Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 47

Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 47 Barmmerki við öll tækifæri Fyrir fundi , ráðstefnur og ættarmót Hægt er að velja á milli þess að hafa hangandi klemmu eða klemmu og nælu á baki bammerkis. Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið. Prentum á barmmerkin, ef okkur eru send nöfnin í Excel skjali . Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir. Innritun fyrir haustönn 2001 er hafin. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ við Skólabraut, 210 Garðabær, sími 520 1600, fax 565 1957 vefslóð: http:www.fg.is, netfang: fg@fg.is Bóknám til stúdentsprófs: Félagsfræðabraut Málabraut Náttúrufræðibraut Starfsnám: Markaðsbraut Íþróttabraut Uppeldisbraut Viðskiptabraut Almennt nám: Almenn braut HG-hópur Nám á bóknámsbrautum legg- ur góðan grunn að framhalds- námi í félagsvísindum, hugvís- indum, tungumálum, raunvís- indum og fleiri greinum. Skólinn býður upp á sérstaka þjónustu á bóknáms- og list- námsbrautum fyrir nemendur með góðar einkunnir úr 10. bekk. HG-nemendur fá góða stundatöflu og geta flýtt námi sínu. Í listnámi, sem er 3ja ára nám, er unnt að bæta við áföngum til stúdentsprófs. Námið veitir góðan undirbúning undir fram- haldsnám á listasviði og í hönnun. Nemendur velja sér kjörsviðs- greinar merktar ákveðnum brautum. Flytja má greinar að ákveðnu marki á milli brauta. Kjörsviðin bjóða upp á mikla sérhæfingu og dýpkun í námi. Fyrir nemendur sem eru óá- kveðnir eða uppfylla ekki inn- tökuskilyrði inn á aðrar brautir. Í starfsnámi, sem er 2ja-3ja ára nám, er einnig unnt að bæta við áföngum til stúdentsprófs. Við- skipta- og markaðsbrautir veita undirbúning undir nám og störf í viðskiptalífinu en íþrótta- og upp- eldisbrautir undirbúa nemendur undir nám og störf að uppeldis-, íþrótta- og félagsmálum. Listnám: Fata- og textílhönnun Myndlist Kjörsvið - Mjög fjölbreytt nám! Tölvubúnaður. Nemendur fá greiðan aðgang að nýjum og fullkomnum tölvubúnaði í skólanum og fer mikill hluti kennslunnar fram með tölvum. Góð aðstaða til náms! Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eru 550-600 nemendur og 60-70 starfsmenn. Skólinn starfar í nýju og glæsilegu húsnæði með góðum kenn- urum og fullkomnum kennslubúnaði, s.s. öflugum tölvum og góðri lesaðstöðu. Vegna mikillar aðsóknar að skólanum er mikilvægt að allar umsóknir verði sendar í tæka tíð beint til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, við Skólabraut, 210 Garðabæ. Skrif- stofa skólans er opin alla virka daga frá kl. kl. 8.00-16.00. Símanúmerið er 520 1600. Netfang: fg@fg.is Þeir sem þess óska geta fengið send umsóknareyðublöð. Umsóknir þurfa að berast skólanum eigi síðar en 8. júní nk. Umsóknum skal fylgja staðfest ljósrit af grunnskólaprófi. Nemendur með nám úr öðrum framhaldsskólum þurfa að staðfesta það með viðurkenndum prófgögnum. Umsóknareyðublöð eru einnig á heimasíðu skólans. Heimasíða: http://www.fg.is Námsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals og aðstoða nemendur við námsval. Upplýsingar um inntöku- skilyrði á einstökum brautum eru á heimasíðu skólans. Hringið og fáið sendan upplýsingabækling um skólann! Skólameistari. Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 8—16. Innritun lýkur 8. júní. Á SÍÐARI hluta lið- innar aldar muldu ríki Vestur-Evrópu undir sig nær öll lönd músl- ima og skiptu þeim svo á milli sín eins og hverju öðru herfangi. Bretar gáfu síðan gyðingum hluta land- svæðis Palestínumanna og lögðu blessun sína yfir áframhaldandi hryðjuverkastarfsemi og landvinninga Ís- raela. Rithöfundurinn og gyðingurinn Arthur Koestler sagði að með því hefði ein þjóð gefið annarri þjóð land þeirrar þriðju. Síð- an hafa Palestínumenn barist fyrir landi sínu og lýðréttindum, – en alltaf án árangurs. Ísraelar hafa jafnt og þétt sölsað undir sig mestallt land- svæði Palestínuaraba, sem nú eru landlaus þjóð sem heyr sína lífsbar- áttu í flóttamannabúðunum. Enn á ný berast fréttir af morð- sveitum Ísraela í Palestínu sem myrða konur, börn og gamalmenni. Það voru Ísraelsmenn sem hirtu land Palestínuaraba og þegar palestínskir drengir kasta steinvölum í brynvarða ísraelska hermenn í mótmælaskyni er þeim svarað með byssukúlu í höf- uðið. Sundurtætt lík barnanna liggja svo eins og hráviði út um allt í landinu helga. Palestínuarabar hafa búið í Palest- ínu – sem nú er kallað Ísrael – í þús- undir ára, en þar er jafnframt að finna nokkrar elstu minjar um menn- ingarsamfélög á jörðu. Saga gyðinga á svæðinu er miklum mun styttri. Þeir komu fyrst til Palestínu fyrir 3000 árum en voru þá ekki ýkja fjöl- mennir. Gyðingar stofnuðu þar ríki sitt nokkru síðar á litlum skika, en það stóð þó ekki óskipt nema í 100 ár. Fyrir 2500 árum voru ríki þeirra svo með öllu hrunin. Síðan hefur palestínskt ríki staðið á svæðinu, eða allt þar til Bretar gáfu gyðingum land Palestínumanna fyrr á liðinni öld. Það ríki var þó varla fjórð- ungur af því landsvæði sem Ísraelar hafa nú sölsað undir sig með morðum og annarri hryðjuverkastarfsemi. Hinn skelfilegi for- sætisráðherra Ísraels, Ariel Sharon, er harðlínumaður og herskár gyðingur sem kemur úr sömu röðum hryðjuverkamanna og ráðið hafa lögum og lofum í Likud- bandalaginu frá stofnun Ísraelsríkis um miðja síðustu öld. Hvað svo sem segja má um Ehud Barak, fyrrver- andi forsætisráðherra, virtist hann í það minnsta hafa einlægan friðar- vilja. Sharon virðist hins vegar hafa einlægan bardagavilja. Margir helstu leiðtogar Ísraels- manna eru í raun ekkert annað en ótíndir hryðjuverkamenn. Þrír fyrr- verandi forsætisráðherrar Ísraels- ríkis, þeir Ben Gurion, Menachem Begin og Ytzhak Shamir, voru allir forystumenn í hryðjuverkasveitum Ísraela. Undir forystu Begins réðust hin alræmdu Irgun-samtök til að mynda inn í arabíska þorpið Deir Jassin og myrtu þar 250 saklausa borgara. Ekki liðu mörg ár þar til Begin fékk friðarverðlaun Nóbels. Hann skrifaði sjálfur um það í bók sinni að án fjöldamorða á aröbum hefði Ísraelsríki aldrei orðið að veru- leika. Hryðjuverk þessi höfðu það öll að markmiði að hrekja Palestínu- menn af landi sínu. Pólitík Sharons er sú sama og þessara manna. Sjálfur starfaði hann fyrir hryðjuverkasamtökin Haganh sem stóðu fyrir fjöldamorðum og öðr- um ódæðisverkum. Markmiðin voru þau sömu; að hrekja Palestínumenn af landi sínu. Ekkert lát virðist ætla að verða á hörmungasögu Ísraela og Palestínumanna og kjör Sharons til embættis forsætisráðherra hefur magnað deiluna svo mjög, að hætta er á allsherjarstyrjöld fyrir botni Miðjarðarhafs. Fjölþjóðlegt ríki Vandamálið er flókið og ágreining- urinn djúpstæður. En á meðan deilu- aðilar bítast um þetta litla og þéttbýla landsvæði halda blóðsúthellingarnar áfram. Eina raunverulega lausnin á deil- unni er auðvitað sú, að koma á fjöl- þjóðlegu sambandsríki á svæðinu sem rúmar bæði gyðinga og araba, og raunar alla þá sem vilja búa í landinu helga. Hryðjuverk Ísraela Eiríkur Bergmann Einarsson Höfundur er stjórnmálafræðingur og ritstjóri á KREML.IS. Palestína Eina raunverulega lausnin á deilunni er auðvitað sú, segir Eirík- ur Bergmann Ein- arsson, að koma á fjöl- þjóðlegu sambandsríki á svæðinu sem rúmar bæði gyðinga og araba. ÞAÐ eru gömul og sígild sannindi, að í milliríkjamálum þurfi jafnan að gæta þess að fórna ekki meiri verð- mætum eða gildum fyrir minni. Æðstu stjórnmálagildin í því samhengi eru fullveldi og sjálfstæði ríkisins. Fyrir efnahagslegan ávinning í milliríkja- viðskiptum má hvorki rýra né fórna neinu því, sem tengist þess- um æðstu stjórnmála- gildum. Þetta skildu og virtu brautryðjendur íslenskrar utanrík- isþjónustu, eins og t.d. sendiherr- arnir Sveinn Björnsson, Pétur Benediktsson, Thor Thors og Agn- ar Kl. Jónsson, þegar þeir voru að stofna og móta hana á fyrstu ár- unum. Þessum viðhorfum skiluðu þeir til okkar, sem á eftir komum. Það er líka lofsamlegt, að þeir stjórnmálamenn, sem gegnt hafa embætti utanríkisráðherra, tileink- uðu sér yfirleitt þessi grundvallar- viðhorf og virtu þau. Í þessum efnum varð stílbrot á árunum 1988-95, þegar Jón Baldvin Hannibalsson slysaðist inn í emb- ættið og „gerði þar allt vitlaust“, eins og einn ráðherrabílstjórinn komst að orði. Þá rak JBH samn- ingaviðræðurnar um EES af meira kappi en forsjá og fórnaði með Oporto-samningunum hluta af full- veldi okkar á samningssviðinu, en sagðist þó í sínum blekkjandi öf- ugmælastíl hafa fengið „allt fyrir ekkert“. Í dag sjá menn og viðurkenna mistökin. Alþingi hefur verið lítil- lækkað og að hluta gert að af- greiðslustofnun fyrir franskt-þýskt laga- og reglugerðafargan, af því að samþykkt var, að Evrópurétturinn fengi forgang fyrir landsrétti á samningssviðinu. Hvernig skyldi þeim líða í dag „lögspekingunum“ þremur, sem JBH réði til fullyrð- inga um, að engin full- veldisrýrnum fælist í EES-samningunum? Nú blasa rangfærslur þeirra við augum allra. Meira að segja Sam- fylkingarkratar tala nú um þá óhæfu EES- samningsins, að við þurfum að taka við laga- og reglugerða- fyrirmælum ESB án þess að koma þar að ákvörðunartöku. En þannig var og er EES-samningurinn gerður. Hann hefur ekkert breyst frá upphafi, enda ekki hlustað á okkur, sem hvöttum til varfærni og bentum á skynsam- legri leiðir. Glámskyggni og glannaskapur krata ríður ekki við einteyming í dag fremur en áður. Nú nota þeir illa gerðan EES-samning sem rök- semd fyrir því, að við flýjum frá honum á náðir umsóknaraðildar að ESB! Með því mundum við rýra enn meira okkar fullveldi og sjálf- stæði í milliríkjasamskiptum, t.d. til samninga á sviði tolla, viðskipta og sjávarútvegs. Hefur sagan ekki kennt okkur Ís- lendingum, að okkar mesta auðlind er fólgin í fullveldi okkar og sjálf- stæði? Í sjö aldir lutum við erlendu valdi og bjuggum við nauðþurftakjör, fá- tækt og eymd. Strax og við fórum sjálf að stjórna eigin málum, fyrst 1874 en einkum eftir 1904, 1918 og 1944, komumst við á það framfara- skrið, sem varir enn. Það hefur veitt okkur þær efnahagslegu fram- farir, sem hafa tryggt okkur betri lífskjör en flestar aðrar þjóðir njóta í dag. Við erum Evrópuþjóð á mörkum Evrópu og Ameríku, viljum góð samskipti við öll ríki, en ekki snúa aftur til fortíðar. Hvorki láta Evr- ópu yfirtaka okkur né stjórna frá Brussel. Við eigum önnur og betri úrræði sem fullvalda og sjálfstætt lýðveldi, þótt þrælslyndir kratar komi ekki auga á það. Sjálfstæðisbaráttan er varanleg. Við megum aldrei fórna meiri gild- um fyrir minni. Okkar æðsta skylda er að standa vörð um fullveldi og sjálfstæði lýðveldisins. Þess vegna skulum við kveða niður allan und- irlægjuhátt fyrir Brusselvaldinu. Að fórna ekki meira fyrir minna Hannes Jónsson Höfundur er félagsfræðingur og fv. sendiherra. Evrópumarkaður Glámskyggni og glanna- skapur krata, segir Hannes Jónsson, ríður ekki við einteyming í dag fremur en áður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.