Morgunblaðið - 13.05.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.05.2001, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 23 Þórhall, Magnús frá Mel og Stefán Hilmarsson,“ sagði hann. „Fyrst sem starfsmannastjóri og forstöðu- maður stofnlánadeildar og síðar sem bankastjóri. Magnús féll frá langt um aldur fram og þá vorum við þrír jafnsettir, Stefán, Jón Adolf Guðjónsson og ég, en við Jón Adolf höfum starfað nánast jafn- lengi sem bankastjórar. Síðar kom Sólon R. Sigurðsson inn þegar Stefán Hilmarsson lét af störfum í árslok 1989. Með lagabreytingu ár- ið 1997, þegar bankanum var breytt í hlutafélag, var sú breyting gerð að ég varð aðalbankastjóri og tók við því starfi í ársbyrjun 1998. Samstarfið hefur gengið mjög vel og hef ég kappkostað að rödd bankans væri einróma út á við. Það er afar mikilvægt þegar um sam- starf er að ræða að mismunandi áherslum sé haldið innan dyra en ekki utan.“ Eitt fjölmennasta hlutafélagið Stefán sagði að á margan hátt hafi það haft breytingar í för með sér þegar ríkið ákvað að selja hlut í bankanum og gera hann að hluta- félagi. „Bankinn er kominn á verð- bréfaþing og það er skylda að til- kynna um afkomu hans eigi sjaldn- ar en á hálfs árs fresti en ákveðið var að tilkynna verðbréfaþingi á þriggja mánaða fresti,“ sagði Stef- án. „Auðvitað breytir það miklu að eigendum hefur fjölgað. Þegar bankinn var boðinn út var feikilega mikill áhugi meðal almennings á að eignast hlut í honum. Það var sett met í ásókn í hlutabréf í bank- anum. Þannig að það voru 93 þús- und Íslendingar, sem skrifuðu sig fyrir hlut og í dag eru eigendur tæplega 30 þúsund. Þar með held ég að bankinn sé eitt fjölmennasta hlutafélag landsins ef ekki það fjöl- mennasta. Ég held að við höfum sannað það í bankanum að við vor- um tilbúnir til að gera nauðsyn- legar breytingar og að bankinn hafi aðlagað sig fljótt þeim breyttu viðhorfum sem hafa orðið.“ Stefán viðurkennir að hann hafi starfað á miklum umbrotatímum. „Án þess að ég vilji fara að tala um sérstök efnisatriði má þó benda á að meðan bankinn starfaði undir fyrri lögum þurfti að gera banka- stjórn Seðlabankans grein fyrir rekstri bankans. Nú þurfum við að gera Verðbréfaþingi og þar með almenningi grein fyrir rekstrin- um,“ sagði hann. „Það má segja að þetta sé kerfisbreyting en ekki mikil breyting á starfseminni. Við höfum alla tíð kappkostað að reka bankann á eins hagkvæman hátt og við höfum talið að unnt væri.“ Í dag rekur bankinn 36 starfs- stöðvar um allt land og sagði Stef- án að þær skiluðu allar framlegð. „Starfsmenn bankans eru 680 og þeim hefur ekki fækkað á und- anförnum árum,“ sagði hann. „Við höfum farið í gegnum reksturinn reglulega og segja má að umsvifin hafi tvöfaldast á síðustu fjórum ár- um án þess að starfsmönnum hafi verið fjölgað. Þetta hefur verið gert með mikilli hagræðingu. Eina aukningin sem hefur átt sér stað sl. fjögur ár má segja að sé upp- bygging á verðbréfasviði.“ Vaxtarverkjum lokið Stefán sagðist ekki vilja víkjast undan að svara þeirri gagnrýni sem uppi hefur verið á verðbréfa- svið bankans. „Verðbréfasviðið er byggt upp á miklum uppgangstímum og það getur vel verið að fullhratt hafi verið farið en ég tel þó að vaxt- arverkjunum sé lokið,“ sagði hann. „Þetta á ekkert frekar við um okk- ur en aðrar verðbréfastofur. Á þessum árum, 1997 til 1999, var mikil þensla í þjóðfélaginu. Ég skorast ekki undan því að viður- kenna að það voru ákveðnir vaxt- arverkir hjá verðbréfafyrirtækjun- um og þar vorum við ekki undanskildir.“ Bankaeftirlitið er með til skoð- unar hvort um innherjaviðskipti hafi verið að ræða hjá fyrrum starfsmönnum verðbréfasviðs. Stefán sagðist ekki vilja ræða það mál á meðan niðurstaða lægi ekki fyrir. Um hugsanlega sameiningu Búnaðarbanka og Landsbanka sem ráðgerð var sagði Stefán það hafa verið skoðun þeirra í Búnaðar- bankanum að ef samrunninn hefði verið leyfður þá hefði orðið til mjög sterk rekstrareining. „Þar gengum við til undirbúnings sam- einingarinnar af fullum heilindum og gríðarleg vinna var lögð í verk- ið,“ sagði hann. „Það lá þó alltaf fyrir sú skoðun okkar að Búnaðar- bankinn gæti með góðu móti starf- að sem sjálfstæð eining áfram. Eftirá getur maður undrast að ekki skyldi leitað álits Samkeppn- isstofnunar fyrirfram.“ Umræða upp úr áramótum sú erfiðasta og undarlegasta Stefán sagðist verða að játa að sú umræða sem fór fram um bank- ann upp úr áramótum fyrir aðal- fundinn hafi verið sú erfiðasta og jafnframt sú undarlegasta sem hann hafi tekið þátt í. „Undarleg- asta og jafnframt erfiðasta fyrir það að stjórnendur bankans fengu ekkert að vita og vita ekki enn hvaða ávirðingar eru bornar á bankann og starfsmenn hans,“ sagði hann. „En það lá ljóst fyrir og hafði legið fyrir um nokkurn tíma að við Jón Adolf óskuðum eft- ir að láta af störfum.“ Um samskipti sín við Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra sagði Stefán að þau hefðu ekki ver- ið mikil. „Og satt að segja minni en við þá viðskiptaráðherra sem á undan henni voru,“ sagði hann. Reynsla í mannlegum samskiptum Það orð fer af Stefáni að hann sé hreinskiptinn og segi umbúðalaust meiningu sína jafnvel þótt hún komi illa við í fyrstu. „Í starfi bankastjóra fær maður ákaflega mikil reynslu í mannlegum sam- skiptum og ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga gott sam- starf við allt mitt fólk og átt létt með að umgangast þá sem til mín hafa leitað,“ sagði hann. „Ég kvíði ekki framtíð bankans. Hann er í mjög góðum höndum bankastjór- anna, þeirra Sólons Sigurðssonar og Árna Tómassonar.“ Stuðningur við góð málefni Eins og margar aðrar peninga- stofnanir hefur Búnaðarbankinn stutt við ýmis góð málefni með fjárframlögum m.a. til menningar- mála og ekki síst til landgræðslu og skógræktar. „Ég er þeirrar skoðunar að banki eigi að koma að mannúðar- og menningarmálum og ekki síður að landbótum,“ sagði Stefán. „Ef ég hef orðið þar til ein- hvers gagns með því að styðja þessa aðila þá tel ég að bankinn stækki við það. Verði ekki einasta peningastofnun heldur stofnun sem sýnir í verki aðkomu að slík- um uppbyggingarmálum.“ Tengist upprunanum „Áhugamál mín tengjast upp- runa mínum en ég er fæddur og uppalinn í sveit og tel mig hafa sæmilegan skilning á þjóðfélag- inu,“ sagði hann. Stefán er fæddur og uppalinn á Skinnastað í Öx- arfirði. Foreldrar hans voru sr. Páll Þorleifsson prófastur, sem sat staðinn í 40 ár, og Guðrún Elísabet Arnórsdóttir. „Ég held að það sé afar gott veganesti inn í starf eins og bankastjórastarfið að vita nokk- uð hvernig þjóðfélagið starfar. Þess vegna hafði ég mikla ánægju af því að taka að mér fram- kvæmdastjórn í stofnlánadeildinni því ég hafði frá barnæsku haft mikinn áhuga á landbúnaði.“ Stefán er þekktur af hesta- mennsku og var m.a. varaformaður og formaður Landssambands hestamanna í átta ár. „Ég stunda hestamennsku sem tómstundagaman og eigum við kona mín, Arnþrúður Arnórsdóttir, jörðina Vindás í Hvolhreppi ásamt þremur öðrum fjölskyldum, þar sem við höfum verið í sautján ár í vor,“ sagði hann. „Ég veit að ég mun hafa meiri tíma fyrir fjöl- skylduna en áður, en við hjónin eigum fjögur uppkomin börn sem komin eru með fjölskyldur og sex barnabörn. Einnig hef ég betri tíma til að sinna hrossum og öðr- um áhugamálum meira en ég hef getað til þessa.“ einróma Klapparstíg 44, sími 562 3614 HÚSASKILTI Pantið fyrir 25. nóvember til jólagjafa. HÚSASKILTI Maítilboð 10% afsláttur Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu á verði sem hefur aldrei sést fyrr á Íslandi. Vikuleg flug alla föstudaga til Mílanó, þessarar háborgar lista og tísku í heiminum. Hér kynnist þú listaverkum Leonardo da Vinci, Scala óperunni með frægustu listamönnum heimsins, hinum fræga miðbæ þar sem Duomo dómkirkjan gnæfir yfir, hinni frægu verslunargötu Galeria Vittorio Emanuele II, ráðhúsinu, glæsilegustu verslunum heimsins, listasöfnum og nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu. Beint flug föstudaga engin millilending Flugsæti Flug og bíll Flug og hótel Mílanó í sumar frá 24.520 kr. Verð kr. 24.520 Verð p.mann, m.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára. Skattar, kr. 2.495.- fyrir fullorðinn, kr. 18.10 fyrir barn, innifaldir. Ekki er öruggt að lægsta fargjald sé til á öllum brottförum. Verð kr. 24.870 Flugsæti fyrir fullorðinn. Verð kr. 27,365 með sköttum. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heildsala: Bergís ehf.  Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem gáfu sér tíma til að drekka með mér kaffi á Hótel Borg á 90 ára afmæli mínu 29. mars sl. Starfsfólki Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis sendi ég kveðjur og þakklæti fyrir sendinguna og einnig starfsfólki á Hótel Borg þakka ég ynd- islega þjónustu. Guð blessi ykkur öll. Gleðilegt sumar! Helga Skaftfeld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.