Morgunblaðið - 13.05.2001, Side 27

Morgunblaðið - 13.05.2001, Side 27
ingar best væri að nota og hvernig best væri að hvetja bændur til að auka velferð dýranna. Í ritgerðinni var einnig fjallað um hvernig mis- munandi siðfræðikenningar taka á dýravelferð og reynt að meta kosti og galla þeirra aðferða sem til eru til að meta dýravelferð. „Þessar aðferðir ætti að vera hægt að nota til gæðaeftirlits á búi í sam- vinnu við bóndann. Hægt væri að gera almenna úttekt og spá í hvað þarf að laga, hvað sé mikilvægast og hvað mundi skila mestum árangri. Meta kosti og galla þeirra valkosta sem bjóðast. Ég býst við að margir mundu vilja fá mat af og til á því hvernig þeir geta bætt velferð dýr- anna. Engum bónda eða dýraeig- anda er sama um velferð dýra sinna. En mikið veltur á hefðum og kannski sjá ekki allir hvernig hægt er að breyta hlutunum. Oft er þetta spurn- ingin um hvort viðkomandi hafi efni á að bæta velferð dýranna. Stundum sér fólk ekki leið út úr því og sættir sig því við óbreytt ástand. En slíkar úttektir eru tiltölulega nýjar af nálinni og varla stundaðar enn sem komið er nema helst í Aust- urríki og Sviss. Ég er hræddur um að slík úttekt þyki dýr hér á landi, en ég finn fyrir miklum áhuga hér á landi á þessum málum.“ Vandamálin leyst ef kjötið væri 20% dýrara „Sú einstefna sem hefur einkennt umgengni við náttúruna bæði hér og annars staðar er að breytast. Hér fór umræðan um umgengni við náttúr- una kannski fyrst virkilega á flug þegar hugmyndir um álver fyrir austan fór af stað. Stærstu skilin í umræðu um búfjárhald urðu senni- lega í Evrópu þegar kúariðufarald- urinn varð að ógnun við neytendur. Í fyrsta skipti náði hin gagnrýna um- ræða til allra laga þjóðfélagsins í stað þess að vera bundin við sjálfskipuð hagsmunasamtök. Almenningur hætti að taka orð vísindamanna sem heilagan sannleik og æ fleiri eru farnir að efast um að meira og ódýr- ara sé rétta leiðin. Allt kemur þetta á sama tíma og lífræna bylgjan skellur á Evrópu. Okkur er að skiljast að náttúran er ekki bara ein stór mal- arnáma, sem við getum gengið í, heldur flókið og dýrmætt lífkerfi sem við erum hluti af. Í framhaldi af því er eðlilegt að við spyrjum okkur hvernig við getum farið með allt líf í kringum okkur og hvaða aðferðum við eigum að beita til að meta gildi þess.“ Torfi segir að sem neytendur ber- um við mikla ábyrgð á velferð dýra og umhverfismálum. „Neytendur heimta að fá ódýra kjúklinga,“ segir hann. „Til þess að hægt sé að framleiða þá þurfa búin að vera stærri, hvert dýr fær minna pláss og þarf að nýta fóðrið betur. En svo hneykslast neytendur ef eitthvað bjátar á og upp koma smitsjúkdóm- ar. Hér má ekki nota mörg lyf, en aft- ur á móti er heil bók yfir lyf sem nota má í kjúklingaframleiðslu í Dan- mörku til að auka afurðirnar. Samt sem áður heimtum við að fá kjúk- linga á sama verði og í Danmörku. Það er ekki óalgengt í kjúklingabú- um í Danmörku að kjúklingarnir vaxi svo hratt að lappirnar halda þeim ekki uppi og þeir leggjast á hnén eða þeir fótbrotna hreinlega. Auk þess brenna þeir oft á leggj- unum vegna þess að þeir liggja í úr- gangi. Þessi ofvöxtur kemur við of- fóðrun og vegna þess að kjúklingarnir hafa verið kynbættir með tilliti til vaxtarhraða. Ekki hef- ur verið hugað að því að bæta beina- bygginguna samhliða þessu. Hér á landi hefur þessi vandi komið fram í svínarækt þar sem notuð voru norsk svín til að kynbæta þau íslensku til að fá fram meiri vaxtarhraða en vandinn fólst í veikum fótum sem ekki héldu uppi þessum þungu skrokkum. Í ljós hefur komið að í Hollandi og Danmörku væri hægt að leysa öll helstu velferðarvandamálin við iðn- vædda svínakjötsframleiðslu ef neytendur væru tilbúnir að greiða 20% hærra verð fyrir kílóið af svína- kjöti. Ábyrgð neytandans er því gíf- urleg. Það eina sem neytendur hafa sér til afsökunar er að í hvert skipti sem þeir velja ákveðna vöru er ekki alveg augljóst hvaða afleiðingar val þeirra hefur. Dómgreind fólks ruglast svo mikið úti í búð. Þess vegna kaupum við alltaf ódýrari vörur þótt við ætl- um kannski ekki að gera það. Við þurfum að velta því fyrir okkur hversu miklu betri búskaparhætti við gætum haft og hversu miklu verra ástand á búum við gætum sætt okkur við til að ná fram 10% lækkun á kjötverði. Þetta er samviskuspurn- ing fyrir hvern og einn. Framleiðendur mega gera mun betur í að kynna framleiðsluaðferðir sínar fyrir neytendum svo þeir hafi raunverulegt val. Ýmiss konar gæðamerki sem ákveðnar fæðuteg- undir fá í auknum mæli, hjálpa okk- ur við valið. Þar sem fæstir neyt- endur hafa tækifæri til að heimsækja framleiðendur varanna sem þeir kaupa, verða þeir að geta treyst á vottanir og gæðamerki, sem gefa til kynna undir hvaða kringum- stæðum varan var framleidd. Fólk er í auknum mæli að láta þessi mál sig varða og margir vilja borga meira fyrir lífrænar vörur eða aðrar vörur framleiðenda sem tryggja velferð dýra.“ Húsdýrin hafa tilfinningar Torfi segir að við getum ekki treyst því að dýrum sem skila mikl- um afurðum eða árangri líði endilega vel. „Íþróttamenn sem eru í hámarks- þjálfun eiga oft við meiðsli að stríða og dansarar sem æfa stíft líða marg- víslegar þjáningar. Dýr sem eru í há- marksþjálfun eða hámarksfram- leiðslu eru oft viðkvæm og þarf lítið að bregða út af til að þau heltist eða verði veik. Að þessu leyti stendur sauðfjár- ræktin mjög sterkt. Hún flokkast undir lágflæðibúskap. Litlu er bætt inn í kerfið í formi kjarnfóðurs og lyfja, dýrin eru mikið úti og búskap- urinn er mjög sjálfbær en gefur ef til vill ekki hámarksafurðir. Ærin skil- ar um 25 kg á ári á meðan gylta skil- ar hátt í tonni af kjöti. En það er ekki hægt að segja að ef framleiðslan sé góð hljóti dýrunum að líða vel. Held- ur ekki að ef þau eru í náttúrulegu umhverfi hljóti þeim að líða vel. Þá ættum við til dæmis ekki að þurfa að byggja yfir hestana okkar. Hundar eða kettir sem búa í blokk geta haft það mjög gott. Fyrst og fremst þarf að huga að tegundinni og hreyfiþörf hennar og uppfylla aðrar grunnþarf- ir dýrsins.“ – En ættu allir að fá að eiga dýr, hvort sem þeir hafa einhverja þekk- ingu til þess eða ekki? „Það mega allir eiga börn!“ svarar hann snöggt, en bætir svo við: „Það má reyndar velta því fyrir sér hvort ekki eigi að gera sérstakar kröfur til fólks varðandi dýrahald. En það er erfitt að segja til um það. Í sjálfu sér ættum við að hafa ákveðið kerfi á dýrahaldi, hvort sem um er að ræða einn hund eða heilt kúabú. Við höf- um að sjálfsögðu dýraverndunarlög- gjöf, og lög um búfjárhald, en í sjálfu sér getur hver sem er keypt dýr. En umræðan um velferð dýra er oft svo öfgakennd og getur því orðið erfið. Ef við notum nytjasiðfræðina sem grunn hljótum við að segja sem svo að það skipti ekki máli hvar dýrið er heldur hvort því líður vel eða illa. Ef við höfum góða þekkingu á at- ferli, lífeðlisfræði dýranna ættum við að geta metið það. Við verðum að hafa í huga að húsdýrin hafa sann- anlega tilfinningar sem eru að mörgu leyti svipaðar og okkar. Al- mennt er talið að þau skynji sárs- auka, reiði, leiða, hræðslu, gleði, þó ekki séu allir sammála um hvernig skilgreina eigi þessar tilfinningar hjá dýrum. En með skírskotun til þróunarfræði, taugalífeðlisfræði og atferlisfræði getum við verið nokkuð viss um að þar er um stigsmun að ræða en ekki eðlismun. Við höldum hesta og gæludýr ein- göngu vegna þess að okkur langar til þess. Ef til vill er það örvænting- arfull aðferð mannsins til að komast í snertingu við náttúruna. Ef út í það er farið höfum við ekki raunverulega „þörf“ fyrir loðdýr og aðeins lítinn hluta af þeim dýrum sem við notum til matar. Sama má segja um þörfina fyrir aðrar afurðir svo sem mjólk og egg. Við neytum þessara afurða vegna þess að okkur langar til þess – ekki vegna líffræðilegrar þarfar. Það er ekkert slæmt við það. Við þurfum bara að vera meðvituð um að dýra- hald og búfjárrækt er á vissan hátt ákveðinn munaður, ekki síður en svo ótal margt annað sem við gerum s.s. að aka um á bíl með hita í sætunum, fara í skíðaferðalög eða rækta rósir í upphituðum húsum. Stóra spurning- in er hvort við eigum að sætta okkur við að vellíðan dýra sé misboðið, til að við getum veitt okkur þennan munað. Hér getum við notað nytja- siðfræðina til að vega saman þá lífs- fyllingu sem við fáum og vellíðan dýranna – eða vanlíðan. Það skiptir ekki öllu máli hvort við erum að tala um tamningaraðferðir á hestum eða framleiðsluaðferðir á kjúklingum. Við verðum að axla ábyrgðina á okk- ar hegðan – valið er okkar.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 27 ...ferskir vindar í umhirðu húðar Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland Dísa í World Class segir: „Loksins sýnilegur árangur!“ „Loksins kom krem þar sem virknin finnst þegar það er borið á húðina og jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli eindregið með Silhouette fyrir konur á öllum aldri og eftir barnsburð er það al- veg nauðsynlegt. Nýja Body Scrubið er kærkomin viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette- kremsins á húðina.“ Dísa í World Class

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.