Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 27 HYDRADERMIE sérhæfð meðferð fyrir þína húð  Hreinsar, endurnýjar og rakamettar húðina.  Húðin verður áferðarfallegri og viðheldur fegurð sinni. Maski fylgir Hydradermie meðferð hjá eftirtöldum Guinot ráðgjöfum. Reykjavík og nágrenni Salon Ritz, Laugavegi 66  Húð og Nudd, Austurstræti 17  Þú um þig, Lóuhólum 2-6  Ársól, Grímsbæ v/Búsatðaveg Gyðjan, Skipholti 50  Mist, Spönginni 23  Ásýnd, Starmýri 2  Guinot-M.C, Grensásvegi 50  Hrund, Grænatúni, Kópavogi Fatima, Þverholti 2, Mosfellsbæ  Þema, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði  La Rosa, Garðatorgi, Garðabæ Landið Gínó snyrtistofa, Hornbrekkuvegi 16, Ólafsfirði  Fegurð, Brekkugötu 9, Akureyri Nudd- og snyrtistofa Lilju, Dynskógum 6, Hveragerði ALEJANDRO Toledo, nýkjörinn forseti Perú, skoraði í gær á öll lýð- ræðisöflin í landinu að taka höndum saman til að endurreisa efnahag landsins og kvaðst einnig ætla að leita eftir aðstoð erlendra fjárfesta og lánardrottna. „Þeir sem trúa á lýðræði og frelsi og eru ekki spilltir fá aðild að stjórn- inni,“ sagði Toledo, fyrsti indíáninn sem kjörinn hefur verið forseti Perú í frjálsum og lýðræðislegum kosn- ingum. Toledo fékk tæp 53% atkvæðanna í síðari umferð forsetakosninganna á sunnudag, fimm prósentustigum meira en keppinautur hans, Alan Garcia, fyrrverandi forseti. Mikil ólga hefur verið í stjórnmál- um landsins frá því að Alberto Fuji- mori var endurkjörinn forseti í um- deildum kosningum fyrir rúmu ári og Perúmenn vörpuðu því öndinni léttara þegar Garcia tók í hönd Toledos og bauðst til að vinna með stjórn hans. Kjöri Toledos var lýst sem sigri lýðræðisins eftir tíu ára valdatíma Fujimoris sem tók sér nánast alræð- isvöld og var sviptur embættinu í nóvember eftir að hafa flúið til Jap- ans vegna spillingarmála helsta bandamanns hans, njósnaforingjans Vladimiros Montesinos sem er nú einnig í útlegð. Bandaríkjastjórn óskaði Toledo til hamingju með sigurinn og sagði að hann hefði verið kjörinn í „heiðarleg- ustu kosningum“ í Perú í mörg ár. Fjárfestar fögnuðu úrslitunum enda hafa þeir haft illan bifur á Garcia sem var forseti á árunum 1985-90 og skildi við efnahaginn í rúst. Garcia neitaði t.a.m. að standa í skilum við erlenda lánardrottna Perú, reyndi að þjóðnýta bankana og þegar hann lét af embætti var verð- bólgan 3.000% á ári og ríkiskassinn tómur. Á erfitt verk fyrir höndum Toledo tekur við forsetaembætt- inu 28. júlí. Hann sagði í sigurræðu sinni að hann væri staðráðinn í að halda ríkisútgjöldunum í skefjum og framfylgja strangri aðhaldsstefnu í peningamálum. Hann lofaði einnig að draga úr atvinnuleysi og fátækt í landinu og koma á lýðræðislegum umbótum. Toledo kvaðst ætla að fara til Bandaríkjanna og fleiri ríkja til að sækjast eftir fjárfestingum og hefja samningaviðræður við lánardrottna um skuldbreytingar á hluta af er- lendum lánum Perú. Eitt af fyrstu verkefnum Toledos verður að leita að pólitískum banda- mönnum. Flokkur hans náði ekki meirihluta á þinginu í kosningum 8. apríl en er stærsti flokkur landsins, með 45 þingmenn af 120. Garcia lof- aði að styðja Toledo og kvaðst ætla að biðja þingmenn flokks síns, sem eru 28, að styðja stjórn hans. Toledo kvaðst vera að íhuga að bjóða Garcia ráðherraembætti. Sérfræðingar í stjórnmálum Perú segja að mjög erfitt verði fyrir To- ledo að standa við loforð sín um að bæta kjör landsmanna og rétta efna- haginn við eftir fjögurra ára sam- drátt. Samkvæmt opinberum hagtöl- um eru 58% Perúmanna annaðhvort atvinnulaus eða með of litla atvinnu, þjóðarframleiðslan minnkaði um 2,6% í mars og erlendir fjárfestar hafa lengi haldið að sér höndum vegna efnahagskreppunnar og óviss- unnar í stjórnmálum landsins. Líklegt þykir að það taki stjórn Toledos að minnsta kosti ár að tryggja erlendar fjárfestingar í land- inu. Talið er að einnig verði erfitt fyrir Toledo að fá lánardrottnana til að skuldbreyta lánunum, en margir telja það forsendu þess að hægt verði að blása lífi í efnahaginn. Sakaður um ólifnað Toledo naut mikils stuðnings með- al indíána og kynblendinga sem eru um 80% af íbúum landsins en Garcia fékk mest fylgi í strandhéruðum þar sem afkomendur spænskra land- vinningamanna eru í meirihluta. Toledo er 55 ára og kominn af fá- tækum indíánum. Á æskuárunum aðstoðaði hann við að framfleyta fjöl- skyldu sinni með því að selja tyggi- gúmmí og bursta skó. Hann fékk styrk til háskólanáms í Bandaríkj- unum og tók masterspróf í hagfræði og doktorspróf í kennslufræði við Stanford-háskóla. Toledo skipulagði götumótmæli gegn Fujimori og hermt er að leyni- þjónustan, undir forystu Montes- inos, hafi nokkrum sinnum hótað honum lífláti. Þótt Toledo nyti mikilla vinsælda meðal indíána átti hann um tíma undir högg að sækja í kosningabar- áttunni vegna ásakana um að hann hefði misnotað kosningasjóði, eign- ast barn utan hjónabands og neytt kókaíns með þremur vændiskonum á hótelherbergi árið 1998. Toledo hélt því fram að njósnarar Montesinos hefðu rænt honum, neytt hann til að neyta kókaíns og tekið myndir af honum með vændiskonunum í því skyni að koma óorði á hann. Mannréttindabrot rannsökuð Toledo tekur við forsetaembætt- inu af Valentín Paniagua sem hefur gegnt því til bráðabirgða frá því að Fujimori var vikið frá. Stjórn Pan- iagua tilkynnti á mánudag að stofnuð yrði svokölluð „Sannleiksnefnd“ sem ætti að rannsaka glæpi og mannrétt- indabrot „jafnt hermdarverkasam- taka sem fulltrúa ríkisins“. Nefndin á einnig að leggja fram tillögur sem miði að því að koma á sáttum meðal þjóðarinnar og efla lýðræðið. Nýkjörinn forseti Perú lofar að rétta efnahaginn við Leitar eftir aðstoð fjár- festa og lánardrottna AP Alejandro Toledo fagnar sigri sínum í forsetakosningunum í Perú með eiginkonu sinni, Eliane Karp, í Lima á sunnudagskvöld. Lima. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.