Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 67
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Geirmundi Valtýssyni
í Ásgarði, Glæsibæ,
í kvöld, föstudagskvöldið
30. mars
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
FERMING
Í FLASH
Mikið úrval af
fallegum
fermingarkjólum
Laugavegi 54,
sími 552 5201
ÞEIR félagar, Óskar og Ey-
þór, hafa nýlokið upptökum á
hljómdiskinum Keldulandið,
hvar þeir renna sér hægt og
hljótt og afar glæsilega í gegn-
um nokkrar vel valdar perlur
eftir afmælisbarnið. Þetta og
annað kallaði á umræður og
því mældum við þrír okkur
mót á Kaffihúsinu Kaffi
Konditori Kaupmannahöfn á
Suðurlandsbraut.
Sprelligosar
Er ég kem aðvífandi situr
saxófónvinurinn Óskar við eitt
borðið úti í horni, talandi í far-
síma. Eitthvert vesen með bíl-
inn tjáir hann mér. Eyþór
kemur u.þ.b. tíu mínútum síð-
ar. Við stikum að afgreiðslu-
borðinu og gerum matar- og
drykkjarpöntun. Óskar býður
okkur upp á digra smáköku af
miklum höfðingsskap. Það
kom mér á óvart hversu miklir
sprelligosar þessir menn
reyndust svo vera, var með
aðrar hugmyndir að því leyt-
inu til við upphaf spjallsins.
Þeim héldu sannarlega engin
bönd er tekið var til við að
ræða tónlistina. Allt er hér af
heilum hug gert.
„Þetta er svolítið varfærn-
islegt á köflum,“ segir Eyþór
og er hér að tala um plötuna
nýju. „Við erum nefnilega í
rauntíma og erum að þreifa á
lögunum án þess að vera búnir
að ákveða eitthvað fyrirfram.“
„Allar melódíurnar hans
Jóns eru í undirmeðvitundinni
hjá manni,“ bætir Óskar við.
„Maður er búinn að heyra
þetta svo oft í hinum og þess-
um … þetta er alveg greypt
inn í mann. Það sem mér
finnst svo heillandi við þessa
plötu er að þar er farið með
melódíurnar dálítið annað en
tíðkast alla jafna.“
Fyrir síðustu jól kom út
platan Söngdansar Jóns Múla
Árnasonar, þar sem Óskar fór
frumlegum höndum um marg-
ar af perlum Jóns Múla ásamt
sveitinni Delerað. Eyþór fer
nú að pæla. Það var mikið pælt
í þessum kaffitíma. „Þegar
maður er að spila það sem
kallað er „djassstandarar“, þá
er það ekkert annað en lög,
eins og lögin hans Jóns Múla,
sem voru á sínum tíma vinsæl í
Ameríku. En við höfum aldrei
þekkt þau í þeirri mynd. Við
kynnumst þeim í gegnum ein-
hverja djassleikara sem eru
búnir að beygla melódíurnar
alveg sundur og saman. Maður hefur
tilhneigingu til þess að líta á þennan
ameríska standardabanka sem eitt-
hvert sérfyrirbæri sem djassleikarar
eiga að sækja í. En svo er ekki fyrr en
Óskar kemur með þessu fullkomna
virðingarleysi fyrir kveðskap Jónas-
ar Árnasonar og frelsar þessi lög
undan textanum (Óskar hlær hrossa-
hlátri). Þá eru þau allt í einu farin að
lúta sömu lögmálum og djassstand-
ardar.“
Louis
Armstrong
Við snúum okkur að þýðingu Jóns
Múla fyrir djassinn á Íslandi. „Hann
er bara Cole Porter Íslands,“ segir
Eyþór. „Það hafa fáir íslenskir laga-
höfundar haft jafnmikil áhrif innan
síns geira og Jón.“ Óskar skýrir sína
hlið út. „Ég hugsaði fyrir nokkru:
„Ókei. Ég er hvítur íslenskur djass-
tenórsaxófónleikari. Nú er ég í vond-
um málum. Er þetta ævistarfið!“
(Hlær.) Ég hugsaði með mér.
„Ókei, ef allir djassarar eru
að spila standarda hverjir eru
mínir standardar? Ókei.
Standardar koma úr söng-
leikjum … Jón Múli. Best að
fara að skoða þetta. Hvaða
lög ég þekki. Þannig byrjaði
þetta.“
Óskar segir að í kjölfar
þessa hafi virðing hans fyrir
lögum, melódíum, aukist heil-
mikið. „Maður svona áttaði
sig á því hvað þú getur fengið
úr hlutum með því að vera
leitandi í stað þess að loka á
það.“
Óskar rifjar nú upp
skemmtilega sögu af Jóni:
„Hann fór niður í kjallara Há-
skólabíós er Louis Arm-
strong var að halda tónleika
þar. Allt bandið fór yfir á
Sögu að fá sér í glas í hléi. Á
meðan fór Louis niður að
leggja sig. Síðan kemur Jón
niður, finnur Lousis og tjáir
honum að útvarpið sé að taka
upp þessa tónleika og vilji
senda þá út og þeir hafi 2.000
dollara til að gera það. Við-
skiptamennirnir vilji hins
vegar 10.000. Þetta endaði
með því að Louis sagði (gerir
sér upp hása rödd): „Mr.
Mule. You can take it all for
nothing.““ (Mikill hlátur hjá
öllum.)
Eyþór tekur við. „Þegar
hann var að byrja að predika
djasstónlist var það tabú.
Hann var kallaður öllum ill-
um nöfnum og hann var að
labba úti á götu þegar einhver
kelling skvetti úr fötu yfir
hausinn á honum.“ (Hlátur
hjá öllum.)
Óskar segir svo að lokum
að það sé vel líklegt að hann
eigi eftir að vinna meira með
lög Jóns í framtíðinni. Hann
og Eyþór rifja að endingu
upp orð Jóns sjálfs um plöt-
una þeirra nýju, Keldulandið.
„Hann sagði, segir Óskar, og
það vottar eðlilega fyrir stolti:
„Þarna eru komnir tveir ein-
staklingar sem falla algerlega
saman í eitt en samt halda
þeir algerlega sínum einstak-
lingseinkennum.““
Á tónleikunum munu þeir
Óskar og Eyþór leika lög af
diskinum nýja en einnig mun
hljómsveitin Delerað leika
lög af Söngdönsum Jóns
Múla Árnasonar.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og eru, eins og áður seg-
ir, í Salnum, Tónleikahúsi
Kópavogs. Miðaverð er 1.500 kr.
„Það jafnast ekkert
á við djass …“
Jón Múli Árnason; þulur, lagahöfundur og tónlistaráhugamaður með
meiru, stendur á áttræðu um þessar mundir og af því tilefni verða haldnir
tónleikar í Salnum í kvöld. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við þá
Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson vegna þessa.
Ljósmynd/Spessi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson spila í
Salnum, Kópavogi, á morgun.
Hljómleikar til heiðurs Jóni Múla í Salnum
arnart@mbl.is
alltaf á þriðjudögum