Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 47
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 47
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sept-
ember kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl.
10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða
safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kand-
ís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476.
Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://
www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–22, helg. 8–20.
Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–20. Breið-
holtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Graf-
arvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–22. Ár-
bæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–22.
Kjalarneslaug opin v.d. kl. 15-21, helg. 11-17. Upplýsing-
arsími sundstaða í Reykjavík er 570-7711.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl.
11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–21,
lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða
og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laug-
ardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á
Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og föstud. kl.
14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.
„Ég þrái að sjá þig, minnugur tára
þinna, til þess að ég fyllist gleði er
ég rifja upp fyrir mér hina hræsn-
islausu trú þína. Sú trú bjó fyrst í
henni Lóis ömmu þinni og í henni
Evnike móður þinni, og ég er
sannfærður um, að hún býr líka í
þér.“
2. Tímóteusarbréf 1:4–5.
Barnatrúin býr í hjörtum
margra og er sú trú sem margir
játa fúslega. Hún er einlæg og
barnsleg, enda til hennar sáð í
bernsku. Trú á góðan Guð og
engla hans. Barnatrúnni fylgja
bænir sem gjarnan voru lærðar
við móðurkné, signing, morg-
unbænir og kvöldbænir.
Enginn skyldi lítilsvirða barna-
trúna. Jesús líkti guðsríkinu við
mustarðskorn, sem var smæst
allra sáðkorna. En þegar það náði
að vaxa varð það öllum jurtum
meira. Það er mikilvægt að hlú að
sinni barnatrúi, veita henni nær-
ingu og skjól. Upp af frækornum
hennar sprettur trúarvissa sem
reynist mörgum akkeri í ólgu-
sjóum lífsins. Þegar eitthvað bját-
ar á er horfið í það örugga skjól
sem óx af sáningu bernskuáranna
– bænina og trúna.
Fyrir meira en áratug gerðu
þeir Björn Björnsson og Pétur
Pétursson könnun á trúarlífi Ís-
lendinga. Niðurstöður hennar
voru gefnar út árið 1990 (Trúarlíf
Íslendinga. Ritröð Guðfræðistofn-
unar 3. Reykjavík 1990). Nið-
urstöður þessarar könnunar sýna
glöggt hve áhrifaríkar mæður
hafa verið í trúarlegri mótun
fólks. Þegar þátttakendur í könn-
uninni voru spurðir um þá sem
hefðu haft áhrif á trúarlíf þeirra
var móðirin nefnd oftar en nokkur
annar og einnig talin áhrifamesti
aðilinn. Þau sem næst komu voru
„afi og amma“, þar á eftir prest-
urinn og svo faðirinn. „Þessar nið-
urstöður styðja þá kenningu að
grundvöllur að trúarlegri mótun
sé lagður innan veggja fjölskyld-
unnar,“ segir í skýrslunni.
Þetta eru ekki ný sannindi. Hér
að ofan er vitnað í bréf Páls post-
ula til andlegs uppeldissonar og
síðar samverkamanns, Tímóteus-
ar, sem uppi var á fyrstu öld eftir
Krist. Móðir Tímóteusar, Evnike,
var trúuð kona og af gyð-
ingaættum. Faðir hans grískur.
Evnike var dóttir Lóis, sem einnig
var trúuð. Tímóteus var því alinn
upp á trúuðu heimili og fræddur
af ömmu og mömmu í helgum
ritningum Gamla testamentisins,
sem hann þekkti „frá blautu
barnsbeini“ eins og Páll skrifar
honum.
Þessi trúaða fjölskylda fékk að
heyra að Jesús frá Nasaret væri
Kristur, hinn smurði Drottins, og
tók við boðskapnum. Tímóteus fór
með Páli í kristniboðsferðir, með-
al annars til Evrópu. Þau fræ sem
sáð var í hjarta hans báru því
ávöxt.
Þeir sem annast uppeldi og
uppfræðslu geta líka sáð fræjum
trúar. Nýlega minntumst við þús-
und ára kristnitöku. Kristni hafði
þó numið hér land löngu fyrr. Allt
bendir til þess að hér hafi nafn
Krists verið tilbeðið frá því menn
komu hér fyrst. Séra Jónas heit-
inn Gíslason prófessor var í hópi
þeirra sem leitað hafa skýringa á
því hvers vegna kristnitakan gekk
svo greiðlega á Alþingi árið 1000.
Honum virtist eina skynsamlega
skýringin vera sú að hér hafi verið
miklu sterkari kristni en heimildir
greina frá. Norrænu víkingarnir
tóku með sér keltneska þræla og
ambáttir, sem líkast til voru krist-
innar trúar. Séra Jónas Gíslason
skrifaði eftirfarandi: „Margir
þrælar á Íslandi voru írskrar ætt-
ar; ambáttir önnuðust oft uppeldi
barna höfðingja. Það væri und-
arlegt, ef kristnar ambáttir hefðu
ekki reynt að sá frækornum trúar
sinnar í barnshjörtun; slíkt var al-
þekkt í Rómarveldi á fyrstu öld-
um kristni.“ (Er þörf á endurmati
íslenzkrar kirkjusögu. Ritröð
Guðfræðistofnunar 1. Reykjavík
1988.)
Mikið barnastarf er unnið í
kirkjum landsins, hjá kristilegum
félögum og í sumarbúðum. Þetta
starf er ákaflega dýrmætt og veit-
ir gott veganesti fyrir lífsgöng-
una. Eigi að síður er heim-
ilisguðræknin, sem meðal annars
birtist í því að fara með bænir með
börnum, líklega áhrifamesta sán-
ing trúarinnar.
Það er ekki einungis mikilvægt
að biðja með börnunum, heldur
einnig að biðja fyrir þeim. Í fyrr-
nefndri könnun er vitnað í sænsk-
an prófessor, Wikström að nafni.
Hann „bendir á mikilvægi þess að
foreldri, sem mest áhrif hefur með
fordæmi sínu (sérstaklega bæna-
lífi), ræði við barnið um trúarlífið
og afleiðingar þess og geri það
þannig áþreifanlegt og raunveru-
legt“. Ennfremur segir hann að
„það hafi oft mikla þýðingu að
börn verði þess vör að þau séu fyr-
irbænarefni einhvers en því fylgi
tilfinning er veki trúnaðartraust
og að handleiðsla guðs sé fyrir
hendi“.
Auðvitað er það ekki síður hlut-
verk feðra og afa en mæðranna og
ammanna að biðja fyrir börnum
og barnabörnum og að sá fræjum
trúar.
Morgunblaðið/Helga Kristín
Boðberar
barnatrúarinnar
Ömmur og mömmur hafa sáð fræjum
trúarinnar öld fram af öld. Guðni
Einarsson leiddi hugann að boðberum
barnatrúarinnar á mæðradegi.
gudni@mbl.is
HUGVEKJA
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Þitt heimili á COSTA BLANCA
Í 19 ár höfum við selt húseignir á Spáni.
Nú seljum við beint frá 36 byggingaraðilum TIL ÞÍN.
VERÐDÆMI:
1. Stúdíóíbúð í blokk, 35 fm, 3.000.000 ísl. kr.
2. 2ja herb. íbúð, garður, 59 fm, 5.000.000 ísl. kr.
3. Íbúð í fjórbýli, garður, 64 fm, 7.500.000 ísl. kr.
Við tölum íslensku - Hafðu samband
Sími 0034 6067 19032 - Fax 0034 9657 05487
Glæsilegt 173 fm einbýlishús með bílskúr. 5—6 herb.
þar af 4 svefnherb. Fallegar innréttingar. Falleg lóð
Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali.
Jón Kristinsson sölustjóri.
Svavar Jónsson sölumaður.
Sími 551 8000 - Fax 551 1160
Vitastíg 12 - 101 Reykjavík
Opið hús kl. 15-17,
Stararimi 29
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is