Morgunblaðið - 06.06.2001, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 06.06.2001, Qupperneq 59
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 59 SPARISJÓÐUR Kópavogs var með fjármálafræðslu fyrir nemendur 10. bekkja í Kópavogi, en slík námskeið hefur SPK haldið undanfarin ár. Flestallir bekkir mættu með kenn- urum sínum og sýndu þau mikinn áhuga á efninu og spurðu mikið. Að sögn Hildar Grétarsdóttur, mark- aðsstjóra SPK, er markmiðið með þessum námskeiðum að fræða krakkana um það hversu mikilvægt það er að spara og eyða ekki um efni fram, hvað það er dýrt að taka lán, og hvað það þýðir að skrifa nafn sitt sem ábyrgðarmaður eða vottur. Far- ið er í gegnum hvaða möguleika þau hafa nú þegar þau eru að komast á framhaldsskólastig og hvert þau geta leitað ef spurningar vakna um hin ýmsu mál tengd fjármálum. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og spurðu margs. SPK stuðlar að bættri fjármála- fræðslu í Kópavogi ÁRLEG handverkssala iðjuþjálfun- ar geðdeildar Landspítala – há- skólasjúkrahúss verður fimmtudag- inn 7. júní kl: 12:00 til 15:30. Sumarsalan er haldin fyrsta fimmtudag í júní ár hvert í anddyri geðdeildarhússins við Eiríksgötu. Selt er handverk sem unnið hefur verið af skjólstæðingum iðjuþjálfun- ar geðdeildarinnar. Jafnframt er hægt að kaupa kaffi og meðlæti. Ágóðanum er varið á ýmsan hátt í þágu sjúklinga. Þessi viðburður hef- ur notið vinsælda undanfarin ár, enda margt góðra muna í boði. Handverkssala iðjuþjálfunar SEXTÁN hlutu málningarstyrki Hörpu hf. til umhverfis- og menn- ingarverkefna víðsvegar um land- ið í ár og var styrkjunum úthlut- að í Dillons-húsi í Árbæjarsafni fyrir stuttu. Með þeirri úthlutun hafa um 60 aðilar hlotið um 10.000 lítra af málningu frá Hörpu undanfarin fjögur ár. Að sögn Helga Magnússonar, framkvæmdastjóra Hörpu, hóf fyrirtækið að veita málning- arstyrki í þeim tilgangi að auð- velda ýmsum aðilum að fegra og viðhalda mikilvægum mann- virkjum. Fengu 100 umsóknir í ár „Við fengum um 100 umsóknir í ár, sem er svipað og hefur verið undanfarið ár, og völdum 16 úr þeim hópi. Á þessum fjórum árum höfum við því ráðstafað 2.500 lítr- um á hverju ári sem gerir 10.000 lítra samtals,“ segir Helgi. Staðarkirkja í Grunnavík í Jök- ulfjörðum fékk styrk í annað sinn og hefur slíkt ekki gerst áður. Að sögn Helga fannst mönnum þar á bæ hugmyndin góð og féllu alveg kylliflatir fyrir henni. Það var Páll Halldór Guðmundsson, fyrr- um málarameistari í Reykjavík, sem veitti styrknum viðtöku en Páll ólst upp í Grunnavík til 18 ára aldurs. Verkefni sem hlutu málningar- styrk að þessu sinni eru: Stofnun Sigurðar Nordals, Reykjavík, Skólastræti 5, Reykjavík, Styrkt- arfélag lamaðra og fatlaðra, Breiðabólstaðarkirkja í Vestur- hópi, Húnaþingi, Græna húsið ehf., Siglufirði, Krabbameinsfélag Íslands, Hólsgerði í Eyjafjarð- arsveit, Sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi, Brimilsvallakirkja, Ólafsvík, Hlíð, Núpi í Dýrafirði, Ferðaþjónustan í Syðra-Lang- holti, Hrunamannahreppi, Hand- verkshópurinn Gallerí Grúsk, Grundarfirði, Breiðavík við Látrabjarg, Hafnarstræti 86, Ak- ureyri, Gallerí Sól vegna Sólbergs í Grímsey og Staðarkirkja í Grunnavík, Jökulfjörðum. Harpa veitir málningarstyrki til að endurbæta mannvirki 10.000 lítrar á fjórum árum Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Málningarstyrkur Hörpu afhentur í Dillonshúsi, Árbæjarsafni. Helgi Magnússon framkvæmdastjóri í miðju. SKAPAST hefur hefð fyrir því ann- að hvert ár að öll leikskólabörn í Hafnarfirði safnast saman, ásamt starfsfólki leikskólanna, á Víðistaða- túninu. Hátíðin verður að þessu sinni haldin á morgun, fimmtudag, 7. júní. Gengið verður fylktu liði, í skrúð- göngu, frá leikskólanum Víðivöllum um kl. 10:00, undir fánum leikskól- anna og tónlist sem leikin er af bíl- palli, sem fer fyrir skrúðgöngunni. Börnin og starfsfólkið hafa útbúið sér búninga og hljóðfæri í tilefni dagsins. Á túninu verða sungin lög við texta sem dreift var í alla leik- skólana, svo börnin gætu æft sig fyrir hátíðina. „Poppararnir á Hörðuvöllum“ sjá um undirleik. Olíufélögin hafa lánað gasgrill þannig að hægt verður að grilla há- degismatinn, áður en hver heldur til síns heima/leikskóla um kl.13. Leikskólahátíð í Hafnarfirði NÝMS-félagar í MS-félagi Íslands. Ungir og nýgreindir MS-félagar hittast miðvikudagskvöldið 6. júní n.k. kl: 20:30 í MS heimilinu Sléttu- vegi 5. Rætt verður um greiningu á MS sjúkdómnum og þann stuðning sem æskilegt er að félagið veiti þeim sem greinast og fjölskyldum þeirra. Á staðnum verða læknir, sálfræð- ingur og svo við /þið sem höfum verið lengi/stutt með þennan sjúkdóm og getum miðlað reynslu hvert til ann- ars. Kaffi og kex í boði. MS-félagar hittast í kvöld ♦ ♦ ♦ B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8 w w w . b u s e t i . i s Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði! Umsóknarfrestur til 12. júní, kl. 16.00 Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða. Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 13. júní kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns. 3ja herb. Miðholt 3, Hafnarfirði 90m2 íbúð, 202 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.054.818 Búsetugjald kr. 42.608 Afhending fljótlega Berjarimi 1, Reykjavík 72m2 íbúð, 201 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.417.957 Búsetugjald kr. 41.945 Afhending júlí/ágúst NÝTT HÚS - NÝTT HÚS - NÝTT HÚS - NÝTT HÚS - NÝTT KRISTNIBRAUT 65 - 67 Grafarholti, 113 Reykjavík Umsóknarfrestur til 18. júní nk. Sex 4ra herbergja, 110,2-110,7m2. Búseturéttur frá kr. 2.117.614 til 2.129.144. Búsetugjald frá kr. 87.385 til 87.847 Tólf 3ja herbergja, 83,7m2 til 93,7m2 Búseturéttur frá kr. 1.608.388 til 1.800.548. Búsetugjald frá kr. 66.988 til kr. 74.684 Áætluð afhending íbúðanna er í maí 2002 búðirnar eru allar með almennum lánum Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 20. júní, kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns. 1 herb. 4ra herb. Miðholt 13, Mosfellsbæ 37m2 íbúð, 102 Alm.lán Búseturéttur kr. 654.622 Búsetugjald kr. 26.701 Afhending í september Eiðismýri 22, Seltjarnarnesi 96m2 íbúð,302 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.784.295 Búsetugjald kr. 52.801 Afhending nóv/des Íbúðir á almennum lánum veita rétt til vaxtabóta Íbúðir á leiguíb.lánum veita rétt til húsaleigubóta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.