Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ 18 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ & Sprenghlægilegt verð! Skart og klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 - Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 - Húfur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 - Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 - Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500 Opið alla daga frá kl. 12-18 Grensásvegi 16 (inni í portinu) LOKADAGAR Sprenghlæ ilegt verð! Enn meiri verðlækkun Öll föt á kr. 1.000. Þórshöfn - Árshátíð grunnskólans á Þórshöfn var ágæt skemmtun sem allir nemendur skólans tóku þátt í og leikgleðin var mikil, allt frá fyrsta bekk upp í þann tíunda. Dagskráin var fjölbreytt og hver aldurshópur skilaði sínu verki með sóma. Yngstu börnin léku atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi, næsti hóp- ur með frumsamið leikrit, síðan steig Emil í Kattholti á sviðið ásamt sínu skylduliði en stærsta verkið, Kötturinn fer sínar eigin leiðir, kom frá elsta hópnum. Útkoman var skemmtileg sýning sem jafnaðist á við góða leikhúsferð fyrir áhorfendur en fyrir leikend- urna sjálfa hefur slík sýning einnig mikið gildi; bæði félagslegt og ekki síður sem góð þjálfun í framsögn og sviðsframkomu almennt. Metnaðarfullir kennarar unnu með krökkunum að því að gera árshátíðina eftirminnilega og sú vinna kemur inn í hefðbundið skólastarf sem um leið gerir það fjölbreyttara og að mörgu leyti áhugaverðara fyrir nemendur. Grunnskólinn hefur notið þess að skólastjórahjónin eru fjölhæft tón- listarfólk og hafa miðlað þeim hæfi- leikum til nemendanna, eins og á þessari árshátíð. Auk þess hefur Berglind Magn- úsdóttir leikstýrt og hlúð að leik- listinni, sem nú er orðin vinsæl val- grein í elstu bekkjunum en síðustu tvö árin hafa nemendur grunnskól- ans getað valið á milli listgreina og verklegra greina. Skólastjóraskipti Skólastjóraskipti verða á þessu ári því núverandi skólastjóri, Ás- grímur Angantýsson, og eiginkona hans, Berglind Magnúsdóttir, eru bæði á förum í framhaldsnám eftir gott og uppbyggjandi starf á Þórs- höfn. Ágætar horfur eru þó fyrir næsta skólaár; kennarastöður nær fullmannaðar og búið að ráða skóla- stjóra með ágæta menntun. Enn vantar samt hand- og mynd- menntakennara og einn kennara í almenna kennslu en bjartsýni ríkir um að þau mál leysist farsællega fyrir næsta haust. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Yngstu börnin léku atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi. Vegleg árshátíð Stykkishólmi - Fyrir nokkru lauk í Stykkishólmi nám- skeiði í þjóðbúningasaumi sem Oddný Kristjánsdóttir, frá Íslenskum heimilisiðn- aði, hélt. Sjö konur hafa undanfarnar vikur saumað sér íslenska búninga frá grunni eða breytt eldri bún- ingum. Námskeiðið stóð yfir fjórar helgar og var þá unn- ið alla laugardaga og sunnu- daga. Þetta er í annað skipt- ið sem Oddný heldur námskeið í þjóðbún- ingasaumi í Stykkishólmi og voru 16 konur hjá henni í fyrra. Það virðist vera áhugi hjá konum að eiga þjóðbú- inga og kom fram hjá Odd- nýju að alls hafi hún aðstoða um 400 konur við að sauma sér þjóðbúninga. Konur í Stykkishólmi sauma á sig þjóðbúninga Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Þessar konur voru að ljúka námskeiði í þjóðbúningagerð. Árangur vinnu þeirra er glæsilegur búningur. Oddný Kristjánsdóttir kennari, Hrafnhildur Jónsdótt- ir, Birna Pétursdóttir, Sesselja Pálsdóttir, Hafdís Björgvinsdóttir, Olga Bjarna- dóttir og Erla Harðardóttir. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Það er orðinn nokkuð stór hópur kvenna í Stykkishólmi sem á þjóðbúning. Og þegar þær klæða sig upp setja þær svip á bæinn eins og kynsystur þeirra gerðu hér í gamla daga. Konurnar hittust á tröppum gömlu kirkj- unnar á fögrum sunnudegi. Laxamýri - Mikill og vaxandi áhugi virðist á dorgveiði í Þingeyj- arsýslu. Í vetur hafa veður oft ver- ið góð og seinnihlutann hafa vötn verið vel frosin. Um helgar fara margir á dorg og er um mörg vötn að ræða þar sem hægt er að dorga þó auðvitað sé veiðin misjöfn. Másvatn, Mývatn, Kringluvatn og Vestmannsvatn eru vinsæl vötn, en mörg önnur vötn eru í héraðinu þangað sem dorgfólk leggur leið sína. Á Másvatni hefur verið hálf- smetra þykkur ís að undanförnu og fyrir utan að dorga eru þar einnig lögð net undir ísinn og gefst það nokkuð vel. Fyrir páskana var þar töluvert af fólki og hafa krakk- ar sérstaklega gaman af að dorga og allir geta verið með færi niðri. Mest er beitt rækju og hvít- maðki þó svo að fleiri tegundir beitu séu notaðar. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hermína Fjóla Ingólfsdóttir með færið á góðum degi. Sigríður Atladóttir er tilbúin í slaginn. Vaxandi áhugi á dorgveiði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.