Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 47 Hún amma signdi mig alltaf eftir baðið, áður en hún klæddi mig í ullarbolinn. Hún amma sagði mér að ég mætti alltaf sofa í ömmuskoti, þótt öðrum fyndist ég of stór. Hún amma fékk mig til að hlæja, og kenndi mér að fyrirgefa sjálfri mér. Amma vildi alltaf að ég vissi hvað ég væri velkominn heim í Fagradal með börnin mín. Hún amma mín var mín besta vinkona og okkur fannst óskaplega langt síðan við töluðum saman ef það leið dagur á milli. Hún amma mín kenndi mér að vera þakklát og glöð, hún kenndi mér hvað kjarkur og tryggð er, og að dauðinn er ljúfsár. Guð blessi þig, amma mín, og þakka þér fyrir allt. Þín Nína litla. Hinn 9. apríl lést á Borgarspítal- anum Hrefna Ólafsdóttir húsfreyja í Yri-Fagradal í Skarðshreppi í Döl- um. Andlát hennar kom okkur ekki á óvart, því hún barðist hetjulegri bar- áttu við mjög erfið veikindi í tæp þrettán ár. Hrefna var fædd og uppalin á Hamri í Hamarsfirði, ólst þar upp í hópi glaðra systkina og góðra for- eldra. Þeim sem til þekkja ber sam- an um að ættir Hrefnu einkennist af taustu og góðu fólki. Hún vann við öll venjuleg sveita- störf eins og títt var á þeim árum. Á Hamri var venjulegur búkapur, hestar kýr og kindur. Þar var tíðk- aðist einstök alúð við allar skepnur, en sérstakan áhuga hafði Hrefna á kindunum og mun hafa vakað yfir velferð fjárins, einkum þó um sauð- burðinn. Þá var ekki gerður munur dags og nætur né farið eftir klukku, heldur því sem kom sér fyrir dýrin. Hrefnu langaði á þeim árum mikið til að eignast hest en fórnaði því til að geta farið á Húsmæðraskólann í Hallormsstað og fékk þar góða menntun og undirbúning þess sem síðar varð, hið óhemju krefjandi starf húsfreyju og móður í sveit. Vera hennar á Hallormsstað var mikill gæfu- og gleðitími; að kynnast öllum kennurunum og skólasystrum sínum sem voru ævilangt sólargeisl- ar í minningunni; frábærir félagar og vinir. Minningarnar um æskuheimili hennar á Hamri og fallega sveitin, kæra, ljómuðu alla ævi ferskar og ljúfar í huga hennar. Það hefur verið sagt um þá, sem upprunnir eru í Hamarsfirði, að þeir flytji raunveru- lega aldrei að fullu og öllu þaðan burt, því þar lágu rætur frændgarðs og vina frá æskuárunum og því leit- aði hugurinn ætíð þangað, en þannig er það nú með okkur öll, sem vorum svo lánsöm að alast upp í friði og kyrrð íslenskrar sveitar, þar sem við kynntumst vinnu, leik og fjölbreyttu dýralífi; fuglasöng og lækjarnið. Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern reit, komið er sumar og hýrt er í sveit. Sól er að kveðja við bláfjallabrún, brosa við aftanskin fagurgræn tún. Seg mér hvað indælla auga þitt leit en íslenska kvöldið í fallegri sveit. (Höf. ók.) Sagt er að ekki sé gott að maður eða kona séu einsömul á lífsgöng- unni, og þannig fór að Hrefna kynnt- ist draumaprinsinum sínum, Stein- ólfi Lárussyni í Reykjavík. Þau giftu sig á Hamri, æskuheimili Hrefnu, 10. apríl 1955. Þá yfirgaf Hrefna Ham- arsfjörðinn og flutti að Ytri-Fagra- dal í Skarðshreppi með bónda sínum og þar bjuggu þau allan sinn búskap. HREFNA ÓLAFSDÓTTIR ✝ Hrefna Ólafs-dóttir fæddist á Hamri í Hamarsfirði 12. febrúar 1928. Hún lést á Landspít- alanum 9. apríl síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Grensáskirkju 20. apríl. Það var mikið áfall fyrir heimilið, og þó al- veg sérstaklega Hrefnu, þegar fella þurfti allt fé vegna riðuveiki haustið 1988. Þetta voru miklir vinir hennar, sem hún hlúði að í tíma og ótíma, og var eins og falinn hlekkur brysti við þetta mikla áfall. En þá var haldreipið og hjálpin, að hún átti góðan og traustan eig- inmann, sem hafði skilning á erfiðleikun- um, að ógleymdum góðum börnum og nefni ég sérstaklega yndislega dóttur, hana Höllu, tengdason, barnabörn og uppeldisbörnin sem að mestu voru þó flogin úr hreiðrinu. En allir vildu gjöra sitt fyrir þessa góðu og traustu konu, sem vildi öll- um gott, mönnum jafnt og málleys- ingjum. Kynni okkar hjóna og barna okkar af Fagradalsheimilinu hófust fyrir alvöru þegar ég ásamt nokkrum félögum tók Fagradalsá á leigu og við steyptum upp heilmikinn laxa- stiga, sem enginn lax vildi fara upp af ókunnum ástæðum. Við höfðum aðsetur í litlum bú- stað, sem við fluttum vestur og hlaut nafnið Fagrasel. Í þessu húsi áttum við margar ánægjustundir, en ekki síður á heimili Hrefnu og Steinólfs. Það eru ógleymanlegar stundir, einkum vegna þess að við fundum glöggt að við vorum hjartanlega vel- komin. Alúðin og mannkærleikurinn kom fram í stóru sem smáu. Síðar reistum við hjónin sumarhús á Fellsströnd, sem hlaut nafnið Sveinsstaðir. Þegar við komum vest- ur fannst okkur ævinlega ómögulegt annað en skreppa inn í Fagradal og heilsa upp á heimafólkið. Einkum var það það eiginkonan, dóttirin og tengdasonur okkar sem voru dugleg að fara þessar heimsóknir. Þegar ég komst ekki með þeim vegna vinnu við bústaðinn sagði ég gjarna sem svo: ,,Magga mín, þú skreppur bara fyrir okkur bæði, því þú hefur svo gaman af því. Ég minnist þess hvað þau voru ævinlega glöð eftir þessar heimsóknir, einkum þó ef betur horfði með heilsufar Hrefnu. Þegar veikindi hennar ágerðust þurfti hún æ oftar á sjúkrahúsið á Akranesi og á allt starfsfólk, bæði læknar og hjúkrunarlið, skildar ein- stakar þakkir fyrir alla sína hlýju og aðstoð, svo og læknar í Búðardal, sem gerðu allt hvað þeir gátu henni til hjálpar. Það meta og þakka henn- ar nánustu. Sömu þakkir eiga læknar og hjúkrunarlið Borgarspít- ala, sem gerðu allt sem í mannlegu valdi stóð til að liðsinna henni og líkna síðustu stundirnar. Hrefna hafði miklar áhyggjur af því hvað fólkinu fækkaði mikið í sveitinni. Það var ein síðasta ákvörð- un þeirra hjóna að búa svo um hnút- ana að dóttir þeirra Halla og eigin- maður hennar tækju við búi í Fagradal. Þar með er tryggt að dug- mikið atorku- og hagleiksfólk situr þessa jörð, því vissulega munar um vinnufúsar hendur og verkvilja yngri kynslóða í samfélagi sveitanna. Nú er komið að kveðjustund. Hrefna var kvödd hinstu kveðju í Grensáskirkju, föstudaginn 20. apríl, og verður lögð til hinstu hvíldar að Skarði á Skarðsströnd, laugardag- inn 21. apríl. Við hjónin, börn okkar og tengdabörn kveðjum þig og biðj- um þér Guðs blessunar í fyrirheitna landinu. Mig langar að taka mér það bessaleyfi að skila kveðju frá þér, Hrefna mín, til allra samferðamanna þinna með þessum orðum: Ég kveð nú allt og alla sem unnað hefi eg hér, og allt sem hinir liðnu dagar geyma, alla þá sem liðsinni vildu veita mér og vonirnar sem fæddust hjá mér heima. (Höf. ók.) Margrét Jörundsdóttir og Krist- inn Sveinsson frá Sveinsstöðum. Kynni okkar af Hrefnu og Stein- ólfi spanna giska mörg ár. Við kynnt- umst þeim þegar ráðist var í gerð laxastiga í Fagradalsá. Þessi kynni þróuðist í einlæga vináttu. Þar hefur aldrei borið skugga á. Þegar fjölskyldan reisti sumarbú- stað á Fellsströnd, styrkti það og jók gömul kynni og trausta vináttu þeirra Fagradalshjóna og tengdafor- eldra minna, Kristins og Margrétar, sem þekktu þau frá fornu fari. Það var og verður fastur punktur í vesturferðum að koma við í Fagra- dal, að sitja með húsráðendum í eld- húsinu að njóta samvista þessa hreinskipta og tilgerðarlausa fólks. Þar er menningarheimili og um- ræðuefnin víðátta mannrófsins. Þrátt fyrir veikindi Hrefnu hin síðari árin setti hún sig ekki úr færi að sitja með gestum í eldhúsinu að spjalla og spauga í alvöru blöndnu gamni eftir því sem við átti. Hún var ættvís og fjölfróð. Mér fannst hún stranglega póli- tísk en allt var þar skynsamlega og heiðarlega hugsað. Hún átti gott með að draga hluti saman í skýrar og einfaldar myndir og leggja út af þeim. Hrefna kunni glögg skil orsak- ar og afleiðingar og kunni vel að greina þar á milli enda reyndi ég aldrei að staðsetja hana í flokki en vissi að hinu leytinu hvar hún stóð í hugsjónum. Eftir stendur minning um skýrt hugsandi og greinda konu. Hún var í senn hörð af sér og við- kvæmrar lundar, hlaðgóð, félagslynd og dul. Forréttindi okkar voru að kynnast henni og njóta samvista þegar haldið var í kyrrð og höfga fegurð Breiðafjarðardala. Blessuð sé minning þeirrar mætu og góðu konu. Haraldur G. Blöndal, María Aldís Kristinsdóttir, Ingunn Margrét Blöndal. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minn- ingargreina Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. &         13'  1&?*$0*    !       +!    ,   -. * (/00 1             !        !   #  2 ##  '  /6# *$/*##$  $# & # *$ 0$*$&)!*$ 0$(#  $# )!*$ $& 8 $$>!&   $# )!*$  $#* /6#&& # #$.  *2 $8 && %$ . )!$'&$ 2$ /6#&& #- 3            8  /$6 $#& * *02 $@#2$  / &&* ' !   () * *### $#&)!*$ 02#)$ $&& #  $$0$ $#&)!*$ 5$ # +- $*#&)!*$ % $# %$# % $# % $# %$#- 3         9<3=    /$6 /& 2 7 $%$ A $ #&* !     4        -5 * (.00 1       !          !      6   4       ,       +  ,   ,    #  ##  !" ##&)!*$ &$3$*0!#&& # . / !" ##&)!*$ *2 $ !#&& # 1&$ !" ##&)- &2&&# 9*/ &2&&# *$(# !" ##&)!*$ 8 #(&7* *7* "6 2&& # (# $  $#* !" ##&& # *$  !" ##&)!*$ *$!#7*/(&& # '$&@ 56 2*  $# & #- 7          !   !                   .1     &$%$(#B   - 8         56 56 && # "56 && # !" ## . $ $)!*$  *. $ $& # . !$0 $)!*$ 1*# $ ( *. $ $& # 1 & %## $&)!*$ .$) &. $ $)!*$ .$0$. $ $& # !$##3*##%  )!*$ 22%$#  #22%$#- 3     1 .99   / 2:$*CB /$$$ #)*&! &!$* .(&2@0$ &!  0$ #)&9  $ #* !       1      ,   -5 * (/00      !        #    '  +   .! 2/$ 0$+-0!#&)!*$-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.