Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 16
Morgunblaðið/Helgi
Það var kuldalegt um að litast í Ólafsfirði þegar bæjarbúar stigu fram úr rúmum sínum í gærmorgun.
ÞAÐ var heldur hryssingslegt um
að litast á Norðurlandi í gærmorg-
un, enda hafði snjóað víða og hita-
stigið farið niður undir og jafnvel
niður fyrir frostmark.
Snjóruðningsmenn Vegagerð-
arinnar voru við snjómokstur í Vík-
urskarði í allan gærdag og einnig
festi snjó í Vatnsskarði og í hluta
Húnavatnssýslna. Þá var Lágheiði
alveg ófær í gær.
Hins vegar var sumarfæri á
Öxnadalsheiði, að sögn starfsmanns
hjá vegaeftirliti Vegagerðarinnar á
Akureyri. Hann sagði jafnframt að
Víkurskarðið hefði vafalítið orðið
ófært ef snjóruðningsmenn hefðu
ekki staðið vaktina þar í gær.
Snjómokstur í Víkurskarði
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Um 100 stúdentar voru brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri sl. laugardag.
Fyrsti stúdentinn úr
fjarkennslu brautskráður
UM 150 nemendur, 100 stúdentar og
um 50 nemar úr iðnnámi og öðrum
verknámsbrautum, voru brautskráð-
ir frá Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri sl. laugardag. Þá var jafnframt
fyrsti stúdentinn brautskráður frá
skólanum sem einungis hefur hlotið
fjarkennslu. Hann heitir Sigurður
Bjarni Sigurðsson frá Brautarhóli í
Svarfaðardal.
Sigurður Bjarni var ekkert að tví-
nóna við hlutina því meðaleinkunn
hans úr öllum þeim prófum sem hann
tók í skólanum var upp á 9,7sem verð-
ur að teljast frábær árangur. Sigurð-
ur Bjarni stundaði fjarnámið úr
Svarfaðardal þar sem hann stundar
búskap með foreldrum sínum.
Alls stunduðu um 600 manns fjar-
nám við VMA í vetur og hafa aldrei
verið fleiri. Á skólaárinu sem nú var
að ljúka voru rúmlega 1.000 nemend-
ur í dagskóla á haustönn en 860 á vor-
önn sem er um 140 færri en í eðlilegu
árferði. Þá stunduðu um 100 nemend-
ur nám í kvöldskóla og meistaraskóla.
Í máli Hjalta Jóns Sveinssonar
skólameistara VMA við útskriftina í
Íþróttahöllinni á laugardag, kom
fram að róið yrði að því öllum árum
að halda því námsframboði sem skól-
inn hafi haft upp á bjóða hingað til en
þó væu ýmsar blikur á lofti. Hann
sagði að tilkoma hinna svokölluðu
kjarnaskóla á Reykjavíkursvæðinu
geti gert skóla eins og VMA erfitt
fyrir í ýmsu tilliti. Hvers konar sér-
hæfing á vettvangi iðnnáms sé að
verða erfiðari þar sem kjarnaskólum
sé ætlað að annast slíkt.
Ekki lengur hægt að
ljúka námi í kjötiðn
„Í þessu sambandi langar mig að
nefna fullnaðarnám í kjötiðn – sem
við megum ekki lengur annast hér á
Akureyri eins og gert hefur verið um
árabil. Blómlegum fyrirtækjum bæj-
arins á sviði matvælaiðnaðar er ekki
treyst til þess að veita nemendum á
námssamningi nægilega góða verk-
lega menntun – hvað þá að Verk-
menntaskólanum sé treyst til að
ábyrgjast að svo megi verða. Þess í
stað ber þessum nemendum að fara
suður og ljúka námi sínu í kjarna-
skóla. Skiptir þá engu máli þó að fyrr-
um nemendur okkar og starfandi
kjötiðnaðarmeistarar hér í bæ státi af
alþjóðlegum viðurkenningum af öllu
mögulegu tagi.“
Í máli Hjalta Jóns kom fram að sú
hugmynd hafi verið rædd af alvöru að
Verkmenntaskólinn á Akureyri og
Menntaskólinn á Akureyri ásamt Há-
skólanum á Akureyri taki höndum
saman í félagi við Akureyrarbæ og
markaðssetji bæinn sem skólabæ og
skólana sem starfa í bænum.
Hjalti Jón sagði að innan skamms
yrði risin glæsileg heimavist fyrir
báða framhaldsskólanna á lóð
Menntaskólans og er áætlað að hún
muni hýsa yfir 200 nemendur. Ef vel
gangi sé allt eins víst að fleiri hús
verði reist í þessum tilgangi.
„Vissulega ganga nemendur héðan
af upptökusvæði skólanna fyrir á
heimavistunum en spennandi væri að
geta boðið upp á þjónustu þessara
skóla og heimavistina á landsvísu.
Akureyri er ekki einungis ákjósan-
legur kostur fyrir fjölskyldur með
börn á leikskóla- og grunnskólaaldri,
heldur standa börnum þeirra til boða
tveir góðir framhaldsskólar, þótt
ólíkir séu, sem er einmitt mjög já-
kvætt. Hér er einnig öflugur háskóli
sem vex stöðugt fiskur um hrygg og
stúdentagarðar sem hýsa fjölda
manns. Þá ber þess að geta að at-
vinnutækifærum hér á eftir að fjölga
og þá ekki síst á ýmsum þeim sviðum
sem krefjast góðrar og víðtækrar
menntunar sem unnt er að öðlast hér
á Akureyri.“
Stærri heimavist
og skólaakstur
Hjalti Jón sagðist vonast til að Ak-
ureyri ætti eftir að verða enn betri
skólabær. Hann sagði það sinn
draum að innan skamms yrði risin
heimavist sem gæti hýst alla þá nem-
endur af upptökusvæði framhalds-
skólanna og aðra sem þess óskuðu.
Jafnframt að boðið verði upp á skóla-
akstur úr nágrannabyggðunum við
Eyjafjörð fyrir hina sem það kysu.
Með því móti yrði tryggt að allir ung-
lingar á framhaldsskólaaldri á svæð-
inu ættu jöfn tækifæri á bestu fáan-
legu menntun á sem flestum sviðum.
HÁSKÓLINN á Akureyri hefur gef-
ið út bókina Bright Summer Nights
and Long Distances. Titillinn vísar
til bjartra sumarnátta á norðurhveli
jarðar og dreifðra byggða í Hálönd-
um Skotlands og norðurhluta Norð-
urlanda.
Í bókinni eru ellefu kaflar um
byggðatengd málefni og eru höfund-
arnir tíu talsins, frá Bretlandi, Finn-
landi, Íslandi og Noregi.
Bókin skiptist í fjóra hluta, þ.e. um
byggðaþróun í litlum samfélögum,
um gagnkvæm áhrif dreifbýlis og
þéttbýlis, um sjálfsmynd dreifbýlis
og um þjónustu og menntun í dreif-
býli. Ritstjóri er Ingi Rúnar Eð-
varðsson, dósent við rekstrardeild
Háskólans á Akureyri.
Bókin er afrakstur ráðstefnu um
búsetu- og byggðaþróun á Norður-
landi og Skotlandi sem haldin var á
Akureyri í september á síðasta ári.
Ráðstefnan var á vegum Nordic-
Scottish University Network for
Rural and Regional Development í
samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Um er að ræða samvinnuverkefni
háskóla á Norðurlöndum og Skot-
landi um búsetu- og byggðaþróun og
hefur stofnunin staðið fyrir fjórum
ráðstefnum, í Finnlandi 1997, Skot-
landi 1998, Noregi 1999 og á Akur-
eyri árið 2000. Næsta ráðstefna
verður í Esbjerg í Danmörku í sept-
ember næstkomandi.
Háskólinn á Akureyri gefur út bók
Bjartar sumarnæt-
ur á norðurhveli og
dreifðar byggðir
ÞAÐ fór heldur illa fyrir verðandi
brúðguma sem var að skemmta
sér og öðrum fyrir stóru stundina
sl. laugardagskvöld. Bát sem hann
fór á út á Pollinn á Akureyri
hvolfdi með þeim afleiðingum að
maðurinn hafnaði í sjónum.
Maðurinn náði að komast að
bátnum og hékk utan á honum er
björgunarbátur sótti hann, kaldan
og þrekaðan. Hann var fluttur á
slysadeild FSA en varð þó ekki
meint af volkinu að sögn lögreglu.
Þá voru fimm ungmenni tekin
með fíkniefni í Sjallanum aðfara-
nótt sunnudags. Talið var að ung-
mennin hafi verið með fíkniefnin
til eigin neyslu en um töluvert
magn var að ræða að sögn lög-
reglu.
Fjöldi ferðamanna var á Akur-
eyri um hvítasunnuhelgina og þá
voru margir bæjarbúar á ferli.
Sérstaklega var erilsamt hjá lög-
reglu aðfaranótt sunnudags og þá
eitthvað um slagsmál og pústra.
Bátsferðin endaði á FSA
JAFNRÉTTISSTOFA boðar til
rabbfundar á miðvikudag, 6. júní.
Þar mun Guðrún Agnarsdóttir lækn-
ir segja frá niðurstöðum og tillögum
nefnda Evrópuráðsins um aðgerðir
til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn
konum og ungum stúlkum, m.a.
mansal og kynlífsþrælkun. Í ljósi
umfjallana í fjölmiðlum síðustu daga
er ljóst að Ísland er ekki undanskilið
þegar þessi mál eiga í hlut og brýnt
er að fylgjast með stöðu mála hér á
landi í samhengi við það sem er að
gerast annars staðar í heiminum.
Fundurinn verður í húsnæði Jafn-
réttisstofu við Hvannavelli 14, Ak-
ureyri, 3. hæð og stendur frá kl. 18 til
20.30. Aðgangur er ókeypis. Boðið
verður upp á te og kaffi en auk þess
verður hægt að kaupa brauðmeti á
kostnaðarverði.
Jafnréttisstofa býður alla vel-
komna sem láta sig málið varða.
Rabbfundur
Jafnréttisstofu
Ofbeldi,
mansal og
kynlífs-
þrælkun
♦ ♦ ♦
Grillhúsið
opnað á
Akureyri
GRILLHÚSIÐ er nafn á nýjum
veitingastað sem hefur verið opnað-
ur í húsnæði Hótels Norðurlands við
Geislagötu á Akureyri.
Þar er boðið upp á smárétti,
skyndibita, pasta, fisk, kjúkling,
kjötrétti og sérstakan barnamatseðil
svo eitthvað sé nefnt. Einnig er þar
hægt að horfa á ýmsa íþróttavið-
burði innlenda sem erlenda á stórum
sjónvarpsskjá.
Grillhúsið er opið alla daga vik-
unnar frá kl. 11.30 og langt fram eft-
ir kvöldi. Það eru þeir Örn Hauksson
og Kristján Sverrisson sem reka
veitingastaðinn.