Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 27

Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 27 SAMTÖK UM LEIKMINJASAFN Stofnfundur Samtaka um Leikminjasafn ver›ur haldinn í I›nó (uppi) í dag, 21. apríl, kl. 15:00 Frummælendur: Sveinn Einarsson, leikstjóri, og dr. Jón Vi›ar Jónsson, leiklistarfræ›ingur. Ávarp: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. leikhússtjóri. Frá undirbúningsnefnd: Ólafur J. Engilbertsson, leikmyndahöfundur. Samflykkt lög fyrir samtökin. Kosning stjórnar. Önnur mál. Tónlist og leiklestur. A› stofnun samtakanna standa m.a.: Assitej á Íslandi Bandalag íslenskra leikfélaga Bandalag íslenskra listamanna Bandalag sjálfstæ›ra leikhúsa Félag íslenskra leikara Félag leiklistarfræ›inga Félag leikstjóra á Íslandi Félag íslenskra listdansara Félag íslenskra tónlistarmanna Félag leikmynda- og búningahöfunda Íslenska óperan Leikfélag Akureyrar Leikfélag Íslands Leikfélag Reykjavíkur Leiklistarsamband Íslands Leikskáldafélag Íslands Samband ísl. kvikmyndaframlei›enda Ríkisútvarpi› Unima á Íslandi fijó›leikhúsi› fijó›minjasafn Íslands Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á málefninu og vilja gerast stofnfélagar. Harmoniku-vortónleikar í Ráðhúsinu á morgun, sunnudag hefjast með nemendatónleikum Almenna músíkskólans kl. 14.30. Vinir og vandamenn Harmoniku-miðstöðvarinnar mæta til leiks kl. 15.30. Nöfn eins og Matthías, Ása, Inga, Margrét, Hekla, Sveinn Rúnar og Garðar. Hópar: Stormurinn, Karl Adolfsson og félagar. Rúsínan í pylsuendanum, Hjördís Geirs og hljómsveit. LEIÐSÖGN á táknmáli, auk hefð- bundinnar leiðsagnar, verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafn- arhúsi á morgun, sunnudag, kl. 16. Sunnudagsleiðsögn er fastur lið- ur í starfsemi Listasafns Reykjavík- ur, bæði á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Í Listasafni Reykjavíkur í Hafn- arhúsi standa yfir fjórar sýningar: Heimskautalöndin unaðslegu – far- andsýning um Vilhjálm Stefánsson landkönnuð; sýning á verkum Bandaríkjamannsins John Baldess- ari; Eruð þið enn reið við mig?, sýn- ing breska listamannsins John Isaacs; og Myndir á sýningu – verk úr eigu Listasafns Reykjavíkur. Táknmáls- leiðsögn á listsýningar ÁRLEG vorsýning Félags áhuga- manna um tréskurð verður haldin í safnaðarheimili Háteigskirkju v/ Háteigsveg í dag, laugardag og á sunnudag kl. 14-17 báða dagana. Heiðursgestur sýningarinnar, Þrá- inn Árnason, myndskurðarmeistari, mun sýna verk sín, en á sýningunni verður ennfremur til sýnis sveins- stykki Önnu Lilju Jónsdóttur, en hún lauk sveinsprófi í tréskurði ásamt Erni Sigurðssyni á árinu 2000. Vorsýning tré- skurðarfólks KVENNAKÓRINN Norðurljós frá Hólmavík heldur tónleika í Bústaða- kirkju á morgun, sunnudag, kl. 16. Stjórnandi er Sigríður Óladóttir og undirleikarar eru Úlrik Ólason og Gunnlaugur Bjarnason. Kvennakór í Bústaðakirkju ÁSDÍS Kalman opnar málverkasýn- ing í litasalnum Man á Skólavörðu- stíg 14 í dag, laugardag, kl. 14. Á sýningunni eru málverk frá árinu 1999-2001. Sýningin er opin frá kl. 10-18 virka daga og 14-18 um helgar. Ásdís Kalman sýnir í Man BECKETT-hátíð verður í Borgar- leikhúsinu á morgun, sunnudag, kl. 14.30. Það eru Sjónvarpið, Kistan vefrit um menningu og listir (kist- an.is), Reykjavíkurakademían og Borgarleikhúsið sem standa saman að dagskráinni. Guðmundur Brynjólfsson, Martin Regal og Soffía Auður Birgisdóttir flytja erindi, Benedikt Erlingsson, Björn Ingi Hilmarsson, Halldór Gylfason og Hilmir Snær Guðnason flytja atriði úr Beðið eftir Godot í uppfærslu LR og sýnd verður kvik- mynd með Buster Keaton eftir hand- riti Becketts. Heiðursgestir eru Baldvin Halldórsson og Árni Tryggvason. Kynnir verður Illugi Jökulsson. Dan Cassidy, Eggert Pálsson og Martin Tighe flytja írska tónlist. Aðgangur er ókeypis. Beckett-hátíð í Borgarleikhúsinu  Ekkert gerist/Lesbók 12  Beckett-bíó/Lesbók 14 VORTÓNLEIKAR Söngseturs Estherar Helgu verða í Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag, laugardag, kl. 14 og í Grindavíkurkirkju kl. 17. Að þessum tónleikum kemur breið fylking fólks á öllum aldri frá höfuðborgarsvæðinu, Grinda- vík, Akranesi og Borgarnesi, alls um 130 manns. Kórarnir eru Regnbogakórinn, Kammerkór Regnbogakórsins, Brimkórinn, Kammerkór Brimkórsins, Ung- lingahópur Brimkórsins, Rauða kross kórinn og Sólskinskórinn. Kórarnir eru allir undir stjórn Estherar Helgu. Flutt verða ís- lensk og ungversk sönglög og gospeltónlist. Einnig verður frum- flutt nýtt verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson. Unglingahópurinn flytur syrpu af lögum Celine Dion, Óperukórar og Halleluja kórinn. Einsöng syngja Berta Ómarsdótt- ir, Einar Bjarnason, Gígja Eyjólfs- dóttir, Haukur Hauksson, Íris Jónsdóttir, Lára Eymundsdóttir, Marta Sigurðardóttir og Þuríður Gísladóttir. Undirleikarar eru Helgi Már Hannesson og Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Í vor munu Regbogakórinn og Brimkórinn fara saman í kórferða- lag til Búdapest. Þar verða haldnir tónleikar í Kirkju heilagrar El- ísabetar. Og sungið verður við Mattheusarkirkjuna og á aðaltorgi borgarinnar Szentendre. Vortónleikar Söngset- urs Estherar Helgu SÝNINGUM er nú að ljúka á leikrit- inu Já, hamingjan eftir Kristján Þórð Hrafnsson sem sýnt hefur ver- ið á Litla sviði Þjóðleikhússins í vet- ur. Síðustu sýningar verða í dag, laugardag og laugardaginn 28. apríl. Leikritið er dramatískt gaman- leikrit sem fjallar meðal annars um þörfina fyrir andlegt líf, listnautnina, húmorinn, þörfina fyrir að ná sam- bandi við annað fólk, kröfur og vænt- ingar til annarra og margt fleira sem gerir mannleg samskipti bæði gleði- rík og sársaukafull. Með hlutverkin fara þeir Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreinsson. Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreinsson í leikritinu Já, hamingjan. Já, hamingj- an senn af fjölunum NÚ stendur yfir vika bókar- innar og er dagskráin eftirfar- andi: Laugardagur Ævintýrastund Eymundsson, Kringlunni, kl. 13.30 og 15.30. Lesið fyrir börnin í bókabúðinni. Ljóðahátíð Ráðhús Reykjavíkur kl. 16. Hátíðin er haldin í samvinnu við Besta vin ljóðsins. Sjá frétt hér til hliðar. Kvikmyndahátíð Hátíð á vegum Kvikmynda- sjóðs Íslands, Háskólabíós, Filmundar og Félags ísl. bóka- útgefenda. Háskólabíó kl. 14: Benjamín dúfa, kvikmynd Gísla Snæs Erlingssonar eftir bók Frið- riks Erlingssonar. Kl. 16: 101 Reykjavík, kvik- mynd Baltasars Kormáks eft- ir sögu Hallgríms Helgasonar. Kl. 18: Land og synir, kvik- mynd Ágústs Guðmundssonar eftir sögu Indriða G. Þor- steinssonar. Kl. 22: Ungfrúin góða og húsið, kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur eftir sögu Halldórs Laxness. Vika bókar- innar Í TILEFNI af viku bókarinnar verður dagskrá í aðalsafni Borg- arbókasafns Reykjavíkur í Grófar- húsi, Tryggvagötu 15, í dag, laug- ardag, kl. 15:30. Þar mun fólk sem starfar eða býr í nágrenni við safnið lesa sín uppáhaldsljóð, meðal annarra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest- ur, Albert Bergsteinsson frá bíla- stæðasjóði, Halldór Blöndal forseti Alþingis, blómasalinn Helga Thor- berg, barþjónninn Rúnar Matth- íasson, leikskólastjórinn Pálína Sólrún Ólafsdóttir, Jakob Þórar- insson lögreglumaður og Gérard Lemarquis íbúi í Grjótaþorpi. Kynnir verður ljóðskáldið og bóka- vörðurinn Einar Ólafsson. Verðlaun fyrir bestu botnana Á Viku bókarinnar eru einnig haldnar sýningar á uppáhaldsljóð- um gesta í söfnum Borgarbóka- safns og allir gestir safnanna fá ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur með sér heim. Þá hefur Andri Snær Magnason ort nokkra fyrri- parta að ljóðum fyrir heimasíðu Borgarbókasafns, www. borgar- bokasafn.is, og eru gestir síðunnar hvattir til að botna ljóðin. Bóka- verðlaun eru í boði fyrir bestu botnana. Ljóðaupphöf Andra Snæs eru mislöng, en það stysta, sem ber titilinn „Hér byrjar ljóð um himininn“, hljóðar svo: Eins og hvalur... Uppáhaldsljóð miðbæjarfólks ÞRIÐJI og síðasti upplestur á ljóðahátíð Besta vinar ljóðsins og Félags íslenskra bókaútgefenda verður í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, laugardag, kl. 16. Þar lesa átta skáld sem eiga ljóð í bókinni Líf í ljóðum sem gefin er út í tilefni af Viku bókarinnar. Það eru Jónas Þorbjarnarson, Hjálmar Jónsson, Elísabet Jökulsdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ágústína Jónsdóttir, Sindri Freysson, Margrét Lóa Jóns- dóttir og Sölvi B. Sigurðsson. Dagskráin tekur um klukku- stund, aðgangur er ókeypis. Skáld í Ráðhúsinu Elísabet K. Jökulsdóttir Sindri Freysson SÝNINGIN Mömmumyndir verður opnuð í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti, í dag, laugardag, kl. 14. 370 listamenn á aldrinum 4–9 ára sýna, og er þema sýningarinnar Mamma í sparifötunum. Sýningin stendur til 3. maí. Mömmu- myndir hjá Sævari ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.