Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 13
Svifbraut í Hlíðarfjalli,
deiliskipulag
Ofangreint deiliskipulag var samþykkt af Bæjarstjórn
Akureyrar 6. mars 2001 og af sveitarstjórn Hörgárbyggðar
21. mars 2001. Deiliskipulagið fjallar um aflanga skák í
Hlíðarfjalli, frá stað skammt sunnan Skíðahótelsins og upp
á fjallsbrún. Tillaga að skipulaginu var auglýst 13.
desember 2000, með kynningar- og athugasemdafresti til
24. janúar. Ein athugasemd barst og hefur hún verið
afgreidd og niðurstaðan kynnt þeim sem hana gerði.
Athugasemdin leiddi til þess að sett var það skilyrði að öll
mannvirki og framkvæmdir á skipulagssvæðinu skyldu
vera háð þeim takmörkunum sem gilda um fjarsvæði
vatnsverndarsvæða. Deiliskipulagið tekur gildi við
auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Frekari upplýsingar eru veittar á umhverfisdeild
Akureyrarbæjar.
Bæjarstjóri Akureyrar.
Oddviti Hörgárbyggðar.
Akureyrarbær og Hörgárbyggð auglýsa:
Vinnuvélanámskeið
verður haldið á Húsavík
og hefst föstudaginn 27. apríl.
Innritun og upplýsingar:
Hreiðar Gíslason 462 1141/892 0228
Kristinn Jónsson 462 2350/892 9166
ÞAÐ ríkir sannkölluð hátíð-
arstemmning í Hlíðarfjalli við Ak-
ureyri þessa dagana, þar sem Andr-
ésar Andar leikarnir í
skíðaíþróttum standa yfir. Um 750
börn víðs vegar af landinu og nokk-
ur grænlensk reyna þar með sér í
alpa- og norrænum greinum og
skín gleði úr hverju andliti. Þessum
stóra hópi fylgir mikill fjöldi for-
eldra og annarra aðstandenda,
þjálfara og liðsstjóra og þá eru
starfsmenn mótsins mjög margir.
Keppni hófst á sumardaginn fyrsta
en mótinu lýkur í dag, laugardag.
Ungur þátttandi á Andrésar
Andar-leikunum á fullri ferð.
Morgunblaðið/Kristján
Bjartur Þór Jóhannsson frá Neskaupstað, tilbúinn á ráslínu, bíður eftir
því að Guðmundur Björnsson starfsmaður gefi sér grænt ljós.
Hátíðar-
stemmning í
Hlíðarfjalli
ÓLI G. Jóhannsson myndlistarmað-
ur og Óskar Pétursson, söngvari frá
Álftagerði, eru næstu bæjarlista-
menn Akureyrar. Samþykkt menn-
ingarmálanefndar um úthlutun
starfslauna listamanna var kunn-
gjörð á vorkomu nefndarinnar í Ket-
ilhúsinu á sumardaginn fyrsta.
Við það tækifæri var Ketilhúsið
vígt sem fjölnota menningarhús eftir
gagngerar breytingar, auk þess sem
húsið var afhent Gilfélaginu til notk-
unar. Einnig var veitt viðurkenning
Húsverndarsjóðs Akureyrar, að
þessu sinni vegna endurbyggingar
hússins Hrafnagilsstrætis 2, sem
kirkju fyrir kaþólska söfnuðinn á
Akureyri. Þrír bæjarbúar fengu við-
urkenningar frá stjórn Menningar-
sjóðs Akureyrar vegna starfa við rit-
list, rithöfundurinn Magnea
Magnúsdóttir frá Kleifum, Sverrir
Pálsson, fyrrverandi skólastjóri, og
Þórarinn Guðmundsson, fyrrverandi
kennari. Þá opnaði Sigurður Árni
Sigurðsson, myndlistarmaður og nú-
verandi bæjarlistamaður, sýningu í
Ketilhúsinu, sem stendur fram til 12.
maí.
Framkvæmdir við endurbætur á
Ketilhúsinu hófust í maí í fyrra en
hlé var gert á þeim yfir sumarið. Þær
hófust að nýju í október sl. og er nú
lokið. Aðalverktaki við framkvæmd-
irnar var Tréborg ehf. en að auki
komu fjölmargir aðrir að verkinu.
Áætlaður heildarkostnaður við end-
urbæturnar er um 46 milljónir
króna. Sem fyrr sagði mun Gilfélagið
sjá um rekstur hússins og afhenti
Ásgeir Magnússon, formaður bæjar-
ráðs og framkvæmdaráðs, Jóni Er-
lendssyni, formanni Gilfélagsins,
lyklavöldin að húsinu.
Listamennirnir staddir
erlendis
Bæði Óli G. og Óskar voru staddir
erlendis er úthlutun starfslauna fór
fram en systur þeirra, Emelía Jó-
hannsdóttir og Herdís Pétursdóttir,
tóku við viðurkenningum fyrir þeirra
hönd. Þeir félagar skipta starfsárinu
á milli sín, Óli frá 1. ágúst nk. til 31.
janúar á næsta ári og Óskar frá 1.
febrúar til 31. júlí 2002. Óli G. er
sjálfmenntaður listamaður. Hann
stofnaði og rak Gallerý Háhól 1976–
1981 en þar var einn fyrsti alvöru-
sýningarsalurinn fyrir myndlist á
Akureyri. Einnig tók hann þátt í
stofnun Myndlistarfélags Akureyrar
og var m.a. formaður þess um tíma.
Þá hefur Óli skrifað töluvert um mál-
efni myndlistarinnar á Akureyri. Óli
er þessa dagana að undirbúa opnun
sýningar á verkum sínum í Dan-
mörku.
Óskar Pétursson stundaði söng-
nám við Söngskólann í Reykjavík og
Tónlistarskólann á Akureyri. Hann
hefur sungið einsöng með fjölmörg-
um kórum við ýmis tækifæri, bæði
hér á landi og erlendis. Óskar hefur
tvívegis sungið með Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands og þá hefur hann
sungið inn á hljóm- og geislaplötur
með Skagfirsku söngsveitinni,
Karlakórnum Heimi og bræðrum
sínum frá Álftagerði.
Vel heppnuð endurgerð
Kristjana Aðalgeirsdóttir arkitekt
hannaði breytingar á kirkju kaþ-
ólska safnaðarins og því húsið í nú-
verandi mynd en endurgerð þess
tókst mjög vel. Húsið er vel hannað
og samsvarar sér vel, auk þess sem
það fellur ekki aðeins vel að götu-
myndinni heldur styrkir hana. Yfir-
umsjón með framkvæmdum sem
fram fóru árið 1999 hafði Aðalgeir
Pálsson verkfræðingur.
Vorkoma menningarmálanefndar í endurbættu Ketilhúsi
Óli G. og Óskar næstu
bæjarlistamenn
Morgunblaðið/Kristján
Frá afhendingu viðurkenninga úr Húsverndarsjóði Akureyrar og Menningarsjóði Akureyrar. F.v. Þröstur Ás-
mundsson, formaður menningarmálanefndar, Guðfinna Thorlacíus og Aðalgeir Pálsson frá kaþólska söfn-
uðinum, Þórarinn Guðmundsson, Magnea Magnúsdóttir, Sverrir Pálsson og Krisján Þór Júlíusson bæjarstjóri.
Viðurkenningarnar sem afhentar voru eru hannaðar og búnar til af listakonunum Bryndísi Pernillu Magn-
úsdóttur, Oddrúnu Halldóru Magnúsdóttur og Margréti Jónsdóttur.
GLERÁRKIRKJA: Ferming-
armessa verður í dag kl. 13.30.
Á morgun, sunnudag, verður
einnig fermingarmessa kl.
13.30. Í fyrramálið verður
barnasamvera í safnaðarsal
kirkjunnar kl. 11 og eru foreldr-
ar hvattir til að mæta með börn-
unum.
Á þriðjudag verður kyrrðar-
stund kl. 18.10 í kirkjunni, á
miðvikudag hádegissamvera kl.
12.10 og á fimmtudag, 26. apríl,
opið hús fyrir mæður og börn
kl. 10-12.
AKUREYRARKIRKJA:
Kvöldmessa með léttri sveiflu
verður annað kvöld, sunnudags-
kvöld, í Akureyrarkirkju og
hefst hún kl. 20.30. Tónlistar-
flutning annast þau Snorri Guð-
varðsson, Viðar Garðarsson,
Inga Eydal og Daníel Þor-
steinsson. Prestur er sr. Svavar
A. Jónsson.
Í messunni gefst fólki kostur
á að syngja létta söngva og
helgihaldið á að vera aðgengi-
legt öllum, líka þeim sem ekki
eru vanir að sækja kirkju. Allir
eru hjartanlega velkomnir og
eftir athöfnina verður boðið upp
á molasopa í safnaðarheimilinu.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa laugardag kl. 18 og
sunnudag kl. 11 í Hrafnagils-
stræti 2.
Messur
SAMHLIÐA sýningu Henri Cartier-
Bresson verður opnuð sýningin „Ak-
ureyri, bærinn okkar“, en hún bygg-
ist á völdum myndum úr samnefndri
bók sem Áhugaljósmyndaraklúbbur
Akureyrar (ÁLKA) gaf nýlega út í
tilefni af tíu ára afmæli félagsins.
Sýningin bregður ljósi á mannlíf
og atvinnuhætti á árinu 2000 í sögu
Akureyrar.
Markmið félagsins er að virkja
áhugafólk um ljósmyndun, skapa
því aðstöðu til vinnslu mynda og
vettvang til að koma verkum sínum
á framfæri.
Klúbburinn hefur frá byrjun stað-
ið fyrir þróttmiklu félagsstarfi.
Ljósmyndarar og myndlist-
armenn hafa verið fengnir til fyr-
irlestra og kennslu, settar hafa ver-
ið upp ljósmyndasýningar á verkum
félagsmanna u.þ.b. annað hvert ár,
sýningar Blaðaljósmyndarafélags
Íslands hafa nokkrum sinnum verið
settar upp á Akureyri á vegum
klúbbsins og fjöldi mynda
klúbbfélaga eru aðgengilegar á
vefsíðu klúbbsins (http://ljos-
mynd.cjb.net/). Þá er fréttabréf gef-
ið út reglulega auk þess sem félagið
hefur staðið fyrir ljósmyndam-
araþoni fyrir almenning frá 1993 og
verið brautryðjandi og fyrirmynd
hér á landi á þeim vettvangi.
Lýsa eigin umhverfi
og hversdagslífi
Eitt verðugasta verkefni áhuga-
ljósmyndaraklúbbs er að lýsa eigin
umhverfi og hversdagslífi í heima-
byggðinni. Um það snerist síðasta
verkefni félaganna í ÁLKA sem
skrásettu mannlíf og bæjarbrag á
Akureyri í eitt ár, frá hausti 1999 til
haustsins 2000. Úr myndunum voru
síðan valdar 250 ljósmyndir í bókina
„Akureyri, bærinn okkar“ sem
klúbburinn gaf út í lok aldamótaárs-
ins. Tilgangur bókarinnar var fyrst
og fremst sá að sýna mannlíf, um-
hverfi, menningu, viðburði, atvinnu-
líf og athafnasemi á einu ári í sögu
bæjarins – bregða upp svipmyndum
úr bæjarlífinu til fróðleiks og
ánægju og ef til vill til samanburðar
síðar.
Þeir sem verk eiga á sýningunni
eru Árni Ólafsson, Berglind H.
Helgadóttir, Björgvin Steindórsson,
Björn Gíslason, Brynjólfur Brynj-
ólfsson, Hörður Geirsson, Magnús
Árnason, Sigurður H. Baldursson,
Sigurgeir Haraldsson og Þórhallur
Jónsson.
Ljósmynd/Berglind H. Helgadóttir
Ljósmynda-
sýning
ÁLKA í
Listasafninu