Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Noregur yrði í lykilhlutverki í end-
urskoðun sjávarútvegsstefnunnar,
sem aðildarríki. Það er að sjálfsögðu
skynsamlegra að nálgast sameigin-
leg vandamál saman.“
Aðspurður segir Fischler að ná-
kvæmlega það sama eigi við um Ís-
land. „Að sjálfsögðu á það sama við
um Ísland. Menn verða að átta sig á
því að því fyrr sem ríki gerast að-
ilar, þeim mun meiri áhrif geta þau
haft á stefnumótun innan ESB. Mín
skoðun er sú að þróun sambandsins
heldur áfram óháð því hversu mörg
ríki eiga aðild, en því seinna sem
ríki gerast aðilar, því lengra er þró-
unin á veg komin. Möguleikar á
breytingum verða æ takmarkaðri.
Nú þurfa ríkin þrettán sem bíða eft-
ir aðild að samþykkja aðild að
sambandinu eins og það er þegar að
aðild kemur, en þaðan í frá eiga þau
svo sömu möguleika og önnur aðild-
arríki á að taka þátt í þróun og
stefnumótun sambandsins. Það
sama átti við um heimaland mitt,
Austurríki, þegar við gerðumst að-
ilar árið 1994, við þurftum að sætta
okkur við stöðuna eins og hún var
þá. Við gerðumst aðilar vegna
áhrifaleysisins sem fólst í því að
vera utan sambandsins.“
Sérfræðiþekkingin á sviði
landbúnaðar
Franz Fischler er fæddur í Týról
í Austurríki árið 1946. Hann lauk
doktorsprófi í landbúnaðarhagfræði
frá Landbúnaðarháskólanum í Vín
árið 1978. Hann starfaði í Landbún-
aðarráði Týról á árunum 1979-1989,
sem forstöðumaður fjögur síðustu
árin. Fischler var landbúnaðarráð-
herra Austurríkis á árunum 1989-
1994 og þingmaður á árunum 1990-
1994. Hann hefur átt sæti í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
frá árinu 1995 og situr nú annað
kjörtímabil sitt til ársins 2004.
Fyrra tímabilið, frá 1995 til 1999 fór
Fischler með landbúnaðarmál og
byggðaþróun í framkvæmdastjórn-
inni en árið 1999 bættust sjávarút-
vegsmálin við.
Það er ljóst að sérfræðiþekking
Fischlers er á sviði landbúnaðar og
þaðan hefur hann mikla reynslu.
Það hefur einnig vakið nokkra at-
hygli að Austurríkismaður sé æðsti
yfirmaður sjávarútvegsmála ESB,
þar sem Austurríki liggur hvergi að
sjó.
„Það er ljóst að þegar ég hóf störf
sem yfirmaður sjávarútvegsmála
hjá Evrópusambandinu, hafði ég
ekki fullkomna þekkingu á sjávar-
útvegi og vissi ég ekki mikið um
sértæk vandamál geirans,“ segir
Fischler. „Ég hef með tímanum öðl-
ast mun umfangsmeiri þekkingu á
sjávarútveginum og því sem honum
tengist sérstaklega. En ákvarðana-
taka byggist á grundvallarreglum
og þegar allt kemur til alls er margt
líkt með sjávarútvegi og landbúnaði.
Ég hef mikla reynslu af því að taka
þátt í ákvarðanatökuferlinu innan
ESB og ég get fullyrt að það er tek-
ið fullt mark á mér af hagsmuna-
aðilum innan geirans!“
Í ræðu sinni í Ósló sagði Fischler
m.a. að fámenn ríki ættu jafngóða
möguleika á að fá sínu framgengt
innan ESB og þau fjölmennu. „Evr-
ópusambandið er ekki stofnun þar
sem þeir stóru koma vilja sínum
lands að ESB kemur. Aðspurður
segir Fischler Íslendinga ekkert
hafa að óttast. „Öll aðildarríki ESB
fylgja sameiginlegri fiskveiðistefnu
sem þýðir að grundvallarreglurnar
eru þær sömu. Samt sem áður not-
umst við við regluna um svokallaðan
hlutfallslegan stöðugleika sem felst
m.a. í því að fiskveiðiréttindi byggj-
ast á fortíðinni. Þannig að ef Íslend-
ingar hafa einir veitt á ákveðnum
svæðum í fortíðinni, er það virt.“
Reglan um hlutfallslegan stöðug-
leika hefur verið grundvallarregla
við úthlutun fiskveiðiheimilda innan
ESB. Reglan byggist á þremur
grundvallaratriðum: Veiðireynslu,
sérstöku tilliti til landsvæða sem
eru mjög háð fiskveiðum og tilliti til
taps á veiðimöguleikum vegna út-
færslu fiskveiðilögsögu annarra
ríkja. Ljóst er að ef að aðild Íslands
að Evrópusambandinu kæmi, yrði
það Íslendingum í hag að reglunni
um hlutfallslegan stöðugleika yrði
viðhaldið.
Í grænbók ESB um fyrirhugaðar
breytingar á sjávarútvegsstefnunni
eru ekki fyrirhugaðar breytingar á
reglunni um hlutfallslegan stöðug-
leika. Í grænbókinni segir: „Fram-
kvæmdastjórnin sér eins og er eng-
an valkost við regluna um hlutfalls-
legan stöðugleika, sem gæti skilað
niðurstöðu sem jafnmikil sátt er um.
Samráðsferlið leiddi í ljós að þetta
viðhorf er ríkjandi um allt sam-
bandið. Það er því engin knýjandi
ástæða fyrir róttækri endurskoðun
núverandi kvótaúthlutunarkerfis.
Þegar skipulagsvandi sjávarút-
vegsins hefur verið leystur og betri
félagslegur og efnahagslegur stöð-
ugleiki hefur náðst í greininni kann
að koma sá tími að ástæða þyki til
að endurskoða þörfina á að viðhalda
reglunni um hlutfallslegan stöðug-
leika og á því að leyfa markaðsöfl-
unum að verka með sama hætti í
sjávarútveginum eins og í öðrum
greinum efnahags ESB.“
Fischler segir afstöðu fram-
kvæmdastjórnarinnar ljósa: „Við er-
um á móti breytingum á reglunni
um hlutfallslegan stöðugleika.“
Hann segir að líða þurfi mörg ár áð-
ur en ástæða þyki til að endurskoða
þörfina á að viðhalda reglunni um
hlutfallslegan stöðugleika. „Þetta er
einungis á umræðustigi og ekkert
hefur verið ákveðið. Reglan um
hlutfallslegan stöðugleika gildir
þangað til svo verður. Það tekur
mörg ár að breyta slíku grundvall-
aratriði.“
ESB aðili að Íslandi
Fischler ítrekar, varðandi
áhyggjur Íslendinga af því að land-
helgin fyllist af togurum ESB-ríkja
DR. FRANZ FISCHLER, YFIRMAÐUR SJÁVARÚTVEGSMÁLA HJÁ EVRÓPUSAMBANDINU
Íslendingar hafa ekkert
fram á kostnað þeirra minni …
sambandið er hlynnt fámennum
ríkjum. Allir hafa rétt á sinni skoð-
un og engum er gert að fórna þjóð-
arhagsmunum.“
Í samtali við Morgunblaðið segir
Fischler aðlögun fámennra þjóða að
sambandinu hafa gengið vel og ekk-
ert benda til annars en svo verði
áfram. Hann nefnir Lúxemborg sem
dæmi og Malta er einnig á meðal
þeirra ríkja sem nú bíða eftir aðild
að sambandinu. „Tengsl Evrópu-
sambandsins við Ísland eru mjög
góð. Samanborið við samningavið-
ræður við sum ríki Austur-Evrópu
og ýmis vandamál í viðræðunum um
stækkun Evrópusambandsins yrði
aðild Íslands að ESB og aðlögun af-
ar auðveld.“
Ýmsir hafa gagnrýnt að vægi á
milli atkvæða þjóða innan sam-
bandsins hafi verið breytt minni
þjóðunum í óhag með Nice-sáttmál-
anum. „Nice-sáttmálinn leiddi ekki
til áhrifaleysis lítilla aðildarríkja.
Það hefði verið ómögulegt, þar sem
breytingar á sáttmála ESB verða að
vera samþykktar einróma,“ sagði
Fischler m.a. í ræðu sinni. Hann
benti einnig á að í framtíðinni myndi
hvert aðildarríki eiga sinn fulltrúa í
framkvæmdastjórninni og eftir árið
2005 yrðu stærri aðildarríki að gefa
annan fulltrúa sinn eftir. Einnig að
hvert aðildarríki ætti eitt atkvæði í
leiðtogaráði ESB þar sem fámenn-
asta ríkið og hið fjölmennasta væru
jafnrétthá.
Fyllist landhelgin af
ESB-togurum?
Samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið tekur hvorki til land-
búnaðar né sjávarútvegs og hafa því
verið gerðir tvíhliða samningar á
milli Íslands og Evrópusambands-
ins um þessi mál. Með aðild Íslands
að Evrópusambandinu myndi Ís-
land einnig falla undir sameiginlegu
sjávarútvegsstefnuna. Fyrirkomu-
lagið er nú þannig að sambandið
ákveður leyfðan heildarafla en fyr-
irkomulagið á fiskveiðistjórnun er í
höndum aðildarríkjanna, hvort þau
nota kerfi framseljanlegs kvóta eða
annað fyrirkomulag.
Íslendingar hafa í gegnum tíðina
þurft að kosta miklu til að ná og
tryggja 200 mílna landhelgi og
byggist íslenskt atvinnulíf að
stórum hluta til á sjávarútvegi.
Meðal Íslendinga hefur verið uppi
sú skoðun að þrátt fyrir að aðild-
arríki ESB hafi enga fiskveiði-
reynslu í íslenskri landhelgi og að-
ilarnir eigi ekki sameiginlega
fiskistofna geti íslensk stjórnvöld
þurft að opna landhelgina fyrir er-
lendum togurum ef til aðildar Ís-
Reuters
Dr. Franz Fischler sem fer með
landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins segir Íslendinga ekki
þurfa að óttast að landhelgin
fyllist af togurum ESB-ríkja við
hugsanlega aðild Íslands að ESB.
Áfram verði notast við regluna
um hlutfallslegan stöðugleika
sem felst m.a. í því að fiskveiðiréttindi byggjast á
fortíðinni. ESB muni virða það að Íslendingar hafi
einir veitt á ákveðnum svæðum í fortíðinni. Stein-
gerður Ólafsdóttir ræddi við Fischler í Ósló.
Í
LÖNDUM Evrópu er
9. maí 1950 minnst sem
dags sem markaði upp-
hafið að Evrópusam-
starfi, en þá lýsti þá-
verandi utanríkis-
ráðherra Frakklands,
Robert Schuman,
stofnun Kola- og stál-
bandalags Evrópu. Í
tilefni dagsins hélt dr. Franz Fischl-
er fyrirlestur í Ósló þar sem hann
ræddi m.a. um fámenn ríki og ESB,
mitt í umræðunni um endurskoðun
á sameiginlegri sjávarútvegsstefnu
Evrópusambandsins (ESB).
Fischler fer með landbúnaðar- og
sjávarútvegsmál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins. Í sam-
tali við Morgunblaðið leggur hann
áherslu á að samskipti ESB og Ís-
lands séu afar góð og að sambandið
myndi bjóða Íslendinga velkomna í
raðir aðildarríkja Evrópusambands-
ins, ef og þegar þar að kæmi.
„Einn stærsti kosturinn við aðild
er að aðildarríkin eiga hlut í ákvarð-
anatökuferlinu innan sambandsins.
Þau geta haft áhrif á grundvallar-
reglur og stefnumótun sam-
bandsins. Ríki sem standa utan
sambandsins geta ekki gert annað
en að fylgjast með og aðlaga sig
ákvörðunum sambandsins í ýmsum
geirum. Þetta eru skýr merki um
kosti þess að gerast aðilar.
Einnig er ljóst að Evrópusam-
bandið þykir aðlaðandi þar sem
þrettán ríki bíða eftir aðild um þess-
ar mundir. Fleiri ríki hafa einnig
mikinn áhuga. En við beitum engan
þrýstingi, heldur erum alltaf tilbúin
til viðræðna. Öll Evrópuríki eiga að
vera frjáls til að ákveða sig sjálf og
ef kostir við aðild eru að þeirra mati
fleiri en gallar, eiga þau að sækja
um, annars ekki. Við virðum það.“
En myndi aðild Íslands breyta
ásýnd og stefnumótun Evrópusam-
bandsins?
„Það myndi enn auka á fjöl-
breytnina innan sambandsins. Á Ís-
landi er ýmislegt sem finnst hvergi
annars staðar í heiminum og það
gerir landið mjög heillandi og sér-
stakt. Ísland er fámennt ríki og í
efnahagslegu tilliti myndi aðild Ís-
lands ekki breyta miklu fyrir sam-
bandið.“
Ræðu Fischler í Ósló var eðli
málsins samkvæmt beint til Norð-
manna en hann komst m.a. svo að
orði: „…mér þykir það mjög miður
að Evrópusambandið þurfi að end-
urskoða [sjávarútvegsstefnuna] án
þess að Noregur sé á meðal aðild-
arríkja sambandsins, þar sem mark-
mið okkar eru sameiginleg og fiski-
miðin einnig. Við getum og munum
halda áfram tvíhliða samstarfi, en