Morgunblaðið - 13.05.2001, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 35
B
reski geðlæknirinn
David Healy varð
nýlega af spennandi
nýju starfi og þótt
ekkert liggi ljóst
fyrir þykir margt benda til þess
að ástæðan sé sú að hann leyfði
sér að gagnrýna opinberlega
stórt og voldugt lyfjafyrirtæki.
Healy starfar nú við Háskól-
ann í Wales – og hyggst ekki
hætta þar. En fyrir réttu ári fékk
hann atvinnutilboð frá rannsókn-
armiðstöð í ávana- og fíkniefnum
sem starfrækt er í tengslum við
Háskólann í Toronto í Kanada.
Þetta leit allt vel út og í lok nóv-
ember í fyrra kom Healy til Tor-
onto og hélt
fyrirlestur í
rannsókn-
armiðstöðinni.
Viku seinna
var atvinnu-
tilboðið dregið
til baka. Þetta
er því að sínu leyti sagan af fyr-
irlestrinum dýra. Healy sagði í
viðtali við kanadíska dagblaðið
The Globe and Mail nýlega að
hann væri ekki í vafa um að
ástæðan fyrir því að atvinnu-
tilboðið var dregið til baka væri
sú að í fyrirlestrinum fór hann
gagnrýnum orðum um geðlyfið
Prozac og önnur lyf af sömu
gerð.
Framkvæmdastjóri rannsókn-
armiðstöðvarinnar segir ekkert
hæft í þessu. En það er samt ekki
skrítið að Healy og ýmsir aðrir
telji víst að maðkur sé í mysunni.
Ástæðan er einföld. Prozac er
framleitt af lyfjafyrirtækinu Eli
Lilly. Og þetta sama fyrirtæki er
einn helsti fjárstuðningsaðili
rannsóknarmiðstöðvarinnar sem
hafði boðið Healy starf.
Að sögn The Globe and Mail
var inntakið í fyrirlestrinum dýra
gagnrýni á lyfjafyrirtæki fyrir að
víkja sér undan tilraunum sem
gætu dregið fram neikvæðar hlið-
ar á lyfjunum sem þau framleiða
og fyrir að birta ekki niðurstöður
sem eru lyfjunum ekki í hag.
Hann sagði meðal annars að fyrir
lægju upplýsingar sem benda til
þess að Prozac og önnur skyld lyf
hafi beinlínis verið orsök fjölda
sjálfsvíga.
Healy velti því ennfremur fyrir
sér hvort það væri að ráði lög-
fræðinga sem lyfjafyrirtækin
forðuðust að rannsaka hugsanleg
neikvæð áhrif lyfjanna, á svip-
uðum forsendum og tóbaksfyr-
irtæki forðuðust slíkar rann-
sóknir á áhrifum tóbaks. Svona
rannsóknir gætu aukið ábyrgð-
arhluta fyrirtækjanna ef kæmi til
skaðabótamála.
Framkvæmdastjóri rannsókn-
armiðstöðvarinnar, David
Goldbloom, dró atvinnutilboðið til
baka í tölvuskeyti sem hann
sendi Healy. (Blaðamaður Globe
and Mail kveðst hafa fengið afrit
af umræddu tölvuskeyti). Sagði
Goldbloom að fyrirlesturinn væri
greinilega til marks um að að-
ferðir Healys væru ekki í sam-
ræmi við „þróunarmarkmið“ mið-
stöðvarinnar. Fullyrðir
blaðamaðurinn að með því hafi
Goldbloom átt við fjáröfl-
unarmarkmið, þótt talsmaður
rannsóknarmiðstöðvarinnar neiti
því að slíkt hafi legið í orðum
framkvæmdastjórans.
Í fyrra stöðvaði Eli Lilly ár-
lega fjárveitingu sína til Hast-
ings-miðstöðvarinnar í New
York, sem sinnir rannsóknum í
siðfræði, eftir að miðstöðin birti
greinaflokk um Prozac, þar á
meðal grein eftir Healy sem bar
titilinn „Góð vísindi eða góð við-
skipti“ þar sem hann fór gagn-
rýnum orðum um lyfið. Tals-
maður Eli Lilly sagði fyrirtækið
hafa litið svo á, að miðstöðin hefði
birt villandi og vísindalega
ógrundaðar upplýsingar sem
gætu hafa leitt til misskilnings.
Sagan af fyrirlestrinum dýra
hefur valdið nokkru uppnámi
meðal vísindamanna, sem sjá í
henni merki um að þeim sé ekki
óhætt að láta í ljósi gagnrýni sem
getur komið illa við kaupsýsluna
hjá lyfjarisum. Það gerir málið
enn alvarlegra að læknadeildir
háskóla þurfa sífellt meira að
reiða sig á fjárframlög frá einka-
fyrirtækjum, eftir því sem mark-
aðshugsun verður meira og meira
ríkjandi hjá bæði stjórnvöldum
og stjórnendum háskóla.
Það sem menn óttast er að hið
svonefnda akademíska frelsi sé í
hættu. Akademískt frelsi er ekki
alveg ólíkt þinghelgi. Það er fólg-
ið í því, að innan akademíunnar á
mönnum að leyfast að segja hvað
sem er án þess að eiga á hættu að
verða látnir gjalda þess. Þetta er
eins konar friðhelgi. Þetta er
vegna þess að í vísindum og
fræðum skiptir gagnrýni – og
beinlínis niðurrifsstarfsemi – gíf-
urlega miklu máli. Það er með
þeim hætti sem reynir á hug-
myndir og skoðanir og kemur í
ljós hvort er eitthvert hald í
þeim. Hvort þær geti kannski
farið nærri því að vera sannar.
Hugmyndin er þá sú að gagnrýni
sé mikilvægur liður í að nálgast
sannleikann í hverju máli.
Þetta akademíska frelsi á sér
aldagamlar rætur, rétt eins og
akademían sjálf. Því var upp-
haflega komið á til að tryggja að
háskólamenn yrðu ekki sviptir
lífsviðurværinu fyrir það að
gagnrýna opinbera ráðamenn.
Það er að segja, þetta átti að
vernda þá fyrir gerræði duttl-
ungafullra kónga og biskupa sem
vildu ekkert heyra nema já og
amen. Ráðamanna sem kannski
voru móðgunargjarnir – og jafn-
vel hefnigjarnir.
En núna eru það ekki bara op-
inberir ráðamenn sem vilja síður
gagnrýni, það eru kannski frem-
ur kaupsýslumenn, sem ekki vilja
neikvæða umfjöllun, því að svo-
leiðis er vont fyrir bissnisinn. Það
er algjör óþarfi að láta eitthvert
gamaldags nöldur sem á að heita
„sannleiksleit“ standa í vegi fyrir
góðum hagnaði.
Healy segir að hann hafi fengið
símhringingar frá fólki í mörgum
löndum sem hefur spurt hvort
óhætt sé að segja eitthvað nei-
kvætt um lyfjafyrirtæki. Hann
segir nauðsynlegt að sem flestir
viti af þeim ógöngum sem hann
lenti í í kjölfar fyrirlestrarins.
Starfið
sem hvarf
Sagan af fyrirlestrinum dýra hefur vald-
ið nokkru uppnámi meðal vísinda-
manna, sem sjá í henni merki um að
þeim sé ekki óhætt að láta í ljósi gagn-
rýni sem getur komið illa við kaup-
sýsluna hjá lyfjarisum.
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
kristjan-
@yourku.ca
VILTU VERÐA ATVINNUFLUGMAÐUR?
RÆÐIÐ MÁLIÐ VIÐ
LEIÐANDI SKÓLA Í ÞJÁLFUN
ATVINNUFLUGMANNA
KYNNINGARFUNDUR Á ÍSLANDI:
RADISSON SAS,
HÓTEL ÍSLAND,
REYKJAVÍK
laugardaginn 19. maí, 2001 kl. 14
Nánari upplýsingar veita SUSAN PRICE og FAYE WHISTLER og hjá
þeim er einnig unnt að bóka einkaviðtal í tengslum við kynningarfundinn.
TÆKIFÆRI SEM FÆRIR YKKUR NÝTT
LÍF OG BJARTA FRAMTÍÐ
Símar: +44 (0) 1865 844 284 og +44 (0) 1865 844 276
Rafpóstur: sprice@oxfordaviation.net
fwhistler@oxfordaviation.net
Blómaverkstæði Betu - Hfj.
Félagsmenn 4x4 og aðrir ábyrgir ferðamenn. Nú er
tími aurbleytunnar á fjallvegum. Hafa ber þessar
aðstæður í huga áður en lagt er í ferðalög og forð-
ast þannig skemmdir á vegum og landi.
3
Félagar, munið landgræðsluferðina í Þórsmörk
helgina 22. - 24. júní nk.
Ferðaklúbburinn 4x4
Laugavegi 27, sími 551 0102
10 ára
Bjóðum 20% afslátt
í tilefni afmælisins
Psyllium Husk Caps
FRÁ
Apótekin
Fyrir meltinguna,
hægðalosandi
með GMP gæðastimpli
100% nýting/frásog
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla