Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 33

Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 33 Umboðs- og heildverslun Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Hilluplan fyrir lausar vörur og bitar fyrir vörubretti. Einfalt í uppsetningu Skrúfufrítt. Smellt saman Í allar áttir Netverslun - www.hillur.is Þunga- vörurekkar Trygg gæði - Gott verð! Handlyftivagnar á áður óþekktu verði Lyftir 1000 kg í 80 cm hæð. Verð kr. 58.900 m. vsk 2500 kg og vita varla af því. Verð kr. 27.900 m. vsk KIRKJULISTAHÁTÍÐ virðist hafa náð miklum hæðum í ár, með hverjum afbragðs tónleikunum á fætur öðrum. Tónleikar norska sönghópsins Nordic Voices á föstu- dagskvöldið var engin undantekn- ing þar á. Þessi sex manna söng- hópur lagði þar fyrir hlustendur list sína, sem var nánast sem af öðrum heimi. Söngur hópsins var með slíkum ágætum að sjaldheyrt er hér á landi; hver og einn ein- staklingur afburða söngmann- eskja, og heildin fullkomin sem eitt hljóðfæri. Nordic Voices sungu efnisskrá sem þau kalla Sögulegar andstæður; valin voru verk frá fjórum landsvæðum, Englandi, Þýskalandi, Noregi og Frakklandi, og fólust sögulegu andstæðurnar í vali verka innan hvers svæðis, þar sem teflt var fram gamalli tónlist gegn yngri. Enska efnisskráin hófst á söng eftir John Dunstable, sem var uppi í byrjun fimmtándu aldar. Karla- raddir sungu cantus firmus, lagið Preco preheminecie, meðan efri raddirnar spunnu sinn skrautvef yfir. Söngurinn var hnífskarpur og glæsilegur; jafnvægið milli radd- anna fullkomið og söngurinn dásamlegur. O God, thou hast cast us out, eftir Henry Purcell minnti sterklega á kórana úr óperu tón- skáldsins um Dido og Aeneas, og söngur norrænu raddanna einstak- lega tær og fallegur. Í ensku syrp- unni bar þó af Beati quorum via eftir Charles Villiers Stanford sem lést árið 1924. Það er hreinlega erfitt að finna orð við hæfi um ágæti söngs Nordic Voices í þessu lagi, en stemmningin í kirkjunni var þvílík meðan á söng hópsins stóð, tónleikagestir héldu niðri í sér andanum og sæluandvarp leið um salinn að loknum söng þessa fallega lags. Það var allt á sömu bókina lært í þýsku lögunum. Þar hóf hópurinn upp raustina í tveim- ur litlum mótettum eftir Heinrich Schütz. Abendlied eftir Joseph Rheinberger var söguleg andstæða þess og sérstaklega fallega flutt, en þýsku lögin náðu hápunkti í Nachtlied opus 138 eftir Max Reg- er, sem var unaðslegt í flutningi þessara frábæru söngvara. Kvenraddir hópsins hófu norska prógrammið með stefi frá um 1200, Alleluia heilags Ólafs, norskri hliðstæðu Þorlákstíða okk- ar. Lag eftir Fartein Valen, Hvad est du dog skiøn, var eiginlega það eina á þessum tónleikum þar sem finna mátti hnökra í söng norrænu raddanna, þar sem örlaði á óhrein- um kafla í miðju lagsins. Tvö lög eftir Bjarne Sløgedal, byggð á norskum þjóðlögum, voru glæsi- lega flutt. Karlaraddir hópsins fóru á kost- um í þriggja radda conductus með tilheyrandi hokketsöng. Deus Isr- ael eftir Vincent D’Indy var sér- deilis fallegt, en á ekkert þessara ágætu tónskálda er hallað, þótt lokaverk efnisskrárinnar sé minnst sem músíkalsks meistaraverks í meistaralegum flutningi. Í laginu O sacrum convivium fór saman snilld tónskáldins, Oliviers Messia- ens og snilldarsöngur Nordic Voic- es, og útkoman var ólýsanlega fög- ur. Veikur söngur hópsins var unaðslegur og hárnákvæmur; and- ardrátturinn var einn og andrúms- loftið í krikjunni var rafmagnað. Tónleikagestir í Hallgrímskirkju klöppuðu innilega og stóðu fast á kröfum sínum um aukalög, og þau komu loks tvö; Norskur brúðar- mars og Ástarljóð eftir Evert Taube og var söngur hópsins með sama glæsibrag og annað á þess- um ágætu tónleikum, sem verða vafalítið lengi í minnum hafðir. Norskir unaðsgaukar TÓNLIST H a l l g r í m s k i r k j a Sönghópurinn Nordic Voices flutti ensk, þýsk, norsk og frönsk lög frá ýmsum tímum. Föstudag kl. 21. KÓRTÓNLEIKAR Bergþóra Jónsdótt ir ÞRIÐJU tónleikar Menningarmálanefnd- ar Garðabæjar á þessu ári verða haldn- ir í Kirkjuhvoli í Garðabæ í kvöld kl. 20. Þar koma fram Kvennakór Garða- bæjar, Ingibjörg Guð- jónsdóttir sópran og Peter Máté píanóleik- ari. Fyrir hlé syngur Ingibjörg við píanó- leik Peters Máté sönglög eftir Edvard Grieg, Johannes Brahms og Sergei Rachmaninov. Á seinni hluta tónleikanna syngur Kvennakór Garðabæjar undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur sína fyrstu sjálfstæðu tónleika. Flutt verða íslensk og erlend þjóð- lög, madrigalar og sönglög eftir Antonín Dvorák. „Efnisskráin hef- ur yfir sér rómantískt og þjóðlegt yfirbragð, en hún er fyrst og fremst sett saman með það í huga að búa til skemmtilega og áheyri- lega dagskrá. Kórlögin eru valin með getu flytjendanna í huga, en auk þess er markmið kórsins að flytja blandaða tónlist, íslenska og erlenda, frá öllum tímum,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir. Kvennakór Garðabæjar er áhugamannakór sem var stofnaður á haustmánuðum árið 2000 og er skipaður 32 söngelskum konum. Ingibjörg hefur stjórn- að kórnum frá upphafi, og má segja að hún verði í tveimur ólíkum hlutverkum á tónleik- unum, sem einsöngvari og stjórnandi. „Það er dálítið frábrugðið hjá okkur að setja tón- leikana svona upp, en mjög skemmtilegt. Fyrir hlé syng ég með Peter Máté og sem er hreint frábær tónlist- armaður. Þar munum við eflaust fá réttu stemmninguna fyrir Dvorák og Rachman- inov, þar sem Peter kemur frá þeim slóðum,“ segir Ingibjörg. „En þegar allt kemur til alls, er það ekkert svo ólíkt að syngja einsöng og stjórna kór. Hvort tveggja snýst um það að flytja fallega tónlist. Starfið með þessum kór er ákaflega gefandi, enda hef ég verið heppin með kon- ur, þær eru bæði músíkalskar og bráðskemmtilegar.“ Ingibjörg segir það sérstaklega gaman fyrir svo ungan kór að fá að syngja í tónleikaröð sem þessari, þar sem frábærir listamenn hafi haldið tónleika undanfarin ár. Fyrirhugað var að halda tón- leikana þann 12. maí síðastliðinn, en vegna veikinda varð að fresta þeim. „En nú er komið að tónleik- unum, og hlökkum við mjög til þeirra,“ segir hún að lokum. Kvennakór Garðabæjar sem heldur sína fyrstu tónleika í dag. Rómantískt og þjóðlegt yfirbragð Tónleikar Kvennakórs Garðabæjar Ingibjörg Guðjónsdóttir FÉLAG íslenskra bókaútgefenda og Prentsmiðjan Oddi gáfu öllum 10. bekkingum sem útskrifuðust nú í vor bókagjöf. Bókin, Kappar og kven- skörungar, er eftir Gísla Jónsson ís- lenskufrærðing með teikningum eft- ir Kristin G. Jóhannsson. Bókin hefur að geyma æviþætti 49 forn- manna í stuttum og hnitmiðuðum texta. Hún kom upphaflega út hjá Bókaútgáfunni Hólum á Akureyri og er nú endurútgefin með hennar leyfi og höfundar. Þetta er í fimmta sinn sem bókaút- gefendur og Oddi senda 10. bekking- um bækur sem afhentar eru við skólauppsögn. Vöruflutningamið- stöðin/Fytjandi tók að sér að koma bókunum til nemenda á landsbyggð- inni. 10. bekk- ingar fá bókagjöf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.