Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 57
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 57
KIRKJUSTARF
Á MORGUN, laugardaginn 31.
mars, kemur kirkjukórinn úr Vík í
Mýrdal í Digraneskirkju og heldur
tónleika kl. 17. Mun kórinn m.a.
flytja messu í C-dúr eftir C. Goun-
od, ásamt fleira áhugaverðu.
Stjórnandi kórsins er Krisztina
Szklenar, organisti Víkurkirkju.
Eftir hlé flytur kór Digraneskirkju
valda tónlist undir stjórn organista
kirkjunnar, Kjartans Sigurjónsson-
ar. Aðgangur er ókeypis.
Vorferð barnastarfs
Víðistaðakirkju
VORFERÐ fyrir börn sem tekið
hafa þátt í barnastarfi kirkjunnar
verður farin 31. mars. Lagt verður
af stað frá Víðistaðakirkju kl. 13.30
og farið suður að Kálfatjörn, þar
sem samvera verður í kirkjunni og
hressing á eftir í boði Víðistaða-
kirkju. Börn og foreldrar eru hvött
til að mæta og taka með sér gesti.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
Hallgrímskirkja. Passíusálmalestur
kl. 12.15.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Mömmumorgunn kl. 10–
12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur,
djákna. Kaffispjall fyrir mæður,
góð upplifun fyrir börn. 9.–10.
bekkur Laugalækjarskóla fer í
Vatnaskóg. Unnið að kvikmynda-
gerð sem er forvarnarverkefni á
vegum Þróttheima, Laugarnes-
kirkju og Blómavals undir stjórn
Guðmundar J. Haraldssonar, leik-
ara.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
hljóðrar bænagjörðar í hádeginu.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik-
un og biblíufræðsla þar sem ákveð-
ið efni er tekið fyrir, spurt og svar-
að. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Súpa og brauð eftir
samkomuna. Allir velkomnir.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Síðasta
samvera kirkjuskólans í vetur verð-
ur í Víkurskóla á morgun, laug-
ardag, kl. 11.15–12. Brúðurnar ætla
að mæta og vilja endilega fá að
kveðja ykkur. Konni er að undirbúa
hreiðurgerð fyrir sumarið og það er
ekkert víst að hann megi vera að
því að koma, en sjáum til. Mætum
nú vel og tökum allt fullorðna fólkið
með okkur og sjáum hvaða boðskap
við fáum til að flytja út í samfélagið.
Hittumst öll hress og kát. Prest-
urinn og starfsfólk Kirkjuskólans.
Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu-
dagskvöld kl. 21 Styrkur unga
fólksins. Dans, drama, rapp, pré-
dikun og mikið fjör.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður Björgvin Snorra-
son.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Einar Valgeir Arason.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Brynjar Ólafsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla kl. 12. Ræðumaður Jóhann
Grétarsson. Súpa og brauð að sam-
komu lokinni.
Staðarbakkakirkja í Miðfirði.
Messa sunnudag 1. apríl kl. 14.
Prestur sr. Guðni Þór Ólafsson.
Kirkjukórinn
í Vík í heimsókn
Digraneskirkja
Safnaðarstarf
Góð vinkona okkar
safnaðist til feðra
sinna 3. febrúar í Taí-
landi.
Sjöfn fæddist í
Reykjavík 30. mars 1931 og hefði
því orðið sjötug í dag. Þau hjón
voru í sinni árlegu ferð til Taí-
lands þegar Sjöfn veiktist og
SJÖFN MARTA
HARALDSDÓTTIR
✝ Sjöfn Marta Har-aldsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 30.
mars 1931. Hún lést
á Pattaya í Taílandi
3. febrúar síðastlið-
inn og fór minning-
arathöfn um hana
fram í Seltjarnarnes-
kirkju 23. febrúar.
fékk hægt andlát.
Sjöfn var lífsglöð
manneskja og naut
sín vel innan um tón-
list. Hún kunni alla
dægurlagatexta, var
ljúf í nærveru, ákaf-
lega hreinskiptin og
góð heim að sækja,
enda voru Sjöfn og
Þórarinn samhent í
einu og öllu.
Með þessum fáu
orðum viljum við
votta minningu henn-
ar þakklæti og virð-
ingu. Þórarni, börn-
um, tengdabörnum og
barnabörnum vottum við samúð
okkar.
Kristín og Árni Ísleifsson.
Elsku Guðrún mín,
það er margt skrítið í
þessum heimi. 6. mars
fékk ég bréf frá þér en
7. mars hringdi Ólafur þinn og
sagði að þú hefðir kvatt þetta líf
sama dag og ég fékk bréfið. Ég
GUÐRÚN DAGBJÖRT
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Guðrún DagbjörtÓlafsdóttir fædd-
ist á Brúnavöllum á
Skeiðum 18. septem-
ber 1913. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi þriðjudag-
inn 6. mars síðastlið-
inn. Útför hennar
var gerð frá Bú-
staðakirkju 13. mars.
geymi öll bréfin frá
þér svo ég á margar
minningar um þig
elsku vinkona.
Er sárasta sorg okkur
mætir
og söknuður huga vorn
grætir
þá líður sem leiftur af
skýjum
ljósgeisli af minningum
hlýjum.
(H.J.H.)
Elsku Guðrún mín,
þökk fyrir ljúfa og
góða vináttu, ég sakna
þín.
Ólafur minn, innileg samúð.
Gréta.
Elsku afi. Við afa-
börnin á Akureyri vilj-
um þakka þér fyrir fáu
en góðu samveru-
stundirnar sem við
áttum með þér og öll
símtölin sem þú hringdir til okkar
ÓLAFUR
ÞORSTEINSSON
✝ Ólafur Þorsteins-son fæddist á Ak-
ureyri 12. febrúar
1935. Hann lést á
Landspítalanum 7.
mars síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Grindavíkur-
kirkju 16. mars.
norður. Daginn áður
en þú veiktist varstu
einmitt að segja
mömmu að þið amma
ætluðuð að koma til
okkar í heimsókn í vor.
Nú verður ekkert úr
því að þú komir til
okkar en við hugsum
hlýtt til þín, elsku afi,
og sendum ömmu
Gunnu og öðrum
ættingjum okkar sam-
úð.
Kveðja frá afabörn-
unum.
Ottó Ernir og
Íris Birna.
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Birting afmælis- og
minningargreina