá þitt álit á nafninu sem við Hjölli höfðum valið. Þú fórst bara að skellihlæja því þér fannst nafnið renna einum of vel saman. En þú varst ánægð með nafnið og ber hann það í dag. Erfitt þykir mér þó að geta ekki ráðfært mig við þig aftur þegar ég þarf á að halda en þó svo að ég geti ekki hringt í þig aftur mun ég halda áfram að tala við þig því ég veit að þú heyrir í mér og hlustar alltaf. Síðasta stund okkar er mér ákaf- lega mikilvæg og þakka ég fyrir að hafa fengið tækifæri til að segja þér allt sem mér lá á hjarta og ég veit líka að þær fréttir sem ég sagði þér glöddu þig mjög. Ég skal passa hann afa fyrir þig sem á um mjög sárt að binda og hann saknar þín mikið eins og við öll en til minningar um þig, elsku amma, ber ég nú fallega krossinn sem þið afi gáfuð mér í jólagjöf um árið. Ég elska þig, elsku amma mín, og hugsa alltaf um þig. Þín eina Hildur. GUÐRÍÐUR GÍSLADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.