Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 12
12 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HANN er 64ára gamall,lágvaxinnog sköllótt-
ur en hvatlegur og lít-
ur út fyrir að vera
mun yngri, ætíð sól-
brenndur og hraust-
legur. Kosningafundir
hans minna oft á sam-
komur hjá rokkstjörn-
um, kona sem náði að
kyssa hann ærðist af
fögnuði. „Drottinn
minn dýri, ég get ekki
trúað þessu, hann
kyssti mig á móti!“
sagði ung kona sem
tókst að ryðjast gegn-
um röð lögreglumanna eftir fund í
Palermo á Sikiley. Silvio Berlusconi
er tvíkvæntur, á alls fimm börn og
núverandi eiginkona er ljóshærð,
fyrrverandi leikkona. Hann tjáir sig
ekki síður með svipbrigðum en orð-
um en getur tekið stórt upp í sig.
Eitt sinn sagði hann að kommúnist-
ar „ætu smábörn“ og gerðu enn
verri hluti. En hver er Silvio Berlu-
sconi? Er hann fyrst og fremst
fulltrúi frelsis og markaðshyggju í
stjórnmálum, stefnu sem löngu er
kominn til tími til að framfylgja í
landi þar sem óhófleg ríkisafskipti
af atvinnuvegum, klíkuskapur og
opinbert sukk hafa verið dragbítur
á framfarir? Eða ber að líta á
hægrileiðtogann og forsætisráð-
herraefni bandalags hægri- og
miðjuflokka, Húss frelsisins, sem
hættulegan mann sem misnoti
blygðunarlaust peningavald sitt og
ofurtök sín á einkareknum fjölmiðl-
um?
Um þetta deila menn ákaft, á
Ítalíu og annars staðar í Evrópu,
einnig í Bandaríkjunum. Harðir
andstæðingar segja að hann sé
trúður sem hafi villst úr skemmt-
anaiðnaðinum inn í pólitík. Orku-
búntið Berlusconi er bankastjóra-
sonur og lögfræðingur sem sagður
er hafa byrjað að vinna sér inn
aukaskilding í menntaskóla með því
að skrifa ritgerðir fyrir latari skóla-
félaga fyrir dálitla þóknun. Á há-
skólaárunum vann hann sem þjónn
á skemmtiferðaskipum og um tíma
seldi hann ryksugur.
Völdin í öflugu ríki
Um 80% af einkareknum sjón-
varpsmarkaði Ítalíu er á hendi
Berlusconis og úrslitin í
dag skipta af ýmsum
ástæðum miklu máli fyr-
ir þróun stjórnmála á
Vesturlöndum. Víðar en
þar í landi er deilt um
áhrif fjölmiðlakónga sem
reyna beint og óbeint að hafa áhrif
á kosningar. Og Ítalir eru eitt af
mestu iðnveldum heims, þjóðarbú-
skapur þeirra er álíka mikill að
vöxtum og Breta, aðeins Þjóðverjar
og Frakkar eru öflugri í Evrópu.
Þótt atvinnuleysi, léleg menntun og
mafíutök í atvinnulífi og stjórnsýslu
séu enn einkennandi fyrir mörg af
syðstu héruðunum er annað upp á
teningnum á Norður-Ítalíu. Hag-
fræðingar álíta að svæðið sé hið
auðugusta í allri Evrópu, hvergi sé
efnaleg velmegun jafn mikil á svo
stóru landsvæði. Mílanó og Tórínó
eru meðal helstu miðstöðva heims-
ins í fjármálum, hönnun og tísku,
bílasmíði og ýmiss konar hátækni.
Berlusconi er talinn vera þriðji
auðugusti maður Evrópu, líklega á
hann og fjölskylda hans um 12
milljarða dollara, yfir 1100 milljarða
króna. Hann stofnaði markaðs-
hyggjuflokk flokk sinn, Forza Italia
(Áfram Ítalía!) árið 1994 og nafnið
var engin tilviljun. Hann var þegar
orðinn landsþekktur fyrir að hafa
keypt AC Milan og gert það á ný
eitt sigursælasta knattspyrnulið
Evrópu. Orðfærið nokkrum mánuð-
um seinna í kosningabaráttunni var
oft einfalt og grípandi. Ítalir áttu
„að sækja fram völlinn“, hann not-
aði orð og hugtök sem knattspyr-
nutrylltum Ítölum líkar betur við en
þurrlegt stjórnmálaglamur. Berlus-
coni virtist vera töframaður og
hann kunni að notfæra sér aðstæð-
urnar og leiða fólksins á gömlu and-
litunum.
Hann vann, fékk 30,4% fylgi og
var forsætisráðherra í sjö mánuði.
En Þjóðarsambandið, flokkur Um-
bertos Bossis á Norður-Ítalíu, hætti
stuðningi við samsteypustjórn
hægrimanna, hálf önnur milljón
verkamanna fór í kröfugöngu í Róm
til að mótmæla áætlunum um að
skera niður lífeyrisgreiðslur. Berlu-
sconi lenti strax haustið 1994 í mikl-
um hremmingum vegna rannsókn-
arherferðar á svonefndu Tang-
entopoli, landlægri spillingu
fjármálamanna og stjórnmálaleið-
toga landsins, aðgerðarinnar
„Hreinar hendur“ sem var nýhafin.
Hann hrökklaðist loks frá í desem-
ber og pólitíski ferilinn
virtist vera á enda.
Er hann var við völd
reyndi hann að binda
enda á rannsóknir sak-
sóknaranna en þeir og
dómarar landsins brugð-
ust ókvæða við. Berlusconi varð að
draga í land.
Líklega verður hann aftur að
treysta á Bossi ef hann myndar
stjórn. Bossi hefur á síðari árum
dregið úr kröfum sínum um að
Norður-Ítalía fái leyfi til að slíta
tengslin við fátæku suðurhéruðin
sem hann sagði að væru eins og
hver annar baggi á norðrinu. Nú
vill Bossi aðeins valddreifingu og
segir að stjórn Berlusconis muni
tryggja framgang slíkra aðgerða.
Bossi hefur fundið nýjan óvin í stað
Suður-Ítala: innflytjendur.
Bossi og menn hans hafa að sögn
breska íhaldsblaðsins The Daily
Telegraph ekki hikað við að spila á
strengi andúðar í garð útlendinga
sem hafa flykkst til hinna auðugu
norðurhéraða síðari árin. Fjöldi
Afríkumanna, Albana og Austur-
Asíubúa starfar nú í stórborgunum.
Á Norður-Ítalíu eru þeir samanlagt
um 8% íbúanna. Meðal almennings
er það útbreidd trú að útlending-
arnir eigi sök á flestum glæpum,
stelist inn í Scala-óperuna án þess
að kaupa sér miða eða ráfi iðjulaus-
ir um göturnar á fullum bótum.
Berlusconi á einnig kosningasam-
starf við Þjóðarbandalag Gianfranc-
os Finis, en flokkurinn er arftaki
gamla fasistaflokksins og elur eins
og Norðursambandið á andúð á út-
lendingum.
Árás The Economist
Sjálfur hefur Berlusconi látið
duga að mæla með hertum reglum
til að draga úr innflytjenda-
straumnum. En hann hefur hótað
að reka úr starfi óþæga starfsmenn
ríkissjónvarpsins, afnema ýmis lög
sem hafa verið notuð í skattamála-
ferlum gegn honum og hann hefur
látið stjórnendur og þáttagerðar-
menn í sjónvarpsstöðvum sínum
hundsa markvisst málflutning and-
stæðinga sinna.
Breska tímaritið The Economist,
sem birti nýlega harkalega gagn-
rýni á Berlusconi, sagði hann van-
hæfan til að gegna leiðtogaembætti
á Ítalíu. Það gaf í skyn að allt of
margar vísbendingar væru um að
hann væri sjálfur ósvífinn spilling-
arfursti sem í upphafi ferilsins á
sjöunda áratugnum hefði beitt
óheiðarlegum aðferðum til að auðg-
ast á braski með byggingarlóðir.
Einnig væri hann grunaður um
tengsl við mafíuna. Berlusconi á
miklar eignir utan Ítalíu, m.a. eign-
arhlut í sjónvarpsstöð á Spáni og er
grunaður um að hafa staðið fyrir
skattsvikum þar. Þarlendur sak-
sóknari, Balthasar Garzon, hefur
krafist þess að þinghelgi Berluscon-
is verði aflétt til að hægt verði að fá
hann framseldan til Spánar.
Óttinn við Berlusconi birtist víða.
Fræðimannastofnun í Flórens,
styrkt af Evrópusambandinu, er að
sögn The Daily Telegraph ekki í
vafa um að sigri fjölmiðlajöfurinn
muni hann verða hættulegur evr-
ópsku lýðræði. Ekki verði um
venjuleg umskipti að ræða. „Ber-
lusconi fer fyrir risaveldi þar sem
um er að ræða skaðlega samþjöpp-
un á peningavaldi og fjölmiðlastýr-
ingu. Enginn með nútímalegan
skilning á lýðræði getur varið
slíkt,“ segir í yfirlýsingu stofnunar-
innar.
Berlusconi hyggst lögsækja The
Economist fyrir rógburð. Margaret
Thatcher, merkisberi markaðs-
hyggjunnar í Evrópu síðustu ára-
tugina, veitti hins vegar Berlusconi
mikilvægan siðferðisleg-
an stuðning í vikunni er
hún sendi ítölskum dag-
blöðum bréf. Þar tók
hún undir með Berlu-
sconi sem hefur sagt að
erlendir fjölmiðlar hafi
tekið þátt í samsæri um að rægja
sig. Thatcher hrósaði kosninga-
stefnuskrá Berlusconis sem boðaði
„minna skrifræði og bætta stjórnun
til þess að minnka og einfalda skatt-
lagningu“.
Mótherji með róttækni-fortíð
Vinstri- og miðjumenn eru nú við
stjórnvölinn á Ítalíu og forsætisráð-
herrann er Giuliano Amato, gam-
alreyndur og snjall en þótti ekki lík-
legur til að geta sigrað Berlusconi.
Í staðinn var ákveðið að bjóða fram
Francesco Rutelli, hávaxinn og
glæsilegan 46 ára gamlan mann
sem er fráfarandi borgarstjóri í
Róm, en hann tók við því starfi
1993, var endurkjörinn 1997. Hann
þykir hafa staðið sig vel í því starfi,
hefur skorið niður skrifræði og
komið á ýmsum umbótum. Hann
var lengi róttækur vinstrimaður og
græningi, barðist fyrir rétti kvenna
til fóstureyðinga og réttindum sam-
kynhneigðra en gegn áhrifum Páfa-
garðs á ítölsk stjórnmál, Berlusconi
kallar Rutelli gjarnan „nytsaman
kjána“ sem sé ekkert annað en of-
dýrkaður kynningarfulltrúi. Rutelli-
hjónin sættust árið 1995 við páfann
og létu gefa sig saman í kirkju. En
Rutelli hefur ekki gengið vel að
vekja athygli á sér og málstað sín-
um enda við ramman reip að draga.
Einkareknir fjölmiðlar sýna honum
flestir lítinn áhuga. Séu þeir í eigu
Mediaset, eignarhaldsfyrirtækis
Berlusconis, draga þeir dár að hon-
um eða hundsa hann alveg. Berlu-
sconi neitaði staðfastlega að mæta
honum í sjónvarpseinvígi, segir að
Rutelli sé „ekki þess virði“.
Í síðustu könnunum sem gerðar
voru var munurinn á kosninga-
bandalagi Berlusconis, Húsi frels-
isins og samtökum Rutellis, er
kenna sig við Ólífutréð, aðeins fjög-
ur prósent sem gæti þýtt að hvor-
ugur fengi meirihluta á þingi. Fari
svo gætu fjórir litlir flokkar komist
í oddaaðstöðu og er einn þeirra
Listi Emmu Bonino er var um hríð í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins og er ákafur femínisti.
Öflugastur smáflokkanna er komm-
únistaflokkurinn, sem fékk 8,6% at-
kvæða í síðustu þingkosningum
1996 en hefur síðan klofnað.
The Economist, sem seint verður
grunað um vinstristefnu, segir að
lágmarkið sé að Berlusconi selji
fjölmiðlaveldi sitt til að komast hjá
hagsmunaárekstrum ef hann sigri,
en auk þess rekur hann öflugt fjár-
festingafélag, Fininvest. Bæði fyr-
irtækin eru eignarhaldsfélög sem
eiga síðan hlut í meira en tuttugu
fyrirtækjum. Fleiri heimsþekktir
og virtir fjölmiðlar hafa varað Ítali
við Berlusconi, nefna má The Fin-
ancial Times, The New York Times,
Le Monde, El Pais og Die Zeit.
En hvaða áhrif hefur slík for-
dæming erlendis á kjósendur á Ítal-
íu, yfirlýsingar sem Berlusconi seg-
ir að séu hluti af kommúnista-
samsæri? Enginn getur fullyrt neitt
um það. En margir Ítalir virðast
vera sammála einum fréttaskýr-
anda bandaríska blaðsins The Wall
Street Journal, Michael Gonzalez,
sem bendir á að enn hafi ekki tekist
að sanna umtalsverð afbrot á Berlu-
sconi. Og allir viti að ekki hafi verið
hægt að stunda viðskipti á Ítalíu án
þess að fara á svig við lög sem oft
séu fáránleg; embættismenn hafi
jafnvel af góðsemi oft bent fólki á
leiðir til þess.
Þáttaskil í Evrópu?
Gonzalez segir að sigri Berlus-
coni geti það verið merki um að
oftrú á gagnsemi opinberra afskipta
sé loks á enda í Evrópu. Ítalski leið-
toginn vilji lækka skatta, draga úr
ríkisafskiptum og koma á valddreif-
ingu og allt sé þetta ógnun við hefð-
bunda kerfiskalla og hugsjónir
margra vinstrimanna. Komist fjöl-
miðlakóngurinn á ný til valda verði
það staðfesting á þróun um allan
heim í átt til markaðshyggju sem
kjör George W,. Bush í Bandaríkj-
unum, Vicente Fox í Mexíkó og nú
Junichiro Koizumis í Japan sýni vel.
„Þótt sumir efist um að trú Berlus-
conis á lögmál hins
frjálsa markaðar sé
rótgróin og bendi á
nokkra óaðlaðandi
félaga hans í stjórnmál-
unum er hann að
minnsta kosti að segja
réttu hlutina,“ segir Gonzalez.
Ítalskir kjósendur munu kveða
upp úrskurðinn í dag og athygl-
isvert er að í könnunum hefur
meirihluti þeirra gefið í skyn að
þeir sjái ekkert athugavert við feril
Berlusconi, hann sé ekki verri en
aðrir stjórnmálamenn. Þeir virðast
margir velta því meira fyrir hvort
hann hafi með velgengni sinni í við-
skiptum sannað að hann sé rétti
maðurinn til að stjórna með styrkri
hendi og koma á umbótum.
Orkubúntið
ríka og
efasemdir
Fyrir nokkrum vikum bentu kannanir á
Ítalíu til þess að hægrimenn myndu vinna
mikinn sigur í kosningunum í dag en síðan
hafa vinstrimenn sótt í sig veðrið. Kristján
Jónsson kynnti sér stöðuna og deilurnar um
leiðtoga hægrimanna, Silvio Berlusconi.
AP
Stuðningsmaður Forza Italia, flokks Berlusconis, með fána á síðasta
stórfundinum sem flokkurinn hélt fyrir kosningarnar og var á Piazza
del Popolo í Róm á föstudag. Blöðrurnar eru skærbláar eins og peysur
ítalska landsliðsins í knattspyrnu.
Silvio
Berlusconi
Var sagður
vanhæfur til að
gegna leið-
togaembætti
Margaret
Thatcher hrós-
aði stefnuskrá
Berlusconis
Francesco
Rutelli