Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 38

Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Elsku besta systir mín og mágkona, það er erfitt að þurfa að kveðja þig. Á morgun hefðir þú orðið 49 ára. Það var rúmt ár í fimmtugsafmælið þitt þegar við héldum upp á mitt á Kan- aríeyjum í desember en þar nutum við okkar eins og alltaf þegar við vorum saman. Við vorum góðar í búðarápinu, að ég tali ekki um í snyrti- og skartgripaverslunum, en þá vorum við í essinu okkar. Enda sagði Eyvi oft er við komum úr snyrtivöruverslun: Nú hefur aldeilis verið úðað. Það hafði aðeins dregið úr veik- indum þínum, en síðan fór aftur að halla undan fæti þremur vikum eftir að við komum heim. Ég flutti í Viðarrimann og Sólveig nokkrum mánuðum síðar í næsta hús. Gat ekki verið nær enda var hún mér kær. Hún fór að vinna á Eir og ég SÓLVEIG ÞÓRÐARDÓTTIR ✝ Sólveig Þórðar-dóttir fæddist í Seljabrekku í Mos- fellssveit 14. maí 1952. Hún lést á heimili sínu 17. apríl og fór úför hennar fram frá Grafarvogs- kirkju 24. apríl. nokkrum mánuðum síðar. Ég kveð þig, elsku Solla mín, ég á eftir að sakna þess að þú bank- ir og segir: er ekki kaffi á könnunni? Ég bið góðan Guð að vernda þig á nýjum stað. Þakka allar okkar samverustundir, elsku systir og mágkona. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Elsku Baldur, Erla, Ragnheiður og fjölskyldur. Megi Guð styrkja ykkur og blessa í sorg ykkar og megi minningarnar lifa. Aldís og Eyjólfur. Elsku Solla okkar, loks er þinni þrautagöngu lokið og þú komin á annan æðri stað. Hetjuleg barátta þín síðastliðið ár segir allt sem segja þarf um þig. Þú leist á sjúkdóm þinn eins og hvert annað verkefni sem þú tókst á hendur af bjartsýni og já- kvæðni. En þrátt fyrir baráttuhug dugði það ekki til gegn illvígum sjúkdómi og við sitjum eftir með sorg og söknuð í huga. Mikill er missir Baldurs og dætra þinna Erlu og Ragnheiðar sem véku ekki frá þér í veikindum þínum, og ömmubarnanna sem þú varst svo stolt af. Gott er að eiga góðs að minnast. Það mætti segja okkur að þú sért komin með afþurrkunarklútinn á loft og farin að snurfusa í kringum þig, vel puntuð og angandi af uppáhalds ilmvatninu þínu, það var þinn stíll. Við kveðjum þig með ljúfum minn- ingum, kæra Solla. Hvíl þú í friði. Kona! – mannsins króna, kærleikstign þín skín, allir englar þjóna undir merkjum þín Þó oss sólin þrjóti, þróttur, fjör og ár, grær á köldu grjóti, góða dís þitt tár! (Matthías Jochumsson.) Elsku Baldur, Erla, Ragnheiður og aðrir ástvinir. Okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Guð styrki ykkur og styðji í sorg- inni. Kveðja, tengdafólkið að norðan. Elsku Sólveig okkar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þér, þú kenndir okkur svo margt. Elsku Baldur, Erla Dröfn, Ragn- heiður og fjölskylda, megi Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Agnes og Sólveig Andrea. Mig langar að festa á blað stutta kveðju til vinkonu minnar Sólveigar Þórðardóttur og þakka þau góðu en allt of stuttu kynni sem við áttum saman. Ég kynntist Sólveigu fyrir aðeins tveimur árum þegar við störfuðum saman á Hjúkrunarheimilinu Eir. Hennar létta lund og ríka kímnigáfa dró fólk að henni og við náðum vel saman. Á árshátíð starfsfólksins og samkomum þeim tengdum var Sól- veig hrókur alls fagnaðar og hún þurfti ekki áfengi til að skemmta sér og öðrum frábærlega. Ég á góðar minningar tengdar þessum skemmt- unum og myndaalbúmið geymir skemmtileg augnablik sem ekki gleymast. Sólveigu þótti gaman að líta vel út og hún var alltaf einstaklega snyrti- leg og vel til höfð kona. Það var skemmtun að fara með henni í versl- unarferðir að skoða snyrtivörur og föt. Margt var skoðað en ekki endi- lega mikið keypt og margt gaf hún öðrum fremur en eyða miklu í sjálfa sig. Síðast þegar við fórum saman í slíka verslunarferð var heilsu henn- ar farið að hraka sökum hins erfiða sjúkdóms er hreif hana frá lífinu. Séð var hvert stefndi en hún lét það ekki á sig fá og hennar létta lund og glaða hjartalag breiddi út gleði og skemmtilegheit til allra í kringum hana. Sólveig var mjög hlý og góð manneskja og eiginmaður hennar stóð við hlið hennar og létti henni stundirnar þegar sjúkdómurinn tók að gerast henni erfiður. Ég er þakk- lát fyrir að hafa kynnst þessari góðu konu og hafa verið henni samferða þennan allt of stutta tíma. Eigin- manni hennar, dætrum þeirra, fjöl- skyldum og öllum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Jóna Baldursdóttir.                                                      ! " #             !" # $%  &"$ %'  &$%   (   )%  &  & * ' $ $%   &     % $%    &$% (  +,  %    &  -%# ."/' $%  !" #  &  * , %& $% ,   &$% 0 ' $ %  &  +  1  &$% $   2  %    &$% 0  #' %&                               ! "#                 $!  % &"! '(# ) ! * !&" '+ # ,! -+ )%.((&  ' /( + . ( ! $.! )%.((&  0 & 1%&  ! 2! & ) ! 0 )! &%# + - %%.((&  (( ) ! & ,3# '+ 1%& %.((& +                   !                       !"   !##$ %&               ' ()  *         *  "# $ %" #& '  ##(  )&   #& &#  #& '   ##(     '* + #& ( ,  , *                    ! " #            ! "! #     $ "       $   ""%& ''(                                                       !              " #     "   %    #  #& '                                   !!"      !!  "  #  $    %   " $ &'( !)#*      " $ #* +    !! ,(-  .   " $ #    $ ,    $/                                   !" #$  % &' (# ()                                        !    !       "   #            ! " !#$%%   " & ' "$%%  (   &" %)" *"  " !# &" %)" (      & %" (  " $%% +                          !" # $$ % &$ '  ! ' $$ ()  $$ % ()  *& % +$(  &$ ,- $ % &$ ! . " /()  0 % &$ ,- % *& $()  %  ' ,)$&$ 01,- ! &  $$ 1 $1- $ &! 1 $1 $1- $"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.