Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 13
FEGURSTU BORGIR HEIMS:
RIÓ-BUENOS AIRES
og IGUAZU
Nokkur viðbótarsæti á
afsláttarkjörum aðeins til 7. júní.
Hvað er ódýrt?
Fargjöld með GO
TIL LONDON þykja góð.
Fargjald HEIMSKLÚBBSINS til
BUENOS AIRES er miklu lægra,
aðeins 5 kr. sætiskm með góðri
GISTINGU, MORGUNVERÐI
OG FARARSTJÓRN
INNIFALIÐ Í VERÐINU
Í 11 DAGA FERÐ.
PÖNTUNARSÍMI 56 20 400
Ferð aldamótaársins
SUÐUR-AMERÍKA
Á BESTA ÁRSTÍMA 14.-24. NÓV.
TVEIR landselskópar litu dagsins
ljós í Húsdýragarðinum í Laugardal
um helgina. Annar fæddist á föstu-
dagsmorgun en hinn seinni kom í
heiminn á mánudag. Kópunum ný-
fæddu heilsast vel og eru þeir strax
farnir að svamla um. Fjöldi fólks
lagði leið sína í garðinn um þessa
hvítasunnuhelgi og vöktu kóparnir
mikla lukku viðstaddra. Í Hús-
dýragarðinum búa nú sex selir; tveir
kópar, tvær urtur og tveir brimlar.
Landselskópar eða vorkópar eins og
þeir eru kallaðir eru um 1 m á lengd
við kæpingu og vega um 15 kg. Þeir
kasta hvítum fósturhárunum þegar
í móðurkviði og fæðast í gráum hár-
um. Ekki er algengt að selir kæpi í
dýragörðum en tveir kópar fæddust
einnig í Húsdýragarðinum í Laug-
ardal í fyrra og er það til vitnis um
hversu ánægðir selirnir eru þar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nýbökuð móðir hugar að afkvæmi sínu en kópurinn sá arna kom í heiminn á föstudag.
Fjölgun í selafjölskyldunni
Laugardalur
BORGARRÁÐ samþykkti í
gær að skipa þriggja manna
starfshóp til að meta hug-
myndir um stofnun sjóm-
injasafns í Reykjavík.
Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks lögðu nýlega til
í borgarstjórn að Reykjavík-
urborg beitti sér fyrir stofn-
un og rekstri sjóminjasafns
Reykjavíkur á hafnarsvæð-
inu eða í nágrenni þess. Í
greinargerð með tillögunni
segir að á undanförnum ár-
um og áratugum hafi ýmsir
menningarsögulegir munir
tengdir sjósókn frá Reykja-
vík farið forgörðum. Brýnt
sé að borgin komi sér upp
sjóminjasafni sem myndi
treysta stöðu miðborgarinn-
ar og verða um leið aðdrátt-
arafl fyrir innlenda og er-
lenda ferðamenn.
Í samþykkt borgarráðs
segir að hópurinn, sem nú á
að skoða hugmyndir um
stofnun sjóminjasafns, eigi
að meta raunhæfni hug-
mynda sem fram hafa komið
frá ýmsum aðilum á und-
anförnum árum um stofnun
sjóminjasafns. Eins á hóp-
urinn að kanna hvað til er af
munum og minjum sem
tengjast sjósókn og hafnar-
starfsemi og hvort áhugi sé
fyrir því hjá hagsmunaaðil-
um og ríkinu að koma að
stofnun og rekstri slíks
safns í Reykjavík. Þá á hóp-
urinn að kanna kostnað við
stofnun og rekstur slíks
safns.
Stofnun sjó-
minjasafns
í athugun
Miðborg
BÆJARSTJÓRN Mosfells-
bæjar hefur afgreitt deili-
skipulag fyrir miðbæjar-
svæðið og hefur því verið
vísað áfram til Skipulags-
stofnunar til staðfestingar.
Að sögn Eyjólfs Árna
Rafnssonar, formanns skipu-
lags- og byggingarnefndar,
hefur fram að þessu ekki
verið til formlegt deiliskipu-
lag fyrir miðbæinn. Vinna við
deiliskipulagið hófst í byrjun
níunda áratugarins en þá var
efnt til hugmyndasamkeppni
um bestu tillöguna.
Byggt ofan á
verslunina 11/11
Skipulagið sem nú liggur
fyrir felur í sér ýmsar breyt-
ingar.
Að sögn Eyjólfs er stefnt
að því að ljúka smíði fjöl-
býlishúss sem stendur á lóð
Búnaðarbankans við Þver-
holt. Þar á að byggja tvö
endahús. Á skipulaginu er
einnig bætt inn lóð fyrir
kirkju sem hefur ekki verið
þar formlega en var búið að
lofa að hans sögn. Sömuleiðis
er gert ráð fyrir viðbótar-
byggingu við dvalarheimili
aldraðra og íbúðum fyrir
aldraða auk stækkunar á
leikskólanum Hlíð.
Einnig er gert ráð fyrir
nokkrum nýbyggingum á
svæðinu, m.a. á að reisa
byggingu ofan á núverandi
verslunarhúsnæði 11/11.
Þrjár nýjar
byggingar í Háholtinu
Í greinargerð sem unnin
var af Teiknistofu Guðrúnar
Jónsdóttur fyrir Mosfellsbæ
er svæðinu sem um ræðir
skipt upp í sex hluta.
Svæði nr. 1 tekur til Há-
holts 16–24.
Gert er ráð fyrir að hús nr.
20 verði rifið með tíð og tíma.
Á lóðinni má byggja þrjár
byggingar en auk þess má
byggja eina hæð ofan á hús
nr. 24 eða rífa húsið og
byggja þar 2 hæða byggingu
af sömu stærð. Í greinar-
gerðinni segir að markmið
skipulagsins sé að ná fram
fallegri og heillegri götu-
mynd af nýju Háholti sem
verslunar- og þjónustugötu.
Svæði 2, sem nær yfir lóðir
nr. 14 við Háholt og nr. 1 við
Þverholt, er að mestu full-
byggt nú þegar.
Svæði 3 tekur yfir Urð-
arholt 2–4.
Stefnt er að byggingu húss
samsíða Þverholti. Þá er gert
ráð fyrir byggingarreit fyrir
einnar hæðar viðbyggingu
austan við núverandi bygg-
ingar á lóðinni.
Svæði 4 nær yfir lóðir nr.
13, 15 og 19 við Þverholt og
lóð undir kirkju við Þverholt.
Lengja á húsaröðina við
Þverholt. Þá er fyrirhugað að
reisa kirkju á svæði sem af-
markast af Þverholti til norð-
urs, Skeiðholti til vesturs,
klapparsvæði til suðurs og
torgi við enda göngugötu til
austurs. Gert er ráð fyrir að
húsið sem nú er á þessum
stað hverfi en þar var
áhaldahús bæjarins áður til
húsa. Leikfélag Mosfellsbæj-
ar hefur verið með aðstöðu
þar og er fyrirhugað að koma
þeirri starfsemi fyrir annars
staðar.
Ber að friðlýsa
Klapparholtið
Á svæði 5 er gert ráð fyrir
íbúðum fyrir aldraða við
Hlaðhamra og ónefnda götu.
Þá er stefnt að því að reisa
hjúkrunarheimili við Hlað-
hamra 2. Loks er einnig ráð-
gert að afmarka endanlega
lóð fyrir leikskólann Hlíð og
viðbyggingu við hann auk
lóðar við leikskólann Hlað-
hamra.
Svæði 6 tekur yfir Klapp-
arholtið svonefnda sem er
holt í hjarta bæjarins með ís-
aldarminjum. Samkvæmt
áliti Náttúruverndar ríkisins
ber að friðlýsa holtið.
Að sögn Eyjólfs er mikil
eftirspurn eftir byggingar-
landi á þessum slóðum og
mörg þeirra verkefna sem
ráðist verður í löngu orðin
tímabær.
Deiliskipulag fyrir miðbæinn afgreitt í bæjarstjórn
Ný lóð fyrir kirkju
Mosfellsbær
BÆJARRÁÐ Hafnar-
fjarðar hefur samþykkt
beiðni um aðstöðu fyrir tí-
volí við Fjarðargötu. Tívolí
hefur veriðstarfrækt á
þessum slóðum nokkra
daga á sumrin undanfarin
ár.
Tívolíið er breskt að
uppruna og verður starf-
rækt við Fjarðargötu dag-
ana 28. júní – 1. júlí. Að því
búnu verður það flutt til
Reykjavíkur þar sem það
mun standa við Hafnar-
bakkann líkt og undanfarin
ár.
Að sögn Jörundar Guð-
mundssonar, sem flytur
tívolíið hingað til lands,
verður það flutt til landsins
í tveimur hlutum. Annar
hlutinnkemur til landsins
seinni hluta júnímánaðar
og verður settur upp í
Hafnarfirði. Hinn hluti
þess kemur til landsins í
byrjun júlí og verður sett-
ur upp í Reykjavík auk
tækjanna sem verða við
Fjarðargötu. Alls vegur
búnaðurinn um 380 tonn.
„Það eru alltaf einhver
ný tæki á hverju ári. Og
verða kannski 3–4 í ár,“
segir Jörundur en á bilinu
20–30 manns koma hingað
til lands í tengslum við tív-
olíið.
Jörundur segir ákveðna
hefð hafa skapast í kring-
um tívolíið. „Fólk bíður eft-
ir þessu. Hringir mikið,
bæði í mig og hafnaryfir-
völd, og spyr hvenær við
komum,“ segir hann.
Tívolí við
Fjarðargötu
Hafnarfjörður
Bæjarráð afgreiðir
umsókn um tívolí
Umhverfisviðurkenning
Reykjavíkurborgar var af-
hent í fimmta sinn í gær í
Höfða á umhverfisdegi Sam-
einuðu þjóðanna. Mjólk-
ursamsalan hlaut verðlaunin
að þessu sinni en fyrirtækið
Umslag ehf. hlaut einnig til-
nefningu.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri afhenti
verðlaunin sem voru, auk
viðurkenningarskjals, lista-
verkið „Eldur“ eftir Huldu
Hákon myndlistarmann.
Það var umhverfis- og
heilbrigðisnefnd Reykjavík-
ur sem annaðist framkvæmd
umhverfisviðurkenning-
arinnar. Í ávarpi Kolbeins
Óttarssonar Proppé, for-
manns nefndarinnar, kom
fram að við úthlutun verð-
launanna hefði verið haft að
leiðarljósi hvernig staðið
væri að umhverfisstjórnun,
framleiðslutækni, lágmörk-
un úrgangs, mengunarvörn-
um, vöruþróun, framlögum
til umhverfismála auk að-
búnaðar á vinnustað. Fram
kom í áliti nefndarinnar að
Mjólkursamsalan hefði leit-
ast við að fylgja þessu mark-
miðum eftir og náð góðum
árangri á undanförnum ár-
um.
Morgunblaðið / Sverrir
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, tekur við „Eldinum“ úr hendi Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra.
Mjólkur-
samsalan
fær um-
hverfis-
verðlaun
Reykjavík