Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 18

Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 18
SUÐURNES 18 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ UM 900 virkir iðkendur íþrótta, 12 ára og yngri, eru hjá íþróttafélögun- um í Reykjanesbæ. Hefur það komið í ljós við undirbúning Tómstunda- og íþróttaráðs að gerð tillagna um við- miðunarreglur vegna sérstaks stuðnings sem bæjaryfirvöld áforma við þjálfun barna. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti í vetur að hefja undirbún- ing að því að aðstoða íþróttahreyf- inguna við að greiða laun þjálfara barna. Tekið er fram að við stuðning- inn skuli taka mið af stefnumörkun Íþrótta- og ólympíusambands Ís- lands um barna- og unglingastarf sem sett var fram á síðasta ári undir yfirskriftinni: Fyrirmyndarfélag – fyrirmyndardeild. Úttekt á starfinu Að sögn Skúla Þ. Skúlasonar, for- seta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, er hugmyndin með samþykkt bæj- arstjórnar að viðurkenna í verki mik- ilvægi íþróttastarfs í æskulýðsstarf- seminni í bænum og að aðstoða félögin við að sinna starfi sínu sem hafi verið fjárhagslega erfitt. Á móti þurfi íþróttahreyfingin að skilgreina betur aðferðir við barna- starfið. Þess ber að geta að sam- þykktin tekur til barna til tólf ára aldurs. Það segir Skúli að sé best gert með því hvetja félögin til að fara í gegnum þá gæðavinnu sem ÍSÍ hafi sett upp undir yfirskriftinni: Fyrir- myndarfélag – fyrirmyndardeild. Segir hann að þar sé fengin upp- skrift að því hvernig standa skuli að rekstri barnastarfs og þjálfun. Í umræddri stefnu ÍSÍ kemur fram að félögum er boðið upp á út- tekt á starfsemi sinni og fá eftir það viðurkenningu á starfinu. Félögin þurfa að standast kröfur um skipu- lag, umgjörð þjálfunar og keppni, fjármálastjórnun, menntun þjálfara, félagsstarf, foreldrastarf, fræðslu- og forvarnarstarf, jafnréttismál og umhverfismál. Meðal annars eru gerðar kröfur um fjölþættar æfingar fyrir börn, sérhæfingin komi síðar, og að ráðnir séu menntaðir þjálfarar, svo nokkuð sé nefnt. Ekki aukin fjárframlög Tómstunda- og íþróttaráð er byrj- að að undirbúa tillögur að viðmiðun- arreglum. Skúli sér framkvæmdina þannig fyrir sér að bærinn muni greiða laun tiltekinna þjálfara, ann- aðhvort í gegnum viðkomandi deild eða taka þá beint á launaskrá. For- sendan fyrir slíkum samningi sé þó sú að starfið hafi fengið umrædda viðurkenningu ÍSÍ. Stefán Bjarkason íþróttafulltrúi segir að undirbúningur að viðmiðun- arreglum sé á byrjunarstigi. Byrjað hafi verið að meta fjölda barna á æf- ingum íþróttafélaganna og hafi kom- ið í ljós að 900 virkir iðkendur væru á þessum aldri. Ekki hefur verið metið hvað mörg börn eru á bak við þessa tölu en einhver þeirra iðka fleiri en eina íþróttagrein og eru því tvítalin. Segir Stefán að hugmyndir hafi kom- ið upp innan ráðsins um að leggja til að þeim fjármunum sem bærinn hyggst verja til þessa verkefnis verði skipt á milli deildanna eftir fjölda barna sem þar stunda æfingar. Málið verður reifað á fundi Tómstunda- og íþróttaráðs með fulltrúum allra félaganna í Reykjanesbæ á næst- unni. Hins vegar segir Stefán ekki ljóst hversu miklu fé bæjarstjórn ætli verja til að greiða laun þjálfara. Skúli og Stefán vonast til að hægt verði að hefja framkvæmd málsins í haust. Spurður um fjárhæðir segist Skúli telja rétt að þróa verkefnið á næstu árum. Nefnir hann 2–3 millj- ónir á þessu ári og 3–4 á næsta. Hann segir ekki fyrirhugað að auka fjár- framlög til íþrótta af þessu tilefni heldur að forgangsraða innan þess stuðnings sem nú þegar er veittur og nefnir í því sambandi að hugsanlegt sé að nota Afreksmannasjóð sem þegar er fyrir hendi. Byrjað að undirbúa reglur um stuðning bæjaryfirvalda við þjálfun barna 900 börn æfa íþróttir Reykjanesbær FLUTNINGATÆKJUM sem nota á við varnaræfinguna Norðurvíking 2001 var skipað upp úr skipi Atl- antsskipa í Njarðvíkurhöfn um helgina, meðal annars stórum inn- pökkuðum Chinook-herflutn- ingaþyrlum. Varnaræfingin Norðurvíkingur er haldin hér á landi annað hvert ár og fer fram samkvæmt varn- arsamningi Íslands og Bandaríkj- anna. Fyrirkomulag æfingarinnar sem haldin verður síðari hluta júní- mánaðar hefur ekki enn verið kynnt. Tækin eru hins vegar farin að berast til landsins. Um helgina kom skip Atlantsskipa frá Banda- ríkjunum með tvær eða þrjár Chinook-herflutningaþyrlur og nokkrar Black Hawk-fjölnotaþyrl- ur auk fleiri flutningatækja til að nota við æfinguna. Chinook- þyrlurnar voru innpakkaðar þegar þeim var skipað upp og þeim ekið um götur Reykjanesbæjar og upp á Keflavíkurflugvöll. Er þessi um- búnaður settur vegna hættu á tær- ingu vegna salts við sjóflutningana. Á síðustu æfingu með þessu nafni, Norðurvíkingi ’99, voru 3.000 þátttakendur, allt varn- arliðið auk hermanna frá Banda- ríkjunum og Evrópu, Landhelg- isgæslunnar og víkingasveitar lögreglunnar. Morgunblaðið/Arnór Þyrlurnar voru dregnar frá Njarðvíkurhöfn, í gegnum bæinn og upp á flugvöll. Myndin var tekin þegar lestin fór yfir veginn til flugstöðvarinnar. Innpakk- aðar her- þyrlur Njarðvík LÚÐRASVEIT Tónlistarskóla Reykjanesbæjar vann til fyrstu verð- launa í eldri flokki í fyrstu lúðrasveit- arkeppni sem hér hefur verið haldin. Keppnin fór fram á landsmóti Sam- taka skólalúðrasveita sem haldið var í Reykjanesbæ um hvítasunnuhelgina. Sex sveitir tóku þátt í lúðrasveita- keppninni. Dómarinn sem er frá Nor- egi skipti þeim í tvær deildir, fyrstu og aðra deild, eftir aldri og reynslu hljómsveitarmeðlima. Lúðrasveit mótshaldaranna, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, vann til fyrstu verð- launa í efri deildinni. Í öðru sæti var lúðrasveit úr Kópavogi. Karen Stur- laugsson, stjórnandi sigurliðsins, sagði að báðar lúðrasveitirnar hafi verið góðar enda verið afar mjótt á mununum. Lúðrasveitir af Seltjarnarnesi og Akranesi skiptu með sér fyrstu verð- launum í keppni sveitanna í annarri deild. Lúðrasveitamótið stóð frá föstu- degi og fram á sunnudag er því lauk með sameiginlegum tónleikum þátt- takendanna 750 í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík. Karen er ánægð með hvernig til tókst með mótshaldið enda segir hún að margir hafi lagt mikla vinnu af mörkum til að gera það mögulegt og nefnir foreldra nemenda skólans sérstaklega í því sambandi. Morgunblaðið/Billi 750 þátttakendur voru í lúðrasveitamóti í Reykjanesbæ um helgina. Lúðrasveit heima- manna vann Reykjanesbær BÍRÆFNIR þjófar sem stálu tvisv- ar sinnum fjölda verðmætra sólgler- augna úr versluninni Optical Studio í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, náðust með fenginn í New York á laugar- dag. „Þetta er stærsti gleraugna- þjófnaður sem ég veit um hérlendis,“ segir Kjartan Kristjánsson eigandi verslunarinnar, en hann segir þjóf- ana hafa verið karlmann og konu á miðjum aldri. Verðmæti þýfisins var rúmlega 150.000 krónur. Fólkið lét fyrst til skarar skríða þann 17. maí, þegar það hafði stutta viðdvöl í flugstöðinni á leið sinni frá Minnneapolis í Bandaríkjunum til Amsterdam í Hollandi. Kjartan seg- ir að þá hafi þau stolið á 4-5 sólgler- augum af fínum merkjum á borð við Gucci og Dior. Hann segir að þau hafi staðið fag- mannlega að verkinu. „Þau komu inn í búðina þegar mjög mikið var að gera og rétt áður en þau áttu að fara í loftið. Maðurinn stóð svo fyrir framan konuna á meðan hún lét til skarar skríða og lét sólgleraugun í töskuna. Það er greinilegt að fólkið stundar þetta,“ segir Kjartan og seg- ir að þjófnaðurinn hafi ekki uppgötv- ast fyrr en fólkið var farið í loftið. Endurtóku leikinn Eftirlitsmyndavélar gerðu gæfu- muninn þegar kom að því að finna fólkið. Parið sneri aftur til Keflavík- ur í gær og gerði sér lítið fyrir og endurtók leikinn í gleraugnaverslun- inni. Kjartan segir að þau hafi þá tekið fimm sólgleraugu og staðið á svipaðan hátt að verki og í fyrra skiptið. Parið var komið upp í flugvélina og var á leið til Bandaríkjanna þegar þjófnaðurinn uppgötvaðist í þetta sinn. Lögreglan á Keflavíkurflug- velli gat fundið út hvert fólkið var að fara. Haft var samband við lögreglu á John F. Kennedy flugvelli og hand- tók hún fólkið við komuna. Kjartan segir að það hafi verið með öll sól- gleraugun á sér. Stálu gler- augum í báðum ferðum Flugstöð Leifs Eiríkssonar NEFND sem bæjarstjórn Reykja- nesbæjar kaus til að semja við varn- armáladeild utanríkisráðuneytisins um Neðra-Nikkelsvæðið í Keflavík og mengunina þar, hefur ekki verið kölluð saman vegna þess að ráðu- neytið hefur ekki viljað hitta nefnd- ina, ekki fyrr en lausn væri fundin á vandamálinu. Á fundi bæjarstjórnar Reykjanes- bæjar í gærkvöldi lagði Ellert Ei- ríksson bæjarstjóri fram svar við skriflegri fyrirspurn Kristmundar Ásmundssonar, bæjarfulltrúa Sam- fylkingarinnar, um Neðra-Nikkel- svæðið. Bæjarstjóri segist ekki geta svarað því, hvort unnið verði að hreinsuninni í samræmi við þær for- sendur sem nefnd bæjarstjórnar setti sér í upphafi og ekki heldur hvernig staðið verði að fjármögnun hennar. Kristmundur spurði einnig um það af hverju samninganefndin hefði ekki verið kölluð saman. Í svari sínu rifjaði bæjarstjóri upp bréf bæjarins til ráðuneytisins í september og des- ember á síðasta ári, þar sem meðal annars var óskað eftir fundi með ráðuneytinu. Hann segist hafa feng- ið þau munnlegu svör, að þegar ráðu- neytið hefði fulla yfirsýn og lausnir á málinu í heild, yrði boðað til fundar með fulltrúum Reykjanesbæjar. Ráðuneytið óskar ekki eftir fundi Neðra-Nikkelsvæði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.