Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 49
FYRIR rúmum 13
mánuðum sendi bæjar-
ráð Garðabæjar
hreppsnefnd Bessa-
staðahrepps erindi
þess efnis, að sett verði
á fót formleg samein-
ingarnefnd samkvæmt
sveitarstjórnarlögum
til að ræða formlega
sameiningu Garða-
bæjar og Bessastaða-
hrepps. Erindi þetta
hefur ekki verið af-
greitt í hreppsnefnd
Bessastaðahepps og
áður en það verður gert
hefur hreppsnefndin
ákveðið, eftir viðræður og kynningu,
að leita álits íbúa hreppsins með
skoðanakönnun hvort verða skuli við
erindi Garðabæjar eða ekki. Eins og
fram hefur komið fer skoðanakönnun
þessi fram núna 6. – 12. júní nk.
Skyldur sveitarstjórnarmanna
Skylda allra sveitarstjórnarmanna
hlýtur ávallt að vera að gæta sem
best hagsmuna þeirra, sem þeir hafa
fengið umboð frá til að fara með
stjórn sveitarstjórnarfélagsins.
Í rekstri sveitarfélags þarf meðal
annars ætíð að leita hagkvæmustu
leiða, til að nýta sem best í þágu
heildarinnar það fjármagn, sem íbú-
arnir greiða í hinn sameiginlega sjóð.
Við fulltrúar Sjálfstæðisfélags
Bessastaðahrepps í hreppsnefnd
höfum meðal annars þetta að leiðar-
ljósi, þegar við viljum skoða hvort
það sé kostur fyrir íbúa hreppsins að
sameinast öðru sveitarfélagi eða
ekki. Ég tel reyndar ábyrgðarleysi
hjá þeim sveitarstjórnamönnum,
sem hafna svo mikilvægum hlutum
sem þessum án þess að skoða þá til
fullnustu.
Bessastaðahreppi
vel stjórnað
Í máli nokkurra andstæðinga
skoðanakönnunar á kynningarfundi
um málið í síðustu viku kom fram, að
engin ástæða væri til að vera ræða
þessi mál og framkvæma þessa skoð-
anakönnun þar sem Bessastaðaheppi
væri svo vel stjórnað, að ekki væri
þess að vænta að betur yrði gert með
sameiningu. Þetta eru að sjálfsögðu
engin tíðindi fyrir okk-
ur fulltrúa Sjálfstæðis-
félagsins í hrepps-
nefnd. Við höfum ætíð
haldið því fram með
réttu að hér sé og hafi
verið vel á málum hald-
ið í sveitarfélaginu. Við
fögnum hinsvegar
þessum röddum frá
þeim, sem hingað til
hafa nú verið að reyna
að telja fólki trú um
annað. Ég vil reyndar
nota tækifærið og bjóða
þá til liðs við okkur, til
að stjórna sveitarfélag-
inu áfram af þeirri
ábyrgð og festu sem gert hefur verið.
Það hlýtur að vera eftirsóknarvert að
vera með okkur í því að stjórna svo
vel sem fram hefur komið.
Mismunandi skoðanir
Í ræðu og riti um þessi mál und-
anfarið hefur glögglega komið í ljós,
að ólíkar skoðanir eru um sameining-
armál í sveitarfélaginu. Þá hefur
einnig komið í ljós að ólíkar skoðanir
eru innan allra þeirra framboða sem
fulltrúa eiga í hreppsnefnd.
Því voru það mér mikil vonbrigði
að ekki náðist um það samstaða í
hreppsnefnd, að gefa íbúum Bessa-
staðahrepps tækifæri til að tjá sína
skoðun á því hvort þeir vilja láta
vinna að formlegri athugun málsins
og láta búa til sameiningartillögu,
sem þeir fengju síðan að kjósa um,
eða hvort þeir vilja það ekki.
Staðreyndin er nefnilega sú að
fulltrúar Álftaneslistans og Hags-
munasamtaka Bessastaðahrepps í
hreppsnefndinni greiddu atkvæði
gegn því að þessi skoðanakönnun
færi fram og komu ekki fram með
neina tillögu um, hvernig hægt væri
að leita álits allra kosningabærra
íbúa Bessastaðahrepps á málinu.
Þetta er reyndar óskiljanlegt í ljósi
þess að forystumaður Hagsmuna-
samtakanna og varafulltrúi Álftanes-
listans í hreppsnefnd höfðu skrifað
undir það fyrir nokkrum árum að
„sameining við önnur sveitarfélög sé
ekki útilokuð í framtíðinni og skuli í
þeim efnum farið að vilja íbúanna.“
Þessir sömu aðilar hafa oft og ein-
att borið okkur meirihlutafulltrúum
það á brýn að við sýnum valdníðslu,
yfirgang og hlustum ekki á raddir
fólksins. Nú koma þessir sömu aðilar
og hafna því mikilsverða samstarfi
við íbúa Bessastaðahrepps, sem
Sjálfstæðisfélag Bessastaðahrepps
leggur metnað sinn í að leita eftir.
Hvar er nú samræmið og trúverð-
ugleikinn hjá þessum aðilum?
Við treystum íbúunum
Ég vil að lokum ítreka að okkur
fjórum sem samþykktum þessa skoð-
anakönnun í hreppsnefnd Bessa-
staðahrepps, stendur ekkert annað
til en að fá álit íbúanna á því, hvort
við eigum að stíga frekari skref í
þessari vinnu eða ekki og látið endi-
lega tal um annað ekki villa ykkur
sýn.
Áframhald umræðna í hrepps-
nefnd Bessastaðahrepps um hugsan-
lega stækkun sveitarfélagsins með
sameiningu, ræðst af niðurstöðu fyr-
irhugaðrar könnunar.
Það hefur komið skýrt fram að
ekki verður litið á niðurstöður könn-
unarinnar sem bindandi fyrir
hreppsnefndina í heild, heldur verð-
ur litið á niðurstöðuna sem leiðbein-
andi fyrir hreppsnefndina um fram-
hald málsins.
Ágæti íbúi Bessastaðahrepps,
veltu því fyrir þér hvort það gæti ver-
ið hagkvæmur kostur fyrir þig að
fram fari formlegar sameiningarvið-
ræður milli Bessastaðahrepps og
Garðabæjar eða ekki. Taktu síðan
sjálfstæða afstöðu og svaraðu í sam-
ræmi við hana í skoðanakönnunni.
Þín skoðun skiptir máli.
Íbúar í Bessastaða-
hreppi segi álit sitt
Snorri Finnlaugsson
Skoðanakönnun
Litið verður á niður-
stöðuna, segir Snorri
Finnlaugsson, sem leið-
beinandi fyrir hrepps-
nefndina um framhald
málsins.
Höfundur er formaður hreppsráðs
Bessastaðahrepps.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
• Öflugur margreyndur tvígengismótor sem slær öllum við.
• Þetta er vélin fyrir þá sem gera kröfur.
• Fáanleg með og án drifs, grassafnari fylgir.
GARÐSLÁTTUVÉLIN
„Sú Græna góða“