Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 39
✝ Fríða GuðrúnÁrnadóttir
fæddist í Bolungar-
vík 26. desember
1919. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 3. maí síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Guðrún Kristjáns-
dóttir húsmóðir, f.
13. júní 1897 á
Laugarbóli, Naut-
eyrarhrepp, N-Ís.,
og Árni Elías Árna-
son, f. 2. mars 1888
að Ósi í Bolungar-
vík. Fríða var elst þriggja barna
þeirra hjóna, næstur er Árni, f.
1921, d. 1974, og síðan Halldóra,
f. 1927. Hinn 16. október 1943
giftist Fríða eiginmanni sínum
Þórólfi Beck Sveinbjarnarsyni
húsgagnasmíðameistara, f. 5.
apríl 1915, d. 22.
desember 1996.
Þau eignuðust einn
son, Árna, f. 12.
september 1944,
eiginkona hans er
Guðbjörg Elín
Daníelsdóttir, f. 7.
desember 1945.
Dóttir þeirra er
Arna Björk, f. 19.
júní 1978, sambýlis-
maður hennar er
Sigurður Bjartmar
Valsson, f. 20. des-
ember 1976. Börn
þeirra eru Daníel
Bjartmar, f. 18. september 1996,
og Guðbjörg Birta, f. 28. júní
2000.
Útför Fríðu fer fram frá Foss-
vogskirkju á morgun, mánudag-
inn 14. maí, og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Fríða Guðrún Árnadóttir er látin
eftir stutta sjúkdómslegu á heimili
sínu að Hrafnistu í Hafnarfirði. Við
fráfall hennar leitar á hugann fjöld-
inn allur af minningum um þá algest-
risnustu húsmóður sem ég hef nokk-
urn tíma kynnst. Konu sem lagði
metnað sinn í að búa fjölskyldu sinni
gott heimili. Heimili, þar sem allir
voru velkomnir og gátu alltaf bókað
hlýlegar móttökur og góðan viður-
gerning.
Það var annan í jólum árið 1919
sem Fríða fæddist í húsinu Árbæ í
Bolungarvík. Hún var frumburður
foreldra sinna, þeirra Árna Elíasar
Árnasonar og Guðrúnar Kristjáns-
dóttur. Á þessum tíma var Bolung-
arvík lítið fallegt sjávarpláss undir
fjallinu Traðarhyrnu þar sem lífs-
baráttan gat oft verið erfið.
Stuttu eftir fæðingu Fríðu flyst
fjölskyldan að Kleifum við Seyðis-
fjörð í Ísafjarðardjúpi þar sem num-
ið var staðar um hríð. Það vita þeir
sem einu sinni hafa búið í Bolung-
arvík að því fylgir söknuður að flytja
þaðan. Árið 1927 var því flutt aftur
til Bolungarvíkur enda hafði fjöl-
skyldufaðirinn fengið starf hjá Ein-
ari Guðfinnssyni í ört vaxandi fyr-
irtæki hans. Með tilkomu
fyrirtækisins breyttist bæjarbragur-
inn og víkin óx og dafnaði.
Sem unglingur starfaði Fríða við
afgreiðslustörf í Einarsbúð en sautj-
án ára gömul flyst hún ein suður og
ræður sig í vist það árið. Ári síðar fer
hún í nám við Húsmæðraskólann við
Laugaland í Eyjafirði. Námið við
húsmæðraskólann var Fríðu að
skapi og ræddi hún oft um það hve
þetta var yndislegur tími og lær-
dómsríkur.
Að námi loknu starfaði Fríða í
verksmiðju í Reykjavík í eitt ár en
réð sig í framhaldi af því í vist hjá
móðursystur sinni. Á því heimili
kynntist Fríða ungum húsgagna-
smið, Þórólfi Beck Sveinbjörnssyni
(Doja) og felldu þau hugi saman. Þau
gengu í hjónaband í október 1943.
Ári eftir að Fríða gengur í hjóna-
band fæðist einkasonurinn Árni
(Addi) og býr fjölskyldan þá að Ljós-
vallagötu í Reykjavík um nokkurt
skeið eða þar til flutt er í eigið hús-
næði við Smiðjustíg í Reykjavík. Á
Smiðjustígnum var mikið um heim-
sóknir af hálfu vina og vandamanna
enda móttökur einstaklega hlýlegar.
Í upphafi dvalarinnar á Smiðjustígn-
um fluttust foreldrar Fríðu til
Reykjavíkur ásamt Halldóru systur
Fríðu. Árni bróðir Fríðu var einnig
fluttur til Reykjavíkur þannig að nú
var öll fjölskylda hennar sameinuð á
ný.
Það var svo árið 1964 sem Fríða og
Doji flytjast í Stóragerðið þar sem
þau bjuggu lengst af. Stóragerðis-
heimilið verður mér ávallt í fersku
minni. Þetta var ákaflega fallegt
heimili þar sem öllu var haganlega
fyrir komið. Fríða lagði mjög mikið á
sig við að gleðja allt sitt fólk og eng-
an mátti skilja út undan. Um helgar
var bakað fyrir heimilið og bætt var
við álíka skömmtum sem sendir voru
til nánustu ættingja. Mikið var um
matarveislur og kaffiboð og var þá
ekkert til sparað.
Fríða og Doji létu sig aldrei vanta
við messur í Grensáskirkju á þessum
árum og talaði hún oft um það við
mig hvað hún fengi mikið út úr því að
hlusta á guðs orð og taka þátt í starfi
kirkjunnar. Hún hlakkaði alltaf til
jólanna og var það sá tími ársins sem
hún naut sín hvað best. Annan í jól-
um hélt hún upp á afmælið sitt og
ekki dugði minna en tvær veislur yfir
daginn. Í hádeginu var matarboð
fyrir nánustu ættingja og var þá
stórsteik á borðum. Síðar um daginn
var haldið kaffiboð og var þáávallt
margt um manninn. Þetta var nokk-
urs konar ættarmót þar sem fjöl-
skylduböndin voru styrkt.
Frá þessum Stóragerðisárum
kemur önnur minning upp í hugann,
en hún er um ferðalög þeirra hjóna
til Kaupmannahafnar þar sem einka-
sonur þeirra hjóna bjó ásamt eigin-
konu sinni Guðbjörgu Elínu Daníels-
dóttur. Á hverju sumri meðan ungu
hjónin dvöldu í Kaupmannahöfn fóru
þau Fríða og Doji til þeirra og
dvöldu hjá þeim. Fríða og Doji víluðu
ekki fyrir sér að halda alla leið til
Venezúela á jólum 1977 en á þeim
tíma starfaði Addi þar. Þessar ferðir
voru hápunktur ársins og gáfu þeim
virkilega mikið. Ekki minnkaði eft-
irvæntingin þegar sonardóttir þeirra
fæddist, en hún veitti nýrri og
ómældri gleði inn í líf þeirra hjóna.
Vorið 1993 voru þau Fríða og Doji
farin að reskjast og því tóku þau sig
upp og festu kaup á raðhúsi við
Boðahlein í Garðabæ sem er við hlið-
ina á elliheimilinu Hrafnistu. Dvölin
þar var ekki löng vegna heilsuleysis
og árið 1995 fluttu þau inn á elliheim-
ilið. Í lok næsta árs dó Doji en Fríða
dvaldi þar til dánardags.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
fjölskyldu minnar þakka Fríðu fyrir
samfylgdina. Í huga okkar verða alla
tíð greyptar minningar um yndislega
manneskju sem lagði sig alla fram
við að láta gott af sér leiða.
Árni Ármann Árnason.
FRÍÐA GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR
við Nýbýlaveg, Kópavogi
! "#$
%
&' ( )
*+'
,&
!
" #$ &'()
!
"
#$!
% &
' " * * +, !
-
* . ! / - 0 1!
2 , . ! 3 1!
4 ) . ! 2 4 / 1!
+, ") .1! 2 , ) " !
. 5 # ! " " ! !
/ 6 ! 6 - ! 2 4
* !
! 2 !
1# 4 /7!
" * *! - 8 1 9 )
!
"#$ &'&((
)( * +&, '&(( - . (/0
# ' 1. 0 #$ 0 )' 2 (, ''&((
+&, 3& 0 #$ 0
& 4 0 #$ 0 * )*('&((
# #$ 0 # # #$ !
! " #$
% & '( " )
*$+ & , $- . ' )
/ & # " )
" ) % . &
01 & # " )
) * *+
! "#$
!$ %&' ()
& & $&
!" # $"%
&&
$ '( )
& #$ '& *& & $
+ '# , '& - &! '&
& $
*&
&
*& - &# .! '&
'& - &! / & 0 %! '&
1 $ - &!'&
2 & *&
!" #$ !%
" % & '
( '
) *# ' + ,*
$ $-
! !
"# ! "#$$ ! % &
' "
! " #
$ # %# !
& '