Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 56
MINNINGAR 56 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðný Kjartans-dóttir var fædd í Stapakoti 29. apríl 1921. Foreldrar hennar voru Kjartan Sæmundsson bóndi og Herdís Þórðar- dóttir húsfrú, bæði ættuð úr Ölfusinu. Guðný átti aðeins einn bróður, Guð- bjart Sæmundsson, f. 28.10. 1912, d. 25.9. 1967. Guðný gekk í Barnaskóla Kefla- víkur og fór síðar í Húsmæðraskóla. Hún kvæntist Kristjáni Guðmundssyni bifreiða- 8.9.73. Býr á Höfn í sambúð með Ragnari Borgþóri Torfasyni, þeirra barn er Ingibjörg Lúcía. fædd 20.5.98. 2. Guðný fædd 16.10. 76, býr í Garðabæ, sambýlismaður Gunnar Björn Björnsson, þeirra barn Elís Már, fæddur 9.2. 01. 3. Herdís fædd 27.10. 83 í Vest- mannaeyjum. 3. Barn Guðnýjar var andvana fæddur drengur, 26.1.56. 4. Jör- undur Rúnar fæddur 18.3. 57, býr í Keflavík í sambúð með Guðbjörgu Kristinsdóttur, þeirra börn eru Ásta Björg fædd 24.1. 85. Jórunn fædd 21.9. 90. Herdís fædd 17.12. 91. Fyrir átti Jörundur Kristjönu Guðnýju. fædd 3.3. 78, gift Ívari Jónssyni, þeirra barn er Ragnhild- ur Lilja, f. 21.12. 99. Fóstursonur Jörundar er Davíð Kristinsson f. 8.4. 82. Útför Guðnýjar fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju á morgun og hefst athöfnin klukkan 13. stjóra frá Rafnkels- stöðum í Garði, 7. júlí 1951. Hann var sonur Guðrúnar Jónasdótt- ur og Guðmundar Jónssonar útgerðar- manns, f. 2.4. 1918, d. 26. maí 1963. Guðný var einn af stofnend- um Systrarfélags Innri-Njarðvíkur. Börn þeirra eru 1. Már, f. 17.12. 1950, dá- inn 11.11. 1982. 2. Hermann fæddur 23.12. 1951, býr í Vestmannaeyjum, kvæntur Elísabetu G. Einarsdótt- ur. Þeirra börn eru 1. Linda, fædd Elsku amma mín þú farin ert okkur frá inn í góðan heim, þar sem veikindin kvelja þig ekki leng- ur. Þú áttir stóran þátt í lífi mínu. Það var æðislegt að vera hjá þér þegar ég var lítil alltaf svo gott að borða og þú varst alltaf svo góð, vildir öllum vel. Ég man eftir því að þú sast alltaf í sama stólnum og horfðir á sjónvarpið eða prjónaðir. Það var æðislegt að sjá hvað þú varst ánægð á afmælisdaginn þinn 29. apríl orðin 80 ára og sæl. Ég á eftir að sakna þín en þú lifir í minningunni og átt alltaf stað í hjarta mínu, ég vona að þér líði vel og brosir niður til okkar, takk fyr- ir allt sem þú gerðir fyrir mig og hjálpaðir mér í gegnum. Kveðja Ásta Björg Jörundardóttir. Linda Hermannsdóttir. Elsku amma mín. Nú þegar þú kveður þennan heim, vil þakka þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig og þær stundir sem við áttum saman. Eins og þegar við spiluðum olsen olsen, eða fórum í hringferð- irnar, þá gastu sko sagt mér allt um hvert einasta kennileiti á leið- inni, og lést mig lesa á skiltin sem á leiðinni voru, til að ég myndi læra þetta. Ég vona að þér líði vel núna, komin á þann stað sem þú vildir vera á, hjá ættingjum þínum. Ég mun kveðja þig með söknuði, en minnast þín í gleði, elsku amma mín. Herdís. Elsku amma mín, það er með miklum trega sem ég kveð þig nú í síðasta skipti. Á þessari stundu er margt sem kemur upp í huga minn, því að margar voru okkar samverustundir. Fyrstu tvö ár ævi minnar bjuggum við í kjallaranum hjá þér, síðan þá hef ég verið með annan fótinn hjá þér, eða eins og þú sagðir ég á allavega litlutána þína Linda mín. Amma var einstök kona og hafði frá svo mörgu að segja, enda gengið í gegnum margt á sinni lífsleið. Amma var afbragðskona og mjög klár í höndunum, hún hekl- aði, prjónaði og saumaði alveg ein- stök verk og búum við sem eftir sitjum vel að. Margt væri hægt að skrifa um hana ömmu mína en minning hennar er ljós í lífi okkar. Kveð ég þig nú með þessum ljóð- línum. Þú varst amma mín, ég var stúlkan þín. Fann ég hlýja hönd hnýta ættarbönd. Hvar er höndin nú, hlýja, ást og trú? Hvar er brosið hýrt, hjarta tryggt og skýrt? Allt sem er og var, áfram verður þar geymt í hugans sjóð. Hverfist sorg í ljóð. Ósk mín, amma mín, er að ferðin þín heim í ljóssins lönd leysi þrautar bönd. Vertu kærast kvödd. Kallar nú sú rödd ljóss er lýtur vald. Lífsins fellur tjald. (R.S.E.) Kveðja, Linda. Elsku amma Guðný, nú ertu far- in frá okkur. Þú varst búin að vera veik svolítið lengi en nú líður þér vel. Það var gaman að geta verið með þér á afmælisdaginn þinn þegar þú varðst 80 ára 29. apríl síðastliðinn, þú áttir svo góðan dag með okkur öllum. Við eigum marg- ar og góðar minningar um þig, elsku amma, alla sokkana, vett- lingana og peysurnar sem þú prjónaðir á okkur og margt fleira. Við eigum eftir að sakna þín, þakka þér fyrir allt. Kveðja, Jórunn og Herdís. Í dag verður elskuleg tengda- mamma mín borin til grafar. Guðný vann ýmis störf á sínum yngri árum, sem matráðskona hjá Vegagerðinni og aðstoðarstúlka á heimilum eins og algengt var í þá daga. Árið 1949, þá 28 ára, kynntist hún Kristjáni og hóf stuttu síðar búskap á Rafnkelsstöðum í Garði hjá tengdaforeldrum sínum. Þar voru þau fyrstu 2-3 árin. Þá fluttu þau og bjuggu í Ásgarði, síðar nefnt Njarðvíkurbraut 30 í Innri Njarðvík, sem þau keyptu, en for- eldrar Guðnýjar bjuggu á neðri hæðinni. Guðný var rúmlega fer- tug þegar Kristján lést 45 ára að aldri, var hún þá ein með drengina og aldraða móður sem studdi hana eftir megni, en hún lést 1966. Þá varð Bjartur bróðir haldreipið sem hún treysti á, en það varð skamm- vinnt því hann lést 1967. Tengda- fólk Guðnýjar reyndist henni oft betra en enginn. En Guðný var af- skaplega stolt kona og vildi helst bjarga sér sjálf og vera ekki upp á aðra komin, enda var hún dugnað- arforkur og ósérhlífin. Hún vann við verslunarstörf og fiskvinnslu, auk þess var hún með hænsni og kindur sem þurfti að gefa fyrir vinnutíma ásamt heimilinu. Í frí- stundum sem voru fáar í þá daga var því unnið langt fram á nótt og flesta helga daga. Seinna vann hún í þvottahúsinu á Keflavíkurflug- velli og síðast hjá Íslenskum að- alverktökum en þar vann Már einnig. Síðustu ár Más var hann oft mikið veikur vegna sykursýk- innar, sem hann fékk þegar hann var 7 ára, þá var gott að vinna með skilningsríku fólki. Már gerði það ekki endasleppt, hann með sinn einstaka vonarneista um bata reisti glæsilegt einbýlishús fyrir sig og Guðnýju, en honum endist ekki aldur til að ljúka því, en Guðný kláraði það og flutti inn sumarið 1984 og bjó þar til hinstu stundar. Að lokum vil ég þakka allar ferðirnar sem við fórum í saman, bæði stuttar og langar, allan fróð- leikinn sem hún miðlaði til mín og stelpnanna minna því hún þekkti svo til allra bæja og kennileita í kringum landið frá því hún var ung. Dugnaður Guðnýjar verður seint metinn sem skyldi. Ég þakka allt sem hún gerði fyrir mig og mína og votta öðrum aðstandend- um samúð mína. Elísabet G. Einarsdóttir. GUÐNÝ KJARTANSDÓTTIR Ég minnist þín, Kata, sem konu, sem hægt var að líta upp til. Þú varst ætíð svo góð við allt og alla. Ég hlakkaði ávallt til að koma til þín, því þú varst svo góð og hjartahlý manneskja, og gleðin KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR ✝ Katrín Ólafsdótt-ir fæddist 27. mars 1951 á Melstað í Glerárþorpi. Hún lést föstudaginn 25. maí síðastliðinn á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi og fór útför hennar fram frá Víðistaða- kirkju 1. júní. skein úr augum þín- um.. En þótt þú værir veik þá léstu það ekki hindra þig í að gera það sem að þú vildir. Þegar þú varst ná- lægt eða að nálgast þá lífgaðist allt, og allir biðu eftir að sjá þig, þú hélst lífi í öllu, þótt það væru bara hlutir. Þú átt stað í hjarta okkar allra enda áttu það vel skilið. Megi Guð geyma ástvini þína en þó sérstak- lega Stefán, Eirík, Ólaf og Helga. Takk fyrir allt. Þín frænka. Sólrún Dögg Jónsdóttir. Ég man svo vel þeg- ar ég hitti Hjörtínu í fyrsta sinn. Hún tók mér og minni fjölskyldu opnum örmum, svo hlýleg og góð. Þær voru margar góðu stundirnar á Hólaveginum og alltaf var hún reiðubúin að aðstoða ef á þurfti að halda. Hún var alveg einstaklega lag- hent og gerði allt af svo miklum myndarskap og voru til dæmis sumarblómin hennar þau falleg- ustu sem ég hef séð. ✝ Hjörtína Ingi-björg Steinþórs- dóttir fæddist 1. október 1940 á Þverá í Akrahreppi. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Sauðár- króks miðvikudag- inn 23. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Sauðárkróks- kirkju 2. júní. Þrátt fyrir mikil og erfið veikindi var Hjörtína glaðlynd og jákvæð, alltaf bros- andi og hlæjandi og tók öllum vel. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Hjörtínu og allri hennar hjart- hlýju. Sakna ég henn- ar nú sárt. En góðu minningarnar lifa og verma mér um hjarta- ræturnar. Ég kveð góða tengdamömmu og vin- konu með kæru þakk- læti fyrir allt. Guð blessi minningu hennar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér (H. Pétursson.) Guðrún Olga Baldvinsdóttir. HJÖRTÍNA INGIBJÖRG STEINÞÓRSDÓTTIR Valdís Tómasdóttir Caltagirone, eða Didda frænka, hefur kvatt okkur eftir langa baráttu við krabbamein. Vin- átta mín og Diddu er órjúfanlega tengd stórheimilinu á Brúarlandi í Mosfellssveit, þar sem við áttum, ásamt systkinum okkar, griðastað fram eftir unglingsárum og vísa vináttu og hlýhug Kristínar og Lárusar og barnanna þeirra átta. Eftir því sem árin líða finnast mér Brúarlandsárin merkilegri fyrir þá sök að þar var alltaf pláss fyrir ættingja og vinafólk sem af ein- hverjum ástæðum skorti heimili eða festu í líf sitt. Þessi ár voru ✝ Valdís SalvörTómasdóttir Caltagirone (Didda) fæddist á Hólum í Hjaltadal 13. júní 1928. Hún lést í Landspítalanum við Hringbraut 25. maí síðastliðinn. Fór útför hennar fram frá Grensás- kirkju 1. júní. líka ævintýralega skemmtileg. Mosfellssystkinun- um, þar á meðal mæðrum okkar Diddu, fylgdi oft mikil hlýja, gleði og söngur. Didda var einmitt þeirrar gerðar, frá henni streymdi hlýja og kátína, andlit hennar ljómaði ef henni leið vel eða fannst gaman. Við hittumst á nokkurra ára fresti meðan hún bjó í Bandaríkjunum, en alltaf birtist sama skemmtilega frænkan þótt aldur- inn færðist yfir. Þegar Didda kom svo alkomin heim eftir að hún varð ekkja, gladdi það móður mína mjög mik- ið. Þær hittust oft og áttu gott skap saman og glöddust saman. Fyrir þá vináttu alla vil ég þakka og bið forsjónina að láta vel að Birni Björgvinssyni, sambýlis- manni Diddu, börnum hennar og barnabörnum sem öll eru búsett í henni stóru Ameríku. Sigurjón Jóhannsson. VALDÍS S. TÓMASDÓTTIR CALTAGIRONE < "$   "' *   !       *  "        "       '   % 1 4)-+1 6E 0)#/ 9 $  )" ! # #(- " 9% /- ) ( !  !!  /  !#B!) **4 " ***4                             ! "# $%&&  "# ( #&  !)   ! * )% "+ ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.