Morgunblaðið - 30.03.2001, Qupperneq 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hljómsveitin
Hunang
leikur frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
JAMES L. Strait, söngvarirokksveitarinnar Snot lést íbílslysi 1998. Þessi diskur er
gefinn út til minningar um hann.
Þegar James lést var hljómsveitin
hálfnuð með sína aðra breiðskífu.
Eftir að hafa tekið sér smátíma til að
ná áttum ákváðu eftirlifandi Snot-
liðar að gefa lögin sem tekin höfðu
verið upp út og fá til þess aðstoð frá
vinum sínum í rokkheiminum. Af-
raksturinn er þessi plata, Strait Up!,
þar sem ýmsir tónlistarmenn ljá lög-
um þeirra raddir sínar.
Fyrsta lag disksins er sungið af
Serj sem þekktastur er fyrir að
syngja með System Of A Down. Hér
er á ferðinni gott lag sem blandar
saman á snotran hátt, hörðu rokki
og laglegri en blíðri melódíu, útkom-
an er góð og verulega sérstök, en er
við öðru að búast frá framverði Syst-
em Of A Down? Jonathan söngvari
Korn er reiður og bitur þar sem
hann syngur lagið „Take It Back“.
Tilfinningarnar virðast bera hann
ofurliði, en Jonathan hefur nú alltaf
verið mikil tilfinningavera!
Lögin á plötunni eru æði misjöfn
en áberandi best er þó snilldarlagið
„Angel’s Son“ í flutningi Lajon úr
Sevendust. Það er reyndar eina lag-
ið á plötunni sem ekki er úr smiðju
Snot. Gítarleikari Sevendust, Clint
Lowery samdi lagið. Þetta er einnig
fyrsta smáskífan af plötunni.
Lagið „Forever“ í flutningi Fred
Durst, söngvara Limp Bizkit er einn
af toppum plötunnar. Lagið grípur
mann strax og sleppir manni ekki
svo auðveldlega. Önnur lög sem
standa upp úr eru „Requiem“ í flutn-
ingi Slipknot rymjarans knáa, Cor-
ey. Dez Fafara syngur „Funeral
Flight’s“, Max Cavalera, forsprakki
Soulfly syngur „Catch A Spirit“ og
samdi hann þar ágætis texta. Mark
McGrath, söngvari Sugar Ray á
einnig góðan sprett í laginu „Reach-
ing Out“ þar sem hann nýtur að-
stoðar Whitfield Crane fyrrverandi
söngvara Ugly Kid Joe.
Hljómsveitin Snot flytur síðan eitt
lag og er það viðeigandi þó lagið sé
nú ekki eitt af betri lögum plötunn-
ar. Að lokum er svo lagið „Sad Air“
þar sem spiluð eru brot úr viðtölum
við James L. Strait og undirleikur-
inn er stórgóður, lag eftir Sonny
Mayo fyrrverandi gítarleikara úr
Snot, núverandi gítarleikara í Amen.
Það er ekki auðvelt að dæma plötu
sem þessa þar sem margir koma
saman til að votta föllnum félaga
virðingu sína. En áberandi er hversu
góður andi er yfir plötunni, auðheyrt
er hversu afslappaðir listamennir
eru. Þó er alltaf hægt að finna ein-
hverja vankanta á plötu sem þessari,
Ozzy Osbourne talar í heilar þrettán
sekúndur. um ágæti hins fallna
söngvara, þetta hefði mátt vera
lengra og hnitmiðaðra fyrst hann
var að þessu á annað borð. Einnig
get ég ekki fundið neitt fallegt að
segja um lagið „I Know Where
You’re At“ þar sem M.C.U.D. ((Hed)
P.E.) syngur. Lagið „Divided (An
Argument For The Soul)“ hefði
einnig alveg mátt missa sín, Brand-
on Boyd (Incubus) stynur þar mátt-
laust. En svo er það auðvitað falda
bónuslagið...
Þegar á heildina er litið er þessi
diskur ágætis minningarvottur um
látinn listamann. Nafn James Lynn
Strait mun lifa.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Þráinn Árni Baldvinsson,
tónlistarmaður,
fjallar um Strait Up!, disk gef-
inn út til minningar um James
Lynn Strait, fyrrum söngvara
hljómsveitarinnar Snot.
Orðstír
deyr
aldregi...
VELSKU piltarnir í Manic Street Preachers hafa
nákvæmlega enga ástæðu til að vera súrir og
spyrja því í smellnum sínum hví maður þarf að
vera svona skrambi súr, við undirleik eld-
fjörugra og sumarsætra sólstrandartóna í
anda sjálfra sólbaðskónganna Beach Boys.
Það er ekki hlaupið að því nú á síðustu og tóm-
legustu tímum að fá múginn til þess að falla
fyrir þenkjandi og þjóðfélagslega meðvitaðri
tónlist en það hefur velsku prédikurunum tek-
ist og fjórða sætið vitnisburður um talsvert
fylgi hérlendis. Eina sem kom í veg fyrir að
sveitin næði
toppsætinu á
heimaslóð-
unum var
ótrúlegar
vinsældir
hinnar liðnu
Evu Cassidy.
Hví svo súr?
Morgunblaðið/Rankin
LOKSINS fá þau að stíga
fram úr skugganum hin
svokölluðu „aukalög“, b-
hliðarnar af smáskífum
hinnar goðsagnakenndu
Pixies frá Boston. Bak
við hvert „Gigantic“ og
hvert „Monkey Gone To
Heaven“ var nefnilega góðgæti sem hlaut allt
of litla athygli líkt og vill gerast með bakhliðar
gæðasmáskífna. Ástæðan er einföld; hefðin
hefur verið sú í gegnum tíðina að litið sé á
þetta dýrmæta pláss sem vandræðapláss
sem þurfi einfaldlega að fylla upp í með einum
eða öðrum hætti. Hafa listamenn því verið full
gjarnir á að losa sig við ruslið þangað sem síð-
an hefur gert að verkum að hinar mestu ger-
semar metnaðarfullra sveita sem kunna ekki
að gera slæma tónlist, sveita á borð við Pixies
sálugu, hafa farið fyrir ofan garð og neðan.
Ekkert B –
ekkert auka!
ÞAÐ HEFUR átt sér stað
minniháttar Kúbubylting
á Íslandi. Kom það skýrt
og greinilega í ljós í vik-
unni þegar miðasala á
tónleika öldunganna í
Buena Vista Social Club
hófst – og lauk reyndar
örskömmu síðar sökum
miðaþurrðar. Unnendur kúbverskrar sveiflu,
örvæntið þó ekki, því svo kann að vera að
nóttin sé ekki úti enn. Ibrahim Ferrer, Ruben
Gonzales og Omara Portuondo eru nefnilega
alvarlega að íhuga að slá til og halda aðra tón-
leika í Höllinni okkar góðu á sjálfum frídegi
verkalýðsins 1. maí. Lifi byltingin!
Lifi
byltingin!
!"
#
$
%
&'
(
!"
)*
! +
," -
,".-
/""
+
! !
/
0&'
.
12
3 &'
!- 45
.
6
! ,
!
"
#
$
%#&'(
)
"'*+++
, -
./
01
'
$
23
'0 45
#
$
# ' 6
75
08
9' );
666<
;
: 0
'
'
#
*
=
8%8'=
: ;;5
# "
0.
:.
$'
*>
?>
@>
A>
B>
C>
+>
*D>
**>
* * *?>
*@>
*A>
*B>
*C>
*+>
D>
*>
?>
@>
A>
B>
C>
+>
D>
8
*
9
8
99
:
;
8
<
8*
=;
8*
8>
9
*>
**
;
*9
9
;
?=
**
8<
8;
8*
*
*
?*
8
?
@A
B
C
B
./
./
?(
)
)
D
D
)
)
B
,
B
$E
)
)
D!
D
F4'
"G
0 C H
I
HJ
4'
5
!" 7
'"G
H
7HHC
H
K.' ( L.'
L1 "L+"C.
L+"C$
L+"C, LEC
(
M
LEC
'L
'
$
LC
$
LC
, *<
*>
?>
@>
A>
B>
C>
+>
*D>
**>
* * *?>
*@>
*A>
*B>
*C>
*+>
D>
*>
?>
@>
A>
B>
C>
+>
D>
;
;
;
%6
1<
=
8
=
<
8>
8<
9
**
88
?
8N
*
N
;
89
:
8;
8?
8=
8*
*:
*=
?>
*?
9*
9:
<:
8:
ÞAÐ er löngu orðið daglegt brauð að ný Pott-
þétt-safnplata fari rakleiðis á topp Tónlistans.
Nú er komið að þeirri 23. í röðinni og sem fyrr
er þar að
finna alla
helstu
smelli
landsins
undanfarin
misseri og
einnig
nokkra sem
eru við það
að slá í
gegn. Svo má ekki gleyma íslensku lögunum
sem nær alltaf má finna inn á milli. Að þessu
sinni halda sólarböndin tvö, Á móti sól og
SSSól, uppi heiðri íslenskrar tónlistar, fyrr-
nefnda með laginu „Spenntur“ en síðarnefnda
með „Ég veit þú spáir eldgosi“.
Af erlendum flytjendum má nefna U2, Creed,
Craig David, Destiny’s Child, Britney Spears,
Coldplay og portúgalskættuðu söngkonuna
Nelly Furtado en hún á lagið „I’m Like A Bird“
sem er að gera allt vitlaust þessa dagana.
Daglegt brauð!