Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 6
Reuters
Tony Blair kyssir barn á
kosningafundi í Englandi.
FINANCIAL Times ályktaði í gær
að þrátt fyrir innanflokksvanda
hefði Íhaldsflokkurinn hafið kosn-
ingabaráttuna kröftuglega og unnið
fyrstu vikuna. Blaðið vitnaði í
ónefnda frammámenn í Verka-
mannaflokknum og fleiri tóku undir
þetta í morgunútvarpi BBC4 í gær-
morgun. Barátta Verkamanna-
flokksins hefur hins vegar verið ein
samfelld sviðsetning, allt frá skóla-
samkomunni, þar sem Blair til-
kynnti um kosningarnar, til „funda“
Blair með venjulegu fólki. Clare
Short þróunarráðherra segir það út
í hött að hefja kosningabaráttuna
með því að tala yfir stelpum, sem
ekki væru búnar að ná kosninga-
aldri.
En auk spuna er deilt um skatta-
mál. Þar að auki virðast Gordon
Brown fjármálaráðherra og Blair
deila um áherslur í baráttunni.
Deilt um skatta
Skattar eru stórmál í Bretlandi,
þó þeir séu lágir á norrænan mæli-
kvarða og Bretland vinsæl skatta-
paradís fyrir auðfólk frá Norður-
löndum. Heima fyrir er þó
skynjunin önnur og stjórnarand-
staðan gagnrýnir stjórnina ákaft
fyrir að hafa laumað inn sköttum
hér og þar. Það hefur spurst út að
loforð um að hækka ekki tekjuskatt
verði í stefnuskrá flokksins, sem
verður birt í næstu viku.
Þetta loforð tók Hague upp í
harðri árás á Blair í vikunni og benti
á að þetta sýndi að skattahækkanir
væru í bígerð. Blair ætti að lofa að
hækka enga skatta. Hague fékk það
hins vegar til baka, því hann vill
sjálfur ekki lofa því að hækka ekki
skatta og sagt að enginn forsætis-
ráðherra geti gefið slík loforð.
Skattaumræðan sýnir að skatta-
mál verða eins og við mátti búast
eitt af kosningamálunum. Þau tengj-
ast velferðarmálum og opinberri
þjónustu, sem flestir álíta að hafi
hrakað þrátt fyrir loforð Verka-
mannaflokksins um hið gagnstæða.
En hér er Íhaldsflokkurinn ótrú-
verðugur. Kjósendur trúa ekki að
hann geti gert betur og líka lækkað
skatta. Við þessa sjálfheldu glímir
hann því þessar vikurnar.
Taugatitringur
Verkamannaflokksins
Á blaðamannafundi á föstudaginn
var til þess tekið hve Blair og Brown
voru í orðsins fyllstu merkingu hvor
öðrum andsnúnir, það er að þeir
sneru sér varla hvor að öðrum held-
ur töluðu hvor fyrir sig. Breskir fjöl-
miðlar gera því þó skóna að þeir séu
ósammála um áherslurnar í kosn-
ingabaráttunni.
Brown er hallur undir að leggja
áherslu á efnahagsmálin, enda er
það eitt helsta afrek flokksins að
hafa öðlast trúverðugleika á því
sviði. Í vikunni sagði Digby Jones,
framkvæmdastjóri samtaka breska
iðnaðarins, á rabbfundi með erlend-
um fréttamönnum að frá sjónarmiði
iðnaðarins væri Verkamannaflokk-
urinn fullhæfur stjórnandi, en fyrir
kosningarnar 1997 hefðu flestir inn-
an iðnaðarins ekki trúað að flokk-
urinn gæti rekið stöðugt efnahagslíf.
Blair og aðstoðarmenn hans vilja
hins vegar breiðari áherslu, líka
vegna þess að efnahagsmálin eru
svið Browns og of mikil áhersla á
þau hlaða undir Brown. Í vikunni
neitað Blair þeim þráláta orðrómi að
það væri samkomulag milli þeirra
tveggja um að Brown tæki við af
honum á kjörtímabilinu. Brown hef-
ur hins vegar ekki þvertekið fyrir
þennan möguleika.
Spuni og áfallinn
geislabaugur
Financial Times ályktaði í gær að
Íhaldsflokkurinn hefði unnið fyrstu viku
kosningabaráttunnar. Verkamannaflokk-
urinn sér að kálið er ekki sopið þó í
ausuna sé komið samkvæmt skoðanakönn-
unum, segir Sigrún Davíðsdóttir.
ERLENT
6 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 6/5–12/5
KJARADÓMUR ákvað
6,9% hækkun á launum
þeirra aðila sem undir
hann falla miðað við 1.
apríl. Samkvæmt því
verða mánaðarlaun for-
seta Íslands 1.336.250 kr.,
mánaðarlaun forsætisráð-
herra 643.025 kr. og ann-
arra ráðherra 584.668 kr.
FIMMTÁN gámar féllu
í sjóinn af leiguskipi Atl-
antsskipa. Í einum gámn-
um voru m.a. fjögur mál-
verk eftir þjóðkunna
íslenska listamenn, Jó-
hannes Kjarval, Þorvald
Skúlason, Jóhannes Jó-
hannesson og Ásgrím
Jónsson, en þau var verið
að flytja til landsins
ásamt búslóð Svavars
Gestssonar sendiherra úr
ræðismannsbústaðnum í
Winnipeg í Kanada.
Óhappið er talið mega
rekja til slæms veðurs.
VALGERÐUR Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra
segir að unnið sé að
áformum í stóriðjumálum
á Austurlandi og Vest-
urlandi í samræmi við
stefnu stjórnvalda. Hún
segir ekki rétt að sam-
staða sé innan ríkisstjórn-
arinnar um að setja
stækkun Norðuráls á
Grundartanga í forgang,
en unnið sé að því að ráð-
ast megi í fyrsta áfanga
stækkunar álversins á
Grundartanga áður en
hafist verður handa við
uppbyggingu álvers í
Reyðarfirði. Ráðherrann
segir brýnt að gengið
verði frá samningum um
stækkun Norðuráls.
Vélstjórar og útgerð-
armenn semja
SAMNINGANEFND Vélstjórafélags
Íslands og útgerðarmanna undirrituð-
uð kjarasamning sl. miðvikudag og var
verkfalli vélstjóra þá aflýst. Samning-
urinn gildir til ársloka 2005. Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélags Íslands,
segir að samningurinn færi vélstjórum
tæplega 50% hækkun á kauptryggingu,
20% hækkun á þorskverði, bætta slysa-
tryggingu og bætt lífeyriskjör. Fulltrú-
ar Sjómannasambandsins og Far-
manna- og fiskimannasambandsins
hafna að ganga að sams konar samningi
og Vélstjórafélagið hefur undirritað.
Hækkun á bótum elli-
og örorkulífeyrisþega
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
lögfesta víðtækar breytingar á almanna-
tryggingakerfinu og hækka bætur elli-
og örorkulífeyrisþega. Gengið er út frá
að breytingarnar öðlist gildi 1. júlí nk.
Áætlað er að útgjöld almannatrygginga
vegna aukinna bótagreiðslna hækki um
700 milljónir kr. á þessu ári og 1.350
millj. kr. miðað við heilt ár. Talsmönnum
öryrkja og eldri borgara finnst lítið til
breytinganna koma og sögðu að þar
væri aðeins stigið eitt lítið skref á langri
leið til betri kjara.
Bensínverðstríð
VERÐ á bensíni á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum breyttist ótt og títt í byrjun
vikunnar og gætti nokkurs taugatitr-
ings. Olíufélagið ákvað að lækka elds-
neyti á ný, sem nam hækkun félagsins á
verði bensíns 4. maí sl. Verð var lægst á
95 oktana bensíni á höfuðborgarsvæð-
inu hjá Orkunni á Smiðjuvegi, 91,40 kr.
lítrinn, 91,60 hjá ÓB um allt land og
Esso Express bauð lítrann einnig á
91,60. Bensínverðstríðið barst jafn-
framt til Akureyrar þar sem verðið var
lægst 91,20 kr.
INNLENT
130 manns farast í
troðningi á knatt-
spyrnuleik
UM 130 manns létu lífið í troðningi á
knattspyrnuleik í Accra, höfuðborg
Ghana, á miðvikudagskvöld. Er þetta
mannskæðasta slys sem orðið hefur á
íþróttakappleik í Afríku.
Tildrög slyssins voru þau að átök
blossuðu upp milli stuðningsmanna
tveggja liða sem öttu kappi á aðal-
íþróttaleikvangnum í Accra. Lögregl-
an skaut táragassprengjum upp í
stúku til að stöðva skrílslætin og varð
það til þess að áhorfendurnir reyndu
allir að forða sér út samtímis.
Talsmaður stjórnar Ghana sagði að
svo virtist sem lögreglan hefði brugð-
ist of hart við og nefnd yrði skipuð til
að rannsaka atburðarásina. Mikil sorg
og reiði ríkir í landinu vegna slyssins
og hermenn áttu fullt í fangi með að
halda aftur af þúsundum manna sem
vildu bera kennsl á skyldmenni í hópi
látinna á sjúkrahúsum í Accra.
Flugskeytum skotið á
palestínsk skotmörk
HER Ísraels skaut flugskeytum á pal-
estínsk skotmörk í Gaza-borg á
fimmtudag til að hefna sprengjuárásar
sem varð tveimur rúmenskum farand-
verkamönnum að bana þegar þeir voru
að styrkja girðingu við landamæri
Ísraels og Gaza-svæðisins. Var flug-
skeytum skotið á höfuðstöðvar lög-
reglunnar og öryggisyfirvalda og einn-
ig skrifstofur Fatah-hreyfingarinnar.
Daginn áður fundust lík tveggja
ísraelskra unglinga í helli á Vestur-
bakkanum og grunur leikur á að
herskáir Palestínumenn hafi grýtt þá
til bana. Fjögurra mánaða gömul pal-
estínsk stúlka lét lífið af völdum
sprengjubrots í árás Ísraelshers á
Gaza-svæðinu á mánudag og er hún
yngsta fórnarlamb átakanna á sjálf-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
JÓHANNES Páll II
páfi bað fyrir friði og
sáttum milli araba og
gyðinga á mánudag þeg-
ar hann heimsótti sýr-
lenska bæinn Quneitra
sem Sýrlendingar segja
að Ísraelar hafi lagt í rúst
eftir að þeir hernámu
Gólan-hæðirnar. Daginn
áður skoðaði hann mosku
í Damaskus og varð þar
með fyrsti páfinn til að
fara í bænahús múslíma.
TONY Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, til-
kynnti á þriðjudag að
gengið yrði til þingkosn-
inga í landinu 7. júní
næstkomandi. Flest bend-
ir til þess að Blair verði
þá fyrsti leiðtogi Verka-
mannaflokksins sem stýr-
ir flokknum til sigurs í
kosningum eftir stjórn-
arsetu, því hann hefur
örugga forystu í öllum
skoðanakönnunum.
GEORGE Robertson,
framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins,
varaði við því á mánudag
að Makedónía rambaði á
barmi allsherjarstríðs og
lýsti albönskum uppreisn-
armönnum, sem berjast
við makedóníska stjórn-
arhermenn í fjöllunum,
sem „morðingjum“.
FÆREYINGAR hyggj-
ast ekki staðfesta Kyoto-
bókunina um samdrátt í
losun koldíoxíðs vegna
þess að verði hafin ol-
íuvinnsla við Færeyjar
gæti losun koldíoxíðs þar
tvöfaldast, að sögn fær-
eysku landstjórnarinnar á
mánudag.
ERLENT
Holdsveikisjúklingum
dæmdar skaðabætur
Tókýó. AFP.
YFIR 100 japanskir holdsveikisjúk-
lingar unnu á föstudag málaferli
sem staðið höfðu árum saman. Stað-
festi dómstóll í Kumamoto í Suður-
Japan að yfirvöld hefðu brotið
mannréttindi á hinum holdsveiku,
meðal annars með því að halda þeim
í einangrun, vana þá og þvinga til
fóstureyðinga.
Hinir 127 fyrrverandi holdsveiki-
sjúklingar, sem stóðu að málsókn-
inni, fengu kröfu sína um 115 millj-
ónir jena, andvirði um 92 milljóna
króna, í miskabætur staðfesta af
dómstólnum. Í dómsorði er japanska
ríkinu gert að greiða málshefjendum
1,82 milljarða jena alls, sem gerir
14,33 milljónir jena á mann, andvirði
11,5 milljóna króna.
„Loksins getum við verið eðlilegt
fólk,“ sagði Yoshizo Tsutsumi, sem
er sjötugur að aldri, en hann eyddi
áratugum ævi sinnar lokaður inni á
holdsveikrahæli.
Er dómsúrskurðurinn var kveð-
inn upp brutust út mikil fagnaðar-
læti í hópi áheyrenda í dómsalnum,
sem flestir voru fyrrverandi
holdsveikisjúklingar, margir á átt-
ræðis- og níræðisaldri.
Þessi dómsniðurstaða er sú fyrsta
í þremur hliðstæðum málaferlum
samtals um 700 japanskra holds-
veikisjúklinga gegn ríkinu. Varpaði
réttarhaldið ljósi á þjáningar fólks
sem smitaðist af sjúkdómnum. Yf-
irvöld beittu það skipulögðu mis-
rétti.
„Í seinasta lagi um árið 1960 var
orðið augljóst að lög sem kváðu á um
einangrun holdsveikisjúkra brutu í
bága við stjórnarskrána,“ sagði
Masashi Sugiyama, forseti dómsins,
í óvenju ótvírætt orðuðu dómsorði.
1.400 vanaðir
Um 1960 var það orðið alþjóðlega
viðurkennt að holdsveiki væri sjúk-
dómur sem sjaldgæf veira ylli sem
ekki væri smitandi. Á fimmta ára-
tugnum höfðu verið þróuð lyf sem
hefðu getað leyft japönsku holds-
veikisjúklingunum að gerast þátt-
takendur í samfélaginu á ný.
En japönsk stjórnvöld héldu fast
við einangrunarstefnu sína sem mót-
uð var fyrir stríð og héldu til streitu
hinum illræmdu holdsveikivarnalög-
um frá 1953 en á grundvelli þeirra
voru holdsveikir vanaðir og þving-
aðir til fóstureyðinga. Er gizkað á að
um 1.400 vönunaraðgerðir hafi verið
gerðar á holdsveikum og 3.000 fóst-
ureyðingar.