Morgunblaðið - 06.06.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.06.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ TVEIR af fjórum íslenskum efnaframleiðendum, sem áttu vörur á innkaupalista varnarliðsins, notuðu nonyl-etoxýlöt. Samkvæmt svokölluðu OSPAR-samkomulagi, sem Íslendingar eiga að- ild að, er kveðið á um að dregið verði úr notkun efnanna og þrátt fyrir tilmæli um að notkun þeirra til iðnaðarnota verði alfarið hætt á þessu ári reyndust þessi efni enn vera í vörum frá Frigg ehf. og Sámur-Hreinn ehf. Rannsóknir hafa leitt í ljós að nonylfenól, sem er eitt niðurbrotsefnanna, og nonylfenóletoxýlöt hafa svipuð áhrif og kvenhormóninn estrogen og geta efnin þannig haft alvarleg áhrif á frjósemi dýra og manna. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur allt frá 1986 haft umsjón með umhverfiseftirliti á varn- arsvæðinu. Heilbrigðiseftirlitið ákvað að gera út- tekt á notkun nonylfenól-etoxýlötum á Keflavík- urflugvelli, ekki síst í ljósi þess að mikið er notað af umræddum efnum í Bandaríkjunum. Úttektin fór þannig fram að Heilbrigðiseftirlitið kannaði íslenskar vörur sem varnarliðið kaupir en um- hverfisdeild varnarliðsins kannaði hvort vörur sem varnarliðið flytur inn sjálft innihaldi um- rædd efni. Frá íslenskum og erlendum framleiðendum Íslenskir framleiðendur á innkaupalista varn- arliðsins voru Frigg ehf., Sjöfn hf., Sámur- Hreinn ehf. og Mjöll ehf. Efni frá Frigg ehf. og Sám-Hreini reyndust innihalda nonýlfenóletox- ýlöt, þ.e. alls tíu gerðir efna frá Frigg en aðeins eitt frá Sám-Hreini. Fimm gerðir efna frá þrem- ur erlendum framleiðendum á innkaupalista varnarliðsins reyndust innihalda efnið. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftir- liti Suðurnesja vinnur það nú að því í samvinnu við umhverfisdeild varnarliðsins að stöðva notk- un á umræddum sápum og finna heppilegri efni í stað þeirra. Samkvæmt Heilbrigðiseftirlitinu notar Sjöfn hf. ekki nonýlfenóletoxýlöt í sínar vörur og Mjöll ehf. aðeins í sérhæfð iðnaðar- hreinsiefni sem framleidd eru eftir sérpöntunum. Íslensku framleiðendurnir nota þessi efni í tjöru- hreinsa, þ.e. Frigg og Sámur-Hreinn en þeir bjóða jafnframt tjöruhreinsa sem innihalda ekki umrædd efni. Þá kom fram að Sámur-Hreinn getur framleitt Sám 2000 extra án nónýlfenóls sé þess óskað. Samkvæmt upplýsingum frá Hollustuvernd ríkisins, sem hefur umsjón með OSPAR-sam- komulaginu fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, átti samkvæmt tilmælum samkomulagsins að hætta að nota nonylfenól í efnum til almenningsnota árið 1995 og alfarið árið 2000. Þau fyrirtæki sem hafa selt þessi efni til iðnaðarnota á síðasta ári hafi því ekki brotið gegn tilmælunum. Á tilmælin reynir því fyrst á þessu ári hvað iðnaðarnot varðar. Líklegt er að aðilar að OSPAR verði krafnir um skýrslu um framkvæmd tilmælanna. Hyggst Hollustuvernd kanna stöðu mála hvað þetta varðar hér á landi. Niðurbrotsefni í hreinsivör- um á íslenskum markaði SAMTÖKIN Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs kynntu í gær upp- græðsluverkefni undir slagorðinu „Við setjum trukk í uppgræðslu“ ,sem unnið verður að í nágrenniLitlu kaffistofunnar við Suðurlandsveg. Uppgræðslusvæðið nær frá Lækjar- botnum austur að rótum Hellisheið- ar, að sögn Björns Guðbrands Jóns- sonar, framkvæmdastjóra samtakanna. „Við leggjum áherslu á fjögur svæði sem eru Lækjarbotnar, Sand- skeið, Bolalda og Kolviðarhóll. Sum staðar er hraunið mosavaxið og gróður í góðu ástandi en annars stað- ar, t.d. í Bolöldu eru víða áberandi uppblásnir melar og rofabörð. Þar verður mannshöndin að grípa inn í til að reyna að snúa þróuninni við og koma í veg fyrir frekari hnignun svæðisins.“ Sá grasfræjum, planta trjám og dreifa hrossataði Verkefnið verður unnið í samstarfi við Olís, Íslenska aðalverktaka og Gámaþjónustuna og Vinnuskóla Reykjavíkur og Kópavogs. „Í vinnu- skólunum hafa verið myndaðir hópar ungmenna sem munu vinna að verk- efnum samtakanna í sumar. Þau munu sá í rofabörð og bera í þau áburð, planta trjám og tína rusl þar sem þörf er á.“ Einnig er vélræn dreifing notuð við uppgræðsluna. „Við höfum öfluga dráttarvél og dreifara til að dreifa grasfræjum og áburði sem er fenginn úr lífrænum úrgangsefnum, aðallega hrossataði.“ Hann segir að þetta sé í fyrsta skipti sem samtökin starfa í samvinnu við vinnuskólana tvo en síðastliðin fjög- ur ár hefur vinnuskóli Landsvirkj- unar tekið þátt í verkefnum á vegum samtakanna. Verkefnið var kynnt í Litlu kaffistofunni í gær á umhverf- isdegi Sameinuðu þjóðanna sem haldinn er 5. júní ár hvert. Umhverf- isráðherra, Siv Friðleifsdóttir, af- hjúpaði skilti þar sem uppgræðslu- áætlunin er kynnt og mun það framvegis standa við Litlu kaffistof- una til kynningar fyrir vegfarendur. Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs efnir til herferðar við Litlu kaffistofuna Morgunblaðið/Arnaldur Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, afhjúpaði skilti þar sem upp- græðsluáætlunin er kynnt og mun það framvegis standa við Litlu kaffi- stofuna til kynningar fyrir vegfarendur. Fá ungmenni úr vinnuskólum í lið með sér STÓR gámaflutningabíll valt á hlið- ina í erfiðri beygju neðst í Náma- skarði að austanverðu síðdegis í fyrradag. Bílstjórinn var fluttur til Akureyrar með sjúkrabíl en mun ekki vera alvarlega slasaður. Bíllinn var að koma að austan með fullfermi í stórum gámi og hef- ur þungur farmurinn tekið ráðin af ökumanninum og lagt bílinn á hlið- ina þegar kom í þessa kröppu beygju sem er mjög erfið og vara- söm, því aðdragandi hennar er langur beinn vegur en beygjan sjálf mjög kröpp. Morgunblaðið/BFH Björgunarsveitarmenn halda uppi umferðarstjórn og bíða þess að öflugur krani komi til að lyfta bíl, drátt- arvagni og gámi upp á veg aftur. Bílvelta austan í Námaskarði VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra sagði á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í síðustu viku að engin sátt ríkti í samfélaginu um það fyrirkomulag sem ríkti varð- andi val á mönnum í stjórn lífeyr- issjóðanna. „Þótt ágæt sátt hafi náðst um setningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyr- issjóða er líklegt að einstakir hlutar laganna verði áfram mjög til um- ræðu. Þannig er líklegt að heimildir til fjárfestingarstefnu verði áfram til umræðu og þá ekki síður umræða um áhrif eða áhrifaleysi hins al- menna sjóðfélaga og hvernig staðið er að vali á stjórnarmönnum. Um þessi atriði ríkir ekki sátt,“ sagði við- skiptaráðherra á fundinum. Stjórn Landssamtaka lífeyris- sjóða var endurkjörin á fundinum. Þórir Hermannsson var sömuleiðis endurkjörinn formaður Landssam- taka lífeyrissjóða. Viðskiptaráðherra á aðalfundi LL Ekki sátt um kjör stjórna lífeyrissjóða SAMÞYKKT var á aðalfundi mæðrastyrksnefndar fyrir helgi að nefndarkonur endurgreiddu kostnað sem nefndin hafði af sól- arlandaferð sem farin var fyrr á þessu ári. Ásgerður J. Flosadótt- ir, formaður mæðrastyrksnefnd- ar, sagði að konurnar myndu end- urgreiða kostnaðinn eftir efnum og ástæðum, en sumar þeirra væru fullorðnar og einu tekjur þeirra væru ellilaun. Sjö konur í mæðrastyrksnefnd fóru í ferðina og var kostnaður nefndarinnar 40 þúsund krónur á mann. Konurnar sem ekki komust með í ferðina fengu einnig greidd- ar 40 þúsund krónur og var heild- arkostnaður því um 400 þúsund. Konurnar sem ekki fóru í ferðina höfðu áður endurgreitt það sem þær fengu og það ætla hinar kon- urnar einnig að gera. Ásgerður sagði að á aðalfundi nefndarinnar hefði komið fram það sjónarmið að harma bæri þá neikvæðu umfjöllun sem orðið hefði um mæðrastyrksnefnd á síð- ustu dögum. Hún sagðist á fund- inum hafa boðist til að segja af sér formennsku í nefndinni þar sem hún hefði átt hugmyndina að því að fara umrædda ferð. Ásgerður sagði að aðrar konur í stjórninni hefðu lagt hart að sér að halda áfram störfum fyrir nefndina og hefði hún fallist á það. Konurnar hefðu lýst því afdráttarlaust yfir að ef formaðurinn segði af sér myndu þær gera það einnig. Ásgerður sagði að vandséð væri hvernig nefndin gæti haldið áfram starfsemi ef stjórnin hefði öll sagt af sér og reynsla og þekking þeirra sem í henni hefðu starfað í mörg ár og áratugi hefði þar með horfið á braut. Niðurstaðan hefði því orðið sú að stjórnin héldi öll áfram störfum. Hún kvaðst vona að mæðrastyrksnefnd tækist að vinna sig út úr þeirri neikvæðu umræðu sem hefði verið um nefndina og friður kæmist á störf hennar. Aðalfundur mæðrastyrksnefndar Nefndarkonur endurgreiddu ferðina FJÓRIR prestar hafa sótt um starf sóknarprests í Víðistaðaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi, en um- sóknarfrestur rann út 1. júní. Um- sækjendur eru sr. Arnaldur Bárð- arson prestur á Hálsi í Fnjóskadal, sr. Bragi J. Ingibergsson, prestur á Siglufirði, sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir prestur í Hrísey og sr. Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði. Að sögn Ragnhildar Benedikts- dóttur hjá Biskupsstofu er fjöldi umsókna nokkurn veginn í sam- ræmi við það sem búist var við hjá embættinu. Ráðið verður í stöðuna frá 1. september næstkomandi en ráðherra skipar í embættið eftir að valnefnd hefur gert tillögu að ráðn- ingu. Í sumar verða tvö prestsembætti auglýst laus til umsóknar, annað á Patreksfirði og hitt á Kolfreyjustað á Fáskrúðsfirði. Fjórir sækjast eftir Víðistaða- prestakalli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.