Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 17
ÞAÐ var sjaldgæf sjón sem blasti
við flugmönnum Flugfélags Ís-
lands nú á dögunum þegar þeir
voru í áætlunarflugi til Gríms-
eyjar.
Norður af eyjunni var á reki
heljarstór borgarísjaki. Borg-
arísjakann rak síðan austur um og
hefur stöðvast í bili, ótrúlega nærri
eyjunni. Í fjarlægð séð lítur út sem
alhvít eyja, ekki ósvipuð Grímsey
að lögun, hafi skotið upp kollinum.
Borgarísjakinn er hvort teggja í
senn fagur og ógnvekjandi þar sem
hann rís úr hafi. Nú er bara að bíða
og sjá hvað verður um þennan blá-
hvíta risa frá Grænlandsströndum.
Elstu íbúar hér muna ekki eftir
borgarísjaka af þessari stærð-
argráðu í mjög langan tíma. Borg-
arísjakinn var mjög stór en hann
brotnaði í sundur á grynningunum
neðan við bæinn Mánárbakka á
Tjörnesi, þar sem þessi mynd var
tekin snemma í gærmorgun. Jak-
inn hafði þá tekið stefnu af Gríms-
eyjarsundi og upp í land. Morgunblaðið/Bjarni
Borgarísjaki aust-
ur af Grímsey
Grímsey
PÁLL Arason ferðamála-
frömuður á Bugi í Hörgárdal
hefur verið nokkuð vinsælt
umfjöllunarefni í fjölmiðlum.
Ekki hefur áhugi á honum
minnkað nú seinni tíð, eða
eftir að Páll ánafnaði Hinu
íslenska reðasafni kynfæri
sín eftir sinn dag.
Eftir að sú ákvörðun hans
varð opinber hafa innlendir
og erlendir fjölmiðlamenn
heimsótt Pál og tekið við
hann viðtöl þar sem sérstak-
lega hefur verið spurt um
hans „djörfu“ ákvörðun. Nú
síðast voru tveir þáttagerð-
armenn frá bandarísku sjónvarps-
stöðinni HBO að taka viðtal við Pál í
tengslum við umfjöllun um Hið ís-
lenska reðasafn.
Áður hafði verið sýndur þáttur um
Pál í breska sjónvarpinu og sjón-
varpsstöðvar í Þýskalandi og Frakk-
landi hafa tekið við hann viðtöl. Þá var
grein um Pál í bandaríska dagblaðinu
Time á síðasta ári og viðtal við hann í
norsku tímariti fyrr á þessu ári. Einn-
ig hafa íslenskir fjölmiðlar sýnt hon-
um áhuga.
Páll sagðist hafa verið fyrstur
manna til að ánafna safni kynfæri sín
en síðan þá hafa bæði Þjóðverji og
Englendingur gert slíkt hið sama og
ánafnað erlendum söfnum kynfæri
sín. Páll sagði þetta ekki hafa verið
erfiða ákvörðun, „hvað hef ég að gera
við kynfæri eftir að ég er dauður?“
Páll sem kominn er vel á níræðis-
aldur er enn eldhress.
Hann er þekktastur hér-
lendis fyrir frumkvöðla-
starf í ferðaþjónustu. Páll
varð fyrstur manna til að
aka yfir Ódáðahraun árið
1945 og fór einnig fyrstur
manna á bíl suður Sprengi-
sand árið 1948. „Ég var áð-
ur búinn að ganga þvers og
kruss yfir hálendi landsins
og sá þá ýmsa möguleika á
að aka þar yfir.“
Hann var fyrstur ein-
staklinga til að setja á
stofn og reka ferðaskrif-
stofu og stóð fyrir hópferð-
um bæði innanlands og utan. Páll fór í
fyrstu hópferðina til Evrópu árið 1954
og í níu sumur fór hann með þýska
ferðamannahópa um Ísland. Alls
starfaði hann í ferðaþjónustunni í
rúm 20 ár.
Páll hefur búið á Bugi til fjölda ára,
þar sem hann byggði sér hús en þar
ræktar hann bæði gróður og silung í
tjörnum á lóð sinni og unir hag sínum
vel.
Páll Arason t.v. með þeim John Hoffman og Ray
Farkas frá sjónvarpsstöðinni HBO í Bandaríkjunum
fyrir framan heimili sitt í Hörgárdalnum.
Fjölmiðlar sýna Páli
Arasyni mikinn áhuga
Morgunblaðið/Kristján