Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FÉLAGSHEIMILIÐ Drangey, við Stakkahlíð í Reykjavík, þar sem fundur FÍN var haldinn, tekur um 200 manns í sæti en aðsókn á fund- inn var slík að nokkuð þröngt var um fundargesti. Á fundinum mátti með- al annarra sjá velflesta starfsmenn Hafrannsóknastofnunar sem á sama tíma var að kynna veiðiráðgjöf sína fyrir næsta fiskveiðiár. „Ég fer ekki í vinnu í dag,“ sagði einn fundarmanna, „ég sýni félögum mínum samstöðu.“ Í fréttatilkynn- ingu frá samtökunum segir: „Samn- ingar eru ekki enn í sjónmáli þó að haldnir hafi verið hátt á þriðja tug funda [...] Nú er svo komið að ríkið vill ekki tryggja FÍN þann sveigj- anleika í launatöflu sem nauðsynleg- ur er til að gegnsæi núverandi launa- kerfis haldist.“ Þungt hljóð í fólki Þrúður G. Haraldsdóttir, fram- kvæmdastjóri FÍN, segir hljóðið vera heldur að þyngjast í félags- mönnum. „Við erum búin að vera samningslaus síðan í lok október og illa gengur að komast að sameigin- legri niðurstöðu við nefndina,“ segir hún. „Það sem við höfum lagt einna mesta áherslu á í viðræðum okkar er að fá víkkun á launarömmum okkar, þ.e.a.s. aukið svigrúm. Það sem er í raun verið að gera er að stöðva þró- un á nýja launakerfinu.“ Hún segir að óánægja meðal félagsmanna fari stigvaxandi. „Það er mjög mikil breyting síðustu þrjár vikurnar á viðhorfum félagsmanna. Það er vax- andi óþolinmæði og óánægja með þessa afstöðu [samninganefndar rík- isins].“ Til marks um þessa óánægju benti Þrúður á ályktanir frá vinnustaða- fundum fjölda aðildarfélaga FÍN þar sem farið er fram á það við stjórnina að undirbúningur boðunar verkfalls félagsins verði hafinn nú þegar. Hún talar ennfremur um að vitanlega verði félagið að miða sig við sam- bærilegar stéttir. „Við erum t.a.m. með fólk sem er að kenna á fram- haldsskólasviði og hljótum að líta til þess sem hefur verið gert hjá fram- haldsskólakennurum en við erum töluvert mikið undir því. Augljóslega gengur ekki upp að hafa kennara starfandi hlið við hlið eða í sambæri- legum stofnunum og það er þetta mikill launamunur.“ Ágreiningur um launaramma Þrúður segir að með þrengingu launaramma sé komið í veg fyrir al- menna launaþróun og af þeim sökum horfi ekki vel fyrir ríkisstofnanir sem eru í samkeppni við almennan markað um starfsfólk og útlit fyrir að þær verði illa staddar eftir eitt til tvö ár. „Við erum hreinlega ekki far- in að tala um prósentur ennþá held- ur er enn verið að tala um sveigj- anleika til að fylgja almennri launaþróun.“ Undir þessi orð tekur Ína Björg Hjálmarsdóttir en hún er formaður FÍN og formaður samn- inganefndar félagsins. „Fyrsti fund- ur var fyrsta nóvember árið 2000, þannig að við erum búin að eiga í við- ræðum í rúmlega hálft ár. Við töld- um að þessar samningaviðræður væru tiltölulega einfaldar,“ sagði Ína Björg. „Við lögðum mikla áherslu á ganga frá því með hvaða hætti gera skyldi stofnanasamninga. Við eydd- um ansi miklu púðri í það og rædd- um ekkert annað á meðan. Það er svo ekki fyrr en fyrir um mánuði að við gengum frá stofnanaþættinum að því leyti hvernig gerð og endur- skoðun samninganna skuli fara fram.“ Ína segir að í raun steyti enn á forminu því félagið nýti alla launa- ramma og þurfi að fá meiri sveigj- anleika til að launakerfið geti haldið áfram að þróast. „Annars verður horfið aftur til gamla kerfisins þar sem menn fengu dagvinnulaun í formi yfirvinnutíma, en það viljum við ekki. Við viljum halda þessu launakerfi sem tekið var upp árið 1997.“ Hún segir samninganefnd ríkisins ekki bjóða nóg í viðræðunum og telur ljóst að nauðsynlegt verði að fara út í frekari aðgerðir til að ná markmiðum félagsins. „Það er merkilegt að þurfa að fara í aðgerðir bara til að ná formi en ekki pró- sentuhækkunum.“ Frekari aðgerðir Ína segir verið að skoða á hvaða formi frekari aðgerðir verði. „Við höfum verið að skoða mismunandi leiðir, tímabundin verkföll og ótíma- bundin verkföll. Einnig höfum við velt öðrum möguleikum fyrir okkur, auglýsingaherferðum og fundaher- ferðum til að vekja athygli á þessu.“ Þennan baráttufund sagði Ína vera félagsfund en ekki vinnustöðvun. „Eftir því sem mér er sagt er ekki um að ræða nein tímamörk á félags- fundum,“ segir Ína. Þrúður G. Har- aldsdóttir tók í sama streng: „Okkur veitir ekki af þessum tíma til að ræða þau viðhorf samninganefndar ríkisins sem hafa komið fram í þess- um þverneitunum þeirra.“ Þrúður segist ekki vita um hvort þörf verði á fleiri fundum sem þessum. „Við verðum að geta upplýst okkar félagsmenn, þeir segja okkur hvað við eigum að gera og við verðum að hafa þá fundi sem gefa þeim svigrúm til að koma skilaboðum til stjórnar félagsins,“ sagði Þrúður. Í ályktun sem félagið sendi frá sér eftir fundinn er mótmælt harðlega neikvæðum viðbrögðum samninga- nefndar ríkisins við réttmætum kröfum félagsins. Mótmælt er þeim drætti sem orðið hefur á samninga- ferlinu en félagið telur að með þess- um vinnubrögðum sé ríkið að hafa fé af félagsmönnum og í reynd að brjóta grundvallarlýðréttindi hvað varðar frjálsan samningsrétt. Þá kemur fram að fundurinn hafi falið stjórn félagsins að skipuleggja stig- vaxandi aðgerðir til að fylgja kröfum félagsins eftir. „Við byrjum eflaust strax að undirbúa verkfall en við boðum ekki til atkvæðagreiðslu með- al félagsmanna fyrr en stjórnin telur það tímabært,“ segir Ína Björg. Óánægja náttúrufræð- inga fer stigvaxandi Morgunblaðið/Billi Í hópi náttúrufræðinga sem fjölmenntu á baráttufund í Félagsheimilinu Drangey var Þrúður G. Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri FÍN. Félag íslenskra nátt- úrufræðinga hélt al- mennan félagsfund í gær þar sem rædd var staðan í samninga- viðræðum við launa- nefnd ríkisins. Dagskrá fundarins stóð frá klukkan níu til klukkan fjögur og sendi fund- urinn frá sér yfir- lýsingu þar sem átalinn er seinagangur í samn- ingaviðræðunum. ELDSNEYTISVERÐ hefur hækk- að hjá olíufélögunum um og eftir helgina nema hjá Olíufélaginu hf., Esso, þar sem verðið hefur staðið í stað. Hjá Félagi íslenskra bifreiða- eigenda (FÍB) er það mál manna að Olíufélagið hf. hafi brennt sig á því að fara fyrstir af stað síðast þegar verð hækkuðu og séu nú að reyna að laða til sín aftur þau viðskipti sem þeir kunni að hafa misst. Á föstudaginn fyrir hvítasunnu- helgi reið Olís á vaðið og hækkaði bensínverð um fimm krónur lítrann og dísilolíu um fjórar krónur. Skelj- ungur sigldi svo í kjölfarið með sömu hækkanir eftir helgina. Þó með þeirri undantekiningu að verðið á nýja 99 oktana bensíni þeirra, Shell V-Power, breyttist ekki að því er fram kemur á heimasíðu Skeljungs. Olíufélagið hf., Esso, hefur ekki enn hækkað verð á sínu eldsneyti. Magn- ús Ásgeirsson, innkaupastjóri elds- neytis hjá Olíufélaginu, sagði seinni partinn í gær ekkert vera að gerast hjá þeim og að engar ákvarðanir hafi enn verið teknar um hækkanir. Þessi munur á eldsneytisverði ol- íufélaganna breytir engu fyrir þær stöðvar sem olíufélögin reka í sam- einingu. Á þeim er boðið upp á varn- ing frá hinum olíufélögunum þrátt fyrir að eitt þeirra standi að rekstr- inum. Magnús segir að þá ráði eft- irlitsaðili stöðvarinnar verðinu. „Ef Skeljungur eða Olís er með stöðina gildir þeirra verð, ef við erum með hana gildir okkar,“ segir Magnús. Bensín- verð óbreytt hjá Olíu- félaginu SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu sjúkraliða og samninganefndar rík- isins (SNR), sem haldinn var í gær hjá ríkissáttasemjara, var árangurs- laus. Boðað hefur verið til næsta fundar 14. júní. „Það var lítið sem gerðist. Það var ekkert í spilunum. Boðað er til fund- ar eftir viku, sem sýnir í raun og veru að það er ekkert að gerast,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, eftir fundinn í gær. Sjúkraliðar hafa verið með lausa samninga frá 1. nóvember á seinasta ári og er mikil óánægja meðal þeirra vegna seinagangs í viðræðunum. Kristín segist ekki vita hvert framhaldið verður. SNR hafi látið á sér skiljast að nefndin vilji einbeita sér að viðræðum við sjúkraliða í júní- mánuði. „En meira veit ég ekki,“ sagði Kristín. Í gær komu trúnaðarmenn sjúkra- liða á Landspítala – háskólasjúkra- húsi saman til fundar þar sem kjara- málanefnd félagsins gerði grein fyrir stöðunni. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort gripið verður til aðgerða til að þrýsta á um gerð samninga. Sáttafundi hjúkrunarfræðinga og ríkisins frestað Sáttafundi í kjaradeilu hjúkrunar- fræðinga og ríkisins sem halda átti sl. föstudag var frestað fram yfir helgi og í gær var ákveðið að fresta fundinum á nýjan leik til miðviku- dagsins 13. júní kl. 10. Tveggja sólarhringa verkfalli hjúkrunarfræðinga lauk á miðnætti á föstudag. Að sögn Herdísar Sveinsdóttur, formanns Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga, er ekk- ert að frétta af hugsanlegum fram- haldsaðgerðum á þessari stundu. Hjúkrunarfræðingar hafa mót- mælt harðlega við fjármálaráðherra þeirri aðgerð að draga laun af hjúkr- unarfræðingum sem sinntu störfum sínum samkvæmt gildandi undan- þágum hjá stofnunum ríkisins með- an á verkfallinu stóð og hafa einnig krafist þess að hjúkrunarfræðingar, sem skiluðu fullum vinnumánuði í samræmi við starfshlutfall, fái full laun fyrir störf sín. Að öðrum kosti hefur félagið sagst munu krefjast dráttarvaxta á vangoldnum launum auk kostnaðar sem til kann að falla. Kjaradeila sjúkraliða og ríkisins Árangurslaus fundur HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur úrskurðað karlmann í gæslu- varðhald til 11. júní nk. vegna gruns um aðild að peningafölsun. Maðurinn var handtekinn á sunnudag eftir að fölsuðum seðlum var framvísað í verslun í borginni en eftir það beindust grunsemdir að manninum. Lögreglan telur að hann geti gefið upplýsingar um fölsun á seðlum sem hafa verið settir í um- ferð á undanförnum vikum. Mennirnir þrír sem sátu í gæslu- varðhaldi vegna fölsunar á húsbréf- um fyrir um 116 milljónir losnuðu úr haldi á föstudag. Lögreglan fór ekki fram á framlengingu á varðhaldinu en málið er talið að mestu upplýst. Í gæsluvarð- hald vegna pen- ingafölsunar ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.