Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 20

Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 20
20 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Of lágur lífeyrir og víðtækar tekju- tengingar eru helstu orsakir þess að aldraðir á Íslandi berjast margir hverjir í bökkum við að ná endum saman og hefur bilið milli þeirra og annarra þjóðfélagshópa farið breikk- andi á undanförnum árum, að sögn forsvarsmanna í Félagi eldri borgara, sem ætla á næstu mánuðum að beina kröftum sínum að því að berjast fyrir því að ríkisvaldið tryggi öldruðum sómasamlegar lágmarkstekjur. Við- mælendur Morgunblaðsins taka það hinsvegar skýrt fram að ekki liggi fyrir upplýsingar um hvað talist geti lágmarksframfærslumörk einstak- linga í íslensku þjóðfélagi enda væri það ekki lagt á neina ríkisstofnun að reikna það út þótt ganga megi að slík- um tölum vísum í nágrannalöndun- um. Að mati formanns Félags eldri borgara eru nýlegar tillögur ríkis- stjórnarinnar um hækkun á bótum til ellilífeyrisþega, sem kynntar voru á blaðamannafundi sl. þriðjudag, aðeins örlítill plástur á stórt sár og gerir hann ráð fyrir að hörð mótmæli eigi eftir að hrannast upp á næstunni. Undirbúa aðra lögsókn „Við eigum sem einstaklingar rétt á því að geta framfleytt okkur, burtséð frá því hvort við erum í sambúð eða ekki,“ segir Ólafur Ólafsson, formað- ur Félags eldri borgara í Reykjavík. „Við höfum á skipulegan hátt verið að afla okkur staðreynda, sem ekki verða hraktar, til að styðja okkar mál- stað enda förum við ekki í deilur nema hafa allt á hreinu. Tími bænabréfa er liðinn að fenginni biturri reynslu. Það verður ekki efnilegt fyrir stjórnmála- menn að vera með aldraða sem sína helstu andstæðinga í næstu kosning- um. Ef við fáum ekki almennilega lausn á okkar málum, förum við í slag og erum við nú þegar að undirbúa okkar aðra lögsókn á hendur ríkinu. Fyrra málið fjallar um ágreining við fjármálaráðuneytið um skattalega meðferð lífeyrissjóðstekna, en aldrað- ir vilja að tveir þriðju hlutar lífeyr- issjóðstekna verði viðurkenndir sem fjármagnstekjur og skattlagðir í sam- ræmi við það eða um 10%. Í öðru lagi vitum við að í undirbúningi er inn- heimtubréf á hendur fjármálaráðu- neytinu sem við hyggjumst fylgja eft- ir með lögsókn verði kröfur okkar ekki virtar. Þess verður krafist að aldraðir fái uppbót á sinn lífeyri á sama máta og jafnafturvirkt og ör- yrkjar fengu í kjölfar frægs hæsta- réttardóms þar um í desember sl. enda fékkst þá úr því skorið að öll tekjutenging er lögbrot og stenst ekki stjórnarskrá. Kjarni málsins er að ríkisvaldið hefur viðurkennt að dóm- urinn í heild eigi jafnt við um eldri borgara og öryrkja með því að greiða öldruðum sérstaka uppbót á lífeyri frá og með 1. janúar sl. að telja til samræmis við þá uppbót, sem öryrkj- ar hafa fengið á sinn lífeyri. Á hinn bóginn finnst okkur bæði sjálfsagt og eðlilegt að láta á það reyna, úr því að viðurkennt er að öryrkjadómurinn gildi jafnt um aldraða, hvort við eig- um ekki rétt á afturvirkum greiðslum til þriggja ára, líkt og öryrkjar fengu eða aftur til áramótana 1996/1997,“ segir Ólafur. Miða skal við launaþróun Ljóst er að dregið hefur í sundur með lífeyrisþegum og þeim sem verst hafa kjörin á vinnumarkaðnum eftir að klippt var á tengsl launa og lífeyr- isgreiðslna árið 1995. Ákveðið var með lögum, sem tóku gildi í ársbyrjun 1998, að bætur almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun í land- inu, en hækka þó aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neyslu- verðs. Síðan hafa lífeyrisgreiðslur nær undantekningarlaust verið mið- aðar við það sem lægst hefur gefið líf- eyrisþegum, vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu. „Við viljum að líf- eyrisgreiðslur haldist í hendur við al- menna launaþróun í landinu,“ segir Ólafur. Meira en helmingur aldraðra er með framfærslueyri undir lægstu launum og aðeins 40% lífeyrisþega hefur nú óskerta tekjutryggingu. Á síðustu fimm árum hafa grunnlífeyrir og tekjutrygging hækkað um nálægt 25%, en launavísitala hinsvegar hækkað á sama tíma um 41,5%. Grunnlífeyrir og tekjutrygging voru samtals 51,7% af meðaldagvinnulaun- um verkamanna á árinu 1991 en 1999 var hlutfallið komið niður í 43,8%. Gera má ráð fyrir því að aukin lífeyr- issjóðsréttindi muni bæta kjör eldri borgara á komandi árum og hlutur al- mannatrygginga í eftirlaunum minnka, en að sögn Ólafs, er það seinni tíma mál og kemur ekki til góða fyrir þá sem nú eru á eftirlaunaaldri. „Það er alveg klárt að þjónustu- hækkanir í þjóðfélaginu koma verr niður á ellilífeyrisþegum en öðrum þjóðfélagshópum þar sem kaupmátt- ur lífeyrisþega hefur hækkað mun minna en annarra hópa,“ segir Ólafur, en Félag eldri borgara fór þess á leit við Torben Friðriksson, fyrrum rík- isbókara, að hann kannaði verðsam- anburð á ýmsum þjónustuliðum í samanburði við hækkun grunnlífeyris og tekjutryggingar síðustu tíu árin. Samkvæmt þeim athugunum hefur ýmis þjónusta hækkað mun meira en lífeyrisgreiðslurnar sjálfar, eins og sjá má í töfluformi hér á síðunni. „Ég spyr hvort það sé stefna stjórnvalda að lífeyrisþegar eigi að lifa ódýrar en aðrir,“ segir Ólafur. „Eiga eldri borgarar ekki að geta lifað eins og aðrir í þessu þjóðfélagi? Eiga þeir kannski að nota síma, strætis- vagna og bensín minna en aðrir?“ Ríkisskattstjóri gerir úttekt Að beiðni Félags eldri borgara, hef- ur embætti ríkisskattstjóra unnið að tölulegri samantekt um hag eldri borgara á Íslandi sem eru 67 ára og eldri. Óskað var eftir því að embættið tæki saman ýmsar upplýsingar um tekjur, tekjuskiptingu, eignir og skatta ellilífeyrisþega í samanburði við aðra aldurshópa og eru gögnin byggð á skattframtölum tekjuárið 1999. Í töflum, sem fylgja gögnum Ríkisskattstjóra er gjaldendum raðað í flokka eftir tekjum. Tekjur eru skil- greindar sem tekjuskattsstofn að við- bættum frádrætti vegna fjárfestingar í hlutabréfum og ívilnun skv. 66. grein laga um tekju- og eignarskatt, fjár- magnstekjur og skattfrjálsar greiðslur. Að ósk Félags eldri borg- ara er söluhagnaður, sem greiddur er af 10% fjármagnstekjuskattur, sér- staklega tilgreindur í töflunum. Í töfl- unum vísar dálkurinn eignir alls til allra framtalsskyldra eigna svo sem fasteigna, ökutækja og verðbréfa. Hlutabréf eru talin fram á nafnverði Liðlega helmingur aldraðra hér á landi er með framfærslueyri undir lægstu launum og hefur bilið milli kaupmáttar lífeyris- greiðslna og lægstu launa sífellt verið að breikka. Jóhanna Ingvarsdóttir ræddi við þá Ólaf Ólafsson og Pétur Guðmundsson, forvígismenn í Félagi eldri borgara í Reykjavík, sem ætla ásamt öðrum „löggilt- um gamalmennum“, eins og þeir orða það, að berjast fyrir sómasamlegum lágmarks- tekjum til handa öldruðum. Pétur GuðmundssonÓlafur Ólafsson Morgunblaðið/Þorkell Tími bænabréfa er liðinn ’ Við eigum semeinstaklingar rétt á því að geta fram- fleytt okkur, burtséð frá því hvort við er- um í sambúð eða ekki. ‘ ’ Þessir útreikning-ar sýna að löggild gamalmenni eru í heild ekki sú byrði á þjóðfélaginu sem margir stjórnmála- menn vilja vera láta. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.