Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KAJAKRÆÐARAR fjölmenntu í
Stykkishólm um hvítasunnuhelg-
ina til að taka þátt í Sjókajakmóti
Eiríks rauða. Þegar mest var voru
tæplega fimmtíu kajakar á sjó
með nokkru fleiri ræðara þar sem
sumir reru á tveggja manna bát-
um, þeirra á meðal blaðamaður
Morgunblaðsins. Ferðaskrifstofan
Ultima Thule hélt mótið sem var
haldið í annað sinn en áður höfðu
verið haldin sjókajakmót í Flóka-
lundi en af skiljanlegum ástæðum
voru þau kennd við landnáms-
manninn Flóka Vilgerðarson.
Veður var ekki eins og best
verður á kosið en kajakmenn- og
konur létu það ekki hamla för.
Flestir héldu sig þó nærri landi og
frestuðu því að kanna eyjarnar í
Breiðafirði sem munu vera ótelj-
andi.
Fjörðurinn telst reyndar vera
einn af allra skemmtilegustu
áfangastöðum þeirra sem róa
sjókajak hér við land. Þeim hefur
farið ört fjölgandi undanfarin ár
og aldrei sem nú í vetur og vor.
Þeir Pétur Gíslason, gjarnan
kenndur við Hvammsvík í Hval-
firði, og Sigurjón Þórðarson hafa
lengi lagt stund á sjókajakróður.
Þeir eru sammála um að við Ísland
séu afar skemmtilegar aðstæður
til þess að ferðast um á sjókajak.
Landið er vogskorið mjög og kaj-
akræðarar þurfa lítið að sigla yfir
opið haf. Þá eru straumar ekki
teljandi nema þá helst í Breiða-
firðinum. Því er kannski ekki að
undra þótt sjókajakróður hafi náð
slíkum vinsældum. „Svo er þetta
heldur meiri lúxus en gönguferð.
Það er hægt að ferðast með meiri
stæl,“ segir Pétur en mun meiri
búnaður kemst í sjókajaka en í
bakboka göngumannsins. „Þetta
er líka afskaplega góð þjálfun.
Maður tekur á öllum líkamanum.
Ef maður beitir sér rétt við róð-
urinn þá er maður að nýta býsna
marga vöðva.“
Öruggt farartæki
sé rétt farið að
Þeir Pétur og Sigurjón segja
kajakinn mjög öruggt farartæki,
sé rétt farið að, en sjókajakróður
geti að sama skapi verið lífshættu-
legur. „Þetta er hættulegt, það er
engin spurning, það er að segja þú
getur lent í hættulegum aðstæðum
úti á sjó. Sjórinn núna er um sex
og hálf gráða og maður þolir ekki
lengi við í slíkum aðstæðum, of-
kælingin sækir hratt að þér. Það
að kunna ekki grunnatriðið til að
koma sér upp úr sjónum og grunn-
aðferðir við að eiga bát og róa
honum gerir þennan leik mjög
hættulegan,“ segir Sigurjón.
„Sem betur fer eru margir að
hugsa um það þannig. Það hefur
til dæmis verið mjög mikil ásókn í
námskeið, allt að hundraðföld, í
vor og í vetur,“ segir Pétur en
báðir brýna þeir fyrir þeim sem
hyggjast stunda róður að sækja
námskeið.
Sprettróður í höfninni
Á mánudaginn var keppt í
sprettróðri í höfninni í Stykk-
ishólmi. Í kvennaflokki bar Hólm-
arinn Ásthildur Sturludóttir sigur
úr býtum en haft var á orði að
heimavöllurinn hefði reynst henni
drjúgur. Elísabet Guðjónsdóttir
varð önnur í mark en Ingileif Auð-
unsdóttir vermdi þriðja sætið og
þótti fullsæmd af.
Keppnin í karlaflokki var ekki
síður hörð en þar voru keppendur
heldur fleiri. Óttar Kjartansson
reyndist fremstur meðal jafningja
en heimavöllurinn dugði ekki Þor-
steini Sigurlaugssyni til sigurs og
varð hann að sætta sig við annað
sætið. Þriðja besta tímann átti
Gunnar Tryggvason.
Sjókajakmót Eiríks rauða haldið í Stykkishólmi um hvítasunnuhelgina
Keppendur í sprettróðrinum bíða eftir að röðin komi að þeim.
Pétur Gíslason, Sigurjón Þórðarson og Kristinn Örn Sigurjónsson.
Fimmtíu kajakar
á ferð um Breiðafjörðinn
Morgunblaðið/Rúnar
ALLS voru komnir tíu laxar á land
úr Þverá í Borgarfirði á hádegi í
gær, en veiði í henni hófst á mánu-
dagsmorgun. Þá veiddust sex laxar.
Í gær var kominn skítakuldi og snjó-
koma í Þverárhlíðinni að sögn Jóns
Ólafssonar, eins leigutaka árinnar.
Kirkjustrengur hefur verið gjöf-
ulasti veiðistaðurinn þessar fyrstu
vaktir og einnig hefur verið líflegt í
Kaðalstaðahyljum. Laxarnir hafa
flestir verið 8-10 punda, en í gær-
morgun veiddust tveir 11 punda og
eru þeir hinir stærstu það sem af er.
Jón Ólafsson setti þó í einn mun
stærri í Kaðalstaðahyljum í gærdag.
„Þetta var mikil skepna sem ég réði
bara ekki við. Hefði ég verið með 30
punda línu hefði ég haft hann, en ég
var með 20 punda línu og hún var
bara orðin ónýt eftir atganginn. Ég
var á annan klukkutíma með tröllið
og gekk á ýmsu, meðal annars hljóp
laxinn á land hinu megin árinnar og
þar spriklaði hann um stund, en
stökk svo út í aftur. Ég tel að þessi
fiskur hafi verið vel yfir 20 pundum
og ég er mjög ósáttur við sjálfan mig
yfir því hvernig fór. Ég gerði afdrifa-
rík mistök og hef verið að taka sjálf-
an mig í gegn. Þó er ég ánægður með
að hafa lent í þessu ævintýri,“ sagði
Jón í samtali við Morgunblaðið.
Kjarrá, efri hluti Þverár, verður
opnuð í fyrramálið og sagðist Jón
reikna með að áin væri veiðileg þar
efra. „Skilyrði eru góð og engar
hömlur á laxinum hérna niður frá.
Það verður örugglega góð opnun í
Kjarrá,“ sagði Jón.
Stjórnin með 26 stykki
Stjórn SVFR veiddi alls 26 laxa á
tveimur og hálfum degi og hollið sem
tók við var komið með 9 laxa eftir
fyrsta daginn. Það er því vel viðun-
andi byrjun í Norðurá og taldi
Bjarni, Júlíusson stjórnarmaður í
SVFR, að þetta væri nærri meðal-
veiði í opnun síðastliðin 20 ár. „Þetta
lítur virkilega vel út og því synd að
áin skuli ekki vera fullseld á næstu
dögum,“ sagði Árni Eyjólfsson,
stjórnarmaður í SVFR.
Þverá byrjar vel
Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
Ingvar Vilhjálmsson og Anna Ottósdóttir með þrjá 8–9 punda laxa úr
Kaðalstaðahyl í Þverá á mánudagsmorguninn.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
LÖGREGLAN á Hvolsvelli og Sel-
fossi gerði á sunnudagsmorgun tals-
verða leit að bifreið sem sögð var á
hvolfi fyrir utan veg og að ökumað-
urinn væri enn í bílnum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu fór sá sem tilkynnti slysið af
vettvangi án þess að huga að líðan
ökumanns. Þá hefur hann verið illa
kunnugur staðháttum en leiðbein-
ingar sem hann gaf lögreglu voru
ekki betri en svo að það tók lögregl-
una um tvo klukkutíma að finna bíl-
inn. Ökumaður hans reyndist lítt
slasaður en kenndi eymsla í hálsi og
var honum ekið á heilsugæslustöð-
ina á Hvolsvelli.
Tilkynnt var um slysið til Neyð-
arlínu sem gaf þeim sem hringdi
samband við lögregluna á Selfossi,
enda sagði hann að bíllinn væri á
hvolfi fyrir utan Árbæjarveg í Ölf-
usi. Enginn bíll fannst þar og var þá
haft samband við lögregluna á
Hvolsvelli sem hóf leitina á Árbæj-
arbraut í Holta- og Landsveit. Þar
fannst enginn bíll og var leitinni
haldið áfram. Bíllinn fannst síðan á
hvolfi rétt utan Landvegar, sunnan
við veginn að Næfurholti, klukkan
rétt rúmlega tíu. Þá voru um þrjár
klukkustundir frá því bíllinn valt.
Ökumanninum hafði þá tekist að
láta aðstandendur vita af slysinu og
voru þeir lagðir af stað honum til að-
stoðar.
Lögreglan á Hvolsvelli segir að sá
sem tilkynnti slysið hafi orðið skelk-
aður og því farið af vettvangi.
Refsivert er að yfirgefa slysstað
en ekki hefur verið tekin ákvörðun
um framhald málsins.
Fyrr um nóttina var bíl ekið út af
Landvegi. Ökumaður slapp með
minniháttar meiðsl.
Tilkynnti slys en yfirgaf síðan vettvang
Tvær klukkustundir tók
að finna slysstaðinn
TVÆR umsóknir bárust um emb-
ætti skólameistara Menntaskólans á
Ísafirði en umsóknarfrestur rann út
á föstudag. Þær voru frá Ólínu Þor-
varðardóttur, doktor í þjóðfræði, og
Ásgerði Bergsdóttur, sem hefur BA-
próf í íslensku auk kennsluréttinda
frá Háskóla Íslands og sérstaks
prófs til kennslu nýbúa.
Umsóknirnar verða sendar skóla-
nefnd til umsagnar og skipar
menntamálaráðherra skólameistara
til fimm ára í senn að fenginni tillögu
skólanefndar.
Fráfarandi skólameistari er Björn
Teitsson en hann hefur gegnt emb-
ættinu í 21 ár. Hann mun flytjast til
Akureyrar og starfa þar við kennslu.
Tvær sækja
um embætti
skólameist-
ara MÍ
♦ ♦ ♦