Morgunblaðið - 13.05.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 51
DAGBÓK
AÐ LOKNU einvíginu við
Bobby Fischer 1992 hefur
Boris Spassky (2551) að
mestu setið á friðar-
stóli. Í þau fáu skipti
sem hann hefur teflt
hefur friðsemdin verið
ríkjandi með aragrúa
stuttra jafntefla. Á af-
mælismóti Viktor
Kortsnojs bar hins veg-
ar svo við að gamli ref-
urinn tefldi glimrandi
góðar baráttuskákir.
Hann hafði hvítt í stöð-
unni gegn Nigel Short
(2476). 37.Hxe6! Dxe6
38.Dxd4 He7 39.c7! Kf7
39...Hxc7 hefði engu
bjargað þar sem hvítur
vinnur hrókinn eftir
40.Dd8. 40.b6 Hd7 41.De3
Dc6 42.Dh6 Kg8 43.Rg6
Hf7 44.Rd5 og svartur
gafst upp enda fátt til
varnar. Netmót TG verð-
ur haldið í kvöld, 13 maí.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Í dagsunnudaginn 13. maí
verður áttræð Ólöf Hrefna
Eyjólfsdóttir, nú búsett á
Hjúkrunarheimilinu Eir,
Hlíðarhúsum 2, Grafarvogi.
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 13. maí,
verður fimmtug Hildur
Kristinsdóttir Wium,
Hrauntúni 6, Breiðdalsvík.
Eiginmaður hennar er Sæv-
ar Sigfússon.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 14. maí, verður fimmtug-
ur Marel Ingvi Þorbjörns-
son. Hann tekur á móti
gestum í Iðjubergi, Gerðu-
bergi 1, Reykjavík, í dag
sunnudaginn 13. maí frá kl.
15–18.
Árnað heilla
Með morgunkaffinu
Hann hefur
ekki náð sér
enn. Konan
fór frá honum
... og KOM svo
aftur.
LJÓÐABROT
SKARPHÉÐINN Í BRENNUNNI
Buldi við brestur,
brotnaði þekjan.
Reið niður rjáfur
og rammir ásar.
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi,
eldvargar runnu fram, hvæsandi, sogandi.
Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu.
Gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu.
Nár var þá Njáll,
nár var Bergþóra,
burtu var Kári,
brunninn Grímur,
höggvinn Helgi,
Héðinn stóð einn
tepptur við gaflað
og glotti við tönn.
Hannes Hafstein
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Þú ert hugsjónamaður og
setur öryggið á oddinn svo
mjög að þú vilt enga áhættu
taka í neinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það stoðar lítið að vera með
eintrjáningshátt fyrst þú
hefur á annað borð gefið þig
í samstarf við aðra. Sýndu
lipurð og sanngirni umfram
allt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú verður framleiðnin að
víkja um sinn fyrir mann-
legu þáttunum. Gakktu fram
fyrir skjöldu og sjáðu til
þess að ykkur sé sýnd til-
hlýðileg virðing.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu ósmeykur við að binda
þig til langs tíma. Viðfangs-
efnið er þess eðlis að þú get-
ur ekki annað en grætt á því
að skila því heilu í höfn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það kann ekki góðri lukku
að stýra að blanda persónu-
legum vandamálum sínum
saman við starfið. Haltu
þessu aðskildu en sinntu
persónu þinni vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að læra að hafa
betri stjórn á skapi þínu, þar
sem þér hættir einkum til að
særa þá sem nærri þér
standa. Leystu eigin vanda-
mál fyrst.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver mál sem hafa legið í
þagnargildi brjótast upp á
yfirborðið og valda þér ein-
hverjum leiðindum. Þú þarft
hins vegar ekkert að óttast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu ekki aðra gera þig að
blóraböggli þeirra mistaka.
Stattu fast á þínu, hver sem í
hlut á, öðruvísi getur þú ekki
náð landi svo vel fari.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er ágætt að hlusta á
aðra, en ekki síður að lesa í
það sem á bak við orðin býr.
Útlit blekkir, það er það sem
undir býr sem skiptir máli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vertu stoltur af sjálfstæði
þínu og hikaðu ekki við að
fara þína leið, ef þér sýnist
hún sú skásta. Málamiðlun
getur þó stundum átt við.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þér mistakist eitthvað
einu sinni, er ekki þar með
sagt að þú getur ekki reynt
aftur síðar. Mistökin eru til
þess að læra af þeim.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhverjar góðar fréttir
berast þér í dag og megir þú
vel njóta. Láttu öfund ann-
arra lönd og leið, hún
smækkar þá en hefur engin
áhrif á þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Góðu stundirnar á maður að
geyma og gleðjast yfir þeim
í góðu tómi. Stundum verður
maður að leyfa hlutunum að
hafa sinn gang, þótt erfitt sé.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRESKA Hackett-fjölskyld-
an og John Armstrong
spiluðu úrslitaleikinn um
NEC-bikarinn við japanska
sveit undir forystu Teramoto.
Spilaður var 64 spila leikur
og unnu Bretarnir með 29
IMPa mun. Ritstjóri móts-
blaðsins, Eric Kokish, bendir
á að í raun hafi eitt spil leiks-
ins ráðið úrslitum, þar sem
vestur þurfti að finna rétt út-
spil gegn doblaðri alslemmu
á hættunni. „Veltan“ í spilinu
var 31 IMPi:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁKDG1082
♥ 32
♦ Á
♣ ÁG4
Vestur Austur
♠ 543 ♠ 96
♥ G7 ♥ Á84
♦ G52 ♦ 7643
♣ 97632 ♣ D1084
Suður
♠ 7
♥ KD10965
♦ KD1098
♣ K
Hálfslemma í grandi er
besti samningurinn í NS, en
sex spaðar vinnast líka og þar
enduðu Japanirnir á öðru
borðinu og tóku 1430 fyrir.
Hinum megin óðu Arm-
strong og Paul Hackett í al-
slemmu!
Vestur Norður Austur Suður
Imakura Armstrong Teramoto P. Hackett
-- -- Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf * Pass 3 tíglar
Pass 3 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 hjörtu
Pass 7 grönd Dobl Pass
Pass Pass
Teramoto hefði gjarnan
vilað eiga út sjálfur með
hjartaásinn, en með doblinu
var hann að reyna að fá
makker til að kveikja á per-
unni. Imakura lá lengi yfir
stöðunni, en valdi loks tígul.
Þar eð tígulgosinn fellur
þriðji var sagnhafi ekki í
vandræðum með að innbyrða
alla slagina. Bretar unnu því
nokkuð óverðskuldað 14
IMPa á spilinu, en hefðu tap-
að 17 ef vestur hefði hitt á
hjarta út, eða bara lauf, því
það slítur samganginn við
tígulinn í borði.
Hvers vegna stökk Arm-
strong í sjö grönd þegar mak-
ker hans var búinn að spyrja
um lykilspil og „ljúka“ sögn-
um í hjartaslemmu? Arm-
strong var óánægður með
framvinduna – þriggja hjarta
sögn hans var vond, því hún
gaf makker tækifæri til að
taka völdin og spyrja um lyk-
ilspil. Armstrong vissi vel að
eitt lykilspil var úti, en það
gat allt eins verið hjartakóng-
urinn og ásinn. Og jafnvel
þótt vörnin væri með hjarta-
ásinn voru þó helmingslíkur á
því að hann væri „réttu“
megin. Þetta var því enginn
afglapasögn hjá Armstrong
heldur miklu frekar „útreikn-
uð áhætta“ – sem heppnaðist
vel í þetta sinn.
Það er svo efni í heila bók
að velta fyrir sér hvort vestur
hefði átt að finna hjartaút-
spilið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
ER BYRJUÐ AFTUR!
Verið velkomin,
Selma Pétursdóttir.
Grensásvegi 50, sími 588 5566
Lífgaðu daufan háralit um
leið og þú þværð hárið
Haltu réttum lit og gljáa á lituðu hári. Láttu gráu hárin
hverfa. Lýstu hárið ögn eða dekktu það smávegis.
Sérfræðingar Origins hafa hannað litunarefni blönduð
hressandi og hreinsandi jurtatei til að styrkja og
glæða háralit sem farinn er að dofna. Sé sjampóið
notað reglulega verður liturinn dýpri og fyllri.
Felur gránaða rót. Engin mislitun. Og engin
binding, því þegar þú ferð aftur að nota
venjulegt sjampó þvæst liturinn
úr eins eðlilega og hann þvæst í.
Útsölustaðir:
Apótek Keflavíkur, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáratorgi, Hagkaup Spönginni,
Lyf og heilsa Austurstræti, Lyf og heilsa Kringlunni, Lyf og heilsa Melhaga,
Lyf og heilsa Hafnarstræti, Akureyri.
Félag harmonikuunnenda
heldur skemmtifund kl. 15
í dag í Húnabúð, Skeifunni 11.
Meðal þeirra sem koma fram eru Bragi Hlíðberg,
hljómsveitir félagsins auk ungra nemenda.
Allir eru velkomnir. Takið með ykkur gesti.
Félag
harmonikuunnenda
Guðrún Arnalds verður með námskeið
í Vestmannaeyjum helgina
18.—20. maí og í Reykjavík 26.—27. maí.
Vorhreingerning á líkama og sál. Líföndun er góð leið
til að leysa upp spennu og létta á hjartanu.
Gleði er ávöxtur innri friðar.
Guðrún Arnalds,
símar 896 2396/551 8439.
Líföndun