Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 19
SKÓLASLIT Landbúnaðarháskól-
ans voru að þessu sinni sérstök að
því leyti að báðum deildum var slit-
ið sama daginn og brautskráðust 25
búfræðingar, þar af 3 úr fjarnámi,
og 16 búfræðikandidatar sem eru
þeir fyrstu sem skólinn brautskrá-
ir.
Við athöfnina lýsti Magnús B.
Jónsson rektor skólans þeim breyt-
ingum er orðið hafa í skólastarfi á
Hvanneyri eftir stofnun Landbún-
aðarháskólans fyrir tveimur árum
og fjallaði um framtíðarmöguleika
hans. Sagði hann ma. að nú hillti
undir að kennsluaðstaða í naut-
griparækt geti orðið að veruleika.
Undirbúningur að nýju kennslu-
fjósi er kominn á lokastig og fjár-
mögnun verkefnisins þegar að
nokkru leyti tryggð og er vonast til
að unnt reynist að tryggja loka-
þætti hennar innan tíðar. „Upp-
bygging þessarar aðstöðu er
grundvallaratriði í því verkefni að
tengja saman alla kennslu og rann-
sóknarstarf nautgriparæktarinn-
ar.“
Í byrjun árs undirritaði skólinn
og Áform-átaksverkefni samstarfs-
samning um að koma upp lífrænni
miðstöð við skólann og er það sem
óðast að fara í gang, að sögn rekt-
ors. Þá var á fundi háskólaráðs
samþykkt að ljúka samningsgerð
milli skólans og Heilsujurta ehf., en
hlutur skólans í þeim samningi felst
í fræðilegri þjónustu og skapar
möguleika á nokkurri starfsemi á
Hvanneyri.
Fyrsti vísir að rannsóknasetri
fjölda stofnana
Landbúnaðarháskólinn vinnur nú
að nýju deiliskipulagi í samvinnu
við Borgarfjarðarsveit sem tekur
mið af eflingu og uppbyggingu á
fræðastarfsemi í tengslum við skól-
ann. Borgarfjarðarsveit hefur einn-
ig ákveðið að byggja þar skrifstofu-
húsnæði undir starfsemi allmargra
samstarfsaðila skólans og er það
mál komið á framkvæmdastig.
„Bygging þessa húss, sem er
fyrsti vísir að fjölstofnana rann-
sóknasetri, er okkur mikil hvatning
og sýnir hug sveitarfélagsins til
skólans í verki. Í þessu húnæði
verða allmargar stofnanir og
félagasamtök með starfsemi sína.
Flest þeirra eru þegar á staðnum
en þurfa aukið rými. Einnig bætast
við nýjar stofnanir. Útibú Veiði-
málastofnunar flyst úr Borgarnesi
að Hvanneyri í þetta nýja hús. Í
tengslum við þá flutninga munu
Veiðimálastofnun og Landbúnað-
arháskólinn gera með sér formleg-
an samstarfssamning, sem felur
m.a. í sér samstarf um háskóla-
kennslu á sviði fiskeldis og fersk-
vatnsnýtingar. Þetta samstarf er
beinlínis komið til vegna þess að
sveitarfélagið skapaði stofnuninni
húsnæðisaðstöðu og sýnir hversu
mikilsvert frumkvæði þess er í
tengslum við uppbyggingu skól-
ans,“ sagði Magnús.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Nemendurnir sem útskrifuðust frá Landbúnaðarháskólanum.
Skólaslit Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri
Fyrsta braut-
skráning bú-
fræðikandidata
Grund, Skorradalur
FÓLK Í FRÉTTUM