Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ ER ýmislegt sérstaktvið að búa á suðvestur-horni okkar ágætalands. Eitt sérkennið er það að allan veturinn, sem þó er gjarnan lítill vetur miðað við það sem önnur landshorn mega þola, er maður að bíða eftir vori og sumri sem síðan reynist bara vara dulbúið haust. Aprílmánuður var mjög skikkanlegur og reyndar vorlegur. Það gekk meira að segja svo langt að fjöslkyldan gat með góðu móti snætt kvöldverð úti á palli í kvöldsólinni um páskana. En svo kom hið raunverulega sumar formlega til skjalanna. Og þá var draumurinn búinn. Framan af maí hefur meira og minna verið bölvað slagveður, svo hvín og bylur á súðum og kvistum og börn og fóboltar sjást nánast á flugi, fjúkandi fram hjá gluggunum. Á meðan ríkir hins vegar raunverulegt sumar í öðrum landshlutum með sól og breyskju. Víst hlýtur það að vera langþráð eftir fannfergið og ekki vildi ég hafa það af þessum landsmönnum að njóta loksins al- mennilegs blíðviðris. En það þarf afar sterk bein til detta ekki ofan í hreina og ómengaða öfund annað veifið. En víst er um það að hér ervistin heldur daufleg ídumbungsroki og regni sem meira að segja dregur kraftinn úr bless- uðum fuglunum, svo söngur þeirra verður máttlaus og holur. Þar sem ég bý, á Álftanesi, eru fuglar ætíð nokkuð fyrirferðarmiklir, en sérlega þó á vor- in. Flestir þessir góðu gestir eru nú mættir í fjörurnar, á tjarnirnar og í hagana og kind- urnar í Sviðholti búast til að bera þar sem þær bíta ilmandi nýgræðinginn í túninu. En innandyra situr skólafólk og heimavinn- andi og lítur svo á að veðurguðunum hafi orð- ið á í messunni og hljóti að láta af þessu óvor- lega slagviðri innan skamms. En hvernig sem það fer halda dagarnir áfam að líða og hverfa framan af almanakinu og brátt hillir undir mitt sumar og þá hlýtur nú að draga úr þess- um ofstopa í veðrinu. En á meðan lárétta regnið hamrar ábárujárnsveggina er ágætt að minnasjálfan sig á það að vor snýst ekki bara um dagsetningar eða ákveðna tegund af veðri. Vor er líka hugarástand og þegar veðr- ið er eins og það hefur verið undanfarna daga er það nú kannski lítið annað. Og hvers konar hugarástand er vor? Helstu einkenni hugarástandsins vors eru eftirvænt- ing (ekki tilhlökkun, hún tilheyrir frekar síð- vetrinum), von og endurvakin trú á framtíð- ina. Í skini milli skúra blasir jú við að veröldin öll er að endurnýja sjálfa sig. Og það veitir okkur vissu fyrir því að við getum gert eins. Þegar vorar í sálinni verða gamlar syndir, ókláruð verkefni og alls kyns pirringur og meinfýsni að nokkurs konar sinu sem víkur fyrir nýjum gróðri góðra hugmynda og heilla- vænlegra áforma og heitstrenginga. Þessi umbreyting er nokkurs konar end- urnýjun aðildar okkar að samfélagi jákvæðra manna, árleg aðalskoðun, útgáfa nýs haffær- isskírteinis sem gerir okkur kleift að öðlast þann styrk sem þarf til að vera maður. En því miður er þetta vor í sálinni ekki jafn- öruggt og árvisst eins og vorið í náttúrunni. En einmitt þegar vorregnið dynur á þaki og rúðum gefst kjörið tækifæri til að reyna að laða fram vorið hið innra með okkur og það er jafnvel enn mikilvægara en nokkrir dagar með sólskini og hita, þótt vænir séu. Við vitum jú að það kemur alltaf aðminnsta kosti einn alvöru sumardag-ur. En ef okkur tekst ekki að láta grænka í sálinni er eins víst að við missum af honum. Sunnan þrettán til átján, rigning Á meðan lárétta regnið hamrar á bárujárnsveggina er ágætt að minna sjálfan sig á það að vor snýst ekki bara um dagsetningar eða ákveðna tegund af veðri, segir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Vor er líka hugar- ástand og þegar veðrið er eins og það hefur verið undanfarna daga er það nú kannski lítið annað. HUGSAÐ UPPHÁTT TILBOÐ ÓSKAST í Ford Explorer árgerð ‘96 XLT V8 (leðurinnrétting, sóllúga), Nissan Frontier árgerð ‘98 4x4 pickup, Ford Explorer árgerð ‘93 (tjónabifreið) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 15. maí kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16 Tankbifreið Ennfremur óskast tilboð í GMC tankbifreið árgerð ‘73 (4500 lítra áltankur). Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16 UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Bakpoki aðeins 1.600 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.