Morgunblaðið - 13.05.2001, Side 18
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Trjábolir með sveppum eru við innganginn.
Vatn á fyrstu hæð sýningarinnar.
„OG nú getið þið falið ykkur í þok-
unni,“ sagði listfræðingurinn og
leikskólakrakkarnir lögðust upp
við veggi listasafnsins og hurfu í
gufu sem var hleypt inn í salinn.
Þetta var á þriðju hæð listasafns-
ins Kunsthaus Bregenz (KUB) í
Austurríki. Byggingin var lögð
undir listaverk Ólafs Elíassonar
„The mediated motion“ (Miðluð
hreyfing) frá 31. mars til 13. maí.
Talsmaður safnsins sagði að sýn-
ingunni hefði verið vel tekið. „Við
áttum von á að margir spyrðu hvar
skúlptúrarnir og málverkin væru,
en svo varð ekki.“
Nokkrir niðurskornir trjábolir,
vaxnir sveppum, standa í röð við
gráan steinvegg í holi listasafns-
ins. Bak við vegginn er steinstigi
upp á fystu hæð. Salurinn liggur
undir vatni. Smágerðar vatnajurt-
ir fljóta í því.
Einföld trébrú liggur að sér-
byggðum tréstiga upp á næstu
hæð. Þar er salargólfið sam-
anþjöppuð jörð. Í þokunni uppi á
þriðju hæð hangir hengibrú þvert
yfir salinn.
Listasafnsbyggingin í Bregenz
er listaverk út af fyrir sig. Sviss-
neski arkitektinn Peter Zumthor
teiknaði hana og hún var opnuð
fyrir nokkrum árum. Hún er
kassalaga, klædd sérgerðum gler-
plötum sem skipta litum eftir veðri
og vindum að utan. Sýningarvegg-
irnir eru steypugráir. Salirnir eru
lýstir upp með dags- og rafmagns-
ljósi sem flæðir inn ofan frá.
Ólafur segir í sýningarskránni
að hann hafi tekið bygginguna
sjálfa með í reikninginn þegar
hann vann innsetningarverkið í
huganum. Byggingin er hluti af
því. Landslagsarkitektinn Günther
Vogt í Zürich aðstoðaði Ólaf við
uppsetningu verksins. Ólafur er
þekktur fyrir að tengja náttúru og
tækni saman í list sinni. Í þetta
sinn tekur hann safnið sjálft, „íkon
arkitektúrsins“með í myndina.
Leikskólakrakkarnir fyrr-
nefndu höfðu gaman af heimsókn-
inni á listasafnið. Það er ekki á
hverjum degi sem þau mega leika
sér í listaverki. Listfræðingurinn
sagði þeim að starfsmenn safnsins
sprautuðu vatni á trjábolina við
innganginn á hverjum morgni og
borðuðu sveppina. Hann benti
þeim á hreyfinguna sem komst á
vatnið þegar þeir gengu um brúna
eða stungu fingri í vatnið á fyrstu
hæð, titring jarðarinnar þegar
þeir hoppuðu á annarri hæð og
bað þá að hugsa um hreyfinguna
sem komst á hengibrúna þegar
þeir gengu um hana í þokunni á
þriðju hæð.
Innsetningarverk Ólafs „Sur-
roundings Surrounded“ (Umhverfi
umkringt) verður til sýnis í ZKM,
Zentrum für Kunst und Medientec-
hnologie, í Karlsruhe í Þýskalandi
í allt sumar. Sýningin verður opn-
uð 30. maí og stendur til 26. ágúst.
Aðgangur er ókeypis. „Surround-
ings Surrounded“ var sýnt í Graz í
Austurríki í fyrra. Ólafur Elíasson
er búsettur í Berlín.
Ólafur Elíasson
eftirsóttur í Evrópu
Bregenz. Morgunblaðið.
Hengibrú í þoku á þriðju hæð.
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PÍSLARSAGA séra Jóns Magn-
ússonar. Þar lýsir séra Jón kvölum
þeim sem hann verður fyrir vegna
meintra galdraofsókna feðga á
Kirkjubóli, sem
báðir heita Jón
Jónsson og eru
síðan brenndir á
báli. Þegar
píslum séra Jóns
linnir ekki telur
hann að dóttirin
Þuríður stundi
galdrasending-
arnar og hafi
numið listina af
föður sínum og bróður. Hún neitar,
snýr vörn í sókn og kærir séra Jón
fyrir ofsóknir. Þá er klerki nóg boðið
og hann skrifar lýsingu á þeim þján-
ingum sem yfir hann hafa dunið, um
leið og hann áfellist yfirvöld fyrir
slælega framgöngu gagnvart galdra-
mönnum.
Matthías Viðar Sæmundsson sá
um þessa útgáfu Píslarsögunnar,
þar sem jafnframt eru dregin saman
og prentuð öll tiltæk frumgögn, flest
áður óbirt, um séra Jón, æviferil
hans og galdramál. Þar má nefna
einkabréf séra Jóns, vísitasíur bisk-
upa og bréf þeirra, kirkjuúttektir,
brot úr Alþingisbókum Íslands og
sjálfan brennudóminn, sem er prent-
aður í fyrsta sinn eftir frumskjali í
bókinni. Auk þess er prentaður dóm-
ur um galdramál Árna Loftssonar.
Þá skrifar Matthías Viðar tvær
ritgerðir í bókina; Ævi séra Jóns
Magnússonar og Galdur og geðveiki
– um píslarsögur og galdrasóttir á
17. öld.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 440 bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf. Kápuna gerði
Anna Cynthia Leplar. Verð: 8.990
kr.
Nýjar bækur
Matthías Viðar
Sæmundsson
Í SAFNASAFNINU á Svalbarðs-
strönd hafa verið opnaðar sex nýjar
sýningar og síðar í sumar bætast
fjórar við, þar af ein útisýning. Við
innganginn standa sjö steinsteyptar
höggmyndir eftir Ragnar Bjarna-
son, í brúðuherbergi eru 412 brúður.
Í miðrými er sýning á stóru skipslík-
ani eftir Hafstein Vilhjálmsson á Ak-
ureyri ásamt munum úr sjávarút-
vegi. Í suðursal er raðað upp 144
blikkboxum. Í hornstofu er sýning á
lágmyndum eftir Sigurð Sveinsson í
Reykjavík, 96 ára gamlan.
Gefin hefur verið út litprentuð
sýningarskrá með grein um alþýðu-
list eftir Níels Hafstein. Í anddyri
safnsins eru til sölu og sýnis útsag-
aðir körfuboltakappar eftir Harald
Níelsson.
Safnasafnið tekur um þessar
mundir þátt í alþjóðlegri samsýn-
ingu í Hamborg og sýnir þar 70
skúlptúra eftir Björn Guðmundsson
frá Laufási í Víðidal. Safnasafnið er
opið daglega frá kl. 10–18, en hægt
er að taka móti pöntunum á öðrum
tímum með stuttum fyrirvara.
Nýtt í Safnasafninu
SÚ breyting hefur orðið á dagskrá
vorfundar Félags íslenskra háskóla-
kvenna í Þing-
holti, Hótel Holti,
17. maí að Viðar
Hreinsson bók-
menntafræðingur
mun halda aðaler-
indi kvöldsins um
Kanada, Vestur-
Íslendinga og
Stephan G. Steph-
ansson. Dagskrá-
in og matseðillinn
er samkvæmt
venju helgaður menningu og matar-
hefð viðkomandi lands og hefur Kan-
ada orðið fyrir valinu að þessu sinni.
Félag háskólakvenna
Viðar
Hreinsson
Ræðir um
Vestur-Ís-
lendinga og
Stephan G.
Lækninga-
minjasafnið
opnað
SÝNING Lækningaminjasafnsins í
Nesstofu við Neströð á Seltjarnar-
nesi verður opnuð eftir vetrarlokun
15. maí. Sýningin er opin þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá 13–17.
♦ ♦ ♦